Fleiri fréttir

Sporðdreki (24.okt - 21.nóv)

Nú er að hefjast nýtt tímabil á einhvern hátt. Þú tekur þátt í einhverju nýju verkefni á vinnustað eða byrjar jafnvel í heilsuræktarátaki.

Steingeit (22.des - 19.jan)

Þú helgar þig fjölskyldunni og átt með henni góðar stundir. Það er mikið sem á eftir að gera á heimilinu og ekki seinna vænna en að byrja verkið.

Sporðdreki (24.okt - 21.nóv)

Velgengni þín í dag byggist á því hvernig þú kemur fram við aðra. Þar tekst þér sérlega vel upp.

Sporðdreki (24.okt - 21.nóv)

Eitthvað óvanalega skemmtilegt gerist í dag og þú átt eftir að hlæja meira en þú hefur gert lengi. Sérstaklega verður kvöldið skemmtilegt.

Sporðdreki (24.okt - 21.nóv)

Þú tekur þátt í leik sem gefur þér aukið sjálfstraust. Þú verður leiðandi í samskiptum við vini þína.

Sporðdreki (24.okt - 21.nóv)

Ástarlífið er fyrirferðarmikið og talsverð spenna er í loftinu. Þú gætir þurft að velja á milli tveggja einstaklinga.

Sporðdreki (24.okt - 21.nóv)

Rómantíkin liggur í loftinu og ef þú ert ekki þegar orðinn ástfanginn muntu líklega verða það næstu daga. Ekki gleyma þó að sinna þínum daglegu skyldum.

Sporðdreki (24.okt - 21.nóv)

Gerðir þínar gætu haft í för með sér misskilning sem erfitt er að greiða úr. Gættu þess að vera ekki of þrjóskur í samskiptum við fólk.

Sporðdreki (24.okt - 21.nóv)

Þú þarft að sætta þig við að aðrir fá að mestu að ráð um framvindu mála sem þú ert flæktur í. Gáta sem þú hefur velt fyrir þér leysist óvænt.

Sporðdreki (24.okt - 21.nóv)

Viðskipti ættu að ganga vel og þú ert heppinn í samningum. Andstæðingur þinn ber mikla virðingu fyrir þér.

Sporðdreki (24.okt - 21.nóv)

Þú þarft að huga þig vel um áður en ákvörðun er tekin í mikilvægu máli. Breytingar í félagslífinu eru nauðsynlegar.

Sporðdreki (24.okt - 21.nóv)

Fjölskyldan ætti að eyða meiri tíma saman. Það er margt sem kemur þér á óvart í dag, sérstaklega viðmót fólks sem þú þekkir lítið.

Steingeit (22.des - 19.jan)

Ekki vera of viss um að þú hafir á réttu að standa í ágreiningsmáli. Þú værir maður að meiri ef þú viðurkenndir ósigur þinn strax og þú uppgötvar hann.

Sporðdreki (24.okt - 21.nóv)

Þetta verður góður dagur með tilliti til vinnunnar. Láttu fjölskyldumál samt ekki sitja á hakanum.

Sporðdreki (24.okt - 21.nóv)

Þú ert vinnusamur í dag og kemur frá þér verkefnum sem þú hefur trassað. Einbeittu þér að skipulagningu næstu daga.

Sporðdreki (24.okt - 21.nóv)

Þér er fengin einhver ábyrgð í dag. Láttu ekki erfiðleikana gera þig svartsýnan, það er bjart fram undan.

Sporðdreki (24.okt - 21.nóv)

Þér berst óvænt tilboð sem kemur róti á huga þinn. Ef rétt er haldið á málum getur þú hagnast verulega í meira en einum skilningi.

Sporðdreki (24.okt - 21.nóv)

Vinir þínir eiga ef til vill erfitt með að skilja ákveðið sjónarmið hjá þér en þú verður að gera þitt besta til að útskýra skoðun þína.

Sporðdreki (24.okt - 21.nóv)

Seinkanir valda því að þú ert á eftir áætlun í dag og það kemur sér illa. Tillitssemi borgar sig.

Sporðdreki (24.okt - 21.nóv)

Þú ættir að hlusta á aðra þegar þeir vilja gefa þér góð ráð. Hópvinna á ekki sérlega vel við þig í dag.

Sporðdreki (24.okt - 21.nóv)

Þú færð endurgoldinn greiða sem þú gerðir kunningja þínum fyrir löngu og varst búinn að gleyma. Ástvinir eiga saman rómantískt kvöld.

Sporðdreki (24.okt - 21.nóv)

Þér hættir til að mikla hlutina fyrir þér þessa dagana. Það kann að vera að þú sért of störfum hlaðinn og þyrftir á hvíld að halda.

Sporðdreki (24.okt - 21.nóv)

Þú lest eitthvað sem vekur áhuga þinn svo um munar. Þegar til lengri tíma er litið á þetta eftir að hafa mikil áhrif.

Steingeit (22.des - 19.jan)

Gamall draumur virðist vera um það bil að rætast hjá þér og þú nýtur þess sannarlega. Gefðu þér tíma fyrir vini þína.

Sporðdreki (24.okt - 21.nóv)

Sambönd ganga í gegnum erfitt tímabil. Sérstaklega er hætta á spennu vegna sterkra tilfinninga á rómantíska sviðinu.

Sporðdreki (24.okt - 21.nóv)

Þér berast fregnir af persónu sem ekki hefur látið heyra í sér lengi. Notaðu daginn til að slaka á því að kvöldið mun verða einkar fjörugt.

Sporðdreki (24.okt - 21.nóv)

Einhver ættingi eða vinur hefur samband við þig og kemur þér á óvart. Kvöldið verður skemmtilegt.

Sporðdreki (24.okt - 21.nóv)

Dagurinn verður rólegur í vinnunni og þú gætir mætt einhverri andstöðu við hugmyndir þínar sem þú ættir ef til vill að endurskoða.

Sporðdreki (24.okt - 21.nóv)

Gamalt fólk verður í stóru hlutverki í dag og hjá þeim sem eru komnir af léttasta skeiðinu verður mikið um að vera.

Sporðdreki (24.okt - 21.nóv)

Þú nýtur stuðnings fjölskyldunnar í sambandi við nýtt viðfangsefni. Varaðu þig á fólki sem hefur gaman af því að baktala annað fólk.

Sporðdreki (24.okt - 21.nóv)

Reyndu að skipuleggja daginn vel svo að þú komist yfir allt sem þú þarft að gera og náir einnig að slappa af seinni hluta dagsins.

Sporðdreki (24.okt - 21.nóv)

Mál sem tengist viðskiptum gæti leyst í kvöld. Heimilislífið gengur vel og þú ert ánægð með lífið og tilveruna. Þú mátt vera bjartsýnn í sambandi við persónulega hagi þína.

Steingeit (22.des - 19.jan)

Varastu að trúa orðrómi sem þú heyrir um aðra. Dagurinn einkennist af togstreitu milli aðila sem þú umgengst mikið.

Sporðdreki (24.okt - 21.nóv)

Þú gætir staðið frammi fyrir vali á milli tveggja möguleika í dag og þú átt erfitt með að gera upp hug þinn.

Sporðdreki (24.okt - 21.nóv)

Fjölskyldan er þér ofarlega í huga um þessar mundir og það er af hinu góða. Gættu þess þó að vanrækja ekki vini þína.

Sporðdreki (24.okt - 21.nóv)

Athugaðu alla málavexti vel áður en þú tekur mikilvæga ákvörðun eða einhverju gylliboði sem berst.

Sporðdreki (24.okt - 21.nóv)

Þú ert yfirleitt mjög duglegur en núna er eins og yfir þér hangi eitthvert slen. Þetta gæti verið merki um það að þú þarfnist hvíldar.

Sporðdreki (24.okt - 21.nóv)

Það lítur út fyrir að einhver sé að tala illa um þig en ef þú hefur öll þín mál á hreinu þarft þú ekkert að óttast. Sennilega stafar þessi óvild eingöngu af öfund.

Sporðdreki (24.okt - 21.nóv)

Þú ert búinn að vera fremur dapur síðastliðna daga en nú mun verða breyting þar á. Þú hefur nýlokið einhverjum erfiðum áfanga og er þungu fargi af þér létt.

Sporðdreki (24.okt - 21.nóv)

Þú gætir lent í erfiðleikum með að sannfæra fólk um það sem þér finnst. Þú mátt ekki taka það persónulega þó að hugmyndir sem þú hefur fram að færa mæti einhverri andstöðu.

Sporðdreki (24.okt - 21.nóv)

Þú átt auðvelt með að ná til fólks í dag og færð það til að hlusta á þig. Núna er tilvalið tækifæri til að brydda upp á nýjungum.

Sporðdreki (24.okt - 21.nóv)

Dagurinn byrjar vel og þú verður vitni að einhverri skemmtilegri uppákomu fyrri hluta dags. Farðu þér hægt í viðskiptum.

Sjá næstu 50 fréttir