Afgreitt á tveimur vikum 18. október 2006 06:30 Sigurður Helgason og Hannes smárason Tveir þeirra sem hvað mest áhrif hafa haft á rekstur Icelandair á síðustu árum. Sigurður sem forstjóri flugleiða um árabil og Hannes sem stjórnandi FL Group og stærsti eigandi.
Áætlanir FL Group um sölu á hlutafé í Icelandair Group gengu eftir í vikunni þegar tilkynnt var um kaup fjárfesta á um 67 prósenta hlut í félaginu. Glitnir sölutryggir svo þann þriðjungshlut sem út af stendur og ætlar að bjóða almenningi og fagfjárfestum bréf til kaups á næstu vikum samfara skráningu Icelandair í Kauphöll Íslands. Icelandair verður þar með þriðja nýja félagið sem skráir hlutabréf sín í Kauphöll á þessu ári en hin eru Avion Group og Exista. Heildarvirði Icelandair liggur í kringum 43 milljarða króna sem mun gera það að tólfta stærsta fyrirtækinu á markaði. Avion Group, sem er fjárfestingafélag í flutninga- og ferðaþjónustustarfsemi, er eina félagið sem svipar til þess rekstrar sem Icelandair fæst við.Breytt áformÞar með hafa áætlanir stjórnenda FL Group gengið að öllu leyti upp og gott betur því ólíklegt má telja að þeir hafi horft fram á það að selja allan sinn hlut í Icelandair Group. Þegar félagið greindi frá því í febrúar að Icelandair yrði sett á markað á öðrum ársfjórðungi og hlutabréf seld til almennra fjárfesta voru markaðsaðstæður einkar ákjósanlegar eftir miklar hækkanir í desember og janúar. Þegar áformin voru kynnt á blaðamannafundi benti ekkert til annars en að FL myndi halda utan um tauma Icelandair, enda ætlaði félagið sér að halda utan um kjölfestuhlut líklega 30-40 prósenta hlut. Hins vegar dró ský snögglega fyrir sólu þegar bankaskýrslur komu á færibandi, hlutabréf féllu og krónan var í lausu lofti.Hætt var við áformin og hlutabréfunum stungið undir kodda. Þegar rofa tók á nýjan leik á hlutabréfamarkaði upp úr miðjum ágúst var málið sett í gang á ný.Glitnir með fjóra milljarðaÍ september hófu fjölmiðlar að greina frá viðræðum FL Group við fjárfestahópa annars vegar undir forystu Ólafs Ólafssonar í Samskipum og Kaupþings og hins vegar Glitnis og fyrirtækja tengd S-hópnum. Líklegra þótti að Ólafur tæki Icelandair til sín og gekk Financial Times svo langt að fullyrða að félagið væri hans. En snurða hljóp skyndilega á þráðinn þegar semja átti um verð. Hjörleifur Jakobsson, forstjóri Kers, var ósáttur við aðferðafræðina við söluna og verðlagningu og sleit viðræðum. Daginn eftir blés FL til blaðamannafundar þar sem kynnt var samkomulag félagsins við Glitnir um að bankinn sölutryggði 51 prósents hlutafjár í Icelandair eftir að áreiðanleikakönnun lyki. Bankinn gerði gott betur en það því hann hefur fundið kaupendur að 67 prósentum hlutafjár og sölutryggir þau 33 prósent sem eftir standa. Vitað var að bankinn hefði kaupendur til taks, enda höfðu Morgunblaðið og Fréttablaðið bæði greint frá því að annar fjárfestahópanna sem ræddu við stjórnendur FL væri S-hópurinn í samvinnu við Glitni.Þar sem verkefnið verður stærra í höndum Glitnis er ljóst að þetta er stærsta fyrirtækjaverkefni bankans frá upphafi. Miðað við fimm prósenta söluþóknun ætti bankinn að taka um fjóra milljarða króna í þóknunartekjur fyrir verkefnið sem færist til tekna á fjórða ársfjórðungi.Gamlir fjendurSvo skemmtilega vill til að tveir stærstu fjárfestahóparnir sem koma að kaupunum, Langflug sem Eignarhaldsfélagið Samvinnutryggingar fer að stærstum hluta fyrir, og Naust, að stærstum hluta í eigu Benedikts Sveinssonar, geta rakið uppruna sinn til gömlu valdablokkanna í Smokkfiskinum og Kolkrabbanum. VÍS-hópnum eða S-hópnum svokallaða, sem fer fyrir Langflugi, er stýrt af mönnum á borð við Axel Gíslasyni, Finni Ingólfssyni og Þórólfi Gíslasyni sem byggðu upp stórfyrirtæki úr gömlum sambandsfélögum. Þarna eru einnig Helgi S. Guðmundsson formaður og Þórólfur Gíslason, kaupfélagsstjóri á Sauðárkróki og forsvarsmaður Hesteyris.Naust hins vegar, sem er eigandi Olíufélagsins og Bílanausts, er að stærstum hluta í eigu Benedikts sem var áður stjórnarformaður Eimskipafélagsins og Sjóvár-Almennra. Einar Sveinsson, bróðir hans, er stjórnarformaður Glitnis og jafnframt í stjórn Olíufélagsins ESSO sem svo skemmtilega vill til að er einmitt gamalt sambandsfyrirtæki. Það hefði einhvern tíma þótt saga til næsta bæjar að gömlu brýnin í Kolkrabbanum og Smokkfiskinum tækju höndum saman. Svona breytast hlutirnir hratt í viðskiptalífinu.Með hlutafjárútboði til almennings og fagfjárfesta myndast breiður hluthafahópur og jafnframt næst það markmið að koma félaginu í almenningseign.Um 34 mánuðum eftir að Hannes Smárason komst til áhrifa í gömlu Flugleiðum verða þáttaskil í rekstri FL Group. FL hefur slitið samvistum við dótturfélagið sitt Icelandair Group og heldur til frekari fjárfestingaverkefna með 35 milljarða í auknu handbæru fé, en nýir fjárfestar koma að frekari uppbyggingu mikilvægasta samgöngutækis þjóðarinnar.Það fer vel á því að nýir eigendur komi að Icelandair nú þegar félagið fagnar sjötíu ára afmæli sínu á næsta ári. Flugáætlun félagsins verður sú stærsta í sögu þess á næsta ári en framboði á flugsætum verður fjölgað um sautján prósent og bætast þrjár nýjar leiðir við leiðakerfið.
Fréttaskýringar Undir smásjánni Viðskipti Mest lesið „Vonandi verður ein vaxtahækkun nóg“ Viðskipti innlent Borgar sig að taka út séreignasparnaðinn og ávaxta sjálfur? Viðskipti innlent Leitin að iðnaðarmanni ársins er hafin Samstarf Eldrauð Kauphöll Viðskipti innlent Verða af hundruðum þúsunda á ári þegar akstursdagbókin gleymist Samstarf Iðnaðurinn forherðist í andstöðu gegn ESB Viðskipti innlent Losun Landsvirkjunar jókst vegna virkjanaframkvæmda Viðskipti innlent Birgitta Líf ráðin framkvæmdastjóri Viðskipti innlent Fyrrverandi forstjóri óttast að félagið verði keypt og lagt niður Viðskipti innlent Í meistaranámi án stúdentsprófs: Kennarar til í breytingar en tröllið segir Nei Atvinnulíf Fleiri fréttir „Vonandi verður ein vaxtahækkun nóg“ Opna menningarmiðstöð í Smáralind Spá 0,25 prósenta hækkun stýrivaxta Borgar sig að taka út séreignasparnaðinn og ávaxta sjálfur? Þúfan veltir þungu flatbökuhlassi Óskar Ingi fjármálastjóri Beru „Blasir við öllum“ að athugasemdir SA skili ekki árangri Húrra dregur saman seglin Innleiða gervigreindina í MS Krónan oftar en ekki sveiflast minna en dollar, evran og pundið Fyrrverandi forstjóri óttast að félagið verði keypt og lagt niður Iðnaðurinn forherðist í andstöðu gegn ESB Opna Lindex þar sem Útilíf var Hafna ásökunum um hönnunarstuld Losun Landsvirkjunar jókst vegna virkjanaframkvæmda Birgitta Líf ráðin framkvæmdastjóri Eldrauð Kauphöll Taka skemmtiferðaskip í Vör Hagnaður tveimur milljörðum meiri en árið áður Pipar/TBWA með flesta Lúðra Skipti ekki máli hvaðan olían er Pálmi til liðs við Sagafilm Máttu ráðast í húsleit hjá Skel og Lyfjum og heilsu Þorsteinn nýr formaður stjórnar Samtaka iðnaðarins Bein útsending: Iðnþing 2026 Birgitta Líf gefur ekkert upp um næstu skref Hildur fer frá Hörpu til KPMG Ríkarður ráðinn aðstoðarforstjóri Hrafn frá Össuri til Gosfélagsins Útflutningstekjur tækni- og hugverkaiðnaðar hærri en í sjávarútvegi í fyrsta sinn Sjá meira