Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
HSÍ fellir niður sekt Hattar Handknattleikssamband Íslands hefur ákveðið að fella niður 250.000 króna sekt til handa handknattleiks deild Hattar eftir að liðið mætti ekki til leiks gegn ÍBV í 1. deildinni á dögunum. Eyjamönnum var dæmdur 10-0 sigur í leiknum, en þau úrslit munu standa. Formaður handknattleiksdeildar Hattar og Formaður HSÍ segja að sátt hafi náðst í málinu. 30.11.2006 19:31
Fram lagði Fylki Fram er enn í þriðja sæti DHL deildar karla í handbolta eftir nokkuð öruggan sigur á Fylki í Safamýri 34-29 eftir að hafa leitt í hálfleik 18-12. Fylkir er í næst neðsta sæti deildarinnar. 29.11.2006 22:18
Fram tekur á móti Fylki Einn leikur er á dagskrá í DHL-deild karla í handbolta í kvöld. Íslandsmeistarar Fram taka þá á móti Fylki í Framhúsinu í Safamýri og hefst leikurinn klukkan 20. Fram er í þriðja sæti deildarinnar, en Fylkir er í næst neðsta sæti. Þá er rétt að minna á stórleik í kvennakörfunni þar sem Keflavík tekur á móti Grindavík í Keflavík klukkan 19:15. 29.11.2006 17:09
Kvennaliðin í sókn Íslensk félagslið í kvennaflokki eru í ágætri sókn samkvæmt nýjum styrkleikalista sem Handknattleikssamband Evrópu gaf út í dag. Kvennaliðin á Íslandi eru þar í 19. sæti á styrkleikalistum og vinna sig upp um sjö sæti frá því listinn var síðast birtur, en karlaliðin falla um eitt sæti og eru í 22. sæti. 29.11.2006 16:21
Ísland lagði Asera Íslenska kvennalandsliðið í handknattleik vann sigur á Aserum í fyrsta leik sínum í undankeppni HM í Rúmeníu í dag 31-28. Íslenska liðið var yfir 18-13 í hálfleik. Hanna Stefánsdóttir og Hrafnhildur Skúladóttir skoruðu 6 mörk hvor fyrir íslenska liðið í dag og Rakel Dögg Bragadóttir skoraði 5 mörk. Liðið mætir Portúgölum klukkan 15 að íslenskum tíma á föstudaginn. 28.11.2006 17:17
Handboltamenn stofna G-14 Handknattleiksforystan í Evrópu hefur nú fetað í fótspor kollega sinna í knattspyrnunni og hefur stofnað sitt eigið G-14 samband. Það er samband 14 stærstu félagsliða Evrópu sem koma frá 8 löndum og verður samtökunum ætlað að bæta tengsl félagsliða við Alþjóða- og Evrópusambandið í handbolta. 27.11.2006 15:46
Akureyri lagði Val Akureyri gerði sér lítið fyrir og lagði topplið Vals í DHL-deild karla í handbolta í dag 25-22. Goran Gusic skoraði 8 mörk fyrir Akureyri en þeir Ingvar Árnason og Baldvin Þorsteinsson skoruðu 4 hvor fyrir Val. 26.11.2006 17:47
Haukar lögðu ÍR Haukar lögðu ÍR 31-29 í DHL deild karla í handbolta í dag eftir að hafa verið þremur mörkum yfir í leikhléi 16-13. Árni Þór Sigtryggsson skoraði 8 mörk fyrir Hauka og Guðmundur Pedersen 7. Brynjar Steinarsson skoraði 8 mörk fyrir ÍR og þeir Jón Gunnarsson og Björgvin Hólmgeirsson 6 hvor. 26.11.2006 17:28
Ciudad Real fagnaði sigri Ciudad Real tryggði sér í dag sigur í EHF Ofurbikarnum í handbolta þegar liðið lagði Íslendingalið Gummersbach frá Þýskalandi í úrslitaleik keppninnar 36-31 eftir að hafa verið yfir í hálfleik 18-13. Ólafur Stefánsson skoraði 4 mörk fyrir Ciudad í leiknum og gamla brýnið og þjálfari liðsins Talant Duishebaev skorað sjálfur 5 mörk. 26.11.2006 16:53
Hálfleiksstaðan í DHL deildinni Haukar hafa yfir 16-13 gegn ÍR í viðureign liðanna í DHL deild karla á Ásvöllum. Guðmundur Pedersen og Árni Sigtryggsson hafa skorað 5 mörk hvor fyrir Hauka, en þeir Brynjar Steinarsson, Jón Gunnarsson og Linaf Kalasuaskas 3 hver fyrir ÍR. 26.11.2006 16:38
Gummersbach - Ciudad Real í beinni á Eurosport Leikur Íslendingaliðanna Gummersbach og Ciudad Real í EHF Ofurbikarnum í handbolta er nú hafinn og er sýndur beint á Eurosport sjónvarpsstöðinni. Fyrr í dag lagði Lemgo rússneska liðið Medvedi 37-33 þar sem Ásgeir Örn Hallgrímsson skoraði 3 mörk. Logi Geirsson gat ekki leikið með Lemgo vegna meiðsla. 26.11.2006 15:04
Kiel og Flensburg á toppnum Nokkrir leikir fóru fram í þýsku úrvalsdeildinni í handbolta í kvöld. Kiel og Flensburg eru efst og jöfn eftir leiki kvöldsins en þau unnu bæði leiki sína nokkuð örugglega. 25.11.2006 21:53
Gummersbach mætir Ciudad í úrslitum Gummersbach lagði Lemgo 34-33 í undanúrslitum ofurbikarsins í dag þar sem fjögur af bestu liðum Evrópu leiða saman hesta sína. Guðjón Valur Sigurðsson og Róbert Gunnarsson soruðu 5 mörk hvor fyrir Gummersbach. Í hinum undanúrslitaleiknum skoraði Ólafur Stefánsson 5 mörk fyrir Ciudad Real sem lagði rússneska liðið Medwedi 37-34. Ciudad og Gummersbach mætast í úrslitum keppninnar á morgun. 25.11.2006 18:24
Auðveldur sigur Fram á Stjörnunni Einn leikur fór fram í DHL deild karla í handbolta í dag. Íslandsmeistarar Fram burstuðu Stjörnuna 31-20 í Safamýri. Jóhann Gunnar Einarsson skoraði 10 mörk fyrir Fram í dag, þar af 9 úr vítum, en Guðmundur Guðmundsson skoraði 5 mörk fyrir Stjörnuna. 25.11.2006 18:07
Ísland lagði Færeyjar öðru sinni Íslenska kvennalandsliðið í handknattleik lagði það færeyska í annað sinn á tveimur dögum í æfingaleik þjóðanna í Framhúsinu í dag 27-21 eftir að hafa leitt í hálfleik 16-11. Sólveig Lára Kjærnested var markahæst í íslenska liðinu með 5 mörk Rakel Bragadóttir 4 og Hanna Stefánsdóttir, Elísabet Gunnarsdóttir og Eva Kristinsdóttir skoruðu 3 hver. 25.11.2006 15:46
Auðveldur sigur á Færeyingum Íslenska kvennalandsliðið í handbolta vann í kvöld auðveldan sigur á því færeyska í Framhúsinu 43-11 eftir að hafa leitt í hálfleik 23-7. Hanna G. Stefánsdóttir var markahæst í íslenska liðinu með 10 mörk, Dagný Skúladóttir skoraði 6 mörk og þær Ágústa Edda Björnsdóttir og Sólveig Lára Kjærnested 5 hvor. Liðin eigast aftur við á sama stað á morgun klukkan 14:15. 24.11.2006 21:38
Júlíus tilkynnir landsliðshópinn Júlíus Jónasson, þjálfari íslenska kvennalandsliðsins í handbolta, hefur tilkynnt leikmannahóp sinn sem tekur þátt í undankeppni HM í Rúmeníu í næstu viku. Íslenska liðið leikur tvo æfingaleiki við Færeyinga í Safamýri á morgun og laugardag og eru þeir leikir lokaundirbúningur liðsins fyrir Rúmeníuferðina. 23.11.2006 23:00
Handboltinn stendur höllum fæti í Hafnarfirði Handboltinn í Hafnarfirði stendur afar höllum fæti og skulda handknattleiksfélög Hauka og FH þar í bæ samtals 113 milljónir króna. Handknattleiksdeildir félaganna eru komnar í þrot og hafa leitað aðstoðar bæjaryfirvalda. Hörður Magnússon greindi frá þessu í íþróttafréttum Stöðvar 2 í kvöld. 23.11.2006 19:33
Gummersbach á toppinn Þýska úrvalsdeildarliðið Gummersbach náði aftur toppsætinu í deildinni í gærkvöld þegar liðið burstaði Göppingen 41-33 á heimavelli sínum. Guðjón Valur Sigurðsson skoraði 10 mörk fyrir Gummersbach og Róbert Gunnarsson 5. Þá steinlá Lemgo nokkuð óvænt fyrir Kronau/Östringen 35-24 þar sem Logi Geirsson skoraði 5 mörk fyrir Lemgo og Ásgeir Hallgrímsson 2 mörk. 23.11.2006 14:34
Ísland leikur við Færeyjar um helgina Íslenska kvennalandsliðið í handknattleik mætir því færeyska í tvígang um næstu helgi. Hér er um að ræða æfingaleiki fyrir íslenska liðið sem er að undirbúa sig fyrir forkeppni HM sem fram fer í Rúmeníu í næstu viku. 22.11.2006 22:30
Fram lagði Akureyri Einn leikur var á dagskrá í DHL-deild karla í handknattleik í kvöld. Íslandsmeistarar Fram lögðu lið Akureyrar 32-29 eftir að hafa verið með sjö marka forskot í leikhléi 19-12. Jóhann Einarsson skoraði 9 mörk fyrir Fram og Sigfús Sigfússon 7, en Goran Gusic skoraði 11 mörk fyrir Akureyri, þar af 10 úr vítum. Fram er í þriðja sæti deildarinnar en Akureyri í því fjórða. 22.11.2006 20:49
Akureyri og Fram mætast í 8-liða úrslitunum Í dag var dregið í 8-liða úrslit SS-bikarsins í handbolta í karla- og kvennaflokki. Í karlaflokki er aðeins einn úrvalsdeildarslagur þar sem Akureyri tekur á móti Íslandsmeisturum Fram. Stórleikurinn í kvennaflokki er án efa viðureign Hauka og Stjörnunnar. 22.11.2006 14:15
Stjarnan upp í fjórða sæti Stjarnan er komið upp í 4. sæti DHL-deildar karla í handbolta eftir góðan sigur á Fylki í Árbænum í dag, 27-24. Fram sigraði ÍR í Breiðholtinu, 40-29. 19.11.2006 17:45
Þýskaland lagði Svía af velli Þjóðverjar unnu öruggan sigur á Svíum, 30-24, í vináttulandsleik í handbolta sem fram fór í Þýskalandi í dag. Þá höfðu Norðmenn betur gegn Dönum, 26-23. 18.11.2006 18:22
Ótrúlegur sigur Vals Arnór Gunnarsson tryggði Valsmönnum dramatískan sigur á Haukum á Ásvöllum í dag þegar hann skoraði sigurmarkið þremur sekúndum fyrir leikslok. Lokatölur urðu 30-29 fyrir Val sem er komið á topp DHL-deildarinnar að nýju. Í DHL-deild kvenna vann Grótta sigur á Fram. 18.11.2006 17:50
Jón Þorbjörn á leið heim Það verða fleiri breytingar hjá Skjern á næsta ári fyrir utan að Aron Kristjánsson hættir að þjálfa liðið. Samkvæmt heimildum Fréttablaðsins leikur línumaðurinn Jón Þorbjörn Jóhannesson ekki með liðinu á næsta ári. 17.11.2006 09:15
Í banni næstu tvo leikina Tite Kalandadze, stórskytta Stjörnunnar, var í gær dæmdur í tveggja leikja bann af aganefnd HSÍ vegna útilokunar í leik gegn Akureyri á dögunum. Hann missir því af leikjum gegn Fylki og Fram. 17.11.2006 08:30
Fram í 8-liða úrslitin Framarar tryggðu sér í kvöld sæti í 8-liða úrslitum SS bikarsins í handbolta þegar þeir lögðu Fylki 34-31 á heimavelli sínum, eftir að gestirnir höfðu verið með tveggja marka forystu í hálfleik 16-14. Þá vann Akureyri öruggan sigur á ÍR 2 með 33 mörkum gegn 26. 16.11.2006 21:49
Fram mætir Fylki í SS bikarnum í kvöld Tveir leikir fara fram í SS bikar karla í handbolta í kvöld. Stórleikur kvöldsins er án efa viðureign Fram og Fylkis sem hefst klukkan 19:15 í Framhúsinu, en þá mætast ÍR 2 á og Akureyri nú klukkan 18:30. 16-liða úrslitunum lýkur svo annað kvöld þegar ÍBV tekur á móti Hetti. 16.11.2006 18:16
Enn tapar Wetzlar Wetzlar, lið Róbert Sighvatssonar í þýsku úrvalsdeildinni í handbolta, er enn án sigurs eftir stórt tap gegn Hamburg á útivelli í kvöld 36-23. Minden lá heima gegn Flensburg 32-26, Kiel lagði Kronau/Östringen 37-32 og Magdeburg skellti Dusseldorf 37-31 á útivelli. 15.11.2006 22:25
Haukar lögðu Val Haukar lögðu Valsmenn í stórleik kvöldsins í SS-bikar karla í handbolta 27-24 eftir að hafa verið tveimur mörkum yfir í hálfleik. Valsmenn eru því úr leik í bikarkeppninni en Haukar eru komnir í 8-liða úrslit keppninnar. 15.11.2006 21:54
Stjarnan lagði Hauka á Ásvöllum Stjarnan lagði Hauka 28-26 í leik liðanna í DHL deild kvenna í handbolta á Ásvöllum í kvöld. Rakel Bragadóttir var markahæst hjá Stjörnunni með 8 mörk, þar af 4 úr vítum og þær Anna Blöndal og Jóna Ragnarsdóttir skoruðu 5 hvor. Ramune Pekerskyte skoraði 8 mörk fyrir Hauka og Sandra Stojkovic skoraði 7 mörk. Stjarnan er sem fyrr í 3. sæti deildarinnar en Haukar í 4. sætinu, en Stjarnan á 2 leiki til góða. 15.11.2006 19:54
Þróttarar mættu ekki í lyfjapróf Þrír leikmenn handknattleiksliðs Þróttar í Vogum skrópuðu í lyfjapróf eftir bikarleik gegn Stjörnunni í gær og eiga tveggja ára keppnisbann yfir höfði sér. Þorsteinn Gunnarsson greindi frá þessu í íþróttafréttum á Stöð 2 í kvöld. 15.11.2006 19:42
Stjarnan yfir gegn Haukum Stjörnustúlkur hafa yfir 15-12 þegar flautað hefur verið til leikhlés í viðureign liðsins gegn Haukum á Ásvöllum í DHL deild kvenna. Rakel Bragadóttir, Jóna Margrét Ragnarsdóttir, Elísabet Gunnarsdóttir og Anna Blöndal hafa skorað 3 mörk hver fyrir Stjörnuna en Sandra Stojkovic hefur skorað 4 mörk fyrir Hauka og Ramune Pekarskyte 3 mörk. 15.11.2006 18:53
Lemgo skellti Gummersbach Einn leikur var í þýsku úrvalsdeildinni í handbolta í kvöld og þar gerði Lemgo sér lítið fyrir og vann Gummersbach 34-29 á heimavelli sínum eftir að staðan hafði verið jöfn 19-19 í hálfleik. Lemgo er fyrir vikið komið í toppsæti deildarinnar með 19 stig eftir 11 leiki - einu stigi meira en Gummersbach. 14.11.2006 20:56
Gummersbach mætir Medvedi Í dag var dregið í 16-liða úrslit Meistaradeildar Evrópu í handbolta. Lærisveinar Alfreðs Gíslasonar í þýska liðinu Gummersbach mæta rússneska liðinu Medvedi og Ólafur Stefánsson og félagar í Ciudad Real mæta danska liðinu GOG. Leikið verður 2. og 10. desember. 14.11.2006 14:08
Haukar úr leik Karlalið Hauka er úr leik í Evrópukeppninni í handbolta eftir 29-19 tap fyrir Paris Handball á heimavelli sínum í kvöld. Haukar töpuðu fyrri leiknum með 10 marka mun og sáu því vart til sólar í einvíginu. Fyrr í dag féllu Fylkismenn úr Áskorendakeppni Evrópu eftir naumt tap gegn St. Otmar frá Sviss. 12.11.2006 22:20
Akureyri skellti Stjörnunni Akureyri vann nokkuð sigur á Stjörnunni í Ásgarði í leik kvöldsins í DHL deild karla í handknattleik 23-22, eftir að heimamenn höfðu 5 marka forskot í hálfleik. Akureyri skaust með sigrinum í 3. sæti deildarinnar og hefur hlotið 7 stig í 5 leikjum, en Stjarnan er í 5. sæti með 4 stig. 12.11.2006 19:44
Fylkir úr leik Fylkir er úr leik í Áskorendakeppni Evrópu eftir annað naumt 30-29 tap fyrir svissneska liðinu St. Otmar ytra, en fyrri leik liðanna lauk með sama markamun í gær og því er íslenska liðið úr leik. 12.11.2006 19:35
Tap hjá Alfreð og Viggó Lærisveinar Alfreðs Gíslasonar og Viggós Sigurðssonar töpuðu leikjum sínum í Meistaradeildinni í handbolta í dag, en það kom ekki að sök því Flensburg og Gummersbach eru bæði komin áfram í riðlum sínum í keppninni. 11.11.2006 21:22
Fram lá fyrir Sandefjord Framarar eru úr leik í Evrópukeppninni í handbolta eftir 31-28 tap fyrir norsku meisturunum í Sandefjord á heimavelli sínum í dag. Jóhann Gunnar Einarsson og Sigfús Sigfússon skoruðu 5 mörk hvor fyrir Fram, sem þýðir að Fram vermir botnsætið í riðli sínum án sigurs. 11.11.2006 18:18
Valsmenn aftur á toppinn Einn leikur fór fram í DHL deild karla í handbolta í dag. Valsmenn skelltu sér aftur á topp deildarinnar með 31-25 sigri á ÍR. Markús Máni Michaelsson var markahæstur hjá Val með 7 mörk en Davíð Georgsson skoraði 8 fyrir botnlið ÍR. 11.11.2006 17:51
Fram - Sandefjord í beinni á Sýn Síðari leikur Fram og Sandefjord í Meistaradeild Evrópu í handbolta verður sýndur beint á sjónvarpsstöðinni Sýn klukkan 16:50 í dag. Fram bíður erfitt verkefni því norska liðið vann fyrri leikinn með tíu mörkum og leikurinn í dag ræður úrslitum um það hvort liðið kemst áfram upp úr riðlinum. 11.11.2006 16:36
Valsstúlkur á toppnum Kvennalið Vals hefur náð þriggja stiga forystu á toppi DHL deildarinnar eftir öruggan 28-20 sigur á Fram í Laugardalshöllinni í dag. Haukar lögðu Akureyri á útivelli 27-21. Valur hefur þriggja stiga forskot á Gróttu á toppi deildarinnar. 11.11.2006 16:31
Jafnt í hálfleik Staðan í leik Fram og Sandefjord í Meistaradeildinni í handbolta er jöfn 12-12 þegar flautað hefur verið til leikhlés. Markvörður norska liðsins hefur reynst Frömurum erfiður í fyrri hálfleiknum. Leikurinn er sýndur beint á Sýn. 11.11.2006 17:34