Fleiri fréttir

Önnuðu ekki eftirspurn

Fjögur hundruð og þrettán listaverk hafa verið keypt á vaxtalausu listaverkaláni á undanförnum þremur árum. Samkvæmt upplýsingum frá Menningar- og ferðamálasviði Reykjavíkurborgar hafa lánin verið á bilinu 36 til 600 þúsund krónur, og hefur alls verið lánað fyrir tæpar 88 milljónir króna.

Leita svara um íslensku útrásina

Er hægt að staðfesta að árangur íslenskra útrásarfyrirtækja sé einstakur og er hægt að draga lærdóm af íslensku útrásinni sem er gagnlegur fyrir stjórnendur, ráðgjafa, fræðimenn og aðra? Viðskiptafræðistofnun Háskóla Íslands hefur hafið umfangsmikið rannsóknarverkefni til þess að leitast við að svara þessum spurningum og öðrum af svipuðum meiði.

Færeyskir sjóðir stórir í SPRON

Viðskipti voru með stofnfjárbréf í Sparisjóði Reykjavíkur og nágrennis (SPRON) í síðustu viku fyrir um 28 milljónir króna að markaðsvirði á genginu 4,0 og var gengið að þeim öllum.

Samdráttur í nýskráningum

Nýskráningar bifreiða í Evrópu drógust saman um 2,6 prósent í september frá sama mánuði í fyrra, samkvæmt upplýsingum frá samtökum evrópskra bílaframleiðenda, sem birtar voru í síðustu viku.

Bresk netveðmál bönnuð vestanhafs

Breska veðbankafyrirtækið Sportingbet, sem gerir netverjum kleift að leggja peninga undir ýmiss konar leiki, seldi um helgina starfsemi sína í Bandaríkjunum fyrir einn dal, jafnvirði rétt rúmra 68 íslenskra króna.

Samtímalist krafsar í köku meistaranna

Sjóvá hefur ákveðið að selja öll sín klassísku listaverk og kaupa og styðja frekar við samtímalist. Hólmfríður Helga Sigurðardóttir komst að raun um að eigendur stórra listaverkasafna hyggjast ekki feta sömu slóð, heldur gera nýrri og eldri list jafnhátt

Bjóða í bréf Líftækni­sjóðsins

Hlutafélagið Arkea, áður Prokaria, hefur gert þeim hluthöfum sem eiga bréf í Líftæknisjóðnum tilboð upp á eina krónu fyrir hvern hlut nafnverðs. Jakob Kristjánsson, framkvæmdastjóri Líftæknisjóðsins og annar af stærstu eigendum Arkeu, segir að með yfirtökutilboðinu sé verið að gera upp Líftæknisjóðinn og Prokaria.

Indverska vísitalan slær nýtt met

Indverska hlutabréfavísitalan Sensex hefur hækkað um 57 prósent á árinu þrátt fyrir snarpa dýfu um mitt þetta ár. Vísitalan nálgast nú 13.000 stiga markið og hefur aldrei verið hærri.

Keops kynnt

Forstjóri Keops A/S, Ole Vagner, kynnti félagið og fjárfestingastefnu þess í gær, ásamt því að fjalla um strauma og stefnur á fasteignamörkuðum í Skandinavíu, á fjárfestakynningu á Hótel Nordica í gær.

Bankar sameinast

Ítölsku bankarnir Banco Populare Italiana (BPI) og Banco Populare di Verona e Novara hafa ákveðið að sameinast. Með þessu verður til þriðji stærsti banki á Ítalíu en markaðsvirði hans er um 15 milljarðar evra, jafnvirði tæplega 1.300 milljarða íslenskra króna.

Orðrómur um Árvakur

Áhugi manna á fjölmiðlafyrirtækjum virðist vera endalaus og sá áhugi endurspeglast í endalausum sögusögnum sem fljúga um markaðinn. Nú gengur fjöllunum hærra að hlutur Kristins Björnssonar og skyldmenna í Árvakri sé til sölu og FL Group muni kaupa hlutinn.

Tryggingarálag lækkar enn

Tryggingarálag á fimm ára skuldabréf bankanna (CDS) heldur áfram að lækka líkt og þróunin hefur verið síðustu vikur.

Ikea er stærsta verslun landsins

Þetta ár er svo sannarlega stórt hjá Ikea á Íslandi. Ikea hefur verið með rekstur hér á landi í aldarfjórðung og flutti í nýtt og geysistórt húsnæði í síðustu viku. Þá tók nýr framkvæmdastjóri við störfum á fimmtudag. Þórarinn Ævarsson, framkvæmdastjóri I

Þróunarsjóður kaupir í EADS

Þýski þróunarsjóðurinn KfW, sem hér á landi er einna þekktastur fyrir útgáfu á svokölluðum Jöklabréfum sem hefur áhrif á gengi krónunnar, er sagður hafa hug á að kaupa rúman 7,5 prósenta hlut í EADS, móðurfélagi flugvélaframleiðandans Airbus. Seljandi bréfanna er þýski bifreiðaframleiðandinn DaimlerChrysler sem á 22,5 prósent bréfa í EADS. Kaupverð nemur um 130 milljörðum íslenskra króna.

Afgreitt á tveimur vikum

Það tók Glitni ekki langan tíma að selja allt það magn sem félagið hafði sölutryggt og gott betur en það. FL gengur að öllu leyti út úr eigendahópi Icelandair sem hefði þótt ótrúleg staða þegar áform um sölu og skráningu Icelandair í kauphöll voru fyrst kynnt.

Kaupþing í Componenta

Kaupþing hefur tekið sér stöðu meðal tíu stærstu hluthafa í finnska félaginu Componenta með eins prósents hlut. Félagið framleiðir meðal annars sérsmíðaða vélahluti í margvíslegum farartækja- og þungaiðnaði.

Topshop missir tískudrottningu

Jane Sheperdson, yfirframkvæmdastjóri tískuvörukeðjunnar Topshop, sagði upp störfum fyrr í þessum mánuði. Ýjað hefur verið að því að ástæðan fyrir uppsögninni sé óánægja hennar með samning Topshop við ofurfyrirsætuna Kate Moss. Hún vísar þessu hins vegar á bug og segir hafa verið tímabært að hugsa sér til hreyfings.

Hátt verð á fiski

Mjög dró úr framboði af fiski á fiskmörkuðum í síðustu viku. Tæplega 1.200 tonn af fiski seldust á mörkuðum en meðalverðið var mjög hátt eða 166,25 krónur á kíló. Annað eins verð hefur ekki sést í langan tíma. Til samanburðar seldust 2.614 tonn af fiski vikuna á undan og var meðalverðið 18,27 krónum lægra.

Næst stærsti tékkinn

Það voru brosandi hluthafar sem réttu upp hægri höndina þegar samþykkt var 20 milljarða arðgreiðsla Kauþings. Exista fékk mest sem stærsti hluthafinn og geymir í sjóðum sínum eigin bréf fyrir nokkra milljarða. Egla á 11 prósenta hlut og fær samkvæmt því um 2,2 milljarða. Reyndar þegar fjármagnstekjuskatturinn verður dreginn frá skýst annar aðili upp fyrir þá. Það er ríkið sem fær tíu prósent af heildargreiðslunni í sinn hlut. Á fundinum var engan fulltrúa næst stærsta tékkans að finna, en skilvís greiðsla upp í lækkun matarverðs ætti að berast frá bankanum á næstu vikum eða mánuðum.

Wal-Mart braut á starfsfólki sínu

Bandaríska verslanakeðjan Wal-Mart, sem er ein sú stærsta í heimi, var í síðustu viku dæmd til að greiða fyrrverandi starfsfólki sínu í Pennsylvaníu í Bandaríkjunum 78 milljónir bandaríkjadala, jafnvirði rúmra 5,3 milljarða íslenskra króna, í skaðabætur. Starfsfólkið var þvingað til að vinna í frítíma sínum, svo sem í kaffi- og matarhléum, án þess að fá greitt fyrir það. Í dómsniðurstöðu sagði að fyrirtækið hefði brotið ríkislög með því að neita að greiða starfsfólkinu fyrir umframvinnuna.

Glitnir eykur gagnsæi

Glitnir hefur tilkynnt að bankinn muni flytja þá hluti sem keyptir hafa verið til að verja bankann fyrir áhættu tengdri framvirkum viðskiptum undir auðkennið GLB Hedge.

Sony innkallar eigin rafhlöður

Japanska hátæknifyrirtækið Sony hefur ákveðið að innkalla 90.000 rafhlöður, sem fyrirtækið framleiðir og selur með fartölvum af gerðinni Sony Vaio. Greiningaraðilar telja líkur á talsvert minni hagnaði í ár en í fyrra.

Spá óbreyttri vísitölu

Greiningardeildir Glitnis og Landsbankans spáðu því á mánudag að vísitala neysluverðs verði óbreytt í næsta mánuði. Gangi spárnar eftir mun 12 mánaða verðbólga hækka í 7,3 prósent sem er 0,1 prósentustigs hækkun á milli mánaða.

Búið að hækka í græjunum

Það er alveg ljóst að partíið er komið í fullan gang aftur. Búið að hækka í græjunum og allir komnir út á gólf að dansa.

Mattel græðir á Barbie-brúðum

Hagnaður bandaríska leikfangaframleiðandans Mattel nam 239 milljónum Bandaríkjadala á þriðja fjórðungi ársins. Þetta jafngildir rúmum 16,2 milljörðum króna og er nokkuð umfram væntingar. Helsta ástæðan er aukin sala á Barbie-brúðum og afmælisútgáfu af brúðu úr barnaþáttunum Sesame Street.

Mesta verðbólgan á Íslandi

Samkvæmt samræmdri vísitölu neysluverðs mældist 12 mánaða verðbólga á Íslandi 6,1 prósent í síðasta mánuði. Þetta er um 1 prósentustig frá ágústmánuði. Á sama tíma lækkaði verðbólga í EES-ríkjunum um 0,4 prósentustig og mældist 1,9 prósent í mánuðinum. Verðbólgan hér er því hæst innan EES.

Verðbólguótti í Bandaríkjunum

Verðbólguóttinn hefur gert vart við sig í Bandaríkjunum eftir að vísitala framleiðsluverð reyndist hærri en væntingar stóðu til. Vísitalan hækkaði um 0,6 prósentustig í síðasta mánuði, sem er 0,4 prósentustigum meira en reiknað var með.

Tata Steel býður í Corus

Indverski stálframleiðandinn Tata Steel hefur gerði yfirtökutilboð í stálframleiðandann Corus, sem er í eigu enskra og hollenskra aðila. Tilboðið hljóðar upp á 4,1 milljarð punda, jafnvirði 525 milljarða íslenskra króna.

Enn hækkar olíuverðið

Heimsmarkaðsverð á hráolíu hækkaði á helstu fjármálamörkuðum í dag meðal annars vegna fundar samtaka olíuútflutningsríkja á fimmtudag í þessari viku um breytingar á olíuframleiðslu.

Sony innkallar eigin rafhlöður

Japanska hátæknifyrirtækið Sony hefur ákveðið að innkalla 90.000 rafhlöður, sem fyrirtækið framleiðir og selur með fartölvum af gerðinni Sony Vaio. Tæknifyrirtækið reiknaði með 43 prósenta minni hagnaði á árinu í júlí. Þá voru innkallanirnar ekki byrjaðar og reikna greiningaraðilar með enn minni hagnaði.

Barbie eykur hagnað Mattel

Hagnaður bandaríska leikfangaframleiðandans Mattel nam 239 milljónum bandaríkjadala á þriðja fjórðungi ársins. Þetta jafngildir rúmum 16,2 milljörðum króna og nokkuð umfram væntingar. Helsta ástæðan er aukin sala á Barbie-brúðum.

Spá óbreyttri verðbólgu

Greiningardeild Landsbankans spáir því að vísitala neysluverðs verði óbreytt í næsta mánuði. Gangi spáin eftir mun 12 mánaða verðbólga hækka í 7,3 prósent en er 0,1 prósentustiga hækkun á milli mánaða.

Avion Group semur um yfirtökutilboð

Avion Group hefur fyrir hönd dótturfélags síns, Eimskips Atlas Canada Inc., náð samkomulagi við Atlas Cold Storage um yfirtökutilboð í allt hlutafé félagsins. Samkomulagið felur í sér að Avion Group hækkar tilboð sitt úr 7 kanadískum dölum á hlut í 7,50 dali á hlut. Heildarvirði félagsins er um 583 milljónir kanadískra dala eða tæpir 35 milljarðar íslenskra króna.

Sena kaupir í Concert

Sena, stærsta fyrirtæki landsins á sviði afþreyingar, hefur keypt ráðandi hlut í Concert ehf., tónleika- og umboðsfyrirtæki Einars Bárðarsonar.Kaupverð er ekki uppgefið og kaupin eru með fyrirvara um að samkeppnisyfirvöld samþykki ráðhaginn.

Sensex nálgast nýjar hæðir

Indverska hlutabréfavísitalan Sensex hefur hækkað um 57 prósent á árinu þrátt fyrir snarpa dýfu um mitt ár. Vísitalan nálgast nú 13.000 stiga markið og hefur aldrei verið hærri.

Olíuverð hækkaði

Heimsmarkaðsverð á hráolíu hækkaði um allt að hálfan bandaríkjadal á helstu fjármálamörkuðum í dag. Samtök olíuútflutningsríkja, OPEC, greindu frá því um helgina að þau muni funda í arabaríkinu Katar á fimmtudag til að ákveða hvort dregið verði úr olíuframleiðslu til að minnka olíubirgðir og sporna gegn verðlækkunum á olíu.

Spá 7,3 prósenta verðbólgu í nóvember

Greiningardeild Glitnis segir í Morgunkorni sínu í dag að útlit sé fyrir óbreytta vísitölu neysluverðs á milli október og nóvember. Eldsneytisverð hafi lækkað töluvert, gengi krónunnar hækkað og útlit fyrir að íbúðaverð standi í stað. Hærri vextir hafi þó áhrif til hækkunar vísitölunnar, að sögn deildarinnar. Deildin spáir 1,8 prósenta verðbólgu á næsta ári.

Sjá næstu 50 fréttir