Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Nemanja Sovic bestur í 3. umferð Framherjinn Nemanja Sovic hjá Fjölni var í dag útnefndur leikmaður 3. umferðar í úrvalsdeild karla í körfubolta samkvæmt frammistöðuformúlu á tölfræðivef KKÍ. Sovic fékk 44 stig fyrir frammistöðu sína gegn Keflavík á dögunum þar sem hann skoraði 35 stig, hirti 11 fráköst og hitti mjög vel úr skotum sínum í sigri Fjölnis. 29.10.2006 18:30
Fimm leikir í kvöld Fimm leikir eru á dagskrá í körfuboltanum hér heima í kvöld. Fjórir leikir eru hjá körlunum og einn í kvennaflokki þar sem Íslandsmeistarar Hauka taka á móti nýliðum Hamars/Selfoss. Sá leikur hefst klukkan 19:15 eins og raunar allir leikir kvöldsins. 29.10.2006 17:36
Kaman og Howard gera nýja samninga ESPN sjónvarpsstöðin í Bandaríkjunum hefur greint frá því að miðherjinn Chris Kaman hjá LA Clippers og framherjinn Josh Howard hjá Dallas Mavericks séu nú búnir að framlengja samninga sína við lið sín í NBA deildinni. 29.10.2006 16:15
Red Auerbach allur Red Auerbach, forseti Boston Celtics í NBA deildinni og fyrrum þjálfari, lést á laugardaginn 89 ára að aldri. Auerbach er einn þekktasti og sigursælasti þjálfari í sögu körfuknattleiksins en undir hans stjórn vann lið Boston átta meistaratitla í röð og níu alls á sjötta og sjöunda áratugnum. 29.10.2006 14:48
Æfingatímabilinu lauk í nótt Síðustu leikirnir á æfingatímabilinu í NBA fóru fram í nótt en deildarkeppnin hefst með látum næsta þriðjudagskvöld. Í sjónvarpsleiknum á NBA TV í nótt vann San Antonio öruggan sigur á Dallas 100-79, en þessi lið mætast einmitt á þriðjudagskvöldið í fyrsta deildarleik sínum. 28.10.2006 12:00
Tindastóll lagði ÍR Lið Tindastóls gerði góða ferð í Breiðholtið í kvöld og lagði ÍR 93-78 í úrvalsdeild karla í körfubolta. Lamar Karim skoraði 29 stig og Svavar Birgisson 19 fyrir Stólana, en LaMar Owen skoraði 30 stig og Ólafur Sigurðsson 14 fyrir ÍR. Þetta var annar sigur nýliða Tindastóls í deildinni í þremur leikjum. Þá vann Fjölnir góðan sigur á Keflavík á heimavelli 110-108 eftir framlengdan leik. 27.10.2006 20:47
Tveir leikir í kvöld Tveir síðustu leikirnir í þriðju umferð úrvalsdeildar karla í körfubolta fara fram í kvöld. Fjölnir tekur á móti Keflavík í Grafarvogi og ÍR tekur á móti Tindastól í Seljaskóla. Báðir leikirnir hefjast klukkan 19:15. 27.10.2006 17:20
George Byrd í Hamar Miðherjinn George Byrd sem lék við góðan orðstír með Skallagrími í Borgarnesi á síðustu leiktíð, gengur í raðir Hamars/Selfoss um helgina. Þetta kemur fram á vefsíðunni Karfan.is í gærkvöld. Byrd verður Hamarsmönnum eflaust mikill styrkur, en hann fær það hlutverk að fylla skarð Lewis Monroe sem var látinn fara frá liðinu á dögunum. 27.10.2006 15:20
Denver skellti LA Lakers Denver lagði LA Lakers örugglega 126-108 í æfingaleik liðanna í nótt sem sýndur var beint á NBA TV sjónvarpsstöðinni. Carmelo Anthony skoraði 32 stig á aðeins 31 mínútu fyrir Denver og Andre Miller skoraði 14 stig, gaf 11 stoðsendingar og hirti 8 fráköst, en Andrew Bynum skoraði 23 stig og hirti 7 fráköst fyrir Lakers. Kobe Bryant var ekki með liði Lakers og er enn tæpur að ná fyrsta deildarleik liðsins eftir helgina. 27.10.2006 14:58
Mutombo ósáttur við kynþáttafordóma Miðherjinn Dikembe Mutombo hjá Houston Rockets lenti í orðaskaki við einn stuðningsmanna Orlando Magic í æfingaleik liðanna í NBA í fyrrakvöld eftir að hafa orðið fyrir kynþáttaníð í lok þriðja leikhlutans. 27.10.2006 03:18
Tindastóll yfir í Seljaskóla Tindastóll hefur góða 54-41 forystu gegn ÍR þegar flautað hefur verið til leikhlés í viðureign liðanna í úrvalsdeildinni sem fram fer í Seljaskóla. Lamar Karim hefur skoraði 18 stig fyrir Tindastól og Svavar Birgisson 12, en hjá ÍR er LMar Owen kominn með 15 stig og Ólafur Sigurðsson 12. Í hinum leik kvöldsins höfðu Fjölnismenn yfir 33-24 forystu gegn Keflavík þegar síðast fréttist. 27.10.2006 20:05
Skallagrímur lagði KR Skallagrímur úr Borgarnesi gerði góða ferð í höfuðborgina í kvöld þegar liðið færði KR fyrsta tap sitt í úrvalsdeildinni með 88-81 sigri. Gestirnir höfðu undirtökin lengst af leik og unnu verðskuldaðan sigur. 26.10.2006 20:43
Stern vill að leikmenn gangi um óvopnaðir David Stern, forseti NBA deildarinnar í körfubolta, hefur nú farið þess á leit við leikmenn í deildinni að þeir skilji skotvopn sín eftir heima hjá sér og gangi ekki með þau á sér úti á götu og á keppnisferðalögum. 26.10.2006 18:11
Steven Thomas leikmaður 2. umferðar Bandaríkjamaðurinn Steven Thomas var besti leikmaður 2. umferðar úrvalsdeildar karla í körfubolta samkvæmt töfræðigrunni KKÍ. Thomas fór mikinn í leik gegn Haukum á dögunum, skoraði 24 stig, hirti 23 fráköst og varði 4 skot - en þessi tölfræði skilaði honum 43 stigum fyrir frammistöðuna á leikvarpinu hjá KKÍ. 26.10.2006 17:45
Stórleikur í vesturbænum í kvöld Í kvöld hefst þriðja umferðin í úrvalsdeild karla í körfubolta með fjórum leikjum. Stórleikur kvöldsins verður án efa viðureign KR og Skallagríms í DHL höllinni. Njarðvík tekur á móti Hamri í Njarðvík, Haukar mæta Snæfelli og Þór Þorlákshöfn fær Grindavík í heimsókn. Allir leikirnir hefjast klukkan 19:15 og fylgst verður með gangi mála hér á Vísi. 26.10.2006 17:07
Mikil spenna í fyrstu umferðunum Það er óhætt að segja að fyrstu tvær umferðirnar í úrvalsdeild karla í körfubolta lofi góðu um framhaldið í vetur, því aldrei áður hefur verið eins mikil spenna á jafnmörgum vígstöðvum eftir tvær umferðir á miðað við núverandi keppnisfyrirkomulag. 26.10.2006 15:58
Houston burstaði Miami Átta leikir fóru fram á undirbúningstímabilinu í NBA í nótt, en nú er smátt og smátt að færast meiri alvara í æfingaleikina þar sem deildarkeppnin byrjar eftir helgina. Houston Rockets burstaði meistara Miami Heat á útivelli í sjónvarpsleiknum á NBA TV. 26.10.2006 15:32
Enn leiðir Skallagrímur Skallagrímur úr Borgarnesi hefur enn forystu gegn KR þegar þremur leikhlutum er lokið í aðalleik kvöldsins í úrvalsdeild karla. KR-ingar náðu að jafna metin þegar skammt var eftir af þriðja leikhlutanum, en góð rispa Borgnesinga tryggði þeim 63-55 forystu fyrir lokaleikhlutann. 26.10.2006 20:21
Skallagrímur yfir í hálfleik Skallagrímsmenn hafa yfir 44-35 gegn KR þegar flautað hefur verið til hálfleiks í viðureign liðanna í úrvalsdeild karla í DHL höllinni. Gestirnir hafa verið með frumkvæðið allan fyrri hálfleikinn og þar er Darryl Flake atkvæðamestur með 14 stig. 26.10.2006 19:51
Skallagrímur leiðir Skallagrímur hefur yfir 20-13 gegn KR að loknum fyrsta leikhluta í viðureign liðanna í úrvalsdeild karla í körfubolta, en leikið er í vesturbænum. Gestirnir hafa verið mun betri framan af leik og ætla greinilega að velgja KR-ingum undir uggum. 26.10.2006 19:31
Miami - Houston í beinni Það verður sannkallaður toppleikur í beinni útsendingu á NBA TV sjónvarpsstöðinni í kvöld en annað kvöldið í röð eru það meistarar Miami sem verða í eldlínunni og að þessu sinni tekur liðið á móti Houston Rockets. Leikurinn hefst klukkan 12 á miðnætti og er hér um að ræða æfingaleik. Deildarkeppnin hefst svo á fullu um mánaðamótin þar sem tveir leikir verða sýndir beint á hverju kvöldi fyrstu vikuna af tímabilinu. 25.10.2006 22:53
Birna Valgarðsdóttir meiddist á hné Landsliðskonan Birna Valgarðsdóttir hjá Keflavík verður frá keppni í að minnsta kosti einn mánuð eftir að liðþófi í hné hennar rifnaði á æfingu á mánudagskvöldið. Þetta kemur fram á vef Víkurfrétta. Þetta er liði Keflavíkur mikið áfall en Birna á enn eftir að fara í speglun þar sem betur kemur í ljós hve alvarleg meiðsli hennar eru. 25.10.2006 22:15
Tamara Bowie best í fyrstu umferðinni Bandaríska körfuknattleikskonan Tamara Bowie hjá Grindavík var leikmaður fyrstu umferðar í Iceland Express deild kvenna samkvæmt tölfræðigrunni KKÍ en hún átti stórleik gegn liði Hamars/Selfoss. Þetta kemur fram á vef körfuknattleikssambandsins í dag. 25.10.2006 22:15
Góður sigur Keflavíkurstúlkna í Grindavík Önnur umferðin í Iceland Express deild kvenna í körfubolta fór fram í kvöld. Keflavíkurstúlkur gerðu góða ferð yfir til Grindavíkur og sigruðu 72-69. Takesha Watson skoraði 35 stig og hirti 8 fráköst fyrir Keflavík og María Erlingsdóttir skoraði 17 stig. Tamara Bowie fór hamförum í liði Grindavíkur með 33 stig og 16 fráköst og Hildur Sigurðardóttir skoraði 14 stig, hirti 10 fráköst og gaf 8 stoðsendingar. 25.10.2006 21:18
Shaq kemur lögreglu til aðstoðar Miðherjinn Shaquille O´Neal hjá Miami Heat er í síauknum mæli farinn að starfa sem lögreglumaður, en í fréttir frá Bandaríkjunum í gær herma að hann hafi verið til aðstoðar í misheppnaðri innrás í hús í Virginíufylki í síðasta mánuði. 25.10.2006 17:30
San Antonio spáð sigri á næsta ári Það er hefði í NBA deildinni fyrir upphaf deildarkeppninnar að framkvæmdastjórar félaganna geri spá fyrir komandi leiktíð líkt og gerist hér á Íslandi. Meirihluti þessara manna spáir því að lið San Antonio muni standa uppi sem sigurvegari næsta sumar og hallast þeir að því að LeBron James verði kjörinn verðmætasti leikmaðurinn á tímabilinu. 25.10.2006 15:47
Níu æfingaleikir fóru fram liðna nótt Meistarar Miami Heat lögðu Orlando Magic 92-82 í æfingaleik í NBA deildinni í nótt, en leikurinn var sýndur beint á NBA TV sjónvarpsstöðinni og var hin besta skemmtun. Antoine Walker skoraði 16 stig og hirti 10 fráköst fyrir Miami en Hedo Turkoglu skoraði 18 stig fyrir Orlando. 25.10.2006 14:39
Orlando - Miami í beinni Níu leikir eru á dagskrá á undirbúningstímabilinu í NBA í nótt og verður leikur Flóridaliðanna Orlando Magic og Miami Heat sýndur beint á NBA TV sjónvarpsstöðinni á besta tíma í kvöld eða klukkan 23. 24.10.2006 20:14
Vandræði hjá Sacramento Lið Sacramento Kings virðist ekki ætla að byrja leiktíðina glæsilega í NBA, en nú þegar nákvæmlega vika er í að deildarkeppnin hefjist hefur liðið orðið fyrir tveimur áföllum en góðu fréttirnar eru kannski þær að hvorugt atvikið tengist vandræðagemlingnum Ron Artest. 24.10.2006 16:15
Þrír leikir fóru fram í nótt Þrír leikir fóru fram á undirbúningstímabilinu í NBA í nótt, en deildarkeppnin hefst eftir nákvæmlega viku. Leikur grannaliðanna Orlando og Miami verður sýndur beint á NBA TV klukkan 23:00 í nótt. 24.10.2006 14:24
Öruggur sigur hjá KR-ingum KR-ingar gerðu góða ferð í Reykjanesbæ í gær og báru sigurorð af Keflvíkingum, 81-90. Keflvíkingar byrjuðu leikinn af miklum krafti en KR-ingar sigu framúr og stóðu að lokum uppi sem öruggir sigurvegarar. 24.10.2006 06:00
Lið Loga og Jóns töpuðu Bæði lið Loga Gunnarssonar og Jóns Arnórs Stefánssonar töpuðu sínum leikjum um helgina. ToPo, lið Loga í finnsku úrvalsdeildinni, tapaði á útivelli fyrir TC, 96-83, og var Logi annar stigahæstu leikmanna liðsins með 20 stig. ToPo er sem stendur í sjötta sæti deildarinnar sem telur alls tólf lið. Liðið hefur unnið fjóra leiki en tapað þremur. 23.10.2006 12:30
Haukar réðu ekki við Thomas Grindavík hélt áfram sigurgöngu sinni í Iceland Express deild karla í gær og nú báru þeir sigurorð á Haukum, 95-85. Heimamenn gerðu út um leikinn í upphafi síðari hálfleiks og breyttu átta stiga forskoti í 24 stiga forskot á sex mínútna kafla. Páll Axel Vilbergsson hafði hægt um sig í fyrri hálfleik en skoraði tíu stig á þessum leikkafla. Segja má að Grindvíkingar hafi keyrt yfir andstæðinga sína því tólf af stigunum 20 komu úr hraðaupphlaupssóknum. 23.10.2006 12:00
Beinar útsendingar um helgina NBA TV sjónvarpsstöðin heldur áfram beinum útsendingum frá undirbúningstímabilinu í NBA um helgina, en nú er farið að styttast verulega í að deildarkeppnin sjálf hefjist. Á laugardagskvöldið verður leikur Dallas og Washington í beinni útsendingu klukkan hálf eitt og á sama tíma á sunnudagskvöldið eigast við Texas-liðin Houston og San Antonio. 21.10.2006 00:50
KR lagði Snæfell í hörkuleik KR byrjaði leiktíðina með sigri í úrvalsdeild karla í körfubolta í kvöld þegar liðið lagði Snæfell á heimavelli sínum 83-79. Heimamenn voru yfir nær allan leikinn, en gestirnir komust yfir þegar nokkrar mínútur voru til leiksloka. Þá fékk Hlynur Bæringsson sína fimmtu villu og eftir það gengu KR-ingar á lagið og höfðu sigur. 20.10.2006 21:34
Boris Diaw semur við Phoenix Franski framherjinn Boris Diaw hefur samþykkt að skrifa undir fimm ára framlengingu á samningi sínum við NBA lið Phoenix Suns og sagt er að samningurinn færi honum um 45 milljónir dollara í aðra hönd. 20.10.2006 21:30
Tveir stórleikir í kvöld Fyrsta umferðin í úrvalsdeild karla í körfubolta klárast í kvöld þegar tveir stórleikir verða á dagskrá. Grannarnir Hamar/Selfoss og Þór eigast þá við í Þorlákshöfn og í DHL Höllinni mætast KR og Snæfell. Báðir leikirnir hefjast klukkan 19:15 og rétt er að hvetja alla til að mæta á völlinn, enda verður eflaust hart barist á báðum vígstöðvum. 20.10.2006 17:28
Josh Howard framlengir við Dalls Framherjinn Josh Howard hefur undirritað nýjan fjögurra ára samning við Dallas Mavericks í NBA deildinni og er því samningsbundinn liðinu út keppnistímabilið 2010-11. Howard fær um 40 milljónir dollara fyrir nýja samninginn, sem tekur ekki gildi fyrrr en eftir tímabilið sem hefst um mánaðamótin. 20.10.2006 17:10
Clippers vann grannaslaginn Los Angeles Clippers lagði granna sína í LA Lakers í leik liðanna á undirbúningstímabilinu í NBA í nótt. Leikurinn var sýndur beint á NBA TV sjónvarpsstöðinni, en alls fóru fram átta leikir í nótt. 20.10.2006 14:07
Lakers - Clippers í beinni í nótt Undirbúningstímabilið í NBA deildinni heldur áfram í kvöld og þá verða átta leikir á dagskrá. Grannaslagur Los Angeles Lakers og Los Angeles Clippers verður sýndur í beinni útsendingu á NBA TV sjónvarpsrásinni á Digital Ísland og hefst hann klukkan tvö í nótt. 19.10.2006 21:56
Suðurnesjaliðin unnu leiki sína Fjórir leikir fóru fram í fyrstu umferð úrvalsdeildar karla í körfubolta í kvöld. Suðurnesjaliðin unnu öll fyrstu leiki sína og þá unnu Haukar afar nauman sigur á nýliðum Tindastóls í Hafnarfirði. 19.10.2006 21:44
Deildarkeppnin hefst í kvöld með fjórum leikjum Keppni í úrvalsdeild karla í körfubolta hefst með látum í kvöld þegar fjórir leikir eru á dagskrá og hefjast þeir allir klukkan 19:15. Íslandsmeistarar Njarðvíkur hefja titilvörnina í Seljaskóla gegn ÍR, Keflavík tekur á móti Skallagrími, Fjölnir fær Grindavík í heimsókn og þá taka Haukar á móti Tindastól. 19.10.2006 18:31
Fimm leikir í nótt Fimm æfingaleikir fóru fram á undirbúningstímabilinu í NBA liðna nótt. New Jersey er enn án sigurs eftir fjóra leiki, en Toronto hefur unnið alla fjóra leiki sína á undirbúningstímabilinu. Grannaslagur LA Lakers og LA Clippers verður sýndur beint á NBA TV í nótt klukkan hálf tvö. 19.10.2006 14:42
Keflavík lagði Skallagrím í spennandi leik Fyrsta umferð Iceland Express deildarinnar hófst í gær þegar Keflvíkingar mættu Skallagrímsmönnum í íþróttahúsinu við sunnubraut en báðum liðum hefur verið spáð góðu gengi í vetur. Leikurinn var jafn og æsispennandi allan tímann og fór í framlengingu en lyktaði með naumum sigri Keflvíkinga 87-84. 19.10.2006 05:00
Mikil óánægja með nýja boltann Mikil óánægja er meðal leikmanna í NBA deildinni með nýja keppnisboltann sem notaður verður í vetur, en þetta er bolti úr gerviefni sem koma á í stað leðurboltans sem notaður hefur verið í 35 ár. Raunar eru það aðeins dýraverndunarsinnar sem eru ánægðir með boltann. 18.10.2006 19:59