Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Hlutkesti réði ákvörðun um málshöfðun í lóðamáli Sigmars og Skúla Ákvörðun hluthafafundar félagsins Stemmu hf. um að selja fyrirtækinu FOX ehf. tvær lóðir á Hvolsvelli þar sem byggt var eldfjallasetur var til þess fallin að afla öðrum ótilhlýðilegra hagsmuna á kostnað hluthafa eða félagsins. 25.6.2018 14:00
Taldir hafa grætt um 61 milljón króna með svikum í Icelandair Innherjasvikamál fyrrverandi forstöðumanns leiðakerfisstjórnunar Icelandair, auk tveggja annarra, verður þingfest í vikunni. Talið er að brot mannanna hafi staðið yfir í rúmlega sextán mánuði. 25.6.2018 08:00
Jakob Frímann leitar á ný mið Miðborgarstjóri tekur við sem framkvæmdastjóri hjá ONE, nýju þróunarfélagi. 23.6.2018 08:15
Borga 8 milljarða króna fyrir að fá að baða sig í Bláa lóninu Tekjur Bláa lónsins af aðgangseyri í lónið jukust um 41 prósent í fyrra og námu næstum átta milljörðum króna. Hluthafar fá greidda tvo milljarða í arð. Forstjórinn segir ekki útilokað að farið verði að huga betur að skráningu fyrirtækisins á markað, jafnvel erlendis. 23.6.2018 07:15
Keahótel kaupir Hótel Kötlu Keahótel ehf. hefur gengið frá kaupum á Hótel Kötlu við Vík í Mýrdal en hótelið verður áfram rekið undir sama nafni og mun reksturinn að mestu leyti haldast óbreyttur. 22.6.2018 16:52
Tollastríð ESB og Bandaríkjanna mun ekki bitna á innflutningi til Íslands Sú ákvörðun Evrópusambandsins að setja tolla á vörur frá Bandaríkjunum mun ekki hafa áhrif á verð á vörum sem fluttar eru frá Bandaríkjunum hingað til lands því Ísland stendur utan við tollabandalag Evrópusambandsins þótt það sé hluti af innri markaði sambandsins. 22.6.2018 12:15
Eiður Smári sendiherra veðmálasíðu á HM Landsliðsmaðurinn fyrrverandi er sérfræðingur hjá RÚV en bendir líka á tilboð hjá veðmálafyrirtæki. 22.6.2018 11:15
Skellt í lás á leikdegi Búast má við snemmbúnum lokuðum hjá ýmsum fyrirtækjum og stofnunum vegna leiks Íslands og Nígeríu í dag. En hvar verður skellt í lás fyrir klukkan 15? 22.6.2018 11:00
Kaupmáttur aukist um 4% Kaupmáttur launa hækkaði um 2,4 prósent í maí frá fyrri mánuði 22.6.2018 06:00
Sigmar segir sigurinn í dómsmálinu gegn Skúla vera súrsætan Sigmar Vilhjálmsson og félag hans Sjarmur og Garmur ehf. unnu í dag sigur í dómsmáli gegn Skúla Gunnari Skúlasyni og félaginu Stemmu, sem er í meirihlutaeigu Skúla. 21.6.2018 16:34
Vilhjálmur hættir sem forstjóri HB Granda og Guðmundur tekur við Meirihluti stjórnar HB Granda ákvað á fundi í dag að ganga til samninga við Vilhjálm Vilhjálmsson, forstjóra, um starfslok hans hjá félaginu 21.6.2018 16:18
Rannveig skipuð í embætti aðstoðarseðlabankastjóra Alls sóttu fjórtán um embættið sem auglýst var laust til umsóknar 21. febrúar síðastliðinn. 21.6.2018 15:48
Kári Arnór fær 24 milljónir eftir dóm Hæstaréttar Kári Arnór Kárason sagði upp störfum í apríl 2016 í kjölfar þess að upp komst um eignarhald hans í fyrirtækjum í skattaskjólum. 21.6.2018 15:43
Lending hagkerfisins verður mjúk eftir öran vöxt Greiningaraðilar spá mjúkri lendingu hagkerfisins eftir öran vöxt síðustu ára. Hrein erlend staða þjóðarbúsins er jákvæð og Ísland er því lánveitandi til útlanda í fyrsta skipti í langan tíma. Þjóðhagslegur sparnaður er hár og gjaldeyrisforði Seðlabankans er töluvert stærri en fyrir efnahagshrun. Þá er skuldastaða heimilanna mun betri en áður. 21.6.2018 15:00
Skila sér hraðar í aukinni verðbólgu Nefnd um ramma peningastefnunnar segir að vegna mæliaðferðar Hagstofunnar hafi snögg verðhækkun á húsnæði leitt til skammtímasveiflna í verðbólgu. Sveiflur á húsnæðisverði skili sér hraðar út í húsnæðisliðinn en sams konar sveiflur í Kanada og Svíþjóð. 21.6.2018 06:00
Lykilstjórnendur verða áfram hjá GAMMA Kvika hyggst kaupa GAMMA fyrir allt að 3,7 milljarða króna. Hluthafar GAMMA munu eignast þriggja til níu prósenta hlut í fjárfestingarbankanum. Óhjákvæmilegur hluti af kaupunum verður að hagræða í rekstri GAMMA. 21.6.2018 06:00
RÚV ekki stofnað dótturfélag um samkeppnisrekstur þrátt fyrir skýr lagafyrirmæli Ríkisútvarpið ohf. hefur látið hjá líða að stofna dótturfélag utan um samkeppnisrekstur sinn þrátt fyrir skýr lagafyrirmæli þar um en auglýsingasala RÚV á að vera í dótturfélagi. Menntamálaráðherra fundaði í gærmorgun með útvarpsstjóra vegna framgöngu RÚV á auglýsingamarkaði sem hefur verið harðlega gagnrýnd af einkareknum fjölmiðlum. 20.6.2018 18:30
Kvika tekur ekki starfsmannaleiguna og verktakastarfsemina Meðal þeirra eigna sem eru undanskildar í yfirtöku Kviku banka á Gamma eru Elja þjónustumiðstöð atvinnulífsins ehf. og Domus eignir slhf. og eignir sem tengjast verktakastarfsemi. 20.6.2018 17:00
Hægari vöxtur en áður í Airbnb hér á landi Tekjur af Airbnb-útleigu á Íslandi hafa vaxið hægar á fyrstu mánuðum ársins en á sama tímabili síðustu ár. 20.6.2018 14:52
Kvika banki að kaupa GAMMA Kvika banki hf. og hluthafar GAMMA Capital Management hf., betur þekkt sem GAMMA, hafa undirritað viljayfirlýsingu um kaup og sölu á öllu hlutafé GAMMA. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Kviku banka. 20.6.2018 09:39
Sáttaviðræðurnar fóru út um þúfur Sáttaviðræður Gamla Byrs og Íslandsbanka fóru út um þúfur. Of mikið ber á milli og telur stjórn Gamla Byrs "óraunsætt“ eins og sakir standa að deilendur nái sáttum. Stjórnin sakar bankann um að reyna að „þreyta“ kröfuhafa Byr 20.6.2018 08:00
Georg keypti íbúðir metnar á þrjá milljarða Georg Gíslason hefur keypt leigufélagið Velli 15 sem á um 180 íbúðir sem metnar eru á um þrjá milljarða í bókum félagsins. Seljendur voru ODT Ráðgjöf, sem er í eigu Ólafs D. Torfasonar, stofnanda Íslandshótela, með 58 prósenta hlut og Íslandshótel með 42 prósenta hlut, samkvæmt heimildum Markaðarins. 20.6.2018 07:00
Þorsteinn ráðinn framkvæmdastjóri Allianz Þorsteinn Egilsson, svæðisstjóri Icelandair fyrir Norður-Ameríku, hefur verið ráðinn framkvæmdastjóri Allianz á Íslandi. 20.6.2018 07:00
Bjóða allt hlutafé Íslenska gámafélagsins til sölu Hluthafar Íslenska gámafélagsins, eignarhaldsfélagið Gufunes og fagfjárfestasjóðurinn Auður I hafa ákveðið að bjóða til sölu allt hlutafé félagsins. 20.6.2018 06:00
Skiptastjóri hefur fengið 66,5 milljónir Sveinn Andri Sveinsson lögmaður fékk að meðaltali fjórar milljónir króna á mánuði í fyrra vegna starfa sinna fyrir þrotabú heildverslunar Eggerts Kristjánssonar. Hann segir að mikil vinna hafi farið í að rannsaka málið. 20.6.2018 06:00
Afkoma álversins í Straumsvík batnar Álver Rio Tinto Alcan í Straumsvík tapaði tæpum 393 þúsund dölum eða sem jafngildir 43 milljónum króna í fyrra, samkvæmt nýbirtum ársreikningi félagsins. 20.6.2018 06:00
Fyrsta konan til að gegna stöðu framkvæmdastjóra Bílgreinasambandsins María Jóna Magnúsdóttir hefur verið ráðin framkvæmdastjóri Bílgreinasambandsins en hún tekur við starfinu af Özuri Lárussyni sem lætur senn af störfum. 19.6.2018 14:56
Bankar loka snemma vegna leiks Íslands og Nígeríu Þetta kemur fram í tilkynningum frá bönkunum. 19.6.2018 13:20
Bestu auglýsingapláss RÚV seld í tugmilljóna króna pökkum Ríkisfjölmiðillinn er sakaður um að einoka auglýsingamarkaðinn í krafti stöðu sinnar og sýningarréttar á HM. Kynning á auglýsingapökkum RÚV sýna að Premium-auglýsingapakkar kostuðu að lágmarki 10 milljónir króna með bindingu um auglýsingar fram yfir HM. Kostnaður RÚV vegna HM áætlaður 220 milljónir. 19.6.2018 06:00
Of mikil áhersla á séreignarstefnu á íslenskum húsnæðismarkaði að mati hagfræðings Lífeyrissjóðir gætu gegnt lykilhlutverki í uppbyggingu leigumarkaðar hér á landi að sögn hagfræðings. Þá sé of rík áhersla á séreignarstefnu og þarf hugarfarsbreytingu til að útrýma fordómum gagnvart leigumarkaði. 18.6.2018 20:00
Lilja: Menn verða að fylgja leikreglum og vera sanngjarnir Lilja Alfreðsdóttir menntamálaráðherra hefur fengið margar athugasemdir inn á sitt borð vegna framgöngu RÚV á auglýsingamarkaði í tengslum við heimsmeistarakeppnina í fótbolta. 18.6.2018 16:15
Systkini opna mexíkóskan stað í Vesturbænum Systkinin Vigdís og Guðmundur opna mexíkóskan stað á Ægissíðunni. 18.6.2018 13:45
Segja RÚV misnota markaðsráðandi stöðu sína með framgöngu á auglýsingamarkaði Dagskrárstjóri sjónvarpsstöðvarinnar Hringbrautar sakar RÚV um að misnota markaðsráðandi stöðu sína á auglýsingamarkaði með sölu á sérstökum auglýsingapökkum fyrir HM í fótbolta og segir að stofnunin hagi sér eins og böðull. Hann segir að RÚV hafi ryksugað upp allt auglýsingafé með því að selja auglýsingar fyrir ótengda dagskrárliði samhliða sölu á auglýsingum fyrir HM. 18.6.2018 11:45
Íbúðafjárfesting er farin að taka við sér Störfum fjölgar mest í byggingariðnaði og mannvirkjagerð, eða um 1.600 störf. Samtök iðnaðarins segja íbúðafjárfestingu loks vera farna að taka við sér. Fjárfesting í íbúðabyggingum vex langtum meira en fjárfesting atvinnuvega og fjárfesting hins opinbera. 18.6.2018 07:00
Refsing eiganda Buy.is milduð Refsing Friðjóns Björgvins Gunnarssonar, sem var eigandi Buy.is, var milduð um tólf mánuði og tæpar fimmtíu milljónir í Landsrétti fyrir helgi. 18.6.2018 06:00
Google fagnar 17. júní Bandaríski tæknirisinn Google fagnar deginum í dag, Þjóðhátíðardegi Íslands, með því að birta íslenska fánann í hinu svokallaða Google-kroti, 17.6.2018 07:40
Splunkunýr Mandi opnaði dyr sínar á fyrsta leikdegi Íslands Veitingastaðurinn Mandi við Ingólfstorg opnaði aftur eftir framkvæmdir við mikinn fögnuð viðskiptavina í dag. Staðurinn hefur verið lokaður í rúman mánuð. 16.6.2018 21:15
Ísland fer alla leið á HM í draumauglýsingu Icelandair Hörður Björgvin Magnússon, bakvörður íslenska karlalandsliðsins, er í aðalhlutverki í nýrri auglýsingu Icelandair vegna HM sem frumsýnd var fyrir leik Íslands og Argentínu á HM í Rússlandi. 16.6.2018 13:53
Alls 2,8 milljarða króna velta í Stokkhólmi með bréf Arion banka Viðskiptin með hlutabréf í Arion banka fóru rólega af stað í Reykjavík en 61 viðskipti voru í Kauphöll Íslands í veltu sem nam 73 milljónum króna. Dagslokaverð var 88,8 sem þýðir 18,4 prósenta hækkun. 15.6.2018 16:30
Næststærsta skráning í sögu Kauphallar Íslands Hlutabréf Arion banka voru tekin til viðskipta samtímis í kauphöllunum á Reykjavík og Stokkhólmi í morgun. Skráning Arion banka er næststærsta skráning í sögu Kauphallar Íslands og fyrsta samhliða tvískráning á mörkuðum Nasdaq á Norðurlöndunum í meira en áratug. 15.6.2018 11:44
Icelandair-málið þingfest í júnílok Mál héraðssaksóknara gegn þremur mönnum í svokölluðu Icelandair-máli verður þingfest í Héraðsdómi Reykjavíkur þann 28. júní. 15.6.2018 06:00
Skiptastjóri verslana Víðis ætlar að selja vörur á hálfvirði Valdar verslanir opnar í dag og á morgun. 14.6.2018 15:01
Halla Tómasdóttir ráðin forstjóri B Team og flytur til New York Halla Tómasdóttir flytur með fjölskylduna til Bandaríkjanna fyrir draumastarfið. 14.6.2018 13:36
Byggja fjölbýlishús á sjö mánuðum Modulbyggingar ehf., Moelven ByggModul AS og þróunarfélagið Klasi ehf., hafa undirritað samning um byggingu fyrsta fjölbýlishússins á Íslandi sem byggt er með einingahúsaaðferðum Moelven í Noregi. 14.6.2018 08:08
Eftirlit með bönkum verði á einni hendi Starfshópur leggur til að ábyrgð á eftirliti með bönkum verði sameinað hjá Fjármálaeftirlitinu. Ekki sé skynsamlegt að eftirlit með lausu fé hjá bönkum sé á hendi Seðlabanka Íslands á meðan eftirlit með öðrum fyrirtækjum á fjármálamarkaði sé annars staðar. 14.6.2018 07:00