Fleiri fréttir
Sjá næstu 50 greinar
Ofbeldisvæðingin Jónína Michaelsdóttir skrifar Fimm ára stúlka var stungin með eggvopni af ungri konu í Keflavík, og liggur þungt haldin á Landspítalanum. Grunur leikur á að konan hafi verið að hefna sín á foreldrum, samkvæmt fjölmiðlum gærdagsins, en ekki er ljóst þegar þetta er skrifað, fyrir hvað. Í gær var líka viðtal við lögreglustjóra Suðurnesja, sem segir skipulagða glæpastarfsemi finnast í umdæminu. Þar séu bæði innlendir og erlendir hópar sem fylgst sé vel með. Hættumat greiningardeildar þjóni embættinu og hún mæli með að fleiri umdæmi verði greind með sambærilegum hætti. 29.9.2009 06:00
Bónusar bankamanna Jón Kaldal skrifar Ofurlaun og fjallháir bónusar forstjóra fjármálafyrirtækja tilheyra fortíðinni á Íslandi, að minnsta kosti í bili, en eru ennþá deiluefni annars staðar. Þetta mál var meðal annarra sem leiðtogar tuttugu helstu iðnríkja heims ræddu á fundi sínum í Pittsburgh á dögunum. 28.9.2009 06:00
Prófsteinn í orkunýtingarmálum Þorsteinn Pálsson skrifar Í þessari viku fengu landsmenn enn eina staðfestingu á að óbreytt peningastefna getur ekki verið undirstaða endurreisnarinnar. Í næstu viku verða síðan kynntar niðurstöður um þrjá aðra prófsteina endurreisnarinnar: Orkunýtingaráformin, eignarhald á bönkunum og ríkisfjármálin. 26.9.2009 06:00
Að tala við þjóðina Atvinnurekendur vita að á tímum mikilla breytinga er gríðarlega mikilvægt að halda vel utan um starfsfólk sitt. Sameiningar fyrirtækja sem líta vel út á pappírnum geta oft mistekist vegna þess eins að stjórnendur gæta ekki að mannlega þættinum. Á breytinga- og umbrotatímum er nauðsynlegt að halda starfsfólki vel upplýstu, draga úr óvissu eins og kostur er og tryggja þannig stuðning við fyrirhugaðar breytingar. Án stuðnings starfsfólks eru meiri líkur en minni að illa fari - að breytingar nái ekki þeim árangri sem stefnt er að. 25.9.2009 06:00
Hjálpartraust Þorvaldur Gylfason skrifar Vaknaðu, sagði konan mín. Klukkan var þrjú um nótt. Ég hlýddi og hlustaði með henni á dynki og brothljóð úr nærliggjandi íbúð, skerandi skaðræðisvein og formælingar með málvillum, fimm á Richter. 24.9.2009 06:00
Það getur verið dýrt að spara Steinunn Stefánsdóttir skrifar Orðin sparnaður og niðurskurður hafa verið brúkuð meira meðal þjóðarinnar undanfarið ár en allnokkur misseri þar á undan. Víða hafa þessi orð sést í verki, bæði á heimilum og fyrirtækjum þar sem dregið hefur verið úr útgjöldum til að mæta minnkandi tekjum. 23.9.2009 06:00
Atvinnuleysisvandinn Það dylst engum að ástandið í íslensku efnahagslífi er ekki gott í kjölfar þess að hið mikla krosstengslaveldi útrásarvíkinganna hrundi eins og spilaborg. Margir hafa tapað miklu en fáir meira en erlendir lánveitendur bankanna og íslensku fyrirtækjanna sem þóttu vera að gera það gott í útlöndum. Hér á Íslandi hefur hrunið einkum haft áhrif á tvennt: Annars vegar hækkandi verðbólgu og hins vegar aukið atvinnuleysi. Gengishrun krónunnar hefur á hinn bóginn verið stöðvað með upptöku gjaldeyrishafta en ekki sér fyrir endann á því hversu lengi þau verða í gildi. Gengisvandanum hefur verið slegið á frest í bili, en Íslendingar þurfa að aðlagast nýrri stöðu þar sem innfluttur varningur mun verða frekar dýr um nokkurt skeið. 22.9.2009 06:00
Andrúmsloft óvissu og efa Jón Kaldal skrifar Hinn 6. október í fyrra, daginn sem Geir H. Haarde flutti sjónvarpsávarpið sitt, breyttist allt á Íslandi. Tæplega tólf mánuðum síðar vitum við ekki enn hvernig tilveran verður. 22.9.2009 06:00
Örlög Moggans Páll Baldvin Baldvinsson skrifar Ritstjórinn á Morgunblaðinu, Ólafur Stephensen, hefur látið af störfum sökum þess að skoðanafrelsi og tjáningarfrelsi er nýjum eigendum blaðsins ekki að skapi. 21.9.2009 06:00
Vísbending um einangrunarhyggju Þorsteinn Pálsson skrifar Fyrsta skoðanakönnun eftir umsókn Íslands um aðild að Evrópusambandinu sýnir afgerandi andstöðu þjóðarinnar við þau áform. Hún er um leið til marks um mikla neikvæða sveiflu. 19.9.2009 06:00
Hugsjónir og raunsæi Jón sigurðsson skrifar Best fer á því í stjórnmálum að saman fari hugsjónir og raunsæi, reynsla og nýjabrum. Störf Alþingis á liðnu sumri urðu merkileg kennsla um afleiðingar þess þegar hugsjónagleði gengur alveg fram af reynslu og raunsæi. 18.9.2009 06:00
Tilraunir Einar Már Jónsson skrifar Hinn 18. ágúst 1634 var Urbain Grandier, prestur í bænum Loudun í Frakklandi, brenndur á báli fyrir galdra. Nunnur í klaustri þar í bæ höfðu tekið upp á þeim sið að hoppa fram og aftur með hinum afkáralegustu tilburðum, æpandi „ríddu mér“ og fleira í þeim dúr, og var prestinum gefið að sök að hafa ært þær með gjörningum. 18.9.2009 06:00
Stólar fyrir dyrum Þorvaldur Gylfason skrifar Hlutur Alþjóðagjaldeyrissjóðsins í efnahagsáætlun ríkisstjórnarinnar og Seðlabankans vekur tvær spurningar, sem varða umheiminn auk okkar sjálfra. Fjárþörf landsins árin 2008-10 er metin á fimm milljarða Bandaríkjadala og er mun meiri en svo, að sjóðurinn megni að svala henni. Þessa fjár er þörf til að tryggja, að ríkið geti staðið skil á erlendum skuldbindingum sínum, og til að verja krónuna enn frekara gengisfalli, þegar slakað verður á gjaldeyrishöftunum. 17.9.2009 06:00
Laun og réttlátir skattar Jón Kaldal skrifar Í mjög grófum dráttum má segja að hlutverk núverandi ríkisstjórnar sé tvíþætt. Annars vegar að sjá til þess að ríkið hafi efni á að standa undir grunnþjónustuþáttum samfélagsins: heilbrigðisþjónustunni, menntamálunum, löggæslunni og viðhaldi og byggingu samgöngumannvirkja, svo allra brýnustu málaflokkarnir séu nefndir. Hins vegar að vera í forystu við mótun hins nýja Íslands sem svo margir þrá. 15.9.2009 06:00
Með opnum huga Jónína Michaelsdóttir skrifar Nú þegar við erum orðin umsækjendur að Evrópusambandinu má spyrja sig hvort almenningur í landinu viti í raun hverju aðild að ESB muni breyta hér á landi. Myndast hafa fylkingar þvert á stjórnmálaflokka, annars vegar með og hins vegar á móti aðild. 15.9.2009 06:00
Stærstu málin Jón Ormur Halldórsson skrifar Ég vorkenni fréttamönnum erlendra frétta þessa mánuðina. Þetta er svo sem ekki mikilsvirt stétt, einhvers staðar á milli lögmanna og fjármálaráðgjafa. Ekki svo að skilja að viðfangsefnin séu ekki til fyrir þessa stétt manna sem ásamt álitsgjöfum og fræðimönnum hafa tekjur sínar af hörmungum heimsins. Góðar erlendar fréttir eru fágætar þótt þeim sé fagnað jafn mikið af þeim sem skrifa þær og okkur hinum sem lesa þær. Það er hins vegar ekki æsandi að bíða eftir stefnu Obama í bankamálum, né húsnæðisstefnu Suður-Afríku. Stóru málin eru stóru málin og þola illa smæð. Það er eins og þau verði kúnstugri um leið og þau eru minnkuð. Svona einhvers konar Heljarslóðarorrusta. 14.9.2009 06:00
Þetta lagast kannski seinna Björn Þór Sigbjörnsson skrifar Stutt saga Borgarahreyfingarinnar er sorgarsaga. Tilraun hennar til að bæta stjórnmálin mistókst gjörsamlega. Í framhaldi af landsfundi á laugardag íhuga þingmenn hreyfingarinnar að segja skilið við hana. Þeir segjast ætla að taka sér þann tíma sem þeir þurfa til að ákveða sig í þeim efnum. Þeir hljóta samt að vita að þeir geta ekki tekið sér langan tíma til þess verks. Birgitta Jónsdóttir, Margrét Tryggvadóttir og Þór Saari verða að ákveða sem fyrst hvort þau ætli að vera þingmenn Borgarahreyfingarinnar eða ekki. 14.9.2009 06:00
Grunur, rannsókn, dómur og typt Helgi Magnús Gunnarsson, saksóknari efnahagsbrota, kallar ný saksóknaraembætti til að rannsaka og ákæra menn grunaða um lögbrot „ambögu“ og „skipulagslega órökrétt“ og lýsir vantrú sinni á það fyrirkomulag að stofna og styrkja myndarlega ný saksóknaraembætti: það valdi skörun á viðfangsefnum og rugli í rannsóknum á sakamálum. Gagnrýni Helga er málefnaleg: það er ekki trúverðugt að á sama tíma og skorið sé „myndarlega“ niður í rannsóknardeildum efnahagsbrota sé hlaupið til og fjármunum ausið í sérstaka saksóknara. 12.9.2009 06:00
Hver á að borga brúsann? Þorsteinn Pálsson skrifar Umræður um kostnaðargreiðslur Landsvirkjunar til sveitarfélaga sem liggja að Þjórsá hafa verið sérkennilegar í meira lagi. Þær sýna vel hvernig ómálefnalegar umræður geta leitt menn í blindgötu. 12.9.2009 06:00
Orkuleysi stjórnarformannsins Sverrir Jakobsson svarar grein Guðlaugs G. Sverrissonar skrifar Guðlaugur G. Sverrisson, stjórnarformaður Orkuveitu Reykjavíkur, skrifar grein í Fréttablaðið fimmtudaginn 10. september þar sem hann sakar undirritaðan um rangfærslur. Manni bregður óneitanlega nokkuð við slík stóryrði en mér til léttis sé ég að stjórnarformaðurinn virðist hafa mislesið grein mína. Þar ræddi ég um einhliða gengisáhættu Orkuveitunnar vegna láns til Magma fyrir 70% verðsins. Stjórnarformaður virðist hafa mislesið skrif mín þar sem hann ræðir gengisáhættu af allri sölunni. Mér þykir raunar miður að hann hafi ekki einbeitt sér meira við lesturinn þar sem fólk sem les greinar okkar beggja kynni að halda að svar hans væri útúrsnúningur þar sem hann vildi ekki ræða lánakjörin efnislega. Það getur örugglega ekki verið ástæðan. 12.9.2009 06:00
Fordæmi og fyrirmyndir Þegar fyrri ríkisstjórn Jóhönnu Sigurðardóttur gekk á fund forseta hinn 10. maí síðastliðinn voru tíu ráðherrar í hópnum. Þegar núverandi ríkisstjórn kvaddi forsetann síðar sama dag gengu tólf ráðherra út um dyrnar á Bessastöðum. 10.9.2009 06:00
Hvað næst? Þorvaldur Gylfason skrifar Innan tíðar fæst úr því skorið, hvað verður um efnahagsáætlun ríkisstjórnarinnar og Seðlabankans með fulltingi Alþjóðagjaldeyrissjóðsins (AGS). Sjóðurinn er engin boðflenna á Íslandi. Hann er hér í boði stjórnvalda. Sumir vara við sjóðnum og hampa þeirri gagnrýni, sem hann hefur sætt á fyrri tíð, einkum vegna aðkomu hans að nokkrum Asíulöndum 1997-98 og Argentínu 2002. Atlagan missir þó marks, því að efnahagsáætlun Íslands nú víkur í veigamiklum atriðum frá fyrri áætlunum, sem sjóðurinn hefur stutt annars staðar. Fyrri gagnrýni á sjóðinn á því ekki við nú um Ísland. 10.9.2009 06:00
Aldrei aftur Steinunn Stefánsdóttir skrifar Nokkuð er um liðið síðan Breiðavíkurskýrslan svonefnda kom út en í henni var að mestu staðfest það sem áður hafði komið fram um, oft á tíðum, illa meðferð drengja sem þar dvöldu. 9.9.2009 06:00
Auðlindir á útsölu Sverrir Jakobsson skrifar Einungis hefur liðið rúmlega hálft ár frá því að mynduð var ríkisstjórn án þátttöku Sjálfstæðisflokks eða Framsóknarflokks, en það verður að teljast fádæmi í sögu lýðveldisins. Það er greinilegt að óþol þessara flokka eftir því að komast aftur á valdastóla er einnig fádæmalaust, en ekki má þó gleyma því að valdasetu þeirra er ekki enn að fullu lokið. Þeir sitja t.d. enn þá í meirihluta í borgarstjórn Reykjavíkur og verk þess meirihluta segja meira um stefnu flokkanna en mörg orð. 8.9.2009 06:00
Bifvélavirkinn Einar Már Jónsson skrifar Þegar þess var minnst með pompi og prakt í júní síðastliðnum að sextíu og fimm ár voru liðin síðan innrásin var gerð í Normandí vakti það athygli að Sarkozy Frakklandsforseti skyldi einungis bjóða Obama, forseta Bandaríkjanna, til hátíðahaldanna en láta alveg undir höfuð leggjast að bjóða Elísabetu Englandsdrottningu. Um það varð þó ekki deilt að Englendingar áttu mjög stóran þátt í innrásinni ásamt Bandaríkjamönnum, bæði í undirbúningi hennar, sem fór fram að verulegu leyti í Englandi, í landgöngunni sjálfri og sókninni inn í meginland Evrópu. 7.9.2009 06:00
Íslenskt kraftaverk Svanhildur Hólm skrifar Það er auðvelt að hrífast með, þegar góð mál fá stuðning. Þannig var það um daginn þegar þjóðin gaf um fimmtíu milljónir fyrir hvíldarheimili handa krabbameinssjúkum börnum, fyrir utan lóðir, loforð um vinnu, efni og fleira sem að gagni má koma við að reisa slíkt hús. Kraftaverkaþjóð, var það sem kom upp í hugann að kvöldi loknu. 7.9.2009 06:00
Ekki í mínu nafni Þorkell Helgason skrifar Þorkell Helgason skrifar um kjör aldraðra Margir kunna að halda af fyrirsögninni að greinarstúfur þessi fjalli um Icesave-málið. Svo er ekki – og þó. Alls kyns talsmenn aldraðra (eða „eldri borgara“ eins og það heitir á teprulegu máli) hafa undanfarið andmælt því að stjórnvöld hafa neyðst til að draga úr ríkisútgjöldum og afla tekna m.a. með því að auka skerðingu ellilífeyris vegna annarra tekna. 7.9.2009 06:00
Er úthald baklandsins á þrotum? Þorsteinn Pálsson skrifar Viðbrögðin við OECD-skýrslunni varpa ágætu ljósi á glímutökin í pólitíkinni bæði milli flokka og ekki síður innan þeirra. Af þeim má einnig draga málefnalegar ályktanir um hvert stefnir. 5.9.2009 06:00
Nauðsynlegt að bregðast við Mansal er talið þriðja umfangsmesta glæpastarfsemi í heiminum, á eftir vopna- og fíkniefnasölu. Augunum verður ekki lokað fyrir því að mansal viðgengst ekki bara úti í hinum stóra heimi heldur er það blákaldur raunveruleiki hér á Íslandi. 3.9.2009 06:30
Meðan fjöldinn sefur Jónína Michaelsdóttir skrifar Í skjóli nætur hafa verið unnin spjöll á húsum á höfuðborgarsvæðinu. Einhver eða einhverjir þjóna lund sinni með þessum hætti. 1.9.2009 09:36
Í anda Kennedy Margrét Kristmannsdóttir skrifar Að loknum sumarfríum er daglegt líf að falla í reglubundinn farveg og haustið og veturinn handan við hornið. 1.9.2009 09:31