Fleiri
Flensburg enn við toppinn 23.10.2006 11:15 Auðveldur sigur hjá Flensburg Viggó Sigurðsson og lærisveinar hans í þýska liðinu Flensburg völtuðu yfir makedónsku meistarana í Metalurg Skopje 43-24 í Meistaradeild Evrópu í handbolta í dag og hafa því fullt hús í D-riðli eftir fjóra leiki. Jafnræði var með liðunum framan af, en góð rispa Flensburg um miðjan fyrri hálfleikinn gerði út um leikinn. 19.10.2006 20:08 Kiel burstaði Hildesheim Tveir leikir fóru fram í þýsku úrvalsdeildinni í handbolta í kvöld. Kiel burstaði Hildesheim á útivelli 34-25 eftir að hafa verið yfir 19-12 í hálfleik og þá vann Nordhorn góðan útisigur á Kronau/Östringen 25-22. Kiel er í öðru sæti deildarinnar með 15 stig, einu stigi á eftir lærisveinum Alfreðs Gíslasonar í Gummersbach. 18.10.2006 21:20 Haukastúlkur lögðu HK Einn leikur fór fram í DHL deild kvenna í kvöld. Haukar unnu þar sannfærandi útisigur á HK í Digranesi 26-39. Haukar hafa hlotið 6 stig í 4 leikjum í deildinni en HK hefur aðeins unnið einn leik. 18.10.2006 21:11 Ólafur ekki með gegn Ungverjum Handknattleikssambandið sendi frá sér tilkynningu í dag þar sem fram kemur að Ólafur Stefánsson muni ekki verða með landsliðinu í æfingaleikjunum tveimur í Ungverjalandi dagana 27.-28. október næstkomandi vegna meiðsla. 18.10.2006 16:02 Patrekur og Konráð þjálfa Stjörnuna tímabundið Patrekur Jóhannesson fyrirliði og Konráð Olavsson munu stýra karlaliði Stjörnunnar í handbolta þangað til eftirmaður Sigurðar Bjarnasonar finnst, en Sigurður sagði starfi sínu lausu í gær. Formaður handknattleiksdeildar félagsins staðfesti þetta í samtali við NFS í kvöld, en vonaðist til að ganga frá ráðningu þjálfara í vikunni. 16.10.2006 19:45 Sigurður hættur að þjálfa Stjörnuna Handknattleiksdeild Stjörnunnar hefur sent frá sér fréttatilkynningu þar sem tilkynnt er að Sigurður Bjarnason hafi látið af störfum sem þjálfari karlaliðs félagsins og aðstoðarmaður hans Magnús Teitsson sömuleiðis. 16.10.2006 14:12 Haukar úr leik Haukastúlkur eru úr leik í Evrópukeppninni eftir að liðið gerði jafntefli við ungverska liðið Alcoa 22-22 á Ásvöllum í dag. Ungverska liðið vann fyrri leikinn með fimm marka mun og því er íslenska liðið úr leik. 15.10.2006 17:58 Fram steinlá í Noregi Íslandsmeistarar Fram spiluðu sinn slakasta leik til þessa í Meistaradeildinni þegar liðið steinlá 35-26 fyrir norsku meisturunum í Sandefjord í dag. Guðjón Drengsson skoraði 6 mörk fyrir Framara, sem verma nú botnsætið í riðli sínum í keppninni. 14.10.2006 18:34 Valur lagði Stjörnuna Valsmenn unnu í dag góðan sigur á Stjörnunni í úrvalsdeild karla í handbolta 30-29 og því er Stjarnan enn án sigurs í deildinni eftir þrjá leiki. Ernir Hrafn Arnarson skoraði 7 mörk fyrir Val og Patrekur Jóhannesson skoraði einni 7 mörk fyrir Stjörnuna. Ólafur Haukur Gíslason varði 17 skot í marki Vals. 14.10.2006 17:39 Sandefjord - Fram í beinni á Sýn Leikur norsku meistaranna Sandefjord og Íslandsmeistara Fram í meistaradeild Evrópu verður sýndur í beinni útsendingu á Sýn í dag. Útsending frá leiknum í Noregi hefst klukkan 16:45 og það kemur í hlut hins óviðjafnanlega Guðjóns Guðmundssonar að lýsa leiknum. 14.10.2006 15:45 Haukar töpuðu fyrir Alcoa Kvennalið Hauka tapaði í kvöld fyrri leik sínum gegn ungverska liðinu Cornexi Alcoa 31-26 í Evrópukeppninni í handbolta. Síðari leikur liðanna verður einnig á Ásvöllum og þar verður bíður Hauka erfitt verkefni gegn þessu sterka liði, sem komst í undanúrslit EHF keppninnar á síðustu leiktíð. 13.10.2006 21:43 Grótta á toppnum Einn leikur fór fram í DHL deild kvenna í handknattleik í kvöld. Gróttustúlkur styrktu stöðu sína á toppi deildarinnar með auðveldum sigri á HK 32-24 og hefur liðið unnið fjóra af fyrstu fimm leikjum sínum í deildinni. 13.10.2006 20:50 Einn nýliði í hópnum Alfreð Gíslason landsliðsþjálfari hefur valið hópinn sem mætir Ungverjum í æfingaleikjum ytra í lok mánaðarins. Í hópnum er einn nýliði, Sigfús Sigfússon úr Fram. 13.10.2006 15:15 Gummersbach lagði Celje Lasko Lærisveinar Alfreðs Gíslasonar í Gummersbach unnu í kvöld afar mikilvægan sigur á sterku liði Celje í Meistaradeildinni í handbolta 34-31, eftir að hafa verið tveimur mörkum undir í hálfleik 16-14. Þá unnu Viggó Sigurðsson og félagar í Flensburg 34-29 sigur á Medwedi í sömu keppni. 12.10.2006 20:06 Júlíus Jónasson ráðinn landsliðsþjálfari Handknattleikssamband Íslands sendi nú síðdegis frá sér fréttatilkynningu þar sem fram kemur að Júlíus Jónasson hafi verið ráðinn þjálfari kvennalandsliðsins í handknattleik. 12.10.2006 17:58 HK á toppnum Einn leikur var á dagskrá í DHL-deild karla í handknattleik í kvöld. Íslandsmeistarar Fram urðu að láta sér lynda jafntefli gegn HK í Digranesi 22-22 og því er Kópavogsliðið í efsta sæti deildarinnar. 11.10.2006 21:29 Leik kvöldsins frestað Leik Hauka og Stjörnunnar í DHL-deild kvenna sem fara átti fram í kvöld klukkan 20 hefur verið frestað og fer hann fram á sama tíma annað kvöld. 10.10.2006 17:59 Haukar mæta Paris Handball Í dag var dregið í í þriðju umferð Evrópukeppni félagsliða í handbolta og fá Haukar það verkefni að mæta franska liðinu Paris Handball og verður fyrri leikur liðanna spilaður í París 4. eða 5. næsta mánaðar. Í Áskorendakeppninni dróst Fylkir á móti liði St Gallen í Sviss, en fyrri leikurinn verður hér heima í byrjun næsta mánaðar. 10.10.2006 14:26 Sjá næstu 50 fréttir
HK á toppinn HK skellti sér á toppinn í dhl deild karla í kvöld með sigri á Haukum 26-21 í Digranesi. HK hefur 9 stig í efsta sæti deildarinnar en Valsmenn hafa 8 stig og eiga leik til góða. Haukar eru í sjötta sætinu með 4 stig eftir 6 leiki. 8.11.2006 20:49
Naumur sigur Akureyri á Fylki Akureyri komst upp fyrir Fylki og í 3. sæti DHL-deildar karla í handbolta með því að sigra Árbæjarliðið á heimavelli sínum í kvöld, 30-27. Akureyri er nú komið með 5 stig eftir fjóra leiki en Fylkir er með sama stigafjölda eftir fimm leiki. 6.11.2006 20:39
Valur vann í Laugardalshöllinni Valsmenn unnu öruggan og sannfærandi sigur á Íslandsmeisturum Fram í DHL-deild karla, 30-25, en leiknum Í Laugardalshöllinni var að ljúka rétt í þessu. Valur endurheimti þar með efsta sæti deildarinnar en Framarar sitja áfram í næst neðsta sæti deildarinnar. 5.11.2006 17:40
Tap í síðasta leik Íslenska kvennalandsliðið í handbolta beið lægri hlut fyrir Tékkum, 25-23, í lokaleik sínum á æfingamóti sem staðið hefur yfir í Rotterdam síðustu daga. Íslenska liðið spilaði fimm leiki á mótinu, vann tvo þeirra en tapaði þremur. 5.11.2006 17:04
Haukar áttu ekki möguleika Karlalið Hauka í handbolta tapaði stór fyrir Paris Handball í gær, 34-24, en þetta var fyrri leikur liðanna í þriðju umferð EHF-keppninnar. Ljóst er að Haukum bíður þungur róður í síðari leiknum sem fram fer í Hafnarfirði um næstu helgi. 5.11.2006 10:18
Lék með Ciudad í kvöld ÓIafur Stefánsson, fyrirliði íslenska landsliðsins í handbolta, lék með liði sínu Ciudad Real á ný í Evrópukeppninni í kvöld eftir að hafa verið frá vegna meiðsla í özl síðustu vikur. Ólafur skoraði þrjú mörk í 32-25 sigurleik spænsku Evrópumeistaranna á Pick Szeged frá Ungverjalandi. 4.11.2006 20:46
HK skellti ÍR í Breiðholti HK endurheimti toppsæti DHL-deildar karla í handbolta í dag með því að vinna nauman útisigur á ÍR-ingum í Breiðholti, 21-22. HK er með sjö stig á toppi deildarinnar en Valsmenn, sem koma í öðru sæti með sex stig, mæta Fram á morgun. 4.11.2006 18:34
Logi og Ásgeir heitir Logi Geirsson og Ásgeir Örn Hallgrímsson, landsliðsmenn hjá þýska liðinu Lemgo, fóru fyrir sínu liði í Evrópuleik gegn Maccabi Rishon Le Zion í gærkvöldi og skoruðu báðir sex mörk. 4.11.2006 11:45
Sigur gegn Portúgal Íslenska kvennalandsliðið í handknattleik vann í kvöld þriðja leik sinn á æfingamótinu sem haldið er í Hollandi þegar liðið skellti Portúgal 33-26 eftir að hafa verið yfir 16-13 í hálfleik. Þetta var annar sigur íslenska liðsins á mótinu og annar sigur þess í röð eftir tap gegn heimamönnum í fyrsta leiknum. 3.11.2006 18:05
Gummersbach lagði Fram Þýska liðið Gummersbach vann í kvöld auðveldan sigur á Fram í Meistaradeild Evrópu 38-29 en leikið var ytra. Íslenska liðið stóð ágætlega í atvinnumönnunum, en þýska liðið sigldi framúr á lokasprettinum og vann auðveldan sigur. Jóhann Gunnar Einarsson var markahæstur Framara með 9 mörk. 2.11.2006 20:56
Ísland lagði Austurríki Íslenska kvennalandsliðið í handbolta vann í kvöld 30-26 sigur á því austurríska á æfingamóti sem haldið er í Hollandi. Hrafnhildur Skúladóttir skoraði 9 mörk fyrir íslenska liðið, þar af 5 úr vítum, Sólveig Kjærnested skoraði 7 mörk og Guðbjörg Guðmannsdóttir skoraði 5 mörk. Íris Símonardóttir varði 24 skot í markinu. Íslenska liðið mætir Portúgal á morgun. 2.11.2006 19:29
Gummersbach - Fram í beinni í kvöld Leikur Gummersbach og Fram í Meistaradeildinni í handbolta verður sýndur beint á sjónvarpsstöðinni Sýn í kvöld og hefst útsending klukkan 19:20. Forvitnilegt verður að sjá hvort íslenska liðið nær að standa í lærisveinum Alfreðs Gíslasonar líkt og í fyrri leiknum í Reykjavík á dögunum. 2.11.2006 15:47
Gummersbach leiðir í hálfleik Gummersbach hefur forystu 19-14 gegn Fram þegar flautað hefur verið til leikhlés í viðureign liðanna í Meistaradeild Evrópu. Þýska liðið var lengi að finna taktinn líkt og í fyrri leiknum og lenti undir 9-6, en hefur síðan hert tökin og hefur 5 marka forskot í hálfleik. Leikurinn er í beinni útsendingu á Sýn. 2.11.2006 20:10
Stjarnan lagði Hauka Stjarnan lagði Hauka 33-29 á útivelli í leik kvöldsins í DHL deild karla í handbolta og náði með þessum mikilvæga sigri að rétta sinn hlut nokkuð í deildinni eftir slæma byrjun. Bæði lið eru með 4 stig eftir 5 umferðir í deildinni. 1.11.2006 22:25
Tap fyrir Hollandi Íslenska kvennalandsliðið í handknattleik tapaði fyrir heimamönnum Hollendingum 32-27 í kvöld í fyrsta leik sínum á sex liða móti þar í landi. Hrafnhildur Skúladóttir og Hildigunnur Einarsdóttir skoruðu 5 mörk hvor í íslenska liðinu sem mætir Austurríki á morgun. 1.11.2006 22:18
Tveir stórleikir í 16 liða úrslitunum Í dag var dregið í 16 liða úrslit karla í ss bikarnum í karlaflokki og þar verða tveir stórleikir á dagskrá. Íslandsmeistarar Fram mæta Fylki og Haukar taka á móti Valsmönnum, en leikirnir verða spilaðir 15. nóvember. 1.11.2006 14:53
Króatar hrósuðu sigri Króatar sigruðu í dag á heimsbikarmótinu í handbolta með því að leggja Túnisa að velli 33-31 í rafmögnuðum úrlslitaleik þar sem úrslitin réðust í vítakeppni eftir framlengingu. Ljubo Vukic skoraði 7 mörk fyrir Króata í dag en markamaskínan Wissem Hmam skoraði 13 mörk fyrir Túnisa. 29.10.2006 20:15
Valsstúlkur á toppinn Kvennalið Vals skellti sér á toppinn í DHL deild kvenna í dag með sigri á Akureyri 27-20 í Laugardalshöll. Markahæst í liði Vals var Hildigunnur Einarsdóttir með 10 mörk en Ester Óskarsdóttir skoraði 11 mörk fyrir Akureyri. Valur er í toppsætinu með 11 stig en Stjarnan hefur 10 stig í öðru sætinu en á leik til góða. 29.10.2006 17:44
Grótta lagði Hauka Þrír leikir fóru fram í efstu deild kvenna í handbolta í dag. Grótta lagði Hauka örugglega 27-22, Natasja Damljamovic og Eva Kristinsdóttir skoruðu 6 mörk hvor fyrir Gróttu en Hanna Guðrún Stefánsdóttir og Sandra Stokovic skoruðu 7 hvor fyrir Hauka. 28.10.2006 18:01
Aftur tap fyrir Ungverjum Íslenska karlalandsliðið í handknattleik tapaði annan daginn í röð fyrir Ungverjum í æfingaleik ytra, nú 32-28 eftir að hafa verið undir 17-12 í hálfleik. Logi Geirsson var aftur markahæstur í íslenska liðinu með 8 mörg og þeir Ásgeir Örn Hallgrímsson og Guðjón Valur Sigurðsson skoruðu 4 mörk hvor. 28.10.2006 17:11
Tap fyrir Ungverjum í æfingaleik Íslenska karlalandsliðið í handknattleik tapaði 39-31 fyrir Ungverjum í æfingaleik ytra í dag. Mikil meiðsli eru í herbúðum íslenska liðsins og fengu því nokkrir leikmenn sem ekki hafa verið mikið í sviðsljósinu með liðinu að spreyta sig í dag. 27.10.2006 17:58
Haukar lögðu ÍBV Það var sannkallaður stórleikur á dagskrá í DHL deild kvenna í handbolta í kvöld þegar Haukar sóttu ÍBV heim í Vestmannaeyjum. Haukastúlkur gerðu sér lítið fyrir og skelltu Íslandsmeisturunum 29-26. Þá voru tveir leikir í ss bikarnum. Stjarnan burstaði HK 38-25 og FH lagði Akureyri 25-16. 25.10.2006 21:43
Grótta burstaði Fram Einn leikur var á dagskrá í ss bikar kvenna í handbolta í kvöld. Grótta burstaði Fram 28-15 á Seltjarnarnesi eftir að hafa verið yfir í hálfleik 17-5. Anna Úrsúla Guðmundsdóttir var markahæst í liði Gróttu með fimm mörk. 24.10.2006 21:19
Kristján ráðinn þjálfari út tímabilið Stjarnan réð í gær Kristján Halldórsson sem þjálfari karlaliðsins út þetta tímabil en Kristján tekur við starfinu af þeim Sigurði Bjarnasyni og Magnúsi Teitssyni sem sögðu upp störfum á dögunum. Það hafði gengið frekar brösuglega hjá Stjörnumönnum að finna nýjan mann en nú er loks orðið ljóst að Kristján stýrir skútunni til loka tímabilsins en hann hitti leikmennina í gærkvöldi. 24.10.2006 08:00
Spennuþrungið jafntefli Fylkismenn héldu þriðja sæti deildarinnar í gær er liðið gerði jafntefli við liðið í fjórða sæti, Hauka úr Hafnarfirði. Leikurinn var æsispennandi frá fyrstu mínútu en bæði lið komust mest í þriggja marka forystu í sínum hvorum hálfleiknum. Fylkismenn skoruðu síðasta mark leiksins þegar ein mínúta var til leiksloka og misnotuðu bæði lið tækifæri til að stela sigrinum í síðustu sóknum sínum. 23.10.2006 14:30
Roland gerði gæfumuninn Stjarnan vann sinn fyrsta deildarleik á tímabilinu þegar liðið lagði ÍR með fimm marka mun. Roland Valur Eradze fór hamförum í marki Stjörnunnar. 23.10.2006 13:30
Auðveldur sigur hjá Flensburg Viggó Sigurðsson og lærisveinar hans í þýska liðinu Flensburg völtuðu yfir makedónsku meistarana í Metalurg Skopje 43-24 í Meistaradeild Evrópu í handbolta í dag og hafa því fullt hús í D-riðli eftir fjóra leiki. Jafnræði var með liðunum framan af, en góð rispa Flensburg um miðjan fyrri hálfleikinn gerði út um leikinn. 19.10.2006 20:08
Kiel burstaði Hildesheim Tveir leikir fóru fram í þýsku úrvalsdeildinni í handbolta í kvöld. Kiel burstaði Hildesheim á útivelli 34-25 eftir að hafa verið yfir 19-12 í hálfleik og þá vann Nordhorn góðan útisigur á Kronau/Östringen 25-22. Kiel er í öðru sæti deildarinnar með 15 stig, einu stigi á eftir lærisveinum Alfreðs Gíslasonar í Gummersbach. 18.10.2006 21:20
Haukastúlkur lögðu HK Einn leikur fór fram í DHL deild kvenna í kvöld. Haukar unnu þar sannfærandi útisigur á HK í Digranesi 26-39. Haukar hafa hlotið 6 stig í 4 leikjum í deildinni en HK hefur aðeins unnið einn leik. 18.10.2006 21:11
Ólafur ekki með gegn Ungverjum Handknattleikssambandið sendi frá sér tilkynningu í dag þar sem fram kemur að Ólafur Stefánsson muni ekki verða með landsliðinu í æfingaleikjunum tveimur í Ungverjalandi dagana 27.-28. október næstkomandi vegna meiðsla. 18.10.2006 16:02
Patrekur og Konráð þjálfa Stjörnuna tímabundið Patrekur Jóhannesson fyrirliði og Konráð Olavsson munu stýra karlaliði Stjörnunnar í handbolta þangað til eftirmaður Sigurðar Bjarnasonar finnst, en Sigurður sagði starfi sínu lausu í gær. Formaður handknattleiksdeildar félagsins staðfesti þetta í samtali við NFS í kvöld, en vonaðist til að ganga frá ráðningu þjálfara í vikunni. 16.10.2006 19:45
Sigurður hættur að þjálfa Stjörnuna Handknattleiksdeild Stjörnunnar hefur sent frá sér fréttatilkynningu þar sem tilkynnt er að Sigurður Bjarnason hafi látið af störfum sem þjálfari karlaliðs félagsins og aðstoðarmaður hans Magnús Teitsson sömuleiðis. 16.10.2006 14:12
Haukar úr leik Haukastúlkur eru úr leik í Evrópukeppninni eftir að liðið gerði jafntefli við ungverska liðið Alcoa 22-22 á Ásvöllum í dag. Ungverska liðið vann fyrri leikinn með fimm marka mun og því er íslenska liðið úr leik. 15.10.2006 17:58
Fram steinlá í Noregi Íslandsmeistarar Fram spiluðu sinn slakasta leik til þessa í Meistaradeildinni þegar liðið steinlá 35-26 fyrir norsku meisturunum í Sandefjord í dag. Guðjón Drengsson skoraði 6 mörk fyrir Framara, sem verma nú botnsætið í riðli sínum í keppninni. 14.10.2006 18:34
Valur lagði Stjörnuna Valsmenn unnu í dag góðan sigur á Stjörnunni í úrvalsdeild karla í handbolta 30-29 og því er Stjarnan enn án sigurs í deildinni eftir þrjá leiki. Ernir Hrafn Arnarson skoraði 7 mörk fyrir Val og Patrekur Jóhannesson skoraði einni 7 mörk fyrir Stjörnuna. Ólafur Haukur Gíslason varði 17 skot í marki Vals. 14.10.2006 17:39
Sandefjord - Fram í beinni á Sýn Leikur norsku meistaranna Sandefjord og Íslandsmeistara Fram í meistaradeild Evrópu verður sýndur í beinni útsendingu á Sýn í dag. Útsending frá leiknum í Noregi hefst klukkan 16:45 og það kemur í hlut hins óviðjafnanlega Guðjóns Guðmundssonar að lýsa leiknum. 14.10.2006 15:45
Haukar töpuðu fyrir Alcoa Kvennalið Hauka tapaði í kvöld fyrri leik sínum gegn ungverska liðinu Cornexi Alcoa 31-26 í Evrópukeppninni í handbolta. Síðari leikur liðanna verður einnig á Ásvöllum og þar verður bíður Hauka erfitt verkefni gegn þessu sterka liði, sem komst í undanúrslit EHF keppninnar á síðustu leiktíð. 13.10.2006 21:43
Grótta á toppnum Einn leikur fór fram í DHL deild kvenna í handknattleik í kvöld. Gróttustúlkur styrktu stöðu sína á toppi deildarinnar með auðveldum sigri á HK 32-24 og hefur liðið unnið fjóra af fyrstu fimm leikjum sínum í deildinni. 13.10.2006 20:50
Einn nýliði í hópnum Alfreð Gíslason landsliðsþjálfari hefur valið hópinn sem mætir Ungverjum í æfingaleikjum ytra í lok mánaðarins. Í hópnum er einn nýliði, Sigfús Sigfússon úr Fram. 13.10.2006 15:15
Gummersbach lagði Celje Lasko Lærisveinar Alfreðs Gíslasonar í Gummersbach unnu í kvöld afar mikilvægan sigur á sterku liði Celje í Meistaradeildinni í handbolta 34-31, eftir að hafa verið tveimur mörkum undir í hálfleik 16-14. Þá unnu Viggó Sigurðsson og félagar í Flensburg 34-29 sigur á Medwedi í sömu keppni. 12.10.2006 20:06
Júlíus Jónasson ráðinn landsliðsþjálfari Handknattleikssamband Íslands sendi nú síðdegis frá sér fréttatilkynningu þar sem fram kemur að Júlíus Jónasson hafi verið ráðinn þjálfari kvennalandsliðsins í handknattleik. 12.10.2006 17:58
HK á toppnum Einn leikur var á dagskrá í DHL-deild karla í handknattleik í kvöld. Íslandsmeistarar Fram urðu að láta sér lynda jafntefli gegn HK í Digranesi 22-22 og því er Kópavogsliðið í efsta sæti deildarinnar. 11.10.2006 21:29
Leik kvöldsins frestað Leik Hauka og Stjörnunnar í DHL-deild kvenna sem fara átti fram í kvöld klukkan 20 hefur verið frestað og fer hann fram á sama tíma annað kvöld. 10.10.2006 17:59
Haukar mæta Paris Handball Í dag var dregið í í þriðju umferð Evrópukeppni félagsliða í handbolta og fá Haukar það verkefni að mæta franska liðinu Paris Handball og verður fyrri leikur liðanna spilaður í París 4. eða 5. næsta mánaðar. Í Áskorendakeppninni dróst Fylkir á móti liði St Gallen í Sviss, en fyrri leikurinn verður hér heima í byrjun næsta mánaðar. 10.10.2006 14:26