Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Eiginmaður 7 Margir áhugaverðir fyrirlesarar tóku til máls á málþingi um samfélagslega ábyrgð fyrirtækja í síðustu viku. Meðal þeirra var Jón Sigurðsson, forstjóri Össurar, sem sagði samfélagsleg gildi og hámarksarðsemi ekki endilega andstæður. Á endanum snerist þetta bara um "að vera góður strákur". 22.11.2006 06:00
Meiri samlegð af Newcastle Þegar fyrirtæki eru keypt er gjarnan bent á að hagræðing náist fram með samlegðar-áhrifum. Erfitt er að sjá slíkt fyrir sér í kaupum Björgólfs Guðmundssonar og Eggerts Magnússonar á West Ham. 22.11.2006 00:01
Löggild netkvittun hjá Atlantsolíu Atlantsolía tók á föstudag í síðustu viku í notkun nýja gerð kvittana sem fást þegar dælulykill fyrirtækisins er notaður. Dælan sendir kvittun fyrir eldsneytiskaupum sem PDF-skrá í viðhengi í tölvupósti og eru þær gildir reikningar í bókhaldi fyrirtækja og einstaklinga. 22.11.2006 00:01
Með sérsniðin viðskiptakerfi Hugbúnaðarfyrirtækið Merkur Point hefur þróað sérsniðin viðskiptakerfi fyrir verslanir sem eykur hraða og öryggi í afgreiðslu. Fyrirtækið vinnur að innleiðingu kerfisins hjá matsölustaðnum Nings og víðar. 22.11.2006 00:01
Verðlaun veitt fyrir afbragðs auglýsingar Nokkur fyrirtæki sem sýnt hafa afburða árangur í auglýsinga- og markaðsstarfi eiga gott í vændum næstkomandi föstudag. Í síðustu viku lágu dómarar EFFIE-keppninnar yfir innsendum tillögum að auglýsingum og herferðum sem þykja verðskulda lof. 22.11.2006 00:01
Fyrri til en danskurinn Í Berlinske Tidende um helgina var grein þar sem því var velt upp hverjir gætu verið hver úr Matador þáttunum dönsku sem nú er verið að endurgera. Einn Íslendingur kemst á blað þar sem kandidat í Mads Skjern, en það er Jón Ásgeir Jóhannesson. 22.11.2006 00:01
Moody’s staðfestir skuldabréfaútgáfu ríkissóðs Lánshæfisfyrirtækið Moody’s hefur gefið út lánshæfiseinkunn Aaa fyrir nýja skuldabréfaútgáfu ríkissjóðs Íslands til fimm ára að fjárhæð 1 milljarður evra eða 90,80 milljarða íslenskar krónur.Horfur fyrir lánshæfismatið eru stöðugar. 21.11.2006 09:34
Eigendur Olíufélagsins og Bílanausts sameina reksturinn Eigendur Olíufélagsins hf. og Bílanaust hf. hafa ákveðið að sameina rekstur félaganna snemma á næsta ári. Bæði félögin eru í fullri eigu BNT hf. 20.11.2006 14:23
365 hf. ekki skráð í vísitölu Kauphallar í dag Skipting Dagsbrúnar hf. í tvö félög, Teymi og 365 hf., sem samþykkt var á hluthafafundi félagsins sl. föstudag, veldur því að ekki er til viðskiptasaga fyrir 365 hf. í núverandi mynd. 365 hf. mun því ekki verða í hlutabréfavísitölum Kauphallarinnar í dag. Hlutir Teymis verða hins vegar skráðir í kauphöllina. 20.11.2006 10:06
SP-Fjármögnun - Eignarhaldsfélagið kaupir ráðandi hlut í Verði Eignarhaldsfélagið ehf. keypti í dag 98% hlutafjár í Verði Íslandstryggingu hf. Kaupin eru háð samþykki Fjármálaeftirlitsins um að kaupendur fari með ráðandi hlut í félaginu. Samhliða kaupunum mun Guðmundur Jóh. Jónsson verða ráðinn framkvæmdastjóri félagsins. 20.11.2006 10:01
Tvöfalda hagnaðinn Hagnaður fjárfestingafélagsins Atorku Group nam rúmum 555 milljónum króna á þriðja fjórðungi ársins samanborið við 224 milljónir á sama tíma í fyrra. Séu öll félög Atorku tekin með skilaði samstæðan 32,2 milljóna króna hagnaði á tímabilinu. Félagið skilar uppgjöri í tvennu lagi, móðurfélagi annars vegar og samtæðu hins vegar. 18.11.2006 07:15
Dagsbrún lýkur störfum Félaginu verður skipt upp í tvö skráð rekstrarfélög, 365 á sviði fjölmiðla og afþreyingar en Teymi á sviði upplýsingatækni og fjarskipta. Jón Ásgeir Jóhannesson er nýr stjórnarformaður 365 en Þórdís Sigurðardóttir fer fyrir stjórn Teymis. 18.11.2006 07:00
Hands Holding til starfa Sá hluti af fyrirtækjum innan gömlu Dagsbrúnar sem féll ekki að kjarnastarfsemi 365 og Teymis hefur verið settur í eignarhaldsfélagið Hands Holding sem fyrst kallaðist K2. Hluthafar félagsins eru Teymi, 365, Milestone og Straumur-Burðarás. Teymi er stærsti hluthafinn með hlut á bilinu 40-50 prósent. 18.11.2006 07:00
Peningaskápurinn ... Uppskipting Dagsbrúnar þýðir að Dagsbrúnarnafnið er á lausu, en ekki var laust við að einhverjir firrtust við þegar félagið tók sér nafnið sem áður prýddi Verkamannafélagið Dagsbrún, en það rann svo með fleirum inn í Eflingu. (Svo er náttúrlega til Ungmennafélagið Dagsbrún í Austur-Landeyjum.) 18.11.2006 07:00
Minna tap hjá Atlantic Petroleum Atlantic Petroleum tapaði 257,8 milljónum danskra króna eða um 3 milljörðum króna á þriðja fjórðungi ársins. Þetta er talsvert betri afkoma en fyrir ári þegar félagið tapaði 2,5 milljörðum danskra króna eða 30 milljörðum króna. 17.11.2006 16:47
Kaupþing spáir 7,1 prósents verðbólgu Greiningardeild Kaupþings spáir því í endurskoðaðri verðbólguspá sinni í dag að vísitala neysluverð hækki um 0,2 prósent í desember. Gangi spáin eftir fer 12 mánaða verðbólga hér á landi 7,1 prósent. Verðbólga mælist nú 7,3 prósent. 17.11.2006 14:36
Síminn fyrstur á Íslandi með WiMAX tækni Síminn býður viðskiptavinum sínum aðgang að samskiptaneti sem nýtir WiMAX tækni. Um er að ræða þráðlaust net sem hentar vel fyrir bandbreiðar Internetteningar. Nú þegar er þessi þjónustu í tilraunarekstri fyrir sumarhúsasvæði í Grímsnesi. Í tilkynningu segir að Síminn sé fyrst fyrirtækja á Íslandi til að bjóða upp á þessa tækni. 17.11.2006 13:41
Góð afkoma hjá Atorku Group Fjárfestingafélagið Atorka Group skilaði rúmlega 555 milljóna króna hagnaði á þriðja fjórðungi ársins samanborið við 224 milljóna króna hagnað á sama tíma í fyrra. Félagið skilar uppgjöri sínu í tvennu lagi: Uppgjöri móðurfélags og samtæðu Atorku Group. 17.11.2006 12:39
Íbúðaverð lækkar á höfuðborgarsvæðinu Íbúðaverð á höfuðborgarsvæðinu lækkaði um 2,2% á milli september og október. Þetta kemur fram í tölum sem Fasteignamat ríkisins birti í gær. Greiningardeild Glitnis segir í Morgunkorni sínu í dag að íbúðaverð hafi verið sveiflukennt að undanförnu, bæði hækkað og lækkað á víxl á milli mánaða. 17.11.2006 12:15
Stefnt að skráningu Teymis í Kauphöllina Stofnfundur fjarskipta- og upplýsingatæknifélagsins Teymis hf. var haldinn í morgun. Stefnt er að skráningu félagsins í Kauphöll Íslands. Stjórnarformaður félagsins er Þórdís J. Sigurðardóttir en forstjóri Teymis er Árni Pétur Jónsson. 17.11.2006 11:25
Framkvæmdastjóraskipti hjá Iceland Express Matthías Imsland hefur verið ráðinn framkvæmdastjóri Iceland Express. Matthías mun sinna starfinu tímabundið ásamt öðrum störfum fyrir eignarhaldsfélagið Fons ehf. Matthías er stjórnarformaður sænska ferðarisans Ticket og breska flugfélagsins Astreaus og situr hann einnig í ýmsum stjórnum stórfyrirtækja fyrir Fons ehf. 17.11.2006 10:52
Jón Ásgeir nýr stjórnarformaður 365 Ákveðið var á hluthafafundi Dagsbrúnar í dag að félaginu verði skipt upp í tvö félög: fjölmiðlahluta 365 og Teymi, sem snýr að upplýsingatækni- og fjarskiptahluta félagsins. Stjórnin hefur kosið formenn og verður Jón Ásgeir Jóhannesson stjórnarformaður fjölmiðlahlutans. 17.11.2006 09:52
Skipt um stjórnarformann í Icelandic Group Stjórnarformannsskipti hafa átt sér stað í Icelandic Group. Í tilkynningu frá félaginu segir, að í ljósi breytinga á eignaraðild að félaginu hafi Gunnlaugur S. Gunnlaugsson, stjórnarformaður, ákveðið eftir stjórnarfund í gær að láta af embætti. Nýr stjórnarformaður var kjörinn Magnús Þorsteinsson. 17.11.2006 09:50
Ná ekki væntingum Uppgjör Icelandic Group fyrir þriðja ársfjórðung var undir væntingum stjórnenda félagsins, þótt ýmsar aðgerðir sem gripið hefur verið til séu að byrja að bera árangur. Hagnaður nam 84 milljónum króna á þriðja ársfjórðungi en hagnaður fyrir afskriftir, vexti og skatta (EBITDA) 1.202 milljónum króna. 17.11.2006 07:00
Bankastjóri þiggur landbúnaðarstyrki Björn Wahlroos, þriðji ríkasti maður Finnlands og forstjóri fjármálasamsteypunnar Sampo Group, er einn stærsti þiggjandi landbúnaðarstyrkja frá finnskum stjórnvöldum samkvæmt upplýsingum sem Halikko, sveitarfélagið hans, lét finnska útvarpinu í té. 17.11.2006 06:45
Kaupa meira í HB Granda Kaupþing jók hlut sinn í HB Granda í 30,9 prósent í gær eftir að SJ1, dótturfélag Sjóvár, seldi bankanum rúmlega fimm prósenta hlut. Bankinn er enn þá annar stærsti hluthafinn í Granda á eftir Vogun sem fer með tæp 35 prósent. 17.11.2006 06:30
Dagsbrún gerir 1,5 milljarða króna varúðarfærslu Dagsbrún bókfærir tap af Wyndeham í varúðarfærslu og ætlar að selja félagið. Þetta kemur fram í afkomuviðvörun sem send var Kauphöll eftir lokun markaða í gær. Í dag á að ganga frá skiptingu félagsins og skipulagsbreytingum á fundi hluthafa. 17.11.2006 06:15
Flaga skilaði tapi Flaga Group tapaði 107.000 bandaríkjadölum eða 7,5 milljónum króna á þriðja fjórðungi ársins. Þetta nokkur viðsnúningur frá sama tíma í fyrra þegar félagið hagnaðist um 800.000 dali eða 56 milljónir króna. 16.11.2006 16:38
Sigurður Einarsson ræðir um skrif Ekstrablaðsins Sigurður Einarsson stjórnarformaður Kaupþings, hefur boðað til fundar með blaða- og fréttamönnum í húskynnum FIH bankans í Kaupmannahöfn í Danmörku á morgun. Tilefnið er útboð á nýjum hlutum í bankanum og skrif Ekstrablaðsins um bankann. 16.11.2006 16:21
Afkoma Alfesca yfir væntingum Matvælafyrirtækið Alfesca skilaði 1,8 milljóna evra tapi á síðasta rekstrarári, sem hófst í júlí í fyrra en lauk í enda júní. Þetta svarar til 161,6 milljóna íslenskra króna samanborið við 3,3 milljónir evra eða 296 milljóna króna tap í fyrra. Afkoman er nokkuð yfir væntingum greiningardeilda sem spáðu að tapið myndi nema rúmum 215 milljónum króna eða 2,4 milljónum evra. 16.11.2006 15:49
IP-netið endurnýjað Síminn hefur stækkað IP-net (internet protocol net) sitt verulega og býður nú enn öruggari og hraðari gagnaflutninga. 16.11.2006 07:30
Icelandair skilaði fjórum milljörðum: Stefnt að skráningu félagsins sjötta desember. Hagnaður Icelandair Group, sem stefnt verður á að skrá í Kauphöll Íslands hinn 6. desember, nam rúmum þremur milljörðum króna fyrir skatta á þriðja ársfjórðungi og tæpum fjórum milljörðum króna fyrir skatta á fyrstu níu mánuðum ársins. 16.11.2006 07:15
Metverð á fiskmarkaði Metverð fékkst fyrir kíló af fiski á mörkuðum landsins í síðustu viku. 1.332 tonn af fiski voru í boði og var meðalverðið 176,57 krónur á kíló sem er 19,83 krónum meira en vikuna á undan. Meðalverðið fyrir fisk hefur aldrei verið hærra en nú. 16.11.2006 06:45
Rekstur Árvakurs fer batnandi Árvakur, útgáfufélag Morgunblaðsins, hefur lokið við sölu á nýju hlutafé fyrir hálfan milljarð króna til að styrkja félagið. 16.11.2006 06:30
Stork lýsir eindregnum áhuga á að kaupa Marel Sjord Vollebrecht, forstjóri fyrirtækjasamstæðunnar Stork N.V. í Hollandi, lýsti í viðtali við Het Financieele Dagblad í gær áhuga á því að kaupa íslenska matvælavinnsluvélaframleiðandann Marel. Búist er við að formlegar viðræður fari fljótlega í gang. 16.11.2006 06:15
Ævintýraleg hækkun hlutabréfa Hækkun hlutabréfa í fyrra var jafnmikil og nam öllum launum og launatengdum gjöldum sama ár. Þetta er meðal þess sem fram kom í erindi Gylfa Magnússonar, dósents við viðskipta- og hagfræðideild Háskólans, í gær þegar hann kynnti rannsóknir á Íslenska hlutabréfamarkaðnum. 16.11.2006 00:01
Krónan veiktist á ný Gengi krónunnar veiktist um 1,2% við lokun markaða í dag. Síðastliðna tvo daga hefur krónan veikst um nær 3% og styrking síðustu 6 vikna hefur því gengið til baka á aðeins tveimur dögum. 15.11.2006 16:36
Bestir rekstrarárangur í sögu Icelandair Group Icelandair Group skilaði rétt tæplega 4 milljarða króna hagnaði fyrir skatta á fyrstu níu mánuðum ársins. Jón Karl Ólafsson, forstjóri félagsins, segir þetta besta árangurinn í sögu fyrirtækisins. 15.11.2006 11:55
Elta engar tískubylgjur í fjárfestingum Eignastýringarfyrirtækið Vanguard er það annað stærsta sinnar tegundar í Bandaríkjunum með yfir 950 milljarða dollara í stýringu. Forstjóri bankans, John J. Brennan, var staddur hér á landi. 15.11.2006 10:00
Ticket styrkir sig í viðskiptaferðalögum Ticket hefur keypt sænsku viðskiptaferðaskrifstofuna MZ Travel. Kaupverð er háð rekstrarárangri MZ á þessu ári og getur hæst farið í 750 milljónir króna. Velta MZ nam um átta milljörðum króna í fyrra og skilaði félagið þá um fjörutíu milljóna króna hagnaði. 15.11.2006 10:00
Sala á ostum og smjöri eykst Landsmenn tóku vel við sér í neyslu á mjólkurafurðum í október. Milli september og október jókst sala mjólkurafurða um 9,8 prósent á prótíngrunni miðað við sama tímabil í fyrra, en 13,9 prósent á fitugrunni. Þetta kemur fram á heimasíðu Landssambands kúabænda. Þar er þó tekið fram að í október í ár voru söludagar einum fleiri en í fyrra. 15.11.2006 09:45
Bretar spara í LÍ Sparnaðarreikningur LÍ í Bretlandi hefur fengið mikla umfjöllun þar í landi og viðskiptavinum hefur fjölgað ört. 15.11.2006 09:30
Vísitala framleiðsluverðs hækkar um 2 prósent Vísitala framleiðsluverðs hækkaði um 2 prósent á þriðja fjórðungi ársins miðað við fjórðunginn á undan. Vísitala framleiðsluverðs fyrir sjávarafurðir hækkar um 5,6 prósent en vísitala framleiðsluverðs fyrir annan iðnað lækkar um 0,4 prósent á milli fjórðunga, samkvæmt útreikningum Hagstofunnar. Vísitalan hefur hækkað um 20,9 prósent frá sama tíma í fyrra. 15.11.2006 09:15
Ys og þys á markaði með vinnuafl Á Krókhálsinum í Reykjavík er Ráðningarþjónustan starfrækt sem, eins og nafnið gefur glögglega til kynna, er sérhæfð í ráðningum og þjónustar jafnt fyrirtækja sem umsækjendur. 15.11.2006 09:15
Stórverslanir opna í Kauptúni Mikil uppbygging verslunarhúsnæðis á sér stað í Kauptúninu í Garðabæ þar sem IKEA opnaði tuttugu þúsund fermetra verslun í október. 15.11.2006 09:00
Skilur ekkert í stjórnvöldum að hafa ekki stöðvað „græðgisvæðingu“ í bílastæðamálum Viðskipti innlent