Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Hughes: Mikilvægt að sýna góðan leik gegn Liverpool Knattspyrnustjórinn Mark Hughes hjá Manchester city er vongóður fyrir hádegisleik City og Liverpool á Anfield-leikvanginum á morgun. 20.11.2009 22:45
Ferguson útskýrir af hverju Hargreaves spilar ekki Manchester United aðdáendur hafa þurft að bíða lengi eftir því að sjá Owen Hargreaves spila aftur með Englandsmeisturunum en hann er búinn að vera frá vegna hnémeiðsla í meira en ár. 20.11.2009 20:30
Smith: Mér hefur ekki verið boðið að þjálfa Skotland Knattspyrnustjórinn Walter Smith hjá Rangers og fyrrum landsliðsþjálfari Skotlands ítrekar í viðtali við breska fjölmiðla í dag að hann hafi ekki verið í viðræðum við skoska knattspyrnusambandið um landsliðsþjálfarastöðuna hjá Skotlandi. 20.11.2009 18:30
Landon Donovan valinn bestur í bandarísku deildinni Landon Donovan, félagi David Beckham hjá Los Angeles Galaxy í bandarísku MLS-deildinni, var í gær valinn mikilvægasti leikmaður tímabilsins en lið hans spilar til úrslita um bandaríska meistaratitilinn á sunnudaginn. Þetta er í fyrsta sinn sem Donovan fær þessa viðurkenningu en hann hafði fimm sinnum verið kosinn besti bandaríski leikmaðurinn. 20.11.2009 17:45
Grunur um að úrslitum 200 leikja í Evrópu hafi verið hagrætt Þýsk yfirvöld hafa nú handtekið sautján manns í tengslum við risavaxna rannsókn sína um að úrslitum 200 knattspyrnuleikja hafi verið hagrætt vegna veðmálastarfssemi. 20.11.2009 15:56
Henry: Það væri sanngjarnast að spila leikinn aftur Franski landsliðsframherjinn Thierry Henry hefur gefið frá sér yfirlýsingu í kjölfar fjaðrafoksins í kringum síðari umspilsleik Frakklands og Írlands í undankeppni HM 2010. 20.11.2009 15:15
Ísland niður um fimm sæti á styrkleikalista FIFA Íslenska karlalandsliðið í knattspyrnu datt niður um fimm sæti á styrkleikalista Alþjóða knattspyrnusambandsins sem var gefinn út í morgun. Ísland er í 92. sæti en var í 87. sæti þegar listinn var gefinn út síðast. Spánverjar endurheimtu toppsæti listans en þar voru Brasilíumenn síðast. 20.11.2009 14:45
Roy Keane hefur enga samúð með Írunum Roy Keane, fyrrum landsliðsmaður Íra, hefur enga samúð með löndum sínum þrátt fyrir að þeir hafi misst af HM í Suður-Afríku vegna kolólöglegs marks Frakka. Thierry Henry tók boltann greinilega með hendi áður en hann lagði upp jöfnunarmark William Gallas sem nægði franska liðinu til þess að komast til Suður-Afríku. 20.11.2009 14:15
Ekki öruggt að Zlatan geti spilað með Barca í El Clásico Zlatan Ibrahimovic meiddist á æfingu hjá Barcelona í vikunni og missir örugglega af leik liðsins um helgina á móti Athletic Bilbao. Það er einnig óvíst hvort hann geti verið með á móti Inter í Meistaradeildinni á miðvikudaginn eða á móti Real Madrid í El Clásico á sunnudaginn eftir viku. 20.11.2009 13:30
Selfyssingar unnu gamla þjálfarann í gær Selfoss vann 2-0 sigur á Val í æfingaleik í Egilshöllinni en þetta var fyrsti sigur liðsins undir stjórn Guðmundar Benediktssonar og jafnframt fyrsti leikurinn á móti Gunnlaugi Jónssyni síðan að hann yfirgaf þjálfarastöðu liðsins til þess að fara að þjálfa Valsliðið. 20.11.2009 13:00
Verða Essien og Muntari reknir úr landsliði Gana? Þremeningarnir Michael Essien hjá Chelsea, Sulley Muntari hjá Inter og Asamoah Gyan hjá Rennes gætu lent í miklum vandræðum eftir að þeir misstu af vináttulandsleik Gana gegn Angóla án nokkurra skýringa. 20.11.2009 12:00
Redknapp: Cudicini ekki meira með á tímabilinu Knattspyrnustjórinn Harry Redknapp hjá Tottenham telur að markvörðurinn Carlo Cudicini muni snúa aftur á völlinn og spila á ný, en á síður von á því að hann spili eitthvað á þessu tímabili. 20.11.2009 11:30
Ensk félög reyndu að fá Beckham - AC Milan samt fyrsti kostur Stórstjarnan David Beckham snýr brátt aftur til AC Milan þar sem hann mun leika á lánssamningi frá LA Galaxy eftir áramót en hann viðurkenndi í viðtali við Sky sports fréttastofuna að nokkur ensk félög hafi reynt að fá sig. 20.11.2009 10:45
Chelsea ætlar að kaupa Johnson og lána hann aftur Samkvæmt heimildum Daily Mirror ætlar Lundúnafélagið Chelsea að stiga fram og kaupa enska fyrrum U-21 árs landsliðsmanninn Adam Johnson frá Middlesbrough þegar félagaskiptaglugginn opnar í janúar. 20.11.2009 10:15
FIFA neitar beiðni knattspyrnusambands Írlands um nýjan leik Alþjóðaknattspyrnusambandið FIFA hefur samkvæmt heimildum BBC fréttastofunnar ákveðið að verða ekki við beiðni knattspyrnusambands Írlands um að seinni umspilsleikur Íra og Frakka verði spilaður á ný vegna dómaramistaka sem kostuðu Íra sigur í leiknum. 20.11.2009 09:45
Ísland í fimmta styrkleikaflokki Ísland verður í fimmta styrkleikaflokki þegar dregið verður í riðla í undankeppni EM 2012 þann 7. febrúar næstkomandi. 19.11.2009 23:30
Roma hefur áhuga á að fá Pavlyuchenko Allt virðist benda til þess að rússneski landsliðsframherjinn Roman Pavlyuchenko muni yfirgefa herbúðir Tottenham strax þegar félagaskiptaglugginn opnar í janúar en hann hefur verið úti kuldanum hjá Lundúnafélaginu á þessu tímabili. 19.11.2009 19:15
Ferguson fær að stjórna United á móti Everton Sir Alex Ferguson, stjóri Manchester United, fær að stjórna sínu liði á móti Everton á laugardaginn þrátt fyrir að hafa verið dæmdur í nýverið í tveggja leikja bann vegna ummæla sinna um Alan Wiley dómara eftir 2-2 jafnteflisleik á móti Sunderland. 19.11.2009 18:30
Bellamy: Á líklega ekki meira en tvö ár eftir í boltanum Framherjinn málglaði Craig Bellamy hjá Manchester City hefur viðurkennt að hann búist við því að þurfa að leggja skóna á hillina á næstu tveimur árum eða svo. 19.11.2009 17:45
Ferdinand líklega frá vegna meiðsla til áramóta Enski landsliðsmaðurinn Rio Ferdinand hjá Englandsmeisturum Manchester Untied getur líklega ekki spilað meira með liðinu á þessu ári að því er kemur fram í breskum fjölmiðlum í dag. 19.11.2009 16:30
Balotelli: Er stuðningsmaður AC Milan, vissuð þið það ekki? Framherjinn Mario Balotelli hjá Inter er ekki þekktur fyrir annað en að tala tæpitungulaust og nýjasta dæmið er þegar hann var í heimsókn á stofnunni Don Gnocchi í Mílanó, sem er fyrir hreyfihamlaða krakka á aldrinum 14 til 21 árs. 19.11.2009 15:30
Le hendin hans Henry - myndirnar ljúga ekki Frakkar komust í gær áfram á HM í Knattspyrnu í Suður Afríku næsta sumar þegar þeir tryggðu sér 1-1 jafntefli í framlengingu á móti Írum í seinni umspilsleik liðanna sem fram fór í París. Jöfnunarmarkið sem kom Frökkum á HM var hinsvegar kolólöglegt og á myndunum í myndasafninu hér fyrir neðan má sjá greinilega sönnun þess að Thierry Henry tók boltann með hendinni áður en hann lagði upp mark Williams Gallas. 19.11.2009 14:00
Hiddink hljóður um framhaldið hjá sér Landsliðsþjálfarinn Guus Hiddink hjá Rússlandi hefur stöðugt verið orðaður við endurkomu í ensku úrvalsdeildina eftir gott gengi hans með Chelsea á síðasta keppnistímabili. 19.11.2009 13:30
Leikmenn Arsenal íklæddir dýrabúningum að safna áheitum (myndband) Fjórmenningarnir Cesc Fabregas, Theo Walcott, Andrey Arshavin og Bacary Sagna hjá Arsenal létu nýlega gott af sér leiða og skiptu út fótboltagallanum fyrir loðna dýrabúninga til þess að safna áheitum í miðborg Lundúna fyrir Great Ormond Street barnaspítalann. 19.11.2009 12:30
Guðrún Jóna tekin við kvennaliði KR Guðrún Jóna Kristjánsdóttir verður næsti þjálfari kvennaliðs KR en eitt verst geymda leyndarmál síðustu vikna var endalega staðfest á blaðamannafundi í KR-heimilinu nú rétt áðan. Guðrún Jóna hætti nýverið sem þjálfari Aftureldingar og Fjölnis en það lak út löngu áður að hún hefði gert samkomulag um að taka við KR af þeim Írisi Björk Eysteinsdóttur og Kristrúnu Lilju Daðadóttur. 19.11.2009 11:55
Nistelrooy: Hef áhuga á að snúa aftur til Englands Hollenski landsliðsframherjinn Ruud van Nistelrooy er undir smásjá ensku úrvalsdeildarfélaganna Liverpool, Tottenham og Fulham ef marka má slúðurblaðið Daily Star í dag. 19.11.2009 11:30
Úrúgvæ varð síðasta þjóðin að bóka farseðilinn á HM Síðasti umspilsleikur gærkvöldsins var viðureign Suður-Ameríkuþjóðarinnar Úrúgvæ og mið-Ameríkuþjóðarinnar Kosta Ríka en leikurinn fór fram í Motevideo og lyktaði með 1-1 jafntefli. 19.11.2009 10:50
Trapattoni: Spiluðum frábærlega og áttum að vinna Landsliðsþjálfarinn Giovanni Trapattoni hjá Írlandi var eðlilega afar ósáttur með að missa af möguleikanum á að komast lokakeppni HM eftir að Frakkland skoraði vafasamt sigurmark í framlengdum seinni leik liðanna í París í gær. 19.11.2009 10:15
Henry: Þetta var hendi en ég er ekki dómari Frakkland tryggði sér farseðilinn á lokakeppni HM í Suður-Afríku næsta sumar með vægast sagt vafasömum hætti í gærkvöldi. Frakkar unnu fyrri leik þjóðanna í Dyflinni 0-1 en Írar jöfnuðu metin í einvíginu í París í gærkvöldi og grípa þurfti til framlengingar. 19.11.2009 09:45
Podolski tryggði Þjóðverjum jafntefli Margir vináttulandsleikir fóru fram víða um heim í dag. Þýskaland gerði 2-2 jafntefli við Fílabeinsströndina í tilfinningaþrungnum leik. 18.11.2009 23:43
Frakkar og Portúgalar áfram en Rússar sátu eftir Undankeppni HM 2010 í Evrópu lauk í kvöld. Frakkland og Portúgal eru komin áfram til Suður-Afríku en Rússar urðu að játa sig sigraða í Slóveníu í kvöld. 18.11.2009 22:46
Grikkir á HM eftir sigur á Úkraínu Grikkir spila í úrslitakeppni HM 2010 eftir 1-0 sigur á Úkraínu á útivelli í síðari umspilsleik liðanna. Þetta er í fyrsta sinn síðan 1994 sem Grikkir komast á HM. 18.11.2009 20:02
Alsír tryggði sér sæti á HM Alsír vann í dag 1-0 sigur á Egyptalandi í hreinum úrslitaleik um hvort liðið tekur þátt í úrslitakeppni heimsmeistaramótsins í Suður-Afríku á næsta ári. 18.11.2009 19:25
Eduardo gerir nýjan langtímasamning við Arsenal Eduardo hefur skrifað undir nýjan langtímasamning við enska úrvalsdeildarfélagið Arsenal. 18.11.2009 19:04
Santa Cruz segir að Robinho vilji fara Roque Santa Cruz segir að Brasilíumaðurinn Robinho, samherji sinn hjá Manchester City, vilji fara til Barcelona. 18.11.2009 18:15
Milan Stefán: Það eru allir í Bosníu að bíða eftir þessum leik Bosníumenn eiga möguleika á að komast á HM í knattspyrnu í fyrsta sinn þegar þeir taka móti Portúgal í Zenica í Bosníu í seinni leik liðanna í umspili um sæti á HM í Suður-Afríku næsta sumar. Leikurinn verður í beinni útsendingu á Stöð 2 Sport 3 í kvöld og hefst klukkan 19.40. 18.11.2009 16:15
Arteta: Væri til í að klára ferilinn með Everton Nú styttist í að miðjumaðurinn Mikel Arteta verði leikfær á ný með Everton en hann er búinn að vera frá vegna krossbandsmeiðsla síðan í febrúar. 18.11.2009 14:45
Leikmaður City rekinn úr landsliðinu fyrir að mæta of seint Vincent Kompany, varnarmaður enska úrvalsdeildarliðsins Manchester City, var ekki með belgíska landsliðinu á móti Katar eftir að hafa mætt tvisvar of seint. Í fyrra skiptið kom hann fimm mínútum of seint á liðsfund og í seinna skiptið skilaði hann sér of seint eftir að hafa farið í jarðaför ömmu sinnar í Brussel. 18.11.2009 14:15
Wayne Rooney: Ég er hræddur við Capello Wayne Rooney, lykilmaður Manchester United og enska landsliðið líður ekkert alltof vel í návist Fabio Capello, þjálfara enska landsliðsins ef marka má viðtal hans við enska blaðið The Sun. Capello gerði Rooney að fyrirliða enska landsliðsins í leiknum á móti Brasilíu í vikunni en heldur United-manninum engu að síður á tánum með kuldalegri framkomu. 18.11.2009 13:00
Umboðsmaður: Engin vandræði á milli AC Milan og Gattuso Andrea D'Amico, umboðsmaður Gennaro Gattuso hjá AC Milan, þvertekur fyrir að skjólstæðingur sinn sé óánægður í herbúðum ítalska félagsins eins og greint var frá í breskum fjölmiðlum í dag. 18.11.2009 12:30
Keane: Pressan er núna alfarið á Frökkum Framherjinn Robbie Keane hjá írska landsliðinu viðurkennir að atvik í lok fyrri umspilsleiks Írlands og Frakklands í Dyflinni hafi kveikt rækilega í sér og liðsfélögum sínum fyrir seinni leik þjóðanna í París í kvöld. 18.11.2009 12:00
Henry: Írar munu ekki gefast upp fyrr en í fulla hnefana Framherjinn Thierry Henry varar liðsfélaga sína í franska landsliðinu við því að erfiðasti hjallinn sé enn eftir í kvöld þegar Frakkland mætir Írlandi í seinni umspilsleik þjóðanna í París um laust sæti á HM næsta sumar. 18.11.2009 11:30
Útsala í vændum hjá Liverpool í janúar? Samkvæmt heimildum Daily Mirror mun knattspyrnustjórinn Rafa Benitez hjá Liverpool vera undir ströngum fyrirmælum frá eigendum félagsins að losa sig við svonefnda jaðarmenn í leikmannahópnum berist kauptilboð í þá í félagaskiptaglugganum í janúar. 18.11.2009 10:45
Gattuso á leið til Manchester City strax í janúar? Harðjaxlinn Gennaro Gattuso hjá AC Milan er sagður vera þreyttur á lífinu hjá ítalska félaginu eftir að knattspyrnustjórinn Leonardo tók við stjórnartaumunum. 18.11.2009 10:15
Chelsea sagt vera nálægt því að landa Aguero Samkvæmt heimildum Daily Telegraph munu forráðamenn Chelsea og Atletico Madrid vera búnir að ákveða að hittast á fundi strax eftir helgi til þess að ræða félagaskipti framherjans Sergio Aguero. 18.11.2009 09:45