Fleiri fréttir

Stal viðskiptaforriti Goldman Sachs

Fyrrum starfsmaður fjárfestingabankans Goldman Sachs gæti orsakað gríðarlegt tap hjá bankanum þar sem hann stal mikilvægum viðskiptahugbúnaði í eigu bankans. Bankinn gæti hugsanlega tapað hundruðum milljóna króna komist gögnin ekki aftur í vörslu bankans.

Veitingahúsaveldi Gordons Ramsay var á barmi gjaldþrots

Veitingahúsaveldi ofurkokksins og Íslandsvinarins Gordons Ramsay riðaði á barmi gjaldþrots í vor. Ramsay neyddist til að skjóta töluverðum upphæðum af persónulegum auðæfum sínum inn í reksturinn til að halda honum á floti.

Yfir 50 bankar í Bandaríkjunum orðnir gjaldþrota í ár

Tala þeirra banka í Bandaríkjunum sem orðið hafa gjaldþrota í ár nemur nú 52 eftir að sjö bankar lýstu sig gjaldþrota í síðustu viku. Þetta eru meir en helmingi fleiri bankagjaldþrot vestan hafs í ár en á öllu árinu í fyrra.

Kaupþing fékk greidda 4 milljarða frá JJB Sports

Kaupþing hefur fengið greitt 20 milljón punda lán, eða rúmlega 4 milljarða kr., frá bresku sportvöruverslanakeðjunni JJB Sports og er þar með komið að mestu út úr rekstri keðjunnar.

Lloyds og RBS verða ekki seldir í bráð

Stjórnendur eignarumsýslufélagsins sem fer með hlut breska ríkisins í Royal Bank of Scotland og Lloyds segir að hlutur hins opinbera í bankanum verði ekki seldur í bráð.

FIH bankinn fær danska ríkisábyrgð að 1.200 milljörðum

FIH bankinn í Danmörku, sem nú er í eigu íslenska ríkisins, hefur fengið ríkisábyrgð frá danska ríkinu. Danska fjármálaeftirlitið tilkynnti þetta í dag en um er að ræða rammasamning upp á allt að 50 milljarða danskra kr. eða um 1.200 milljarða kr.

Svikahrappur olli háu olíuverði

Olíuverð náði óvænt hámarki á þessu ári síðastliðinn þriðjudag. Ástæðan er rakin til mikilla kaupa olíumiðlara á svarta gullinu. Viðskipti miðlarans eru talin ólögleg og hafa verið tilkynnt til breskra og bandarískra yfirvalda.

Rio Tinto lýkur einni stærstu hlutafjáraukningu sögunnar

Námurisinn Rio Tinto, sem m.a. rekur álverið í Straumsvík, lauk í dag við eina stærstu hlutfjáraukningu sögunnar. Alls voru rúmlega 15 milljarðar dollara, eða tæplega 1.900 milljarða kr., í boði og keyptu núverandi hluthafar félagsins í Bretlandi og Ástralíu nær allt þetta magn.

Danskt félag Björgólfs Thors í miklum vandræðum

Eignarhaldsfélagið SG Nord Holding sem er að hálfu í eigu Björgólfs Thors Björgólfssonar er í miklum vandræðum að því er segir í viðskiptablaðinu Börsen. Helsta eign SG Nord Holding er 30% hlutur í fasteignafélaginu Sjælsö Gruppen.

Gunnar Sigurðsson stjórnarformaður Hamleys eftir uppstokkun

Gunnar Sigurðsson fyrrum forstjóri Baugs í Bretlandi var kjörinn stjórnarformaður leikfangaverslunarkeðjunnar Hamleys eftir uppstokkun í stjórninni. Skilanefnd Landsbankans fer nú með 63,7% hlut í Hamleys en sá hlutur var áður í eigu Baugs.

Vændishús tapa á kreppunni

Enginn í viðskiptaheiminum hefur komist óskaddaður frá fjármálakreppunni sem hófst á síðasta ári. Það á einnig við um klámiðnaðinn en Nevada ríki í Bandaríkjunum er þekkt fyrir sín lögleiddu vændishús. Nú eru karlmenn meira að segja farnir að halda að sér höndum þegar kemur að kynlífi.

Sterlingspundið í alvarlegri krísu

„Það eru rúmlega 30% líkur á að Sterlingspundið lendi í alvarlegri krísu og líkurnar á verulegum skattaundanskotum og minnkandi einkaneyslu eru nánast 100%“, er haft eftir Niall Ferguson, virtum breskum prófessor í hagsögu, sem lokið hefur prófi frá Harvard háskólanum í Bandaríkjunum.

Seðlabanki Svíþjóðar refsar bönkum fyrir að lána ekki

Seðlabanki Svíþjóðar (Riksbanken) ákvað í morgun að innlánsvextir sínir yrðu mínus 0,25%. Þannig ætlar hann að hvetja banka landsins til að veita meira af lánsfé út til almennings og atvinnulífs landsins og refsa þeim fyrir að geyma fé sitt inn á reikningum Riksbanken.

Gengið frá sölu Straums á eQ bankanum í Finnlandi

Í dag var endanlega gengið frá sölu Straums á eQ netbankanum í Finnlandi til Nordnet Bank AB. Hvorki samkeppnis- né fjármálaeftirlit Finnlands gerðu athugasemd við söluna en tilkynnt var um hana í maímánuði s.l.

Bill Clinton vinur og ráðgjafi nýs eigenda að Eimskip

Bill Clinton fyrrum forseti Bandaríkjanna var einn af nánustu vinum og ráðgjöfum Ronald Burkle sem á eignarhaldsfélagið Yucaipa Companies sem nú eignast 32% í nýju Eimskipi. Raunar hefur Hillary Clinton einnig verið á mála hjá Burkle.

Sjá næstu 50 fréttir