Fleiri fréttir

Vatnsberinn (20.jan - 18.feb)

Þú sýnir góðvild í garð fólks sem kann vel að meta það. Greiðvikni þín aflar þér vináttu persónu sem þér er mikið í mun að vingast við.

Vatnsberinn (20.jan - 18.feb)

Þér gengur vel að fá fólk til að hlusta á þig og skoðanir þínar. Gættu þess að vera ekki hrokafullur.

Vatnsberinn (20.jan - 18.feb)

Dagurinn verður fremur rólegur og þú færð næði til að hugsa um framtíðina. Þú kemst að því að þú ert orðinn dálítið leiður á tilbreytingarleysinu og ættir ef til vill að reyna að finna þér nýtt áhugamál.

Steingeit (22.des - 19.jan)

Þú ferð á fjarlægar slóðir og kynnist nýjum háttum og siðum. Þú vinnur að undirbúningi þessa og miðar vel.

Vatnsberinn (20.jan - 18.feb)

Þú hugsar til liðins tíma og einhvers sem hefur misheppnast. Hætt er við að það valdi þér angri. Gættu þess að það skaði ekki sjálfstraust þitt.

Vatnsberinn (20.jan - 18.feb)

Eitthvað óvænt hendir þig og þú veist ekki almennilega hvernig þú átt að bregðast við. Haltu ró þinni og þá mun allt fara vel.

Vatnsberinn (20.jan - 18.feb)

Þú ert þrjóskur og óþolinmóður núna og ef þú ert ekki tilbúinn að hlusta á aðra er hætta á árekstrum. Kvöldið verður skemmtilegt.

Vatnsberinn (20.jan - 18.feb)

Einbeittu þér fyrst að því sem skiptir mestu máli. Þú gengur í gegnum einhverja erfiðleika í ástarlífinu en það mun jafna sig.

Vatnsberinn (20.jan - 18.feb)

Það er kominn tími til að leita á önnur mið og víkka sjóndeildarhringinn. Ekki taka neinar skyndiákvarðanir heldur skaltu hugsa þig vel um áður en þú breytir um umhverfi.

Vatnsberinn (20.jan - 18.feb)

Þú ættir að hleypa meiri tilbreytingu inn í líf þitt. Það hefur verið helst til einhæft undanfarið. Hvernig væri að finna sér nýtt áhugamál?

Vatnsberinn (20.jan - 18.feb)

Þú tekst á við afar erfitt en jafnframt spennandi verkefni. Ef þú leggur þig allan fram muntu uppskera í samræmi við það.

Vatnsberinn (20.jan - 18.feb)

Fyrri hluti dagsins einkennist af einhverjum óróleika. Þú hittir áhugaverða í kvöld en kvöldið verður mjög rólegt.

Vatnsberinn (20.jan - 18.feb)

Taktu það rólega í dag enda er ekki mikið um að vera í kringum þig. Kvöldið verður rólegt í faðmi fjölskyldunnar.

Vatnsberinn (20.jan - 18.feb)

Gerðu eins og þér finnst réttast í mikilvægu máli sem snertir fyrst og fremst þinn eigin hag. Það er ekki alltaf betra að fara eftir ráðleggingum annarra.

Steingeit (22.des - 19.jan)

Þú ferð á fjarlægar slóðir og kynnist nýjum háttum og siðum. Þú vinnur að undirbúningi þessa og miðar vel.

Vatnsberinn (20.jan - 18.feb)

Það er nauðsynlegt fyrir þig í dag að fara varlega í samskiptum við annað fólk. Sumir eru nefnilega afar viðkvæmir í dag og þarf lítið til að særa þá.

Vatnsberinn (20.jan - 18.feb)

Þú átt í erfiðleikum með að koma þér nógu vel á framfæri. Ekki vera með þessa minnimáttarkennd. Þú getur allt sem þú vilt ef þú leggur þig fram.

Vatnsberinn (20.jan - 18.feb)

Einhver leiðindi verða vegna þess að einhverju verður ljóstrað upp sem átti að halda leyndu. Viðleitni þín til að reyna að heilla einhvern hefur mikil áhrif.

Vatnsberinn (20.jan - 18.feb)

Þú færð endurgoldinn greiða sem þú gerðir kunningja þínum fyrir nokkru. Nýtt áhugamál á hug þinn allan.

Vatnsberinn (20.jan - 18.feb)

Þú kemst að því hve mikilvægt það er að halda góðu sambandi við þína nánustu. Félagslífið er með líflegra móti.

Vatnsberinn (20.jan - 18.feb)

Hætt er við að einhver misskilningur verði milli vina. Þetta getur verið mjög bagalegt þar sem menn eru viðkvæmir fyrir.

Vatnsberinn (20.jan - 18.feb)

Láttu engan koma aftan að þér. Verið getur að einhver sé að reyna að gera þér grikk. Þú þarft að láta vita af skoðunum þínum.

Vatnsberinn (20.jan - 18.feb)

Þér hættir til að vera heldur einstrengingslegur og ósveigjanlegur. Það er nauðsynlegt í samskiptum að geta gefið eftir.

Vatnsberinn (20.jan - 18.feb)

Dagurinn hefst á rólegu nótunum, en er líður á hann hefur þú meira að gera og þarft á hjálp að halda til að komast yfir allt.

Vatnsberinn (20.jan - 18.feb)

Einhver hefur í hyggju að nýta sér stöðu þína til að koma sér áfram. Þú verður að fara varlega með upplýsingar sem þú geymir.

Steingeit (22.des - 19.jan)

Gamlir vinir gleðjast saman. Þú ert ekki einn af þeim en hrífst með og sérð margt í nýju ljósi.

Vatnsberinn (20.jan - 18.feb)

Þú ættir að slaka á í dag og njóta þess að vera með ástvini. Rómantískur tími er framundan.

Vatnsberinn (20.jan - 18.feb)

Ekki einangra þig, vertu með vinum þínum og forðastu að sitja einn og velta þér upp úr áhyggjum.

Vatnsberinn (20.jan - 18.feb)

Það er mikið um andstæður hjá þér í dag. Þú verður að vera fljótur að meta aðstæður svo þú getir tekið réttar ákvarðanir.

Vatnsberinn (20.jan - 18.feb)

Dagurinn lofar góðu í sambandi við félagslífið og líklegt er að það verði líflegt. Þú þarft að huga að eyðslunni og passa að hún fari ekki úr böndunum.

Vatnsberinn (20.jan - 18.feb)

Fjárhagsstaðan batnar til muna á næstunni ef þú heldur rétt á spilunum. Gefðu þér tíma til að sinna útivist og heilsurækt.

Vatnsberinn (20.jan - 18.feb)

Einhver spenna ríkir í kringum þig og hún gerir þér erfitt að sinna því sem þú þarft að gera. Þegar líður á daginn batnar ástandið til muna.

Vatnsberinn (20.jan - 18.feb)

Dagurinn byrjar vel og þú ert bjartsýnni en þú hefur verið lengi. Ekki láta neitt uppi um áætlanir þínar fyrr en þær eru komnar í höfn.

Vatnsberinn (20.jan - 18.feb)

Ekki taka nærri þér þó að einhver sé með rellu í þinn garð. Það er hans vandamál en ekki þitt.

Vatnsberinn (20.jan - 18.feb)

Fólk í þessu merki getur verið hamhleypa til verka en svo koma dagar dagdraumanna þar sem það kemur engu í verk. Þannig er ástandið núna og þú þarft að fara að vakna.

Vatnsberinn (20.jan - 18.feb)

Láttu sem ekkert sé þó að einhver sé ekki eins og hann á að sér að vera. Það á sínar orsakir og skýrist áður en kvöldar.

Steingeit (22.des - 19.jan)

Það ríkir glaumur og gleði í kringum þig og er fleira í boði en þú getur með góðu móti sinnt.

Vatnsberinn (20.jan - 18.feb)

Misskilningur kemur upp á vinnustað þínum og á eftir að leiða af sér leiðindi og það tekur tíma að leiðrétta þau.

Vatnsberinn (20.jan - 18.feb)

Þér gengur vel í viðskiptum þessa dagana og ættir að nota tækifærið ef þú hefur á annað borð hug á að fjárfesta. Kvöldið verður ánægjulegt í faðmi fjölskyldunnar.

Vatnsberinn (20.jan - 18.feb)

Mál sem hefur lengi beðið úrlausnar verður senn leyst og er það þér mikill léttir. Þú finnur þér nýtt áhugamál.

Vatnsberinn (20.jan - 18.feb)

Eitthvað sem þú vinnur að um þessar mundir gæti valdið þér hugarangri. Taktu þér góðan tíma til að íhuga hvað gera skal. Þú færð góðar fréttir.

Vatnsberinn (20.jan - 18.feb)

Þú ræður sjálfur miklu um framvindu dagsins og ættir að treysta á dómgreind þína. Hegðun einhvers kemur þér á óvart.

Vatnsberinn (20.jan - 18.feb)

Það verður mikið um að vera fyrri hluta dagsins. Láttu ekki freistast þó að fólkið í kringum þig sé kærulaust. Haltu þig við áætlun þína.

Vatnsberinn (20.jan - 18.feb)

Dagurinn verður skemmtilegur að mörgu leyti. Þú kynnist einhverju nýju og færð áhugaverða áskorun.

Vatnsberinn (20.jan - 18.feb)

Fyrri hluti dagsins verður viðburðaríkur og þú færð einnig nóg að gera í kvöld. Þú ferð sáttur að sofa.

Sjá næstu 50 fréttir