Fleiri fréttir

Eiður Smári spilar golf fyrir gott málefni

Stjörnugolfmót Nova fer nú fram í fimmta sinn á morgun á Urriðavelli í Garðabæ. Um 20 þjóðþekktir Íslendingar taka þátt, þar á meðal Eiður Smári Guðjohnsen.

Þórður Rafn vann í bráðabana

Þórður Rafn Gissurarson, GR, vann í dag mót sem fór fram á Garðavelli á Akranesi og var hluti af Kaupþingsmótaröðinni í golfi.

Ólöf María vann á Garðavelli

Ólöf María Jónsdóttir bar sigur úr býtum á móti á Garðavelli á Akranesi í dag en mótið er hluti af Kaupþingsmótaröðinni.

Ísland keppir á Evrópumóti áhugamanna

Ísland mun senda lið til þátttöku á Evrópumóti áhugakylfinga í golfi sem fer fram í byrjun næsta mánuðar á Ítalíu. Staffan Johansson, landsliðsþjálfari, hefur valið sex manna hóp fyrir mótið.

Tiger keppir ekki meira í ár

Tiger Woods verður frá það sem eftir lifir keppnistímabilsins þar sem hann mun gangast undir aðgerð á hné.

Tiger vann opna bandaríska

Tiger Woods bar sigur úr býtum á opna bandaríska meistaramótinu í golfi. Hann vann Rocco Mediate eftir bráðabana í umspili um titilinn.

Woods og Rocco í bráðabana

Tiger Woods og Rocco Mediate mætast í 18 holu bráðabana á opna bandaríska meistaramótinu í golfi í dag. Bráðabaninn verður í beinni útsendingu á Stöð 2 Sporti og hefst klukkan 16.00.

Tiger Woods með forystuna

Tiger Woods hefur forystuna á opna bandaríska meistaramótinu í golfi en lokahringurinn verður leikinn í kvöld. Woods lék á einu höggi undir pari í gær og er samtals á þremur undir.

Tiger nær sér á strik

Stjörnugolfarinn Tiger Woods er í öðru sæti ásamt tveimur öðrum kylfingum á opna bandaríska meistaramótinu í golfi sem nú stendur yfir. Woods lék vel á öðrum keppnisdegi í gærkvöldi eða á þremur höggum undir pari.

Reykingar bannaðar áhorfendum en ekki keppendum

Reykingar eru bannaðar áhorfendum á opna bandaríska meistaramótinu í golfi. Þetta er fyrsta stórmótið í golfi þar sem þessar reglur gilda. Verði maður uppvís af því að reykja á maður von á 8.000 króna sekt.

Woods lék á höggi yfir pari

Tiger Woods var nokkuð frá sínu besta á fyrsta hringnum á US Open þegar hann lék á 73 höggum eða höggi yfir pari. Þetta var fyrsti hringur Woods í keppni í tvománuði vegna hnéuppskurðar.

Ólafur og Ásta sigruðu á Leiru

Ólafur Hreinn Jóhannesson úr GS og Ásta Birna Magnúsdóttir úr GK unnu í dag sigur á Leirunni á öðru móti Kaupþingsmótaraðarinnar í golfi.

Erfiðar aðstæður á Hólmsvelli í dag

Fyrri hringurinn á öðru móti ársins á Kaupþingsmótaröðinni var leikinn á Hólmsvelli á Leiru í dag. Ólafur Hreinn Jóhannsson úr GS hefur forystu í karlaflokki, en hann lék á þremur höggum yfir pari í dag - 75 höggum.

Ólöf á fjórum höggum yfir pari

Ólöf María Jónsdóttir úr GK lék í morgun fyrsta hringinn á opnu Evrópumóti í golfi í Endhoven á Hollandi. Ólöf lék á 76 höggum eða fjórum höggum yfir pari.

Tiger í hópi góðra manna á US Open

Tiger Woods, Phil Mickelson og Adam Scott verða allir saman í ráshópi á Opna bandaríska meistaramótinu en það hefst í næstu viku. Þetta er athyglisvert holl og golf-aðdáendur munu fylgjast grannt með hverju skrefi þessara manna.

Tiger bjartsýnn eftir aðgerðina

Stjörnugolfarinn Tiger Woods hefur ekki leikið átján holu hring síðan hann fór í aðgerð á hné fyrir um tveimur mánuðum. Aðgerðin heppnaðist vel og er Tiger bjartsýnn fyrir US Open sem hefst í næstu viku.

Kenny Perry vann í Ohio

Bandaríkjamaðurinn Kenny Perry vann í kvöld sigur á Memorial-mótinu í Ohio í Bandaríkjunum. Mótið er hluti af PGA-mótinu.

Gogginn með þriggja högga forystu

Ástralinn Matthew Goggin er með þriggja högga forystu á Memorial-mótinu í Ohio í Bandaríkjunum en mótið er hluti af bandarísku PGA-mótaröðinni.

Sjá næstu 50 fréttir