Fleiri fréttir

Baugur hefur ekki tekið afstöðu

Baugur hefur ekki tekið afstöðu til þess hvort haldið verði fast við það að breska fyrirtækið Iceland fái einkarétt á Iceland sem vörumerki í allri Evrópu.

Kaupþing bætir ímynd sína

Kaupþing hefur eytt milljónum króna í að bæta ímynd sína í Danmörku í þessari viku. Bankinn birti í gær heilsíðuauglýsingar í nokkrum dönskum dagblöðum þar sem afkoma bankans er kynnt. 

Bretar fjalla um Landsbankann

Breskir fjölmiðlar fjalla talsvert um yfirtökutilboð Landsbankans í verðbréfafyrirtækið Teather og Greenwood og þykir tilboðið í þetta smáfyrirtæki vera rausnarlegt. <em>Financial Times</em> segir til dæmis að strandhögg víkinga séu nú ekki svipur hjá sjón. Þeir fari ekki lengur með báli og brandi heldur komi þeir í jakkafötum, berandi rausnarlegar gjafir.

Mikil umfjöllun í Bretlandi

Breskir fjölmiðlar fjölluðu töluvert um kaup Landsbankans á verðbréfastofunni Teather & Greenwood í gær.

Sjóvík kaupir Iceland Seafood

SÍF seldi í dag dótturfélag sitt Iceland Seafood Corporation í Bandaríkjunum. Kaupandi er Sjóvík ehf. og nemur söluverðið 26,5 milljónum evra, um 2,1 milljarði króna, en að auki tekur kaupandi yfir vaxtaberandi skuldir að andvirði um 1,8 milljarða króna. Þetta kemur fram í tilkynningu frá SÍF.

Gerir tilboð í verðbréfafyrirtæki

Landsbankinn hefur gert yfirtökutilboð í breska verðbréfafyrirtækið Teather & Greenwood upp á um fimm milljarða króna. Fyrirtækið mun hefja útlánastarfsemi í Bretlandi ef kaupin ganga upp, að sögn Halldórs Kristjánssonar, bankastjóra Landsbankans.

Úrvalsvísitala hækkaði um 10%

Úrvalsvísitalan hækkaði um 10% í janúar, að því er segir í morgunkorni Íslandsbanka. Hlutabréf í Flugleiðum hafa hækkað mest það sem af er ári,  eða um 37 prósent, en Landsbankinn kemur næstur með 19,7 prósenta hækkun. Önnur félög sem hækka umfram vísitöluna í mánuðinum eru Kaupþing og Burðarás, en hlutabréf í fyrirtækjunum tveimur hækkuðu um annars vegar 12,6 prósent og hins vegar 10,1 prósent.

Metár í erlendum fjárfestingum

Síðasta ár var metár í erlendum fjárfestingum, samkvæmt vegvísi Landsbankans, en nettókaup erlendra verðbréfa námu 76 milljörðum króna. Á árinu voru keypt erlend verðbréf fyrir 211 milljarða króna en að sama skapi nam sala erlendra verðbréfa 135 milljörðum.

Byggja upp fjárfestingarbanka

Landsbankinn stefnir að því að leggja grunn að útrás sinni í Bretlandi með yfirtöku á bresku verðbréfafyrirtæki sem tilkynnt var um í dag. Markmið Landsbankans er að byggja upp norðurevrópskan fyrirtækja- og fjárfestingarbanka.

Verðbólga fer yfir þolmörk

Gangi spá um óbreytta vísitölu eftir mun verðbólgan mælast 4,3 prósent og rjúfa þannig efri þolmörk verðbólgumarkmiðs Seðlabankans, að mati greiningardeildar Íslandsbanka. Verðbólga hefur aukist mikið að undanförnu en í ljósi sterkrar krónu er líklegt að hún hjaðni nokkuð er líður á árið og fari jafnvel niður fyrir þolmörkin strax í maí.

Sækist eftir stóli hjá Straumi

Þorsteinn Már Baldvinsson hefur gefið kost á sér til stjórnarsetu í Straumi - Fjárfestingarbanka hf. á aðalfundi bankans þann 4. febrúar næstkomandi, en Þorsteinn Már á jafnframt sæti í stjórn Tryggingamiðstöðvarinnar.

Gengið sterkt til frambúðar

Hátt raungengi krónunnar um þessar mundir er til marks um bætt efnahagsskilyrði í landinu og því er líklegt að krónan verði áfram sterk. Þetta kom fram í riti greiningardeildar Landsbankans "Sterk króna til framtíðar" sem kom út í gær.

Dýrðarár bankanna

Eigendur bankanna ljóma af gleði efir uppskeru ársins. Hagnaður Landsbankans í fyrra er til dæmis svipaður og verðið sem Samson greiddi fyrir kjölfestuhlut sinn í bankanum. Árið 2004 kemur ekki aftur, en horfurnar fyrir þetta ár eru ágætar. </font /></b />

Aftur undir grun

Forsvarsmenn verðbréfafyrirtækisins Teather & Greenwood í Bretlandi hafa staðfest við þarlenda fjölmiðla að eiga í viðræðum um mögulega yfirtöku félagsins. Fréttirnar urðu til þess að bréf fyrirtækisins hækkuðu um ríflega 25 prósent í gær.

Bakkavör í takt við spár

Bakkavör hagnaðist um ríflega 1,5 milljarða íslenskra króna á síðasta ári. Hagnaðurinn er svipaður og í fyrra, en þá var færður til bókar söluhagnaður af sjávarútvegsstarfsemi félagsins. Hagnaður fyrir skatta nam tveimur milljörðum króna.

Samruni við Samherja eða Granda

Norski athafnamaðurinn Kjell Inge Rökke hefur gert árangurslausar tilraunir til náinnar samvinnu eða samruna útgerðarfélagsins Aker Seafood í Noregi við Samherja annars vegar, og HB Granda hins vegar, að því er norskir fjölmiðlar skýra frá.

Baugur kaupir aftur í Flugleiðum

Baugur, sem seldi rúmlega 8% hlut sinn í Flugleiðum í ágúst í fyrra, er aftur farinn að fjárfesta í félaginu og jók hlut sinn enn um 3% í morgun og er kominn upp í 6%. Verð á hlutabréfum í Flugleiðum hefur nær tvöfaldast á tólf mánuðum og þar af nemur hækkunin í þessum mánuði einum um 36%.

Hagnaðurinn 11,44 milljarðar

Hagnaður Íslandsbanka á síðasta ári nam 11.445 milljónum króna eftir skatta sem er 96,1% meiri hagnaður en á árinu 2003. Hagnaður á fjórða ársfjórðungi nam 1.312 milljónum króna. Heildareignir bankans í lok nýliðins árs námu 675 milljörðum króna.

Eignirnar nema tíföldum fjárlögum

Gróði stóru bankanna þriggja, Landsbankans, Íslandsbanka og KB banka, á síðasta ári nemur samtals tæpum 40 milljörðum króna. Eignir bankanna jukust líka gríðarlega á árinu og nema nú samanlagt tæplega 3000 milljörðum króna. Til samanburðar eru fjárlög ríkisins í ár aðeins tæpir 300 milljarðar.

Hagnaður Atorku 2,9 milljarðar

Hagnaður af rekstri fjárfestingafélagsins Atorku eftir skatta í fyrra nam tæplega 2,9 milljörðum króna samanborið við 403 milljónir árið áður. Þar var arðsemi eigin fjár rúmlega 73 prósent og eru heildareignir félagsins um 17 milljarðar og jukust um u.þ.b. 12 milljarða á árinu.

Hagnaður bankanna aldrei meiri

Stóru viðskiptabankarnir þrír högnuðust um 40 milljarða króna í fyrra, sem er enn eitt Íslandsmetið. Jafet Ólafsson, framkvæmdastjóri Verðbréfastofu, segir skýringuna á þessum háu tölum megi að stórum hluta rekja til gegnishagnaðar vegna sölu á hluta- og skuldabréfum.

Hagnaður KB banka um 16 milljarðar

Hluthafar í KB banka skipta með sér rúmum þremur milljörðum króna í arð af hagnaði bankans í fyrra, sem nam hátt í 16 milljörðum króna eftir skatta. Það er meira en tvöfalt meiri hagnaður en árið áður og á rúmlega helmingur hagnaðarins rætur að rekja til starfsemi bankans í útlöndum.

Spá því að markaður mettist

Sérfræðingar fjármálaráðuneytisins spá því að markaður fyrir nýjar íbúðir mettist á næsta ári. Lokið verður við að byggja hátt í þrjú þúsund íbúðir á þessu ári sem er um það bil 1200 íbúðir umfram árlega meðaltalsþörf, samkvæmt þjóðhagsspá fjármálaráðuneytisins. Það bendir til að jafnvægi muni nást á fasteignamarkaði fyrr en seinna.

Skipta með sér þremur milljörðum

Hluthafar í KB banka skipta með sér rúmum þremur milljörðum króna í arð af hagnaði bankans í fyrra, sem nam hátt í sextán milljörðum króna eftir skatta. Það er meira en tvöfalt meiri hagnaður en árið áður og á rúmlega helmingur hagnaðarins rætur að rekja til starfsemi bankans í útlöndum.

Flogið til Hahn í sumar

Flugfélagið Iceland Express ætlar að hefja áætlunarflug á milli Íslands og Þýskalands í vor og hefur þegar verið ákveðið að fljúga til Frankfurt/Hahn-flugvallarins sem er miðja vegu milli Frankfurt og Lúxemborgar.

Icelandair kaupir tíu flugvélar

Icelandair hefur gert samning við Boeing-verksmiðjurnar um kaup á tíu farþegaþotum af gerðinni Boeing 737-800. Félagið tryggði sér jafnframt kauprétt á fimm þotum til viðbótar. Ætlunin er að leigja þessar þotur til Kína og víðar og mun sérstakt dótturfélag sjá um þá framkvæmd.

Risasamningur Flugleiða

Flugleiðir undirrituðu í gær stærsta flugvélakaupasamning í sögu félagsins. Flugleiðir kaupa 10 Boeing 737-800 vélar fyrir 40 milljarða króna. Samningurinn markar einnig þau tímamót að þetta er í fyrsta skipti sem íslenskur banki fjármagnar slík kaup. KB banki fjármagnar einn samninginn og hljóðar inngreiðslan upp á ellefu milljarða króna.

Leigja vélarnar til Kína og víðar

Flugleiðir undirrituðu í dag samning við Boeing-verksmiðjurnar um kaup á tíu farþegaþotum af gerðinni 737-800 sem félagið ætlar að leigja áfram til flugfélaga í Kína og víðar. Heildarverðmæti samningsins nemur um fjörutíu milljörðum króna.

Vísitalan aldrei hærri í janúar

Væntingavísitala Gallup hækkaði verulega í janúar eða um tæp 18 stig eftir að hafa lækkað lítillega mánuðina á að sögn greiningardeildar Íslandsbanka. Vísitalan stendur nú í 128,9 stigum og hefur ekki áður mælst svo há í janúarmánuði.

Hlutafjáraukning og kaup

Actavis hyggur á hlutafjárhækkun að markaðsvirði um 30 milljarða króna samhliða skráningu í London, samkvæmt frétt sem birtist á vef Financial Times. Í fréttinni er fjallað um fyrirhugaða skráningu Actavis í kauphöllinni í London. Félagið hefur ekki sent frá sér tilkynningar um hlutafjárhækkun né heldur um tímasetningu skráningar.

Mikill hagvöxtur en ekki ofhitnun

Fjármálaráðuneytið telur ekki að hagkerfið ofhitni þrátt fyrir mikinn hagvöxt. Alþjóðavæðingin og aukinn sveigjanleiki í hagkerfinu eru helstu ástæður þess að verðbólga fer ekki úr böndunum þrátt fyrir uppsveifluna.

Miklu munar á spám

KB banki birtir ársuppgjör sitt í dag. Ef meðaltal er tekið af spám Íslandsbanka og Landsbankans mun bankinn skila fjórtán milljörðum í hagnað árið 2004. Landsbankinn spáir 1,5 milljarða hagnaði á fjórða ársfjórðungi, en Íslandsbanki þremur.

Fyrsta sérsmíðin fyrir Samskip

Nýtt Arnarfell var tekið í notkun um helgina og innan tíðar verður systurskipið Helgafell komið í þjónustu félagsins. Samskip leigir skipin en þau eru byggð samkvæmt forskrift félagsins. </font /></b />

Hagnaður Straums undir væntingum

Hagnaður fjárfestingarbankans Straums nam um 127 milljónum króna á fjórða ársfjórðungi síðasta árs. Það er langt undir væntingum greiningardeildar Íslandsbanka sem spáð hafði ríflega eitt þúsund milljón króna hagnaði af ársfjórðungnum. Ástæðan er fyrst og fremst sú að gengishagnaður reyndist mun minni en reiknað hafði verið með.

Tvöfalt hærra verð á Ikea-vörum

Íslendingar þurfa að borga 60% meira fyrir KLIPPAN-sófa frá IKEA en Bandaríkjamenn. Dæmi eru um að sama varan í IKEA kosti tvöfalt meira hér en í öðrum löndum.

Baugur verður stærsti hluthafinn

Múli ehf. og Vogabakki ehf. hafa selt 55% hlut sinn í Húsasmiðjunni. Kaupandi hlutarins er Eignarhaldsfélag Húsasmiðjunnar sem er að stórum hluta í eigu Baugs Group. Á næstu dögum verður gengið frá endanlegum hluthafalista eignarhaldsfélagsins en gert er ráð fyrir að Baugur Group verði stærsti hluthafinn. Árni Hauksson mun í kjölfarið hætta sem forstjóri fyrirtækisins.

Yfirtökutilboð Baugs samþykkt

Hluthafar Big Food Group samþykktu yfirtökutilboð fjárfesta undir forustu Baugs í félagið. Þar með hefst formlegt ferli uppkaupa hluta í Big Food Group sem lýkur með því að fjárfestarnir munu taka við stjórn félagsins 11. febrúar næstkomandi.

Kaupmáttur eykst minna

Kaupmáttaraukning launa í fyrra var sú minnsta í heilan áratug. Kaupmáttur jókst um 1,5 prósent. Að meðaltali hefur kaupmáttur aukist um 3,6 prósent á ári síðastliðinn áratug. Laun hækkuðu í fyrra um 4,7 prósent að meðaltali, en verðbólgan sá til þess að lítill hluti varð eftir í launaumslögunum sem raunveruleg hækkun.

Skilyrði sett fyrir virkum hlut

Fjármálaeftirlitið hefur samþykkt umsókn Straums Fjárfestingarbanka um kaup á virkum eignarhlut í Íslandsbanka með skilyrðum.

Landsbankinn með útibú á Englandi

Landsbankinn hefur sent tilkynningu til Fjármáleftirlitsins þess efnis að bankinn hafi ákveðið að stofna útibú á Englandi. Landsbankinn tók þessa ákvörðun þar sem bein þjónusta bankans á Englandi hefur stóraukist og gert er ráð fyrir að sú þróun haldi áfram samkvæmt tilkynningu á vef Kauphallar Íslands.

Nýr framkvæmdastjóri Marel UK

Magnús Ólason verkfræðingur hefur tekið við framkvæmdastjórn Marel UK í Bretlandi af Halldóri Magnússyni sem snýr til höfuðstöðva Marels og tekur við viðskiptaþróun á Asíumarkaði. Magnús hefur starfað sem tæknistjóri hjá Marel UK frá stofnun þess 1998 en fyrir þann tíma starfaði hann við höfuðstöðvar fyrirtækisins.

Fjárfest í sænskum tölvusala

Burðarás hefur eignast tæplega fimmtán prósenta hlut í sænska upplýsingatæknifyrirtækinu Scribona. Burðarás hafði eignast lítinn hlut í fyrirtækinu, en keypti 12,9 prósenta hlut fyrir um 900 milljónir króna.

Dregur úr atvinnuleysi

Atvinnuleysi minnkaði um 0,4 prósent á fjórða ársfjórðungi samanborið við sama ársfjórðung árið áður samkvæmt vinnumarkaðskönnun Hagstofu Íslands. Samkvæmt könnuninni voru 2,5 prósent vinnuafls án atvinnu eða í atvinnuleit á fjórðungnum.

Björgólfur á lista Forbes

Allt stefnir í að Björgólfur Thor Björgólfsson verði fyrstur Íslendinga til að komast á lista tímaritsins Forbes yfir ríkasta fólks heims. Luisa Kroll, ritstjóri lista Forbes, er stödd hér á landi til þess að meta eignir Björgólfs Thors og hvort hann nái inn á lista yfir  ríkustu einstaklinga í heimi.

Engin lognmolla framundan

Sigurður Helgason lætur af störfum sem forstjóri Flugleiða í lok maí. Þá mun hann hafa setið í forstjórastóli Flugleiða í tuttugu ár. Í tilkynningu frá Flugleiðum kemur fram að Sigurður hafi kynnt stjórn félagsins ákvörðun sína á stjórnarfndi í gærmorgun.

Sjá næstu 50 fréttir