Fleiri fréttir

Ég, Davíð og Austurríki

Þeir sem halda að það sé sældarlíf að eiga fullt af peningum sem maður ávaxtar vel með áhættusömum fjárfestingum ættu bara að fara í fötin mín eina viku eins og þá síðustu.

Auraveldið

Það er skammt stórra högganna á milli hjá Aurasálinni. Í síðustu viku tilkynnti hún um stofnun nýs viðskiptabanka og hefur þegar fengið firnagóð viðbrögð frá langþreyttum viðskiptavinum stórgróðabankanna.

Hive opnar netsímaþjónustu

Hive opnar í dag netsímaþjónustu til útlanda og segir í fréttatilkynningu frá fyrirtækinu að þjónustan verði á mun lægra verði en áður hefur þekkst á Íslandi. Hive, sem var fyrst til að bjóða ótakmarkað erlent niðurhal á Netinu, boðar nú 75 prósenta lækkun á símtölum til útlanda miðað við almenna taxta símafélaganna til helstu viðskiptalandanna.

Ráðinn til að stýra FL Investment

Albert Jónsson hefur verið ráðinn framkvæmdastjóri FL Investment, dótturfyrirtækis FL GROUP. Albert hefur störf 1. október næstkomandi og hann mun hafa umsjón með rekstri FL Investment, en megintilgangur félagsins er að hámarka virði hluthafa með fjárfestingum í fyrirtækjum og eignum jafnt á Íslandi sem erlendis.

FL Group og Fons ræða sameiningu

Stjórnir FL GROUP hf. og eignarhaldsfélagsins Fons, sem á flugfélögin Sterling og Maersk Air hafa ákveðið að hefja viðræður um fjárfestingu og/eða kaup FL Group á Sterling og Maersk. Tilkynning þessa efnis var send Kauphöllinni í kvöld. Í tilkynningu frá FL Group segir að viðræður hafi ekki enn hafist og því sé óvíst á þessu stigi hver niðurstaðan verður.

FL Group vill kaupa Sterling

FL Group hefur áhuga á að kaupa Sterling-flugfélagið af eignarhaldsfélaginu Fons, sem er í eigu Pálma Haraldssonar og Jóhannesar Kristinssonar. Ákveðið hefur verið að hefja viðræður. "Þessar þreifingar eru á algjöru frumstigi og óvíst til hvers þær leiða," sagði Hannes Smárason, stjórnarformaður Flugleiða, í gærkvöldi. 

Actavis með nýtt húðlyf í Evrópu

Actavis hefur hafið sölu á nýju húðlyfi á mörkuðum í Evrópu. Um er að ræða samheitalyfið Terbinafine, sem sett var á markað nýlega þegar einkaleyfisvernd þess rann út. Lyfið er selt til 15 Evrópulanda en fleiri lönd munu bætast við fyrir árslok. Fyrstu pantanir námu um 10 milljónum taflna og reiknað er með að Terbinafine verði söluhæsta húðlyf Actavis.

Icelandair flýgur til Manchester

Icelandair hyggst hefja beint áætlunarflug til Manchester í Englandi í byrjun apríl á næsta ári. Flogið verður tvisvar í viku, á föstudögum og mánudögum með Boeing 757 þotum félagsins eftir því sem fram kemur í tilkynningu frá félaginu.

Mesta verðbólguskot í fjögur ár

Töluverðar líkur eru á því að Seðlabankinn hækki stýrivexti sína í lok mánaðarins eftir að vísitala neysluverðs hækkaði um 1,5 prósent á milli ágúst og september sem var langt umfram væntingar. Búist hafði verið við um 0,9 prósenta hækkun.

Mikið flökt á gengi krónunnar

Greiningardeild Íslandsbanka telur líklegt að mikið flökt verði á gengi íslensku krónunnar næstu daga í kjölfar tilkynningar Seðlabankans um mikil gjaldeyriskaup á næstunni til að greiða erlendar skuldir ríkisins. Hún telur kaupin hafa áhrif til lækkunar en þó líklega aðeins til skamms tíma því útgáfa erlendra aðila á skuldabréfum í íslenskum krónum vegi á móti.

Actavis kaupir í Búlgaríu

Actavis hefur keypt eitt stærsta lyfjadreifingarfyrirtæki í Búlgaríu, Higia AD, með fyrirvara um samþykki samkeppnisyfirvalda í Búlgaríu. Kaupverðið er ekki gefið upp en í tilkynningu frá Actavis er tekið fram að kaupin séu fjármögnuð með langtímaláni.

Kaupir banka í Búlgaríu

Félag í eigu Björgólfs Thors Björgólfssonar, Novator Bulgaria Holding, komst í morgun að samkomulagi við eigendur búlgarska bankann, EIBANK, um kaup á þrjátíu og fjögurra prósenta hlut í bankanum.

Engar breytingar á fjármálamarkaði

Litlar sem engar breytingar urðu á fjármálamarkaði í gær og í morgun eftir tíðindin um brotthvarf Davíðs Oddssonar af sviði stjórnmála og skipun hans sem bankastjóra og formanns bankastjórnar Seðlabanka Íslands.

Spá vaxtahækkun hjá Seðlabanka

Greiningardeild KB-banka gerir ráð fyrir að Seðlabankinn muni hækka vexti um hálft prósentustig 29. september og að vextir verði þá yfir 10% fram á mitt næsta ár. Í Efnahagsfregnum greiningardeildarinnar segir að þenslumerki sjáist hvarvetna í efnahagslífinu

Hætta hjá Eimskip

Fyrrum forstöðumaður TVG Zimsen, sem er flutningafyrirtæki í eigu Eimskips, er að undirbúa stofnun nýs fyrirtækis í flutningsmiðlun. Munu fleiri frá fyrirtækinu fylgja honum og hafa þeir þegar sagt upp störfum.

Stærsta greiðsla Íslandssögunnar

Kaupendur Símans greiddu ríkinu í gær andvirði 66,7 milljarða króna fyrir fyrirtækið. KB banki sá um að millifæra upphæðina inn á reikning ríkisins í Seðlabanka Íslands. Það var gert í nokkrum hlutum og hefur undirbúningur fyrir þetta verið nokkur. Menn telja að aldrei áður hafi stærri peningafærsla farið fram á Íslandi.

Skattur af fjármagni stóreykst

Tekjur ríkisins af innheimtu fjármagnstekjuskatts jukust um 54 prósent á fyrstu sjö mánuðum árs miðað við sama tímabil í fyrra. Það samsvarar 48,3 prósenta raunhækkun milli ára.

Aukning eigna hraðari en skulda

Hreinar skuldir þjóðarbúsins við útlönd hafa aukist um 225 milljarða króna frá áramótum og nema nú 905 milljörðum króna. Erlendar eignir nema 1550 milljörðum króna og hafa aukist um 37 prósent frá áramótum samkvæmt bráðabirgðatölum Seðlabankans.

Ná til Evrópu í einum viðskiptum

„Með kaupunum á Kepler erum við nákvæmlega að framfylgja stefnuáherslu Landsbankans á einstaklega skemmtilegan hátt að mínu mati með því að ná til allrar Evrópu í einum viðskiptum,“ sagði Halldór J. Kristjánsson, bankastjóri Landsbankans, á fundi í París á mánudaginn þegar hann kynnti kaup bankans á evrópska verðbréfafyrirtækinu Kepler Equities.

Ná til Evrópu í einum viðskiptum

„Með kaupunum á Kepler erum við nákvæmlega að framfylgja stefnuáherslu Landsbankans á einstaklega skemmtilegan hátt að mínu mati með því að ná til allrar Evrópu í einum viðskiptum,“ sagði Halldór J. Kristjánsson, bankastjóri Landsbankans, á fundi í París á mánudaginn þegar hann kynnti kaup bankans á evrópska verðbréfafyrirtækinu Kepler Equities.

Ná til Evrópu í einum viðskiptum

„Með kaupunum á Kepler erum við nákvæmlega að framfylgja stefnuáherslu Landsbankans á einstaklega skemmtilegan hátt að mínu mati með því að ná til allrar Evrópu í einum viðskiptum,“ sagði Halldór J. Kristjánsson, bankastjóri Landsbankans, á fundi í París á mánudaginn þegar hann kynnti kaup bankans á evrópska verðbréfafyrirtækinu Kepler Equities.

Heima hjá frábæra fólkinu

"Fyrir nokkrum árum síðan var gerð sérlega vel heppnuð auglýsingaherferð fyrir íslenskan bjór. Auglýsingarnar fjölluðu um tvo Dani sem voru spældir af því að þessi íslenski bjór hafði orðið ofarlega í danskri bjórkeppni," skrifar Viggó Örn Jónsson, einn eiganda Jónsson & Le'macks, í Markaðinn í dag.

Ríkisumsvif fækka tækifærum kvenna

Það var vel við hæfi að setjast niður í hádeginu með Ástu Möller á veitingastaðnum Maður lifandi, sem býður einungis upp á heilsurétti og er rekinn af tveimur konum. Ásta tók nýlega við framkvæmdastjórn í Liðsinni sem sérhæfir sig meðal annars í heilsuvernd og sjálf vill hún auka veg kvenna í atvinnulífi.

Góð afkoma hjá Baugi Group

Hagnaður Baugs Group á fyrstu sex mánuðum ársins 2005 nam 10,6 milljörðum króna eftir skatta. Heildareignir félagsins námu í lok júní síðastliðins rúmlega hundrað milljörðum króna og eigið fé nam 46 milljörðum króna.

Baugur með í Merlin-kaupum

Íslenskir fjárfestar undir forystu Sverris Berg Steinarssonar, fyrrverandi forstjóra Dags Group, eiga í viðræðum um kaup á dönsku raftækjakeðjunni Merlin af danska fyrirtækinu FDP. Sverrir vildi ekki tjá sig um þessi kaup að öðru leyti en því að hann ásamt hópi fjárfesta væru að skoða fyrirtækið.

Fjórir eiga yfir milljarð

Fjórir forstjórar fyrirtækja, sem mynda Úrvalsvísitölu Kauphallar Íslands, eiga yfir einn milljarð í hlutabréfum í því félagi sem þeir stýra. Þetta eru Lýður Guðmundsson, Róbert Wessmann, Bjarni Ármannsson og Hreiðar Már Sigurðsson.

Halldór ráðinn framkvæmdastjóri

Halldór Jóhannsson viðskiptafræðingur verður næsti framkvæmdastjóri KEA. Stjórn félagsins ákvað á síðasta fundi sínum að ráða hann til starfa í stað Andra Teitssonar sem lætur af störfum.

Kaupa erlent verðbréfafyrirtæki

Landsbanki Íslands hf. hefur náð samkomulagi um kaup á Kepler Equities SA. Kepler er evrópskt verðbréfafyrirtæki sem áður starfaði undir nafninu Julius Bär Brokerage.

Landsbankinn fjárfestir erlendis

Landsbankinn hefur keypt franska verðbréfabankann Kleper. Heildarviðskipti vegna kaupanna hljóða upp á sjö komma tvo milljarða íslenskra króna, en Landsbankinn hefur keypt áttatíu og eitt prósent hlutafjár franska bankans og tryggt sér kaup á nítján prósentum til viðbótar.

Líkur á gjaldeyriskreppu aukast

Stórfelld útgáfa erlendra spákaupmanna á skuldabréfum í íslenskum krónum getur leitt til gengishruns með hættu á óðaverðbólgu ef Seðlabankinn lækkar vexti snögglega. Þannig hafa líkurnar á gengisfalli og gjaldeyriskreppu aukist verulega. Hagfræðingur KB banka segir að þetta gæti gert Seðlabankanum erfiðara um vik við að lækka vexti þótt efnahagsástandið kallaði eftir því.

Búa sig undir breytingar

Landsbankamenn búast við grundvallarbreytingum á evrópskum fjármálamarkaði og vilja vera undir þær búnar. Þeir hafa keypt alþjóðlegt verðbréfafyrirtæki og ætla að byggja fjárfestingabanka á grunni þess.

Framkvæmdastjóri ráðinn á næstunni

Á næstunni ræðst hver verður nýr kaupfélagsstjóri á Akureyri. Stjórn KEA mun koma saman síðdegis á morgun til þess að fjalla um ráðningu nýs framkvæmdastjóra. Umsækjendur um starfið eru á milli 70 og 80 en umsóknarfrestur rann út 27. ágúst.

Baugur fjárfestir í Bretlandi

Breska dagblaðið Sunday Telegraph greindi í gær frá því að Baugur ásamt skoska frumkvöðlinum Tom Hunter og breska stórbankanum HBOS hefðu stofnað með sér fasteignafélag.

Gengi krónunnar styrkist áfram

Gengi krónunnar hefur hækkað um tvö og hálft prósent frá því í upphafi síðustu viku og hefur gengið haldið áfram að hækka í morgun. Ástæðuna má rekja til skuldabréfaútgáfu erlendra aðila í krónum en veltan á gjaldeyrismarkaði þennan tíma hefur verið mikil. Þetta kemur fram í <em>Morgunkorni</em> Íslandsbanka í dag.

Krónan hækkar vegna skuldabréfa

Krónan hefur nú hækkað um tvö prósent á einni viku og er í sögulegu hámarki. Erlend verðbréfafyrirtæki og austurríska ríkið hafa gefið út skuldabréf á Íslandi og selja til viðskiptavina sinna úti vegna vaxtamunarins sem er milli sex og sjö prósent. Þetta hefur haft þau áhrif að krónan hefur hækkað enn meira að undanförnu.

Engar athugasemdir við kaupin

Samkeppniseftirlitið gerir engar athugasemdir vegna kaupa Skipta ehf. á öllu hlutafé íslenska ríkisins í Landsíma Íslands, en eftirlitið hefur haft kaupin til skoðunar og umsagnar. Fram kemur í tilkynningu til Kauphallar Íslands að Skipti munu greiða íslenska ríkinu kaupverð hlutafjárins, alls 66,7 milljaðra króna, þann 6. september næstkomandi og afhendir íslenska ríkið félaginu hlutaféð þann sama dag.

Nýr forstjóri Kaupþings banka

Ingólfur Helgason hefur verið ráðinn forstjóri starfsemi Kaupþings banka á Íslandi. Hreiðar Már Sigurðsson forstjóri Kaupþings Banka ætlar að einbeita sér alfarið að rekstri Kaupþings Banka samstæðunnar og heyrir starf Ingólfs beint undir hann, en Ingólfur sinnir eingöngu starfsemi bankans á Íslandi. Hann segir ekki miklar breytingar á döfinni.

Sjá næstu 50 fréttir