Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Nýtt upphaf fyrir Bellamy Craig Bellamy gæti orðið eins og nýr leikmaður fyrir Liverpool eftir að hans persónulegu vandamál eru nú úr sögunni, að sögn Rafael Benitez, stjóra liðsins. Bellamy var hreinsaður af ákærum um líkamlegt ofbeldi í vikunni og hélt upp á áfangann með því að skora tvö mörk gegn Wigan í gær. 3.12.2006 14:15
Southgate æfur út í Ronaldo Gareth Southgate, knattspyrnustjóri Middlesbrough, sakaði portúgalska vængmanninn Cristiano Ronaldo hjá Man. Utd. um að vera svindlara eftir viðureign liðana í gær. Ronaldo fiskaði vítaspyrnu í fyrri hálfleik með því sem virtust vera leikrænir tilburðir. 3.12.2006 13:30
Houllier bætti eigið met í Frakklandi Lyon setti nýtt stigamet í frönsku úrvalsdeildinni í fótbolta í gær þegar liðið lagði Le Mans af velli 1-0. Lyon, meistarar síðustu fimm ára, hafa unnið 14 af fyrstu 16 leikjum sínum í deildinni og bættu þannig 20 ára gamalt met Paris St. Germain sem þá vann 13 af fyrstu 16 leikjum sínum, einmitt undir stjórn Gerard Houllier, núverandi stjóra Lyon. 3.12.2006 13:00
Barcelona náði aðeins jafntefli Barcelona fór illa að ráði sínu gegn Levante í spænsku úrvalsdeildinni í kvöld og varð að láta sér lynda jafntefli, 1-1. Eiður Smári Guðjohnsen lék allan leikinn fyrir Barcelona og náði ekki að seta mark sitt á leikinn. 2.12.2006 21:01
Mikilvægur sigur Man. Utd Manchester United þurfti að hafa mikið fyrir 2-1 sigri á Middlesbrough í viðureign liðanna í ensku úrvalsdeildinni sem lauk nú undir kvöld. Það var Darren Fletcher sem skoraði sigurmark leiksins og tryggði Man. Utd. sex stiga forystu á toppi úrvalsdeildarinnar eftir leiki helgarinnar. 2.12.2006 19:40
Eiður stefnir á sigur í HM félagsliða Eiður Smári Guðjohnsen hjá Barcelona segir að hann og samherjar sínir stefni á sigur í Heimsmeistarakeppni félagsliða sem hefst í Japan þann 10. desember næstkomandi. 2.12.2006 19:30
Wenger hrósar ungu leikmönnunum Arsene Wenger, knattspyrnustjóri Arsenal, hrósaði ungu leikmönnunum sínum í hástert eftir sigurinn gegn Tottenham fyrr í dag. Í fjarveru Thierry Henry, Philippe Senderos og William Gallas þurfti Wenger að stilla upp afar ungu liði sem þjálfarinn segir að hafi staðist allar sínar væntingar. 2.12.2006 19:15
Kolbeinn til AZ á reynslu Unglingalandsliðsmaðurinn Kolbeinn Sigþórsson hjá HK fer á morgun til reynslu hjá AZ Alkmaar í Hollandi þar sem hann mun dvelja í vikutíma. Frá þessu er greint á heimasíðu HK. 2.12.2006 18:30
Klose með þrennu fyrir Bremen Werder Bremen gaf tóninn af því sem koma skal í stórleiknum gegn Barcelona í Meistaradeildinni á þriðjudag með því að bera sigurorð af Herthu Berlin, 3-1, í þýsku úrvalsdeildinni í dag. Sigurinn fleytir Bremen í toppsæti deildarinnar en Miroslav Klose skoraði öll mörkin. 2.12.2006 17:30
Ummæli Mourinho skipta Ferguson engu máli Sir Alex Ferguson, stjóri Manchester United, segir ummæli kollega sína hjá Chelsea í vikunni ekki hafa nein áhrif á sig og lærisveina sína. Jose Mourinho sagði þá að það væri aðeins tímaspursmál hvenær Chelsea hirti toppsæti ensku úrvalsdeildarinnar af Man. Utd. 2.12.2006 17:15
Liverpool upp í fimmta sæti Liverpool komst upp í 5. sæti ensku úrvalsdeildarinnar með góðum 4-0 útisigri á Wigan í dag þar sem öll mörkin komu í fyrri hálfleik. Nýliðar Reading halda áfram að koma á óvart og hafði sætaskipti við Bolton með 1-0 sigri Sam Allardyce og lærisveinum hans í dag. 2.12.2006 16:45
Richards segist ekki á förum frá Man. City Micah Richards, hinn 18 ára gamli bakvörður Manchester City og heitasti ungi leikmaðurinn í ensku úrvalsdeildinni um þessar mundir, er afar rólegur þrátt fyrir að vera orðaður við öll stærstu félög Englands um þessar mundir. 2.12.2006 16:30
Liverpool fer á kostum Leikmenn Liverpool hafa heldur betur kvatt útivallardrauginn því nú þegar flautað hefur verið hálfleiks í leikjum dagsins í ensku úrvalsdeildinni hefur liðið 4-0 forystu gegn Wigan á útivelli. Craig Bellamy hefur skorað tvö marka Liverpool. 2.12.2006 15:50
Coppell ánægður með nýja samninga Steve Coppell, knattspyrnustjóri Reading í ensku úrvalsdeildinni, hefur lýst yfir ánægju sinni að nánast allir lykilmenn liðsins, þar af Ívar Ingimarsson og Brynjar Björn Gunnarsson, hafa nýlega skrifað undir langtíma samninga við félagið. 2.12.2006 15:30
Strachan segir Larsson hafa tekið rétta ákvörðun Gordon Strachan, knattspyrnustjóri Celtic í Skotlandi, segir að það hafi verið rétt af Henrik Larson að ganga til liðs við Manchester United. Einhverjir stuðningsmenn skoska liðsins eru sárir yfir því að sá sænski hafi valið þá rauðu fram yfir sína fyrrum félaga í Skotlandi. 2.12.2006 14:45
Arsenal valtaði yfir Tottenham Arsenal vann afar sannfærandi sigur á Tottenham í háegisleik ensku úrvalsdeildarinnar sem var að ljúka rétt í þessu. Lokatölur urðu 3-0 fyrir Arsenal þar sem Gilberto Silva skoraði tvö mörk úr vítaspyrnum. 2.12.2006 14:36
Thierry Henry vill fá SWP til Arsenal Thierry Henry, fyrirliði Arsenal, hefur ráðlagt stjóra sínum Arsene Wenger að fá til sín enska vængmanninn Shaun-Wright Phillips frá Chelsea þegar opnað verður fyrir félagsskipti leikmanna að nýju í næsta mánuði. 2.12.2006 14:00
Pardew vill unga leikmenn til West Ham Alan Pardew, knattspyrnustjóri West Ham, segir að han horfi helst til góðra ungra leikmanna þegar kemur að því að hann styrki lið sitt. Líklegt er að það verði strax í janúar þegar leikmannaglugginn opnast að nýju, enda Eggert Magnússon búinn að lofa honum allt að milljarði króna. 2.12.2006 13:30
Graham segir Arsenal skorta reynslu George Graham, fyrrverandi stjóri Arsenal og Tottenham, sem leiða saman hesta sína í hádegisslag ensku úrvalsdeildarinnar í dag, segir lið Arsenal skorta einfaldlega skorta reynslu. Þess vegna hafi liðið ekki náð upp stöðugleika í leik sínum það sem af er vetri. 2.12.2006 12:15
Ferguson ánægður með Adu Unglingurinn Freddy Adu hefur nú lokið tveggja vikna reynslutímabili sínu í herbúðum Manchester United og heldur nú aftur heim til Bandaríkjanna. Þessi efnilegi og Afríkuættaði Bandaríkjamaður verður ekki 18 gamall fyrr en á næsta ári og getur ekki sótt um atvinnuleyfi í Bretlandi fyrr en hann nær þeim aldri. 1.12.2006 20:26
Southgate kallar á breytingar Gareth Soutgate, knattspyrnustjóri Middlesbrough, vill að breytingar verði gerðar svo landsliðsmönnum sé kleift að sækja þjálfaranámskeið. Southgate er sjálfur á undanþágu með að stýra liði Boro, en hann bendir á að aðeins sé hægt að sækja námskeið í þjálfun á sumrin og að þá hafi landsliðsmenn engan tíma til að sækja slík námskeið. 1.12.2006 15:42
Wallwork á sjúkrahúsi eftir hrottalega líkamsárás Ronnie Wallwork, leikmaður West Brom og fyrrum leimaður Manchester United, er nú á sjúkrahúsi eftir að árásarmaður stakk hann sjö sinnum á bar í Manchester. Wallwork fékk stungusár á hönd, maga og bak, en er þó ekki talinn í lífshættu. Wallwork hefur verið sem lánsmaður hjá Barnsley í vetur. 1.12.2006 15:09
Við vinnum Tottenham Arsene Wenger, stjóri Arsenal, hefur verið mikið í sviðsljósinu undanfarna daga og vælir nú sáran undan leikjaniðurröðun í ensku úrvalsdeildinni. Hann hefur þó litlar áhyggjur af grannaslagnum við Tottenham á morgun og á þar ekki von á neinu öðru en sigri. 1.12.2006 14:35
Henrik Larsson lánaður til Manchester United Sænska markamaskínan Henrik Larsson hefur samþykkt að fara til Manchester United sem lánsmaður í janúar. Larsson er 35 ára gamall og hefur leikið með liði Helsingborg í heimalandi sínu síðan hann varð Evrópumeistari með Barcelona í vor. 1.12.2006 14:25
Newcastle tryggði sér toppsætið Enska úrvalsdeildarliðið Newcastle tryggði sér í kvöld toppsætið í H-riðli í Evrópukeppni félagsliða þegar liðið gerði markalaust jafntefli við Frankfurt á útivelli. Þetta var síðasti leikur liðsins í riðlinum, en Newcastle hefur gengið ágætlega í Evrópukeppninni til þessa líkt og hinum ensku liðunum sem leika í sömu keppni. 30.11.2006 21:55
Geir gefur kost á sér Geir Þorsteinsson, framkvæmdastjóri KSÍ, hefur gefið frá sér yfirlýsingu þar sem hann segist með formlegum hætti gefa kost á sér til formennsku hjá knattspyrnusambandinu eftir að Eggert Magnússon lætur af störfum snemma á næsta ári. Geir er einn fjölmargra manna sem nefndir hafa verið til sögunnar sem hugsanlegir eftirmenn Eggerts. 30.11.2006 20:36
Terry ákærður fyrir ummæli sín Aganefnd enska knattspyrnusambandsins hefur ákært John Terry, fyrirliða Chelsea, fyrir ummæli sín í garð Graham Poll dómara eftir að hann vísaði Terry af velli í leik Tottenham og Chelsea fyrr í þessum mánuði. Terry hefur verið veittur frestur til 15. desember til að svara fyrir sig í málinu. 30.11.2006 18:53
James íhugaði að raka af sér hárið Markvörðurinn David James hjá Portsmouth segist hafa íhugað að raka af sér allt hárið á dögunum eftir að nýjasta hárgreiðslan hans varð miðpunktur athyglinnar í breskum fjölmiðlum um síðustu helgi. Hárgreiðslu James var líkt við vel smurða hárgreiðslu Ofurmennisins. 30.11.2006 17:31
Shevchenko er ekki á leið til Ítalíu Adriano Galliani hjá AC Milan, segir að ekkert sé til í þeim fullyrðingum bresku blaðanna að framherjinn Andriy Shevchenko sé á leið aftur til AC Milan. "Við höfum ekki verið í neinum viðræðum við Chelsea um að fá leikmanninn aftur til okkar," sagði Galliani á heimasíðu ítalska félagsins. 30.11.2006 16:09
Nesta og Serginho undir hnífinn? Svo gæti farið að varnarmennirnir Alessandro Nesta og Serginho hjá ítalska liðinu AC Milan þyrftu báðir að fara í aðgerð fljótlega vegna þrálátra meiðsla sem hafa hrjáð þá lengi. Nesta kom inn sem varamaður í leik gegn Messina á dögunum en kenndi sér meins í öxlinni og þarf nú líklega í uppskurð. Sömu sögu er að segja af Serginho, nema hvað hann er meiddur í baki. 30.11.2006 16:00
Enn eitt áfallið fyrir Valencia Spænska stórliðið Valencia varð fyrir enn einu áfallinu í dag þegar úrugvæski landsliðsmaðurinn Mario Regueiro meiddist á hné á æfingu og verður frá keppni í 6-7 mánuði. Meiðslin eru nákvæmlega þau sömu og félagi hans Edu lenti í fyrir aðeins tveimur vikum, en nú eru 8 af fastamönnum liðsins á sjúkralista. 30.11.2006 15:18
Af hverju að fara til Englands? Argentínski framherjinn Hernan Crespo hjá Inter Milan á Ítalíu segist ekki skilja af hverju framherji sem er sáttur í herbúðum liðs síns á Ítalíu ætti að láta sér detta í hug að flytja til Englands og spila í ensku úrvaldseildinni. Þessi orð lét hann falla í samtali við breska blaðið Mirror þegar hann svar spurður út í vandræði Andriy Shevchenko hjá Chelsea. 30.11.2006 15:06
Hargreaves spilar ekki fyrr en eftir áramót Enski landsliðsmaðurinn Owen Hargreaves hjá Bayern Munchen segist ekki muni spila meira með liði sínu á árinu, en hann er að jafna sig eftir fótbrot í september. Hann útilokar ekki að ganga í raðir Manchester United í janúar. 30.11.2006 14:52
Mourinho segir Chelsea fara á toppinn fljótlega Jose Mourinho, knattspyrnustjóri Chelsea, segist ekki hafa áhyggjur af því þó Manchester United hafi enn þriggja stiga forystu á sína menn á toppi ensku úrvaldsdeildarinnar og bendir á að Chelsea hafi spilað mun erfiðari leiki í deildinni til þessa. 30.11.2006 14:42
Grétar Rafn skoraði mark Grétar Rafn Steinsson skoraði annað mark hollenska liðsins AZ Alkmaar í kvöld þegar liðið tryggði sér sæti í 32-liða úrslitum Evrópukeppni félagsliða með því að gera 2-2 jafntefli við Liberec frá Tékklandi. Jóhannes Karl Guðjónsson var einnig í liði Alkmaar í kvöld. 29.11.2006 22:22
Fyrsti sigur Fulham á Arsenal í 40 ár Fulham lagði Arsenal 2-1 á Craven Cottage í ensku úrvalsdeildinni í kvöld og var þetta fyrsti sigur Fulham á grönnum sínum í fjóra áratugi. Fulham komst í 2-0 eftir rúmlega stundarfjórðung segja má að Arsenal hafi aldrei náð sér almennilega á strik eftir það. Efstu liðin, Man Utd og Chelsea, unnu bæði sigur í sínum leikjum. 29.11.2006 21:59
Bolton heimtar virðingu Sammy Lee, aðstoðarstjóri Bolton í ensku úvalsdeildinni, segir að félagið hafi mikinn hug á að reyna að ná einu af fjórum efstu sætunum í deildinni í vetur svo það fái loks þá virðingu sem það á skilið. Bolton hefur verið á meðal átta efstu liða í deildinni undanfarin ár og lagði Arsenal 3-1 um síðustu helgi. Liðsins bíður erfiður leikur gegn Chelsea í kvöld. 29.11.2006 18:49
Tevez fékk harða refsingu frá félögum sínum í West Ham Argentínumaðurinn Carlos Tevez þurfti að taka út mjög harða refsingu frá félögum sínum í enska úrvalsdeildarliðinu West Ham eftir að hann rauk til síns heima strax eftir síðasta leik liðsins án þess að tala við kóng eða prest. Stjóri liðsins Alan Pardew sagðist ætla að láta leikmennina ráða því hvaða refsingu framherjinn fengi. 29.11.2006 18:36
Bellamy sleppur Velski landsliðsframherjinn Craig Bellamy hjá Liverpool var í dag sýknaður af ákæru um líkamsárás fyrir rétti í Cardiff, en hann var ákærður fyrir að hafa ráðist að stúlku á næturklúbbi í borginni fyrr í haust. Bellamy hefur lítið geta æft með liði sínu vegna réttarhaldanna og misstir til að mynda af leik Liverpool og Portsmouth í kvöld. 29.11.2006 18:25
Fimm leikir í ensku úrvalsdeildinni í kvöld Fimm leikir verða á dagskrá í ensku úrvalsdeildinni í knattspyrnu í kvöld og þar verða sex efstu liðin í deildinni öll í sviðsljósinu. Efstu liðin, Manchester United og Chelsea, eiga mjög erfiða leiki fyrir höndum. 29.11.2006 17:03
Dida dregur lappirnar Forráðamenn ítalska stórliðsins AC Milan hafa lýst yfir óánægju sína með það hversu erfiðlega gengur að ná samningum við brasilíska markvörðinn Dida. Samningur Dida rennur út í júní, en hann nú meiddur og getur ekki spilað með liðinu fyrr en í fyrsa lagi í janúar. 29.11.2006 16:13
Framtíð Klose óráðin Framtíð þýska landsliðsframherjans Miroslav Klose hjá Werder Bremen virðist alfarið vera óráðin, en bæði leikmaðurinn og forráðamenn liðsins viðurkenna að til greina komi að hann fari frá félaginu. Klose er 28 ára gamall og var markahæsti leikmaður HM í Þýskalandi í sumar, en vitað er af áhuga fjölda liða í Evrópu á þessum sterka framherja. 29.11.2006 15:01
Henry ekki tilnefndur sem knattspyrnumaður ársins Alþjóða knattspyrnusambandið gaf í dag út hvaða þrír menn eru tilnefndir sem knattspyrnumenn ársins hjá FIFA. Athygli vekur að framherjinn Thierry Henry hjá Arsenal er ekki á listanum að þessu sinni, en hann skipa nýkjörinn knattspyrnumaður Evrópu, Fabio Cannavaro frá Ítalíu og þeir Ronaldinho og Zinedine Zidane. 29.11.2006 14:45
Fulham yfir gegn Arsenal í hálfleik Nú er kominn hálfleikur í viðureignunum fimm sem standa yfir í ensku úrvalsdeildinni. Fulham hefur yfir 2-1 gegn Arsenal á heimavelli og Manchester United hefur yfir 1-0 gegn Everton. Manchester City hefur 2-0 yfir gegn Aston Villa á Villa Park. Markaskorara má sjá á Boltavaktinni hér á íþróttasíðunni. 29.11.2006 20:52
Mikilvægur sigur Sheffield United Sheffield United tryggði sér þrjú afar dýrmæt stig í botnbaráttu ensku úrvalsdeildarinnar í knattspyrnu í kvöld með 1-0 útisigri á Watford. Það var Danny Webber, fyrrum leikmaður Watford, sem skoraði sigurmark United rétt fyrir leikslok. Markið var nokkuð umdeilt, því Webber þótti hafa verið rangstæður þegar hann skoraði, en sigurinn var engu að síður verðskuldaður hjá United. 28.11.2006 22:31