Fleiri fréttir

FIH bankinn fékk 45 milljarða lán í dag

FIH bankinn danski, sem nú er í eigu Íslands, fékk í dag lán frá dönskum stjórnvöldum upp á 1,9 milljarð danskra kr. eða um 45 milljarða kr. Um er að ræða lánveitingu úr svokölluðum bankpakke II.

Eva Joly vill koma Barroso úr embætti sínu hjá ESB

Norsk/franski spillingarbaninn Eva Joly segir að fyrsta verk flokks hennar á Evrópuþinginu verði að koma í veg fyrir að José Manuel Barroso verði endurkjörinn sem leiðtogi framkvæmdanefndar ESB. „Hann hefur komið fram með fleiri heimskar tilskipanir,“ segir Joly í samtali við vefsíðuna e24.no.

Besti einkabanki Evrópu - Margir Íslendingar í viðskiptum

Norræni viðskiptabankinn Nordea var valinn besti bankinn í Evrópu á sviði einkabankaþjónustu í könnun MyPrivateBanking.com. Tveir Íslendingar starfa hjá bankanum og margir Íslendingar eru í viðskiptum við bankann í Lúxemborg.

Launin voru meir en hálft tonn að þyngd

Tvær rússneskar konur urðu fyrir óþægilegri lífreynslu þegar forstjóri þeirra ákvað að gera upp lokalaunagreiðslur þeirra í mynt. Í heild vógu launin yfir hálft tonn.

Putin lokar öllum spilavítum í Rússlandi

Það stefnir í stærstu uppsagnabylgju á síðari tímum í Rússlandi á miðvikudag en þá á að loka öllum spilavítum landsins að skipun Vladimir Putin forsætisráðherra. Þessar lokanir eru liður í herferð Putin gegn siðferðisglæpum í Rússlandi.

Sjælsö Gruppen með góða sölu í Noregi upp á 3,5 milljarða

Danska fasteignafélagið Sjæsö Gruppen hefur selt þrjá verslunarkjarna í Noregi í gegnum dótturfélag sitt þar. Alls fengust 175 milljónir norskra kr. fyrir eignirnar eða rétt tæpir 3,5 milljarðar kr., og kalla danskir fjölmiðlar þetta góða sölu hjá Sjælsö.

Volkswagen þrýstir á Porsche

Samrunaviðræðum þýsku bílaframleiðandanna Volkswagen og Porsche verður hætt, að minnsta kosti tímabundið, gangi Porsche ekki að tilboði Volkswagen fyrir morgundaginn. Samrunaviðræðurnar hófust um miðjan maí.

Nýr björgunarpakki hugsanlega settur saman

Háttsettur embættismaður í Hvíta húsinu segir að vel komi til greina að settur verði saman nýr björgunarpakki til að styrkja bandarískan efnahags. Bandaríkjaþing samþykkti um miðjan febrúar aðgerðapakka sem metinn var á tæpa 790 milljarða dollara eða sem nemur um 90 þúsund milljörðum íslenskra króna.

Iceland er 13. stærsta einkafélag Bretlandseyja

Verslunarkeðjan Iceland er 13. stærsta einkafélag Bretlandseyja samkvæmt nýjum Topp Track 100 lista Sunday Times/Deloitte sem birtur er í dag. Landsbankinn fer nú með tæplega 14% hlut í Iceland sem var áður í eigu Baugs.

Samstarfsfélag Símans í Bretlandi skráð á markað

Daisy Communications, samstarfsfélag Símans í Bretlandi verður skráð á AIM markaðinn í London á næstunni, jafnvel strax í þessari viku. Talið er að skráningin skili 200 milljónum punda eða um 42 milljörðum kr. Daisy og Síminn reka í sameiningu félagið Daisy Mobile á breska fjarskiptamarkaðinum.

Sérfræðingar gáttaðir á verðþróun á áli

Sérfræðingar í álviðskiptum eru gáttaðir á verðþróuninni á áli að undanförnu. Um miðja síðustu viku tók álverðið mikla dýfu og fór undir 1600 dollara markið. Á föstudaginn var, eða tveimur dögum síðar, var það svo komið upp í tæpa 1670 dollara á tonnið.

Milljarðaeignir Madoffs gerðar upptækar

Dómstóll í Bandaríkjunum hefur úrskurðað að eignir fjárfestingarfélags fjársvikamannsins Bernards Madoffs verði gerðar upptækar. Eignir félagsins eru metnar á rúmlega 170 milljarða dollara en upphæðin samsvarar til rúmlega 22 þúsund milljarða íslenskra króna.

Hádegisverður með Buffet ódýrari en áður

Hádegisverður með auðkýfingnum Warren Buffett er fimmtungi ódýrari nú enn fyrir ári síðan ef eitthvað er að marka árlegt uppboð sem haldið í góðgerðarskyni. Hádegisverður með Buffet fór á rúmlega 1,7 milljón dollara eða 217 milljónir króna samanborið við 2,2 milljón dollara í fyrra en það var áður en fjármálakreppan skall á af fullum þunga.

Hagnaður Smith & Wesson meir en tvöfaldast

Vopnaframleiðandinn Smith & Wesson meir en tvöfaldaði hagnað sinn á fyrsta ársfjórðungi ársins m.v. við sama tímabil í fyrra. Fór hagnaðurinn úr 3,3 milljónum dollara í fyrra og í 7,4 dollara í ár eða í tæpan milljarð kr.

Eik Banki fær lán frá dönskum stjórnvöldum

Eik Banki Denmark A/S, sem er dótturfélag Eik Banki í Færeyjum og stærsti netbanki Danmerkur, mun fá tæplega 300 milljón danskra kr., eða 7,2 milljarða kr. lán frá dönskum stjórnvöldum.

Seðlabanki sakaður um að þvinga banka saman

Bandaríski seðlabankinn er sakaður um að hafa setið á upplýsingum um bága fjárhagsstöðu bandaríska fjárfestingarbankans Merrill Lynch þegar samþykkt var að selja hann í miklum hremmingum á fjármálamörkuðum til Bank of America í september á síðasta ári.

Efnahagsbati í Simbabve

Hagkerfi Simbabve hefur snúið aftur úr táradal síðustu ára. Dregið hefur hratt úr atvinnuleysi, sem mældist 94 prósent í febrúar, og framleiðni hefur tvöfaldast. Þá hafa stjórnvöld náð taki á verðbólgudraugnum og er stefnt að því að snúa hann niður. Þetta segir Elton Mangoma, viðskiptaráðherra Simbabve.

Gjaldmiðlaskiptasamningar fram á næsta ár

Bandaríski seðlabankinn framlengdi í gær gjaldeyris­skiptasamninga við þrettán seðlabanka víða um heim fram til febrúar á næsta ári. Samningarnir, sem fyrst voru gerðir síðasta haust í gerningaveðri á fjármagnsmörkuðum, áttu að renna út í október.

H&M hristi kreppuna af sér

Sænska verslanakeðjan H&M hagnaðist um 4,19 milljarða sænskra króna, jafnvirði rúmra 83 milljarða íslenskra, á öðrum ársfjórðungi. Þetta er 6,3 prósenta aukning frá í fyrra og þykir skjóta nokkuð skökku við í þeim efnahagsþrengingum sem plagað hafa heiminn.

Icesave eykur við sérfræðinám í Bretlandi

Icesave klúðrið hefur valdið því að breska endurskoðunarfyrirtækið Chartered Institute of Public Finance & Accounting eða CIPFA og Samtök fjármálastjóra fyrirtækja (ACT) í Bretlandi hafa ákveðið að auka við sérfræðinám í alþjóðlegri fjármálastjórnun.

Hinir ofurríku tapa mest á fjármálakreppunni

Fjöldi ofurríkra einstaklinga hefur minnkað um fjórðung í fjármálakreppunni og þar með hefur dregið úr sannleika kenningarinnar um að hinir ríku haldi betur á fjármunum sínum en aðrir.

Samsæriskenningar grassera kringum skuldabréfasmygl

Að hvaða niðurstöðu kemstu þegar þú blandar saman tveimur japönskum ríkisborgurum með fölsuð bandarísk ríkisskuldabréf, hægfara farþegarlest á leið til Sviss og meðlimum í fjármálalögreglu Ítalíu?

Tvö erfið ár fram undan hjá Toyota

Nýr forstjóri Toyota-bílaverksmiðjanna japönsku, Akio Toyoda, segir tvö mjög erfið ár fram undan hjá fyrirtækinu. Toyoda er barnabarn stofnanda bílaverksmiðjanna og hélt sinn fyrsta blaðamannafund sem forstjóri í gær.

Óbreyttir vextir

Seðlabanki Bandaríkjanna ákvað að halda stýrivöxtum óbreyttum á fundi sínum í gær.

Fjárfestir vill meiri efnahagshvata

Fjárfestirinn Warren Buffett segir stjórnvöld í Bandaríkjunum verða að kasta öðrum björgunarhring til efnahagslífsins. Gerist það ekki megi búast við að fjármálakerfið taki dýfu í annað sinn.

Umræður um Icesave á hollenska þinginu

Utandagskrárumræður um Icesave standa nú yfir í hollenska þinginu en hópur af fyrrum innistæðueigendum Icesave hefur krafist þess að fá innistæður sínar greiddar að fullu. Þessi hópur segir að handvömm fjármálaeftirlita Íslands og Hollands eigi ekki að bitna á þeim.

Dollaramilljónamæringum fækkar um 15% í heiminum

Einstaklingum sem eiga meir en eina milljón dollara í persónulegum auðæfum fækkar um tæp 15% í ár miðað við árið í fyrra. Þeir eru nú 8,6 milljónir talsins. Þetta eru niðurstöður árlegrar úttektar á vegum Capgemini/Merrill Lynch sem birt er í dag.

Betri tíð í spilunum

Alþjóðabankinn spáir samdrætti upp á 2,9 prósent á heimsvísu á þessu ári. Á næstu tveimur árum snúi til betri vegar og muni hagvöxtur nema 3,2 prósentum árið 2011.

Er vefsíðan mín góð eða slæm?

Ein af skemmtilegri vefsíðum netheima er www.webpagesthatsuck.com, þar sem farið er yfir vefsíður sem eru afar illa hannaðar og þær metnar. Þar segir meðal annars um fyrstu mánuði þessa árs, að „þetta virðist ætla að verða gott ár fyrir slæma vefsíðuhönnun".

Óttast mengun á erfðavísum villtra þorska

Náttúruverndarsinnar óttast að aukning þorskeldis muni leiða til frekari flótta þorsks úr þorskeldum sem leiði til mengunar á erfðavísum villtra þorska. Náttúruverndarsinnar hafa komið þessum áhyggjum sínum á framfæri vegna mikillar aukningar þorskeldis í Evrópu.

Moody´s: Bandaríkin halda lánshæfiseinkunn AAA

Matsfyrirtækið Moody´s segir í nýju áliti að Bandaríkin muni halda AAA lánshæfiseinkunn sinni en bætir við að sú einkunn kunni að vera í hættu ef bandarískum stjórnvöldum tekst ekki að draga úr opinberum skuldum sínum.

Hagnaður NIB nam 16 milljörðum

Hagnaður Norræna fjárfestingarbankans á fyrsta ársfjórðungi ársins nam 91 milljón evra eða um 16 milljörðum kr.

Hvalaskoðun gefur meira af sér en hvalveiðar

Í nýrri skýrslu sem lögð hefur verið fram á ársfundi Alþjóðahvalveiðiráðsins (IWC) sem nú stendyr yfir segir að hvalaskoðun gefi nú af sér meiri tekjur á heimsvísu en hvalveiðar. Tekjur af hvalaskoðun nemi nú um 2,1 milljarði punda eða rúmlega 440 milljörðum kr. á ári.

Sjá næstu 50 fréttir