Fleiri fréttir

Búist við milljarði á mánuði

Íslandsbanki birtir uppgjör sitt í dag fyrir fyrri helming ársins. Íslandsbanki er fyrstur bankanna til að birta uppgjör. Hinir tveir birta uppgjör sín á fimmtudag. Búist er við góðum uppgjörum fjármálafyrirtækja, enda umhverfið verið þeim hagstætt að undanförnu.

Gengishagnaður strax við kaup

"Þetta er ósköp einfalt. Bréf KB banka hafa verið að seljast á genginu 420 til 450 krónur á hlut. Gengið í útboðinu er 360 krónur á hlut," segir Karl Finnbogason hjá Verðbréfastofunni um hlutafjárútboð KB banka. "Við ráðleggjum okkar viðskiptavinum að taka þátt í þessu útboði, það er engin spurning."

KB banki leiðir sænsku kauphöllina

KB banki leiðir hækkanir á sænska markaðnum. Bankinn vekur sífellt meiri athygli í Svíþjóð. Umskipti hafa orðið í umræðunni um bankann frá því að félag fjárfesta réði sínu fólki frá því að eignast bréf í bankanum. </font /></b />

Hart deilt um kerfisbreytingar

Íbúðalánasjóður og Samtök banka og verðbréfafyrirtækja saka hver annan um ófagleg vinnubrögð. SBV segir breytingar á íbúðalánakerfinu ekki hafa verið nægilega vel unnar. Íbúðalánasjóður vísar gagnrýninni á bug. </font /></b />

Straumur hagnast um 1,12 milljarða

Hagnaður Straums - fjárfestingabanka á öðrum ársfjórðungi 2004 nam 1.122 milljónum króna. Hreinar rekstrartekjur bankans námu 1.457 milljónum kr. en þar af var gengishagnaður 1.230 milljónir. Þetta kemur fram í uppgjöri Straums fyrir annan ársfjórðung ársins sem birt var í dag og er þetta fyrsta uppgjörið fyrir fjórðunginn.

Bréf í Amazon hríðlækka

Verð hlutabréfa í Amazon.com féll um þrettán prósent þrátt fyrir að fyrirtækið hafi nýlega tilkynnt um hagnað og veltuaukningu á síðasta ársfjórðungi. Hagnaðurinn og veltuaukningin reyndust minni en spáð var og því hríðlækkuðu bréf í félaginu.

Microsoft lætur undan þrýstingi

Hugbúnaðarrisinn Microsoft hefur ákveðið að láta undan þrýstingi hluthafa og nota hluta af peningafjalli sínu til að greiða hluthöfum um 5 þúsund milljarða króna. Arðgreiðslur verða tvöfaldaðar og hluthafar fá eingreiðslu sem nemur þremur dollurum á hlut, eða alls um 2.300 milljörðum króna.

Milljarður í hagnað hjá Norðuráli

Rekstur Norðuráls skilaði ríflega eins milljarðs króna hagnaði eftir skatta á síðasta ári eða sem nemur rúmlega 13 milljónum bandaríkjadala. Það er aukning um tæplega þrjár milljónir dala eða ríflega 200 milljónir króna. Þetta kemur fram í tilkynningu sem fyrirtækið sendi frá sér í dag.

Þreföld smásala vegna EM

Smásala í Bretlandi jókst næstum þrisvar sinnum meira í júní en sérfræðingar höfðu gert ráð fyrir og er aukningin rakin til Evrópumótsins í knattspyrnu sem fram fór mánuðinum. Aukningin nam 1,1% sem er það mesta síðan í janúar en spá sérfræðinga hljóðaði upp á 0,4% aukningu.

Decode tekur dýfu

Gengi deCode hefur lækkað skarpt á síðustu dögum á Nasdaq-markaðnum í Bandaríkjunum. Gengi bréfa í félaginu fóru niður í 6,65 Bandaríkjadali á hlut á miðvikudag. Hæst fóru bréfin í 13,8 dali í febrúar.

Krónan styrktist mikið

Líflegt var á gjaldeyrismarkaði í gær og námu viðskipti dagsins 4,6 milljörðum króna. Íslenska krónan styrktist um 0,7% sem telst mjög mikið á einum degi. Krónan hefur styrkst um 1,4% frá áramótum en til samanburðar styrktist krónan um 6,4% á síðasta ári.

SH kaupir í Bretlandi

Sölumiðstöð Hraðfrystihúsanna hefur keypt 80% í breska matvælafyrirtæki. Fyrirtækið, Seachill, selur mikið af kældum fiskafurðum til verslunarkeðjunnar Tesco í Bretlandi. Kaupverðið er 4,9 milljarðar króna.

Landsteinar á ÓL

Hugbúnaðarlausnir frá Landsteinum - Streng verði notaðar í öllum verslunum á Ólympíuleikunum í Aþenu sem hefjast í september. Í fréttatilkynningu frá félaginu kemur fram að um 110 verslanir sé að ræða og að í kjölfar leikanna verði kerfi frá íslenska fyrirtækinu tekin í notkun á flughöfnum víðs vegar um Grikkland.

Eignarhald á hendi fárra

Eignarhald á félögum í Kauphöll Íslands eru á fárra hendi í mörgum tilvikum að því er fram kemur í „Morgunkornum“ Greiningar Íslandsbanka í gær. Þegar hluthafalistar 25 helstu félaga Kauphallarinnar eru skoðaðir kemur í ljós að meðal þeirra nemur eign fimm stærstu hluthafa allt frá 35% til 96% hlutafjár.

Ísland í 14. sæti í frjálsræði

Ísland er í 14. sæti á lista yfir þær þjóðir þar sem mest frjálsræði er í efnahagsmálum samkvæmt nýrri skýrslu frá Fraser-stofnuninni í Kanada. Forstöðumaður Hagfræðistofnunar Háskóla Íslands segir þetta viðunandi stöðu en auka megi frelsi hér á landi enn frekar með því að aflétta hömlum á landbúnaðarvörum og lækka skatta.

Verslanir Símans í nýjan búning

Breytingar á verslunum Símans standa nú sem hæst og verður unnið að því að breyta öllum verslunum Símans til samræmis við nýtt útlit fyrirtækisins. Í dag verður verslun Símans í Kringlunni opnuð með nýju útliti.

Vísitala neysluverðs lækkar

Vísitala neysluverðs lækkaði um 0,47% í júlí og var lækkunin töluvert umfram það sem markaðsaðilar höfðu reiknað með. Ástæðan liggur m.a. í húsnæðislið neysluverðsvísitölunnar og má rekja til kerfisbreytinga Íbúðalánasjóðs um síðustu mánaðarmót og aðferðafræði Hagstofunnar, að sögn greiningardeildar Landsbankans.

Í 14. sæti yfir efnahagsfrjálsræði

Ný skýrsla sýnir að Ísland stendur sig ágætlega hvað varðar frjálsræði í efnahagsmálum. Fjárfesting, landsframleiðsla og tekjur á mann haldast í hendur við stöðu þjóða á listanum þar sem velsæld er mest hjá þeim sem búa við mest frjálsræði. </font /></b />

Breyting húsbréfa skattskyld

Niðurstaða ríkisskattstjóra er að greiða beri fjármagnstekjuskatt af húsbréfum sem skipt er yfir í nýtt kerfi. Kom á óvart og bitnar á þeim sem síst skyldi, segir fulltrúi Íbúðalánasjóðs.

Breytti símtali í viðræður

Makedónska fyrirtækið Alkaloid tilkynnti kauphöllinni í Makedóníu um sameiningarviðræður þess við íslenska fyrirtækið Actavis. Hjá Actavis urðu menn undrandi yfir þessari tilkynningu þegar hún birtist í byrjun júní.

Uppsagnir vegna skipulagsbreytinga

Eimskipafélag Íslands hefur tilkynnt að í gær hafi verið fækkað um fjörutíu til fimmtíu stöðugildi hjá félaginu en nú stendur yfir vinna við endurskipulagningu hjá félaginu. Ekki er vitað hversu mörgum verður sagt upp vegna breytinganna en þær verða kynntar í lok mánaðarins þegar sex mánaða uppgjör félagsins liggur fyrir.

Vísitalan hækkar um 50%

Úrvalsvísitalan fór yfir þrjú þúsund stig í gær í fyrsta sinn og hefur hækkað um helming á rúmum sjö mánuðum. Hækkun á hlutabréfum um helmings fimmtán fyrirtækja innan vísitölunnar er meðal skýringa.

Stóru ríkin sleppi ekki

Evrópudómstóllinn hefur úrskurðað að ólöglegt hafi verið að hlífa ríkisstjórnum Frakklands og Þýskalands við sektum vegna brota á Stöðugleikasáttmálanum um fjármál aðildarríkja evrunnar.

Uppgjöri frestað vegna sumarleyfa

Stjórnir fjárfestingarfélaganna Afls og Atorku tilkynntu í gærmorgun að "vegna erfiðleika með að ná stjórnum saman" muni félögin ekki birta sex mánaða uppgjör fyrr en í fyrstu viku ágústmánaðar. Bæði félögin eru skráð í Kauphöll Íslands.

Hlutabréf hækkuðu töluvert

Hlutabréf hækkuðu töluvert í Kauphöll Íslands í dag. Úrvalsvísitalan hækkaði um 1,21% og er nú 3.037 stig. Mest viðskipti voru með hlutabréf Actavis sem hækkuðu um 2,2%.

Vilja meiri áherslu á þjónustu

Í fréttabréfi Samtaka verslunar og þjónustu er bent á að á undanförnum árum hefur fjölda fólks sem starfar í verslun og þjónustu fjölgað hratt. Samtímis hefur hlutfall þeirra sem vinna í frumframleiðslugreinum og iðnaði lækkað.

Úrvalsvísitalan yfir 3000 stig

Úrvalsvísitalan rauf 3.000 stiga múrinn rétt fyrir lokun markaða í dag. Vísitalan endaði í 3000,99 stigum og nam hækkun dagsins 0,4%. Að öðru leyti var dagurinn tíðindalítill á hlutabréfamarkaði samkvæmt greiningardeild Landsbankans. Viðskipti dagsins námu 423 milljónum króna.

Útboð vegna eldsneytiskaupa

Fyrir dyrum stendur fyrsta útboð Ríkiskaupa vegna kaupa á eldsneyti og olíum til handa Landhelgisgæslunni og Hafrannsóknastofnuninni samkvæmt rammasamningakerfi ríkisins. Þessi útgjaldaliður hefur reynst einna kostnaðarsamastur ríkisfyrirtækjanna enda olíu- og bensínverð há hér á landi.

Verðhjöðnun en væntingar óbreyttar

Vísitala neysluverðs lækkaði um hálft prósent í júlí. Útsölur voru snemma á ferð eins og í fyrra. Breytingar á húsnæðislánum vinna á móti hækkun markaðsverðs húsnæðis. Ánægjulegt segja sérfræðingar en breytir ekki mati á verðbólguþróun á næstunni.

Greiningardeildir fara varlega

Úrvalsvísitalan hefur hækkað um fjörtíu prósent frá áramótum og mikið líf er í hlutabréfamarkaðnum. Greiningardeildirnar eru þó varkárar og leggja áherslu á getu fyrirtækja til að skapa hagnað fremur en væntingar um framtíðina.

Úrbóta vant á öllum sviðum

Framkvæmd viðbótarlána er almennt sögð hafa gengið vel frá því lög um þau tóku gildi fyrir fimm árum, en þó er komið með tillögur til úrbóta á nánast öllum þáttum lánanna í áliti nefndar sem félagsmálaráðherra skipaði í febrúar 2003. Viðbótarlánin eru sögð hafa þjónað mörgum fjölskyldum og einstaklingum, en mikill og ör vöxtur hafi verið í þróun slíkra lánveitinga.

Líflausasti dagurinn í tvö ár

Gærdagurinn var líflausasti dagur á gjaldeyrismarkaði í tæp tvö ár eða síðan 28. ágúst 2002. Engin viðskipti voru gerð á millibankamarkaði með gjaldeyri ef frá eru talin ein viðskipti Seðlabankans um morguninn sem voru liður í reglulegum gjaldeyriskaupum bankans. Þetta kemur fram í „Morgunkorni“ Íslandsbanka. 

Afkoma lífeyrissjóðanna batnar

Afkoma lífeyrissjóða breyttist mjög til hins betra í fyrra eftir þrjú erfið ár þar á undan og nálgaðist raunávöxtun þeirra metið frá árinu 1999.

Lítil hætta á verðbólguhækkun

Greiningardeild Landsbankans telur að miðað við núverandi stöðu efnahagsmála sé óveruleg hætta á að verðbólgan fari úr böndunum. Bent er á að Seðlabankinn hafi nú þegar aukið peningalegt aðhald og segir Landsbankinn mikilvægt að þeirri stefnu verði viðhaldið.

Góð ávöxtun lífeyrissjóða

Raunávöxtun lífeyrissjóðanna á Ísland var 11,3 prósent á árinu 2003 að því að fram kemur í frétt á heimasíðu Fjármálaeftirlitsins.

Ríkið gæti að stöðugleika

Greiningardeild Landsbankans telur "að miðað við núverandi stöðu efnhagsmála sé hættan á að verðbólgan fari úr böndum óveruleg." Þetta kemur fram í sérriti Landsbankans um efnahagsmál. Greiningardeildin áréttar hins vegar hlutverk ríkisins við að halda stöðugleika.

Forstjóri Enron ákærður

Kenneth Lay, fyrrverandi forstjóri orkufyrirtækisins Enrons, var í dag ákærður fyrir að hafa látið falsa bókhald fyrirtækisins og gera leynilega samninga til þess að fela skuldir þess. Rannsóknin á Lay hefur tekið þrjú ár.

Lítil áhrif hlutafjárútboðs KB

Hlutafjárútboð KB banka upp á fjörutíu milljarða króna hefur lítil áhrif á hugsanlega sölu Símans, að mati forstöðumanns greiningardeildar Landsbankans. Sérfræðingar segja að fjárfestingarfélög hér á landi eigi nóg lausafé.

Fjárlagagerð á hefðbundnu róli

Geir H. Haarde fjármálaráðherra segir ekki ástæðu til að hafa sérstakar áhyggjur af þróun verðbólgu og engar sérstakar viðbótaraðgerðir fyrirhugaðar á næstu fjárlögum vegna hennar. "Fjárlagagerð er á hefðbundnu róli og í ágætu horfi miðað við árstíma," sagði Geir.

Actavis í FTSE

Í Vegvísi greiningardeildar Landsbankans á þriðjudag segir frá því að væntanleg skráning íslenska lyfjafyrirtækisins Actavis (áður Pharmaco) hafi verið til umfjöllunar á vefsíðu breska dagblaðsins The Times.

Sterk sýn lykill að vexti

KB banki er orðið langstærsta fyrirtæki landsins. Markaðsverðmætið er tæplega 200 milljarðar - um fjórðungur af landsframleiðslu Íslands. Ljóst er að frumkvöðlaandinn innan gamla Kaupþings hefur fengið nýja vængi eftir sameininguna við Búnaðarbankann árið 2003. Stjórnunarsérfræðingur segir skýra framtíðarsýn lykil að vexti félagsins. </font /></b />

Hlutafé KB banka hækkað

Hlutafé í KB banka verður hækkað um allt að 1,1 milljarð króna að nafnvirði með áskrift allt að 110 milljónum nýrra hluta. Þetta var tillaga stjórnar bankans sem samþykkt var á hluthafafundi Kaupþings Búnaðarbanka í gær.

Sæplast gerir stóran samning

Sæplast hefur gert einn stærsta sölusamning sinn til þessa við þýskt fiskvinnslufyrirtæki. Euro-Baltic Fischverarbeitungs á þýsku eyjunni Rügen í Eystrasalti, hefur gert samning um kaup á 3.000 kerum, sem verða framleidd í verksmiðju Sæplasts á Dalvík.

Stýrivaxtahækkun skammgóður vermir

Gylfi Arnbjörnsson, framkvæmdastjóri Alþýðusambands Íslands, segist óttast áframhaldandi verðbólgu og kallar eftir aðgerðum stjórnvalda til að draga úr spennu í hagkerfinu.

Kári heimilar sölu í deCode

Kári Stefánsson, forstjóri Íslenskrar erfðagreiningar, hefur gefið verðbréfamiðlurum heimild til að selja allt að 12 prósentum af eignarhlut sínum í fyrirtækinu. Verðmæti viðskiptanna gætu numið 250 milljónum króna eða meira.<font size="2"></font> 

Sjá næstu 50 fréttir