Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Fyrirtæki Marel Food Systems fær dönsk útflutningsverðlaun Scanvaegt International, dótturfyrirtæki Marel Food Systems, hlaut í gær heiðursverðlaun Friðriks níunda Danakonungs fyrir framúrskarandi árangur í útflutningsstarfi. Það var Hinrik prins, eiginmaður Margrétar Þórhildar Danadrottningar, sem afhenti forstjórum Scanvaegt, Lárusi Ásgeirssyni og Erik Steffensen, heiðursverðlaunin við konunglega athöfn í Fredensborgarhöll. 12.6.2007 09:34
Verðbólga mælist 4,0 prósent Vísitala neysluverð hækkaði um 0,52 prósent frá maí og jafngildir því að verðbólga lækkar úr 4,7 prósentum í 4,0 prósent á ársgrundvelli, samkvæmt útreikningum Hagstofu Íslands. Hækkunin er í lægri kantinum en spár greiningadeilda viðskiptabankanna spáðu allt frá 0,4 til 0,8 prósenta hækkun á vísitölu neysluverðs á milli mánaða. 12.6.2007 09:00
Baugur Group eykur hlut sinn í Debenhams Hlutabréf í Debenhams hækkuðu um rúmlega fjögur prósent í dag eftir að Baugur Group jók hlut sinn í fyrirtækinu í 4,87 prósent. Baugur keypti bréfin í gegnum félagið Unity Investments. Talsmenn Debenhams neituðu að tala við fréttamenn um kaup Baugs á bréfum í fyrirtækinu. Ekki hefur enn náðst í talsmenn Baugs. 12.6.2007 07:37
Spá hækkun vísitölu neysluverðs Greiningardeild Kaupþings spáir að vísitala neysluverðs hækki um 0,6 prósent á milli mánaða, en Hagstofan birtir nýja vísitölu í dag. Gangi þetta eftir mælist verðbólga á 12 mánaða tímabili 4,1 prósent, samanborið við 4,7 prósent í síðasta mánuði. 12.6.2007 07:08
Safari vafrinn fyrir Windows Apple fyrirtækið kynnti Windows útgáfuna af Safari vafranum í dag. Steve Jobs, framkvæmdastjóri Apple fyrirtækisins, sagði við það tækifæri að Safari væri framúrstefnulegasti og kröftugasti vafrinn í heiminum. 11.6.2007 19:36
Kaupþing spáir 10 prósenta hagvexti Greiningardeild Kaupþings spáir því að hagvöxtur verði við 10 prósent á fyrsta fjórðungi ársins miðað við sama tíma í fyrra. Má vöxtinn einkum rekja til um 25 prósenta vaxtar í útflutningi á vöru og þjónustu á fjórðungnum. 11.6.2007 16:50
Föt sem mæla heilsu fólks Hópur evrópskra vísindamanna hannar þessa dagana fatnað sem getur mælt heilsu þess sem klæðist þeim. Þessi föt eru þó ekki væntanleg á almennan markað heldur eru þau ætluð nýútskrifuðum sjúklingum, fólki með króníska sjúkdóma og slösuðum íþróttamönnum. 11.6.2007 16:09
Öfundsverð staða en skortur á aðhaldi Sendinefnd á vegum Alþjóðagjaldeyrissjóðsins telur að efnahagshorfur á Íslandi séu enn öfundsverðar. Stjórnvöld þurfa hins vegar að beita meira aðhaldi í fjármálum ríkisins og endurskoða þarf Íbúðalánasjóð. 11.6.2007 15:30
Þvagfæralyf frá Actavis á markað í Evrópu Actavis hefur markaðssett þvagfæralyfið Finasteride í 14 Evrópulöndum og er sala lyfsins nú þegar hafin. Actavis setti lyfið á markað í Þýskalandi, Bretlandi, Hollandi og Danmörku um leið og einkaleyfið rann út. 11.6.2007 15:20
Vilja að Barclays dragi tilboðið til baka Gengi hlutabréfa í breska bankanum Barclays hækkaði um 4,5 prósent í bresku kauphöllinni í Lundúnum í dag eftir að fjárfestingasjóður þrýsti á hluthafa bankans að falla frá yfirtökutilboði sínu í hollenska bankann ABN Amro. 11.6.2007 13:00
Bréf Actavis í 90 krónum á hlut Gengi hlutabréfa í Actavis hækkaði um 6,26 prósent í fyrstu viðskiptunum í Kauphöll Íslands í dag þegar kauptilboð í bréfin upp á 90 krónur á hlut. Þetta er um sex krónum hærra en yfirtökutilboð Novators, félags Björgólfs Thors Björgólfssonar, hljóðar upp á. Gengið lækkaði skömmu síðar og stendur nú í 86,5 krónum á hlut. 11.6.2007 10:03
Exista kaupir í breskri íþróttavörukeðju Sameiginlegt félag í eigu Exista hf. og Chris Ronnie hefur keypt 29 prósenta hlut í bresku íþróttavörukeðjunni JJB Sports. Kaupverð nemur samtals 190 milljónum punda, jafnvirði 24 milljarða króna. 11.6.2007 09:29
Verðlaun úr hendi Pútíns Forseti Rússlands veitti Þorsteini Inga Sigfússyni Alheimsorkuverðlaunin við hátíðlega athöfn í gær. Verðlaunin voru veitt fyrir rannsóknir Þorsteins á sviði orkumála. Ein æðsta viðurkenning Rússa. 10.6.2007 00:01
Kaupþing styður Háskólann á Bifröst Menntasjóður Kaupþings banka hyggst styrkja Háskólann á Bifröst um 30 milljónir króna. Frá þessu greindi Ágúst Einarsson, rektor skólans, í ræðu á háskólahátíð í dag. 9.6.2007 15:14
Flugfélög innan ESB verða að draga úr losun koltvísýrings Samgönguráðherrar Evrópusambandsins hafa ákveðið að taka flugvélar innan sambandsins inn í áætlanir um samdrátt í losun gróðurhúsalofttegunda. Flugfélög þurfa því að draga úr losun koltvísýrings frá vélum sínum. 9.6.2007 11:01
Markaðurinn í Bandaríkjunum hækkaði í dag Hlutabréfamarkaðurinn í Bandaríkjunum endaði í hærri tölum en hefur gert undanfarna daga. Lækkandi olíuverð og góða fréttir frá fyrirtækjum leiddu til hækkunarinnar en markaðurinn hafði lækkað undanfarna þrjá daga á undan. McDonalds var á meðal þeirra fyrirtækja sem tilkynntu um gott gengi. 8.6.2007 20:49
Tilboði Novator í Actavis hafnað Stjórn Actavis hefur lagt formlegt mat á tilboð Novator, félags í eigu Björgólfs Thors Björgólfssonar, stjórnarformanns Actavis, sem birt var hluthöfum þann 1. júní síðastliðinn. Stjórnin telur að tilboðið endurspegli ekki raunverulegt virði félagsins. 8.6.2007 15:45
Viðskiptahallinn minnkaði í Bandaríkjunum Viðskiptahallinn í Bandaríkjunum dróst óvænt saman á milli mánaða í apríl. Veiking bandaríkjadals á stóran þátt í samdrættinum. Niðurstaðan kom greinendum á óvart. 8.6.2007 14:09
Jón Ásgeir hættur sem forstjóri Baugs Jón Ásgeir Jóhannesson, forstjóri Baugs, tilkynnti á aðalfundi Baugs Group í dag að hann hafi látið af störfum sem forstjóri fyrirtækisins. Við starfi hans tekur Gunnar Sigurðsson, framkvæmdastjóri fjárfestinga Baugs í Bretlandi. Jón mun í kjölfarið taka við sem starfandi stjórnarformaður Baugs Group. Umtalsverðar skipulagsbreytingar á stjórn Baugs voru kynntar á aðalfundi félagsins í dag. 8.6.2007 13:19
Exorka fær 3 ný virkjanaleyfi í Þýskalandi Exorka, dótturfélag Geysis Green Energy, hefur gengið frá kaupum á þremur leyfum fyrir jarðvarmavirkjanir í Bæjaralandi í Þýskalandi. Fyrir átti Exorka þar eitt virkjanaleyfi. Í kjölfarið getur Exorka byggt orkuver í Bæjaralandi sem framleitt getur 15-25 megawatta raforku á ári. Heildarvirði fjárfestingarinnar nemur 20 milljörðum króna. 8.6.2007 13:06
Úrvalsvísitalan undir 8.000 stigum Úrvalsvísitalan hefur lækkað um 1,07 prósent í Kauphöllinni í dag og stendur hún nú í 7.953 stigum. Vísitalan hefur ekki verið lægri síðan 15. maí síðastliðinn en þá rauf hún 8.000 stiga múrinn í fyrsta sinn. 8.6.2007 12:45
Sensa hlýtur viðurkenningu frá Cisco Systems Á árlegri ráðstefnu sem haldin er fyrir samstarfsaðila Cisco Systems var Sensa veitt viðurkenning sem besti Cisco Silver Partner ársins á Norðurlöndum. Sensa er í eigu Símans. 8.6.2007 12:31
Líkur á nýju tilboði í Dow Jones Philadelphia Media Holding, útgáfufélag dagblaðsins Philadelphia Inquirer, er sagt hafa hug á að bjóða í bandaríska útgáfufélagið Dow Jones á móti fjölmiðlajöfrinum Rupert Murdoch. 8.6.2007 10:00
Velta í dagvöruverslun eykst um 8,8 prósent Velta í dagvöruverslun jókst um 8,8 prósent í maí á föstu verðlagi samanborið við sama tíma í fyrra. Á breytilegu verðlagi nam hækkunin hins vegar 13,2 prósentum, samkvæmt smásöluvísitölu Rannsóknaseturs verslunarinnar á Bifröst, sem bætir við að fátt bendi til að einkaneysla sé að dragast saman. Megi búast við að sölutölur eigi eftir að hækka á næstunni. 8.6.2007 09:58
Lækkanir á helstu fjármálamörkuðum Gengi hlutabréfa lækkaði í fyrstu viðskiptum dagsins á 14 af 17 fjármálamörkuðum í Evrópu í dag. Lækkanirnar koma í kjölfar lækkana í Bandaríkjunum í gær og í Japan. Þetta er fimmti lækkanadagurinn í röð í Evrópu. 8.6.2007 09:04
Úrvalsvísitalan tekur breytingum Eftir lokun markaða í dag mun Kauphöll Íslands tilkynna hvaða félög verða hluti af nýrri úrvalsvísitölu sem tekur gildi hinn 2. júlí. Greiningardeild Landsbankans telur líklegast að Alfesca og Atlantic Petroleum þurfi að víkja fyrir Existu og Icelandair. 8.6.2007 00:01
Hlutabréf í Apple hækka enn Apple hefur ekki enn selt einn einasta iPhone en engu að síður eru fjárfestar að veðja á að hann eigi eftir að slá í gegn. Verð á bréfum í Apple hefur því risið ógurlega hratt undanfarna daga. Hlutabréf í Apple hafa hækkað um 30% síðan iPhone var kynntur í janúar og gefur það í skyn hversu miklar væntingar fjárfestar binda við tækið. 7.6.2007 22:36
Afkoma ríkissjóðs umfram væntingar Afkoma ríkissjóðs var umfram áætlanir fjárlaga á fyrstu fjórum mánuðum ársins. Handbært fé frá rekstri var jákvætt um 36,7 milljarða króna á tímabilinu, sem er um 12,4 milljörðum meira en í fyrra. Hagstæða afkomu má rekja til aukinna tekna sem voru 149 ma.kr. samanborið við 120 milljarða samkvæmt fjárlögum. 7.6.2007 16:50
Skuldatryggingarálag bankanna lækkar Skuldatryggingarálag bankanna hefur farið lækkandi frá því um miðjan mars. Greiningardeild Landsbankans segir lækkunina í raun ná lengra aftur en skuldatryggingarálagið náði hámarki fyrir rúmu ári þegar það var margfalt hærra en nú. 7.6.2007 16:30
Tryggvi Jónsson fjárfestir í Apple umboðinu Tryggvi Jónsson hefur fest kaup á ríflega 28% hlutabréfa í Humac ehf., sem á og rekur Apple á Íslandi og á Norðurlöndunum. Félag í eigu Tryggva, Sanderson ehf., kaupir út hluthafana F. Bergsson Holding ehf. og Hlunn ehf. Kaupverð fæst ekki gefið upp. 7.6.2007 16:07
Toyota selur milljónasta tvinnbílinn Japanski bílaframleiðandinn Toyota hefur náð þeim tímamótum að selja yfir milljón tvinnbíla frá því framleiðsla á slíkum bílum hófst fyrir áratug. Eftirspurn eftir tvinnbílum hefur aukist jafnt og þétt á undanförnum árum eftir því sem umræðan um umhverfismál hefur fengið meira vægi í heiminum. Toyota er nú leiðandi í framleiðslu á umhverfisvænum bifreiðum og fáir hafa tærnar þar sem þeir hafa hælana. 7.6.2007 14:31
Hlutabréf hækkuðu í Kína Gengi hlutabréfa hækkaði um þrjú prósent við lokun hlutabréfamarkaðarins í Sjanghæ í Kína í dag eftir að stjórnvöld vísuðu því á bug að þau ætli að hækka fjármagnstekjurskatt í því augnamiði að kæla kínverskan hlutabréfamarkað. 7.6.2007 12:00
Englandsbanki heldur stýrivöxtum óbreyttum Englandsbanki ákvað í dag að halda stýrivöxtum óbreyttum í 5,5 prósentum. Þetta er í takt við spár greinenda, sem þó telja líkur á að bankinn hækki vextina síðar á árinu. 7.6.2007 11:17
Minni vöxtur á gjaldeyrismarkaði Verulega hefur hægt á vexti gjaldeyrismarkaðar á Íslandi miðað við veltu á millibankamarkaði samkvæmt frétt greiningu Glitnis. Í síðasta mánuði nam veltan 264 milljörðum króna sem er tæplega 20 prósent minni velta en í sama mánuði í fyrra. 7.6.2007 10:36
Evrópskir markaðir féllu í morgun Evrópsk hlutabréf féllu í morgun í kjölfar ákvörðunar evrópska Seðlabankans frá því í gær að hækka stýrivexti á evrusvæðinu um 0,25 prósent. Ótti fjárfesta við vaxandi verðbólgu er talin skýra lækkunina en FTSEurofirst 300 vísitalan hefur ekki verið lægri í þrjár vikur. 7.6.2007 10:26
Fyrrum stjórnendur Swissair sýknaðir Fyrrum stjórnendur svissneska flugfélagsins Swissair hafa verið sýknaðir af öllum ákærum í tengslum við gjaldþrot félagsins árið 2001. Alls voru 19 stjórnendur ákærðir meðal annars fyrir skjalafals og óstjórn. 7.6.2007 09:34
Peningaskápurinn ... Íslendingar hafa tekið virkan þátt í þróunaraðstoð í Malaví, einu fátækasta ríki Afríku. Hagkerfið er þriðjungi minna en það íslenska þrátt fyrir að íbúar landsins séu fjörutíu og fjórum sinnum fleiri en Íslendingar. 7.6.2007 00:01
Rannsakar nýjar örrásir Dr. Kristján Leósson eðlisverkfræðingur hlaut í gær hvatningarverðlaun Vísinda- og tækniráðs. Verðlaunin eru veitt vísindamanni sem þykir hafa skarað fram úr snemma á ferlinum og skapað væntingar um framlag í vísindastarfi sem styrkt geti stoðir mannlífs á Íslandi. 7.6.2007 00:01
Markaðir í Bandaríkjunum lækka Markaðir í Bandaríkjunum lækkuðu lítillega í dag í kjölfar ákvörðunar Seðlabanka Evrópu um að hækka stýrivexti á evrusvæðinu. Þá óttast bandarískir fjárfestar að verðbólgan þar í landi muni hækka vegna almenns launaskriðs. 6.6.2007 21:05
Eimskip kaupir Innovate Eimskip hefur gengið frá kaupum á öllu hlutafé í Innovate Holdings í Bretlandi. Fyrir átti Eimskip 55 prósenta hlut í félaginu. Innovate er eitt stærsta fyrirtæki Bretlands á sviði hitastýrðra flutninga og rekur 30 vörugeymslur á 11 stöðum á Bretlandseyjum. Kaupverð nemur 30,3 milljónum punda, jafnvirði fjögurra milljarða króna. 6.6.2007 15:06
Eldsneyti í skiptum fyrir blóð Rauði kross Bandaríkjanna hefur tekið uppá því að gefa eldneyti til að hvetja fólk til blóðgjafar. Verkefnið stendur yfir í allt sumar og fer fram í tveimur ríkjum Bandaríkjanna, þeim Pennsylvaníu og New Jersey. 6.6.2007 14:42
Messenger með Venus innan seilingar Könnunarfar Nasa, Messenger, kemst í kvöld í mikla nálægð við reikistjörnuna Venus og verður að öllum líkindum í kjöraðstöðu til að mynda yfirborð Venusar og rannsaka. 6.6.2007 12:00
Stýrivextir hækka á evrusvæðinu Evrópski seðlabankinn ákvað í dag að hækka stýrivexti um 25 punkta í fjögur prósent. Þetta er í takt við væntingar markaðsaðila. Stýrivextir á evrusvæðinu eru tvöfalt hærri nú en fyrir einu og hálfi ári síðan og hafa ekki verið hærri í sex ár. 6.6.2007 11:48
Alcoa skoðar álver á Grænlandi Norska ál- og olíufyrirtækið Norsk Hydro staðfesti í dag að það hefði hætt við áform um að byggja álver á Vestur-Grænlandi. Viðræður hafa staðið yfir frá byrjun árs en heimastjórn Grænlands ákvað hins vegar að hefja viðræður við bandaríska álrisann Alcoa. 6.6.2007 11:35
Forstjóraskipti hjá Síldarvinnslunni Aðalsteinn Helgason hefur látið af störfum sem framkvæmdastjóri Síldarvinnslunnar hf á Neskaupsstað. og í stað hans hefur Gunnþór Ingvason verið ráðinn til starfa. Þá hefur Jóhannes Pálsson sömuleiðis verið ráðinn framkvæmdastjóri erlendrar starfsemi Síldarvinnslunnar. Hann mun jafnframt hafa umsjón með markaðs, sölumálum og vinnslu. 6.6.2007 11:08
Viðskiptafréttir ársins 2025: Leik Play lokið, langþráðar lækkanir og tuttugu milljóna klúbburinn Viðskipti innlent