Fleiri fréttir 1,3 prósent verðbólga í Kína Verðbólga hækkaði um 0,3 prósentustig á milli mánaða í Kína og mældist 1,3 prósent á ársgrundvelli í ágúst, samkvæmt útreikningum hagstofu landsins. Greiningaraðilar segja bjuggust almennt við þessum niðurstöðum og segja verðbólguþróun í takt við væntingar. 11.9.2006 08:53 Efnahagslegt frelsi eykst hér Ísland er í 9. sæti á lista yfir efnahagslegt frelsi þjóða. Í árlegri skýrslu um efnahagsfrelsi í heiminum, sem Rannsóknarmiðstöð um samfélags- og efnahagsmál (RSE) gaf út í gær, kemur fram að frelsi af þessum toga er mun áhrifaríkara en ríkisstyrkt þróunaraðstoð við að hjálpa fátækum þjóðum úr fátækt. 9.9.2006 00:01 Exista-bréf ruku út Mikil eftirspurn var eftir bréfum í Exista í gær þegar fyrsti áfangi í skráningu félagsins á markað fór fram að því er fram kemur í Vegvísi Landsbankans. 9.9.2006 00:01 Mjólka breytir Feta Mjólka hefur brugðist við óskum um að aðgreina betur framleiðslu sína frá vörum annarra framleiðenda. Á næstunni munu því fetaostar frá Mjólku sem seldir eru í glerkrukkum vera seldir með breyttum merkingum. Osta- og smjörsalan hafði gert athugasemdir við umbúðirnar og sagði þær gerðar til að villa um fyrir neytendum. 9.9.2006 00:01 LSR skilaði 23% nafnávöxtun Lífeyrissjóður starfsmanna ríkisins (LSR), stærsti lífeyrissjóður landsins, skilaði á fyrri hluta ársins 22,8 prósenta nafnávöxtun á ársgrundvelli. Þetta samsvarar raunávöxtun upp á 10,2 prósent. 9.9.2006 00:01 Barr leggur fram nýtt tilboð í Pliva á móti Actavis Króatíska fjármálaeftirlitið fer nú yfir nýtt tilboð bandaríska lyfjafyrirtækisins Barr Pharmaceuticals í króatíska samheitalyfjafyrirtækið PLIVA. Með tilboði sín svarar Barr hækkuðu tilboði Actavis sem lagt var fram í síðustu viku. 9.9.2006 00:01 Gengi FL Group hækkaði um 11,4 prósent í gær. Hlutabréf í FL Group og Landsbankanum hafa hækkað mest allra hlutabréfa frá því í byrjun ágúst, um það leyti er innlendur hlutabréfamarkaður náði lægsta gildi á árinu. Hafa bréf FL hækkað um tæpan þriðjung en bréf Landsbankans hækkað um 24 prósent á þeim tíma. 9.9.2006 00:01 Mikil hækkun á bréfum FL Group Gengi bréfa í FL Group tóku mikinn kipp í Kauphöll Íslands í dag en gengi þeirra hækkaði um 11,41 prósent og stendur gengi bréfa í félaginu í 20,5 krónum á hlut. Markaðsvirði félagsins jókst um 16 milljarða krónur við hækkunina. 8.9.2006 16:27 Barr með nýtt tilboð í Pliva Bandaríska lyfjafyrirtækið Barr hefur sett fram nýtt tilboð í allt hlutafé króatíska lyfjafyrirtækisins Pliva. Á vefsíðu Barr kemur fram að ekki verði greint frá því hvað felist í tilboðinu fyrr en Hanfa, fjármálaeftirlit Króatíu, hafi farið yfir boðið og veitt samþykki sitt. 8.9.2006 13:51 Samdráttur hjá Íbúðalánasjóði Heildarútlán Íbúðalánasjóðs námu 3,2 milljörðum króna í ágúst. Þar af telst 3,1 milljarður króna til almennra lána en 100 milljónir til leiguíbúðalána.Þetta er talsverður samdráttur frá júlí en þá námu heildarútlán sjóðsins 5,1 milljarði króna. 8.9.2006 12:37 Pliva lýst vel á tilboð Actavis Stjórn króatíska lyfjafyrirtækisins Pliva segir yfirtökutilboð Actavis í fyrirtækið endurspegla sanngjarnt verðmat. Fréttaveita Reuters bendir á að stjórninni lítist þrátt fyrir það betur á samruna við bandaríska lyfjafyrirtækisins Barr. Barr greinir frá því í dag hvort fyrirtækið ætli að hækka tilboð sitt eður ei. 8.9.2006 11:29 Engin breyting á olíuframleiðslu Sérfræðingar segja ekki líkur á að OPEC, samtök olíuframleiðsluríkja, geri miklar breytingar á olíuframleiðslu sinni þrátt fyrir að hætta sé á að hátt olíuverð geti dregið úr hagvexti. OPEC fundar um málið í næstu viku. 8.9.2006 11:17 Óbreyttir stýrivextir í Japan Seðlabanki Japans hefur ákveðið að halda stýrivöxtum bankans óbreyttum í 0,25 prósentum. Almennt var búist við þessari ákvörðun en stýrivextir í landinu voru hækkaði um 25 punkta í júlí eftir sex ára viðvarandi núllvaxtastefnu. 8.9.2006 09:28 Glitnir og LÍ ósammála um útboðsgengi Exista. 8.9.2006 09:10 Færeyingar horfa til Kauphallarinnar í auknum mæli 8.9.2006 09:10 Hagstjórnin gagnrýnd 8.9.2006 09:10 Æ fleiri fyrirtæki bókfæra í dollurum 8.9.2006 09:10 Barr svarar í dag 8.9.2006 09:10 Tveir af þekktustu hagfræðingum heims heiðraðir Tveir af þekktustu núlifandi hagfræðingum heims fá heiðursdoktorsnafnbót frá viðskipta- og hagfræðideild Háskóla Íslands 21. október. Annar þeirra, Robert Mundell, hefur verið kallaður faðir evrunnar en hann er talinn upphafsmaður kenningarinnar um hagkvæm myntsvæði. 8.9.2006 01:30 Verðlækkun á hráolíu Verð á hráolíu lækkaði lítillega á markaði í Bandaríkjunum í dag þrátt fyrir að olíubirgðir landinu hafi dregist saman á milli vikna. Verðið hefur lækkað um 12 prósent undanfarna mánuði en verðið á hráolíu nú hefur ekki verið lægra síðan í byrjun apríl. 7.9.2006 16:20 Byggingakostnaður DR fór langt fram úr áætlun Kostnaður við byggingu nýs húss danska ríkisútvarpsins (DR) í Ørestaden í Kaupmannahöfn hefur farið 600 milljónir danskra króna eða tæplega 7,2 milljarða íslenskra króna fram úr kostnaðaráætlun. Fjármálastjóri útvarpsins sagði af sér í dag vegna málsins. 7.9.2006 15:30 Níunda mesta frelsið á Íslandi Ísland er í 9. sæti á lista yfir efnahagslegt frelsi þjóða en frelsi af þessum toga er mun áhrifaríkara en ríkisstyrkt þróunaraðstoð við að hjálpa fátækum þjóðum að flýja fátæktina. Þetta kemur fram í árlegri skýrslu um efnahagsfrelsi í heiminum, sem Rannsóknarmiðstöð um samfélags- og efnahagsmál (RSE) birti í dag. 7.9.2006 11:35 Óbreyttir stýrivextir í Bretlandi Stjórn Englandsbanka ákvað að loknum vaxtaákvörðunarfundi sínum í dag að halda stýrivöxtum óbreyttum í Bretlandi en þeir standa í 4,75 prósentum. Í rökstuðningi stjórnarinnar fyrir ákvörðuninni segir að þrátt fyrir hættu á aukinni verðbólgu þá hafi verð á helstu vöruflokkum, þar á meðal olíu, lækkað nokkuð síðustu vikurnar. 7.9.2006 11:12 Lítil hækkun á olíuverði Verð á hráolíu hækkaði lítillega á helstu mörkuðum í dag eftir lækkanir í fyrstu viðskiptum dagsins. Lægst fór verðið í 67,41 bandaríkjadal á tunnu og hafði ekki verið lægra síðan í byrjun apríl. Sérfræðingar telja líkur á að olíuverðið geti lækkað um allt að 10 dali til viðbótar. 7.9.2006 10:49 Nýjar höfuðstöðvar DR of dýrar Kostnaður við byggingu nýrra höfuðstöðva danska ríkisútvarpsins (DR) við Ørestaden í Kaupmannahöfn hefur farið 500 milljónir danskra króna, eða tæpa 6 milljarða íslenskar krónur, fram úr áætlun. Fyrirhugað er að flytja alla starfsemi útvarpsins í húsið í desember á þessu ári. 7.9.2006 09:43 Dótturfélag Baugs eykur umfang sitt 7.9.2006 09:04 Gardell vill komast í digra sjóði Volvo 7.9.2006 09:04 Styrkja norska lífeyrissjóðinn 7.9.2006 09:04 Vistor skipt í aðskilin félög 7.9.2006 09:04 Mögulegur stuðpúði ólíkra viðskiptaheima 7.9.2006 09:04 Amiad hagnast 7.9.2006 09:03 Búist við óbreyttum stýrivöxtum Stjórn Englandsbanka ákveður stýrivaxtastig í Bretlandi að loknum fundi sínum fyrir hádegi í dag. Stýrivextirnir standa nú í 4,75 prósentum. Greiningaraðilar búast almennt við óbreyttum vöxtum nú en hækkun síðar á árinu, jafnvel í nóvember. 7.9.2006 08:22 BAE selur hlutina í Airbus Stjórn breska félagsins British Aerospace (BAE) hefur samþykkt að selja 20 prósenta hlut sinn í evrópska flugvélaframleiðandanum Airbus til fransk-þýska félagsins EADS, stærsta hluthafa í Airbus, sem á 80 prósent hlutafjár fyrir. Kaupverð er talið nema 2,75 milljörðum evra eða tæplega 245 milljörðum íslenskra króna. 7.9.2006 08:07 Góð launahækkun hjá forstjóra Ford 6.9.2006 13:41 Góður hagnaður hjá Heineken Hollenski bjórframleiðandinn Heineken greindi frá því í dag að hagnaður fyrirtækisins hefði numið 433 milljónir evra eða 38,5 milljörðum íslenskra króna á fyrstu sex mánuðum ársins. Þetta er 25 prósenta auking á milli ára. 6.9.2006 12:47 ESB hækkar hagvaxtarspá Evrópusambandið (ESB) hækkaði hagvaxtarspá sína fyrir sambandið í dag. Reiknað er með 2,7 prósenta hagvexti innan ESB á árinu og 2,5 prósenta hagvexti á evrusvæðinu en það er 0,4 prósentustiga hækkun frá fyrri spá. Verði þetta raunin hefur hagvöxtur aldrei verið meiri á evrusvæðinu. 6.9.2006 11:50 Olíufundur lækkar olíuverð Verð á hráolíu lækkaði í rafrænum viðskiptum á helstu mörkuðum í dag og fór undir 68 dali á tunnu. Helsta ástæða lækkunarinnar er tilkynning frá þremur olíufyrirtækjum í gær að tilraunaboranir á djúpsævi við Mexíkóflóa hafi skilað góðum árangri. Sérfræðingar þetta stærsta olíufund í mannsaldur. 6.9.2006 09:40 Þýsk risaútgáfa seld til Frakklands Þýska fjölmiðlasamsteypan Bertelsmann hefur samþykkt að selja tónlistarútgáfuarm fyrirtækisins, BMG Music Publishing Group, til útgáfufyrirtækisins Universal Music, dótturfélags frönsku fjölmiðlasamstæðunnar Vivendi. Universal Music greiðir 1,63 milljarða evrur, jafnvirði 144,7 milljarða króna, fyrir útgáfufyrirtækið. 6.9.2006 09:17 Lokað á fjölmiðlakóng Dómstóll í Kanada úrskurðaði í síðustu viku að öll viðskipti með eignir Conrads Black, fyrrum forstjóra kanadísku fjölmiðlasamsteypunnar Hollinger International, sem eitt sinn var þriðja stærsta fjölmiðlaveldi heims, skyldu stöðvuð á heimsvísu. 6.9.2006 00:01 Ford íhugar sölu dótturfélaga Forsvarsmenn bandaríska bílaframleiðandans Ford opinberuðu í síðustu viku áætlanir þess efnis að selja framleiðslu Aston Martin sportbílsins, sem framleiddur er í Bretlandi. Ford keypti 75 prósenta hlut í Aston Martin árið 1987 en lauk kaupum á öllu hlutafé í fyrirtækinu sjö árum síðar. 6.9.2006 00:01 Tjónahlutfall 90% Afkoma helstu tryggingafélaga var borin uppi af fjárfestingatekjum en tjónahlutfall var hátt. 6.9.2006 00:01 Útboð breyta væginu Nýskráning Exista og hlutafjáraukning í Marel veldur breytingum á úrvalsvísitölunni. Vægi Exista í iCEX-15 tæp níu prósent. 6.9.2006 00:01 Bláa lónið opnar verslun Ný Blue Lagoon verslun var formlega opnuð í Flugstöð Leifs Eiríkssonar á fimmtudaginn var. Í fréttatilkynningu frá félaginu segir að í versluninni séu Blue Lagoon húðvörur fáanlegar og boðið sé upp á orkumeðferðir á spa-svæði verslunarinnar. Spa svæði sem þessi sé að finna í mörgum helstu flugstöðvum heims og njóti þessi þjónusta aukinna vinsælda. 6.9.2006 00:01 Neikvæð umfjöllun hafði engin áhrif Karl Otto Eidem, starfandi framkvæmdastjóri verðbréfafyrirtækisins Fischer Partners, sem er í eigu Glitnis, telur að neikvæð umfjöllun um íslenskt efnahagslíf á fyrri hluta árs hafi ekki haft teljandi áhrif á starfsemi Fischer Partners. 6.9.2006 00:01 Samskip selur Tschudi TECO Samkomulag hefur náðst milli Samskipa og norska skipafélagsins Tschudi Shipping Company AS um kaup norska félagsins á helmingshlut Samskipa í eistneska skipafélaginu TECO LINES AS. Kaupverðið er sagt trúnaðarmál. 6.9.2006 00:01 Sjá næstu 50 fréttir
1,3 prósent verðbólga í Kína Verðbólga hækkaði um 0,3 prósentustig á milli mánaða í Kína og mældist 1,3 prósent á ársgrundvelli í ágúst, samkvæmt útreikningum hagstofu landsins. Greiningaraðilar segja bjuggust almennt við þessum niðurstöðum og segja verðbólguþróun í takt við væntingar. 11.9.2006 08:53
Efnahagslegt frelsi eykst hér Ísland er í 9. sæti á lista yfir efnahagslegt frelsi þjóða. Í árlegri skýrslu um efnahagsfrelsi í heiminum, sem Rannsóknarmiðstöð um samfélags- og efnahagsmál (RSE) gaf út í gær, kemur fram að frelsi af þessum toga er mun áhrifaríkara en ríkisstyrkt þróunaraðstoð við að hjálpa fátækum þjóðum úr fátækt. 9.9.2006 00:01
Exista-bréf ruku út Mikil eftirspurn var eftir bréfum í Exista í gær þegar fyrsti áfangi í skráningu félagsins á markað fór fram að því er fram kemur í Vegvísi Landsbankans. 9.9.2006 00:01
Mjólka breytir Feta Mjólka hefur brugðist við óskum um að aðgreina betur framleiðslu sína frá vörum annarra framleiðenda. Á næstunni munu því fetaostar frá Mjólku sem seldir eru í glerkrukkum vera seldir með breyttum merkingum. Osta- og smjörsalan hafði gert athugasemdir við umbúðirnar og sagði þær gerðar til að villa um fyrir neytendum. 9.9.2006 00:01
LSR skilaði 23% nafnávöxtun Lífeyrissjóður starfsmanna ríkisins (LSR), stærsti lífeyrissjóður landsins, skilaði á fyrri hluta ársins 22,8 prósenta nafnávöxtun á ársgrundvelli. Þetta samsvarar raunávöxtun upp á 10,2 prósent. 9.9.2006 00:01
Barr leggur fram nýtt tilboð í Pliva á móti Actavis Króatíska fjármálaeftirlitið fer nú yfir nýtt tilboð bandaríska lyfjafyrirtækisins Barr Pharmaceuticals í króatíska samheitalyfjafyrirtækið PLIVA. Með tilboði sín svarar Barr hækkuðu tilboði Actavis sem lagt var fram í síðustu viku. 9.9.2006 00:01
Gengi FL Group hækkaði um 11,4 prósent í gær. Hlutabréf í FL Group og Landsbankanum hafa hækkað mest allra hlutabréfa frá því í byrjun ágúst, um það leyti er innlendur hlutabréfamarkaður náði lægsta gildi á árinu. Hafa bréf FL hækkað um tæpan þriðjung en bréf Landsbankans hækkað um 24 prósent á þeim tíma. 9.9.2006 00:01
Mikil hækkun á bréfum FL Group Gengi bréfa í FL Group tóku mikinn kipp í Kauphöll Íslands í dag en gengi þeirra hækkaði um 11,41 prósent og stendur gengi bréfa í félaginu í 20,5 krónum á hlut. Markaðsvirði félagsins jókst um 16 milljarða krónur við hækkunina. 8.9.2006 16:27
Barr með nýtt tilboð í Pliva Bandaríska lyfjafyrirtækið Barr hefur sett fram nýtt tilboð í allt hlutafé króatíska lyfjafyrirtækisins Pliva. Á vefsíðu Barr kemur fram að ekki verði greint frá því hvað felist í tilboðinu fyrr en Hanfa, fjármálaeftirlit Króatíu, hafi farið yfir boðið og veitt samþykki sitt. 8.9.2006 13:51
Samdráttur hjá Íbúðalánasjóði Heildarútlán Íbúðalánasjóðs námu 3,2 milljörðum króna í ágúst. Þar af telst 3,1 milljarður króna til almennra lána en 100 milljónir til leiguíbúðalána.Þetta er talsverður samdráttur frá júlí en þá námu heildarútlán sjóðsins 5,1 milljarði króna. 8.9.2006 12:37
Pliva lýst vel á tilboð Actavis Stjórn króatíska lyfjafyrirtækisins Pliva segir yfirtökutilboð Actavis í fyrirtækið endurspegla sanngjarnt verðmat. Fréttaveita Reuters bendir á að stjórninni lítist þrátt fyrir það betur á samruna við bandaríska lyfjafyrirtækisins Barr. Barr greinir frá því í dag hvort fyrirtækið ætli að hækka tilboð sitt eður ei. 8.9.2006 11:29
Engin breyting á olíuframleiðslu Sérfræðingar segja ekki líkur á að OPEC, samtök olíuframleiðsluríkja, geri miklar breytingar á olíuframleiðslu sinni þrátt fyrir að hætta sé á að hátt olíuverð geti dregið úr hagvexti. OPEC fundar um málið í næstu viku. 8.9.2006 11:17
Óbreyttir stýrivextir í Japan Seðlabanki Japans hefur ákveðið að halda stýrivöxtum bankans óbreyttum í 0,25 prósentum. Almennt var búist við þessari ákvörðun en stýrivextir í landinu voru hækkaði um 25 punkta í júlí eftir sex ára viðvarandi núllvaxtastefnu. 8.9.2006 09:28
Tveir af þekktustu hagfræðingum heims heiðraðir Tveir af þekktustu núlifandi hagfræðingum heims fá heiðursdoktorsnafnbót frá viðskipta- og hagfræðideild Háskóla Íslands 21. október. Annar þeirra, Robert Mundell, hefur verið kallaður faðir evrunnar en hann er talinn upphafsmaður kenningarinnar um hagkvæm myntsvæði. 8.9.2006 01:30
Verðlækkun á hráolíu Verð á hráolíu lækkaði lítillega á markaði í Bandaríkjunum í dag þrátt fyrir að olíubirgðir landinu hafi dregist saman á milli vikna. Verðið hefur lækkað um 12 prósent undanfarna mánuði en verðið á hráolíu nú hefur ekki verið lægra síðan í byrjun apríl. 7.9.2006 16:20
Byggingakostnaður DR fór langt fram úr áætlun Kostnaður við byggingu nýs húss danska ríkisútvarpsins (DR) í Ørestaden í Kaupmannahöfn hefur farið 600 milljónir danskra króna eða tæplega 7,2 milljarða íslenskra króna fram úr kostnaðaráætlun. Fjármálastjóri útvarpsins sagði af sér í dag vegna málsins. 7.9.2006 15:30
Níunda mesta frelsið á Íslandi Ísland er í 9. sæti á lista yfir efnahagslegt frelsi þjóða en frelsi af þessum toga er mun áhrifaríkara en ríkisstyrkt þróunaraðstoð við að hjálpa fátækum þjóðum að flýja fátæktina. Þetta kemur fram í árlegri skýrslu um efnahagsfrelsi í heiminum, sem Rannsóknarmiðstöð um samfélags- og efnahagsmál (RSE) birti í dag. 7.9.2006 11:35
Óbreyttir stýrivextir í Bretlandi Stjórn Englandsbanka ákvað að loknum vaxtaákvörðunarfundi sínum í dag að halda stýrivöxtum óbreyttum í Bretlandi en þeir standa í 4,75 prósentum. Í rökstuðningi stjórnarinnar fyrir ákvörðuninni segir að þrátt fyrir hættu á aukinni verðbólgu þá hafi verð á helstu vöruflokkum, þar á meðal olíu, lækkað nokkuð síðustu vikurnar. 7.9.2006 11:12
Lítil hækkun á olíuverði Verð á hráolíu hækkaði lítillega á helstu mörkuðum í dag eftir lækkanir í fyrstu viðskiptum dagsins. Lægst fór verðið í 67,41 bandaríkjadal á tunnu og hafði ekki verið lægra síðan í byrjun apríl. Sérfræðingar telja líkur á að olíuverðið geti lækkað um allt að 10 dali til viðbótar. 7.9.2006 10:49
Nýjar höfuðstöðvar DR of dýrar Kostnaður við byggingu nýrra höfuðstöðva danska ríkisútvarpsins (DR) við Ørestaden í Kaupmannahöfn hefur farið 500 milljónir danskra króna, eða tæpa 6 milljarða íslenskar krónur, fram úr áætlun. Fyrirhugað er að flytja alla starfsemi útvarpsins í húsið í desember á þessu ári. 7.9.2006 09:43
Búist við óbreyttum stýrivöxtum Stjórn Englandsbanka ákveður stýrivaxtastig í Bretlandi að loknum fundi sínum fyrir hádegi í dag. Stýrivextirnir standa nú í 4,75 prósentum. Greiningaraðilar búast almennt við óbreyttum vöxtum nú en hækkun síðar á árinu, jafnvel í nóvember. 7.9.2006 08:22
BAE selur hlutina í Airbus Stjórn breska félagsins British Aerospace (BAE) hefur samþykkt að selja 20 prósenta hlut sinn í evrópska flugvélaframleiðandanum Airbus til fransk-þýska félagsins EADS, stærsta hluthafa í Airbus, sem á 80 prósent hlutafjár fyrir. Kaupverð er talið nema 2,75 milljörðum evra eða tæplega 245 milljörðum íslenskra króna. 7.9.2006 08:07
Góður hagnaður hjá Heineken Hollenski bjórframleiðandinn Heineken greindi frá því í dag að hagnaður fyrirtækisins hefði numið 433 milljónir evra eða 38,5 milljörðum íslenskra króna á fyrstu sex mánuðum ársins. Þetta er 25 prósenta auking á milli ára. 6.9.2006 12:47
ESB hækkar hagvaxtarspá Evrópusambandið (ESB) hækkaði hagvaxtarspá sína fyrir sambandið í dag. Reiknað er með 2,7 prósenta hagvexti innan ESB á árinu og 2,5 prósenta hagvexti á evrusvæðinu en það er 0,4 prósentustiga hækkun frá fyrri spá. Verði þetta raunin hefur hagvöxtur aldrei verið meiri á evrusvæðinu. 6.9.2006 11:50
Olíufundur lækkar olíuverð Verð á hráolíu lækkaði í rafrænum viðskiptum á helstu mörkuðum í dag og fór undir 68 dali á tunnu. Helsta ástæða lækkunarinnar er tilkynning frá þremur olíufyrirtækjum í gær að tilraunaboranir á djúpsævi við Mexíkóflóa hafi skilað góðum árangri. Sérfræðingar þetta stærsta olíufund í mannsaldur. 6.9.2006 09:40
Þýsk risaútgáfa seld til Frakklands Þýska fjölmiðlasamsteypan Bertelsmann hefur samþykkt að selja tónlistarútgáfuarm fyrirtækisins, BMG Music Publishing Group, til útgáfufyrirtækisins Universal Music, dótturfélags frönsku fjölmiðlasamstæðunnar Vivendi. Universal Music greiðir 1,63 milljarða evrur, jafnvirði 144,7 milljarða króna, fyrir útgáfufyrirtækið. 6.9.2006 09:17
Lokað á fjölmiðlakóng Dómstóll í Kanada úrskurðaði í síðustu viku að öll viðskipti með eignir Conrads Black, fyrrum forstjóra kanadísku fjölmiðlasamsteypunnar Hollinger International, sem eitt sinn var þriðja stærsta fjölmiðlaveldi heims, skyldu stöðvuð á heimsvísu. 6.9.2006 00:01
Ford íhugar sölu dótturfélaga Forsvarsmenn bandaríska bílaframleiðandans Ford opinberuðu í síðustu viku áætlanir þess efnis að selja framleiðslu Aston Martin sportbílsins, sem framleiddur er í Bretlandi. Ford keypti 75 prósenta hlut í Aston Martin árið 1987 en lauk kaupum á öllu hlutafé í fyrirtækinu sjö árum síðar. 6.9.2006 00:01
Tjónahlutfall 90% Afkoma helstu tryggingafélaga var borin uppi af fjárfestingatekjum en tjónahlutfall var hátt. 6.9.2006 00:01
Útboð breyta væginu Nýskráning Exista og hlutafjáraukning í Marel veldur breytingum á úrvalsvísitölunni. Vægi Exista í iCEX-15 tæp níu prósent. 6.9.2006 00:01
Bláa lónið opnar verslun Ný Blue Lagoon verslun var formlega opnuð í Flugstöð Leifs Eiríkssonar á fimmtudaginn var. Í fréttatilkynningu frá félaginu segir að í versluninni séu Blue Lagoon húðvörur fáanlegar og boðið sé upp á orkumeðferðir á spa-svæði verslunarinnar. Spa svæði sem þessi sé að finna í mörgum helstu flugstöðvum heims og njóti þessi þjónusta aukinna vinsælda. 6.9.2006 00:01
Neikvæð umfjöllun hafði engin áhrif Karl Otto Eidem, starfandi framkvæmdastjóri verðbréfafyrirtækisins Fischer Partners, sem er í eigu Glitnis, telur að neikvæð umfjöllun um íslenskt efnahagslíf á fyrri hluta árs hafi ekki haft teljandi áhrif á starfsemi Fischer Partners. 6.9.2006 00:01
Samskip selur Tschudi TECO Samkomulag hefur náðst milli Samskipa og norska skipafélagsins Tschudi Shipping Company AS um kaup norska félagsins á helmingshlut Samskipa í eistneska skipafélaginu TECO LINES AS. Kaupverðið er sagt trúnaðarmál. 6.9.2006 00:01