Fleiri fréttir

Fiskarnir (19.feb - 20.mars)

Ástarmálin eru í einhverjum ólestri en vandinn er smærri en þig grunar og það leysist úr honum fljótlega.

Fiskarnir (19.feb - 20.mars)

Þú gætir þurft að fresta einhverju vegna breyttrar áætlunar á síðustu stundu. Það verður létt yfir deginum.

Fiskarnir (19.feb - 20.mars)

Tilhneiging þín til að gagnrýna fólk auðveldar þér ekki að eignast vini eða að halda þeim sem fyrir eru. Sýndu þolinmæði hvað sem á dynur.

Fiskarnir (19.feb - 20.mars)

Þú syndir á móti straumnum um þessar mundir og ert fullur af orku og finnst engin vandamál vera þér ofviða.

Fiskarnir (19.feb - 20.mars)

Þótt eitthvert verk gangi vel í byrjun skaltu ekki gera þér of miklar vonir. Nú er tími breytinga og þú þráir að taka þér eitthvað nýtt fyrir hendur.

Fiskarnir (19.feb - 20.mars)

Vertu orðvar, þú veist ekki hvernig fólk tekur því sem þú segir. Þú gætir lent í því að móðga fólk eða misbjóða því.

Fiskarnir (19.feb - 20.mars)

Láttu eftir þér að slaka á örlítið í dag en gættu þess þó að láta ekki nauðsynleg verk sitja á hakanum. Kvöldið verður skemmtilegt.

Fiskarnir (19.feb - 20.mars)

Þú hefur góð áhrif á alla sem í kringum þig eru og með glaðværð þinni og samviskusemi gengur þú í augun á hinu kyninu.

Fiskarnir (19.feb - 20.mars)

Einhver leitar til þín eftir ráði. Þú skalt leggja þig fram um að veita þá aðstoð sem þú getur en ekki gefa ráð um það sem þú þekkir ekki.

Fiskarnir (19.feb - 20.mars)

Sinntu fjölskyldunni betur en þú hefur gert undanfarið. Vertu minnugur þess að ekkert kemur af sjálfu sér. Vinur þinn kemur þér verulega á óvart. Ástin er á næsta leiti.

Steingeit (22.des - 19.jan)

Þér hættir til að vera of fús til að samþykkja það sem aðrir stinga upp á. Það eykur ekki virðingu þína.

Fiskarnir (19.feb - 20.mars)

Þó að þú sért ekki viss núna um að það sem þú ert að gera sé rétt verður það sem þú velur þér til góðs þegar til lengri tíma er lítið. Ekki láta ímyndunaraflið hlaupa með þig í gönur.

Fiskarnir (19.feb - 20.mars)

Þú verður fyrir óvenjulega miklum óþægindum í dag. Það lendir á þér að gera margt sem þér finnst að aðrir ættu frekar að gera en þú.

Fiskarnir (19.feb - 20.mars)

Það er þess virði að fá fólk til að skipta um skoðun, sérstaklega þar sem þú átt einstaklega auðvelt með það um þessar mundir.

Fiskarnir (19.feb - 20.mars)

Dagurinn verður viðburðaríkur og þú hefur meira en nóg að gera. Gættu þess að vera ekki of tortrygginn.

Fiskarnir (19.feb - 20.mars)

Forðastu að vera nálægt fólki sem lætur allt fara í taugarnar á sér. Þú gætir lent í deilum við samstarfsfélaga í dag.

Fiskarnir (19.feb - 20.mars)

Það verður ekki auðvelt að sannfæra fólk um að styðja þig í framkvæmdum þínum. Ímyndunarafl þitt er virkt en hugmyndir þínar fá litla áheyrn.

Fiskarnir (19.feb - 20.mars)

Þú verður að gefa þér tíma til að setjast niður og skipuleggja næstu daga þar sem þeir eiga eftir að vera mjög annasamir.

Fiskarnir (19.feb - 20.mars)

Þú ert í rólegu skapi í dag og ert ekki einn um það. Dagurinn verður mjög þægilegur og nægur tími gefst til að ljúka því sem þarf.

Fiskarnir (19.feb - 20.mars)

Þú nýtur góðs af hæfileikum þínum á ákveðnu sviði í dag. Fólk kann vel að meta ákveðni þína í vinnunni.

Fiskarnir (19.feb - 20.mars)

Þú ert dálítið óþolinmóður í dag og sækist eftir tilbreytingu. Njóttu félagslífsins eins vel og þú getur og hittu vini og fjölskyldu.

Steingeit (22.des - 19.jan)

Þú hefur í mörg horn að líta og ekki er víst að þú hafir tíma fyrir allt sem þú ætlaðir. Fjárhagsstaðan fer batnandi.

Fiskarnir (19.feb - 20.mars)

Láttu sem ekkert sé þó að einhver sé ekki eins og hann á að sér að vera. Sýndu þolinmæði og vertu almennilegur við viðkomandi.

Fiskarnir (19.feb - 20.mars)

Fyrri hluta dagsins gengur allt að óskum en kvöldið verður ekki alveg eins og þú hafðir vonast eftir.

Fiskarnir (19.feb - 20.mars)

Þú þarft að gera margt í dag og eins gott að taka daginn snemma. Þú gætir þurft að gera fleira en þig grunar. Kvöldið verður rólegt.

Fiskarnir (19.feb - 20.mars)

Nú er rétti tíminn til að skipuleggja framtíðina en þú ættir að varast að taka skyndiákvarðanir. Einhver sýnir þér óvænta vinsemd.

Fiskarnir (19.feb - 20.mars)

Þú skemmtir þér afar vel með góðum vinum þessa dagana. Rómantíkin liggur í loftinu og senn mun draga til tíðinda.

Fiskarnir (19.feb - 20.mars)

Eitthvað verulega skemmtilegt gerist fyrri hluta dagsins og það hefur veruleg áhrif á framhaldið. Dagurinn verður skemmtilegri en þú hefðir getað ímyndað þér.

Fiskarnir (19.feb - 20.mars)

Dagurinn er góður fyrir persónulegar áætlanir. Þig þyrstir í breytingar og það er þitt að láta eitthvað gerast.

Fiskarnir (19.feb - 20.mars)

Gjafmildi vinar þíns kemur þér á óvart og þú heldur að eitthvað búi undir. Það er þó alls ekki víst að svo sé.

Fiskarnir (19.feb - 20.mars)

Þér reynist erfitt að einbeita þér. Þú ert frekar áhyggjufullur en það er allt að ástæðulausu.

Fiskarnir (19.feb - 20.mars)

Þetta er ekki góður dagur til framkvæmda. Þú ert fremur latur og kærulaus og er það bara allt í lagi svona endrum og eins.

Steingeit (22.des - 19.jan)

Þú skalt ekki kippa þér upp við það þó að einhver sé með leiðindi í þinn garð. Þar er aðeins um afbrýðisemi og öfund að ræða.

Fiskarnir (19.feb - 20.mars)

Árangur þinn verður bestur ef þú vinnur með öðrum. Vertu viðbúinn því að einhver muni leita til þín eftir aðstoð.

Fiskarnir (19.feb - 20.mars)

Einhver biður þig um að lána sér fjármuni. Það kann að vera allt í lagi ef vel er gengið frá málunum. Fjárhagur þinn fer batnandi.

Fiskarnir (19.feb - 20.mars)

Vinur þinn eða einhver þér nákominn verður fyrir sérstöku happi í dag. Þú ert mjög upptekinn af þessu og gleðst innilega með.

Fiskarnir (19.feb - 20.mars)

Þú þarft að vera ákveðinn ef þú ætlar að ná því fram sem þú stefnir að. Annars verður ekki tekið mark á þér. Kvöldið verður rólegt.

Fiskarnir (19.feb - 20.mars)

Þér lætur best að vinna einn í dag þar sem þér finnst aðrir bara trufla þig. Þú ferð út að skemmta þér með vinum þínum í kvöld.

Fiskarnir (19.feb - 20.mars)

Þú ert mjög bjartsýnn um þessar mundir og hefur fulla ástæðu til þess. Það virðist nefnilega allt ganga þér í haginn.

Fiskarnir (19.feb - 20.mars)

Það verður mikið að gera hjá þér á næstunni en ef þú leggur þig allan fram muntu líka uppskera vel. Vinir eiga saman góðar stundir.

Fiskarnir (19.feb - 20.mars)

Það lítur út fyrir að þú munir færast mikið í fang á næstunni. Stórframkvæmdir standa fyrir dyrum og þú þarft á öllu þínu að halda.

Fiskarnir (19.feb - 20.mars)

Gamlir vinir kætast saman í dag og fréttir berast af gömlum vini. Þú sinnir trúarþörf þinni meira en þú hefur gert undanfarið.

Fiskarnir (19.feb - 20.mars)

Ferðalag í dag er ekki líklegt til að heppnast sem skyldi. Hætta er á seinkunum og jafnvel vegvillum. Kvöldið ætti þó að vera afar ánægjulegt.

Steingeit (22.des - 19.jan)

Þú stendur í stórræðum á viðskiptasviðinu. Svo virðist sem fasteignakaup eða eitthvað álíka sé á döfinni. Þú ert í essinu þínu.

Fiskarnir (19.feb - 20.mars)

Eitthvað liggur í loftinu sem þú áttar þig ekki fyllilega á. Best er að bíða og sjá til, þá skýrist málið. Kvöldið verður fremur rólegt.

Sjá næstu 50 fréttir