Fleiri fréttir

Líkir rannsókninni við yfirheyrslur KGB

Paul Jewell segist hafa verið óttasleginn þegar hann var yfirheyrður af fyrrverandi lögreglumönnum í tengslum við rannsóknina sem stendur yfir vegna gruns um spillingu í enska boltanum.

Það er mitt mál hvenær ég hætti

Sir Alex Ferguson lét fjölmiðlamenn heyra það á blaðamannafundi í dag þegar hann var spurður hvort hann ætlaði ekki að fara að hætta störfum í tilefni þess að á mánudag eru 20 ár liðin frá því hann tók við Manchester United.

Hrósar Alex Ferguson

Roy Keane, fyrrum fyrirliði gullaldarliðs Manchester United og núverandi stjóri Sunderland, segir það ótrúlegt afrek hjá Alex Ferguson að hafa nú verið 20 ár í starfi hjá einu stærsta knattspyrnufélagi heims.

Savage verður frá í allt að mánuð

Miðjumaðurinn Robbie Savage hjá Blackburn gæti orðið frá keppni í allt að einn mánuð eftir að meiðsli hans á læri tóku sig upp á ný í Evrópuleiknum við Basel í gærkvöld. Savage varð upprunalega fyrir meiðslunum í deildarleik gegn Bolton um daginn.

Argur yfir að þurfa að sitja á bekknum

Brasilíski framherjinn Ronaldo hjá Real Madrid segist undrast það að þurfa að húka á varamannabekknum hjá Fabio Capello þjálfara og segist ekki skilja til hvers þjálfarinn ætlist af sér.

Valur semur við fjóra leikmenn

Valsmenn héldu blaðamannafund í hádeginu þar sem kynntir voru fjórir nýjir leikmenn sem spila munu með liðinu í Landsbankadeildinni næsta sumar. Þetta eru þeir Hafþór Ægir Vilhjálmsson úr ÍA, Daníel Hjaltason úr Víkingi, Jóhann Helgason frá Grindavík og Gunnar Einarsson sem áður lék með KR.

Leikjaálagið er brjálæði

Glenn Roeder og félagar í Newcastle standa nú frammi fyrir því erfiða verkefni að spila þrjá leiki á sex dögum. Roeder segir það brjálæði að leggja þetta á leikmenn sína, en nýtti sér ekki réttinn til að fresta deildarleik við Sheffield United vegna sjónvarpstekna sem félagið fær af leiknum.

Ágætt að það sé skap í mönnum

Tveir leikmenn danska stórliðsins Bröndby lentu í slagsmálum á æfingu liðsins á miðvikudaginn. Með liðinu leikur íslenski framherjinn Hannes Þorsteinn Sigurðsson en gengi liðsins á þessu tímabili hefur ekki verið sem skyldi. Liðið er sem stendur í sjöunda sæti dönsku deildarinnar.

Segir sig úr stjórn UEFA ef hann kaupir West Ham

Bresk blöð hafa það eftir talsmanni Eggerts Magnússonar í dag að hann muni segja af sér sem forseti KSÍ og hætta störfum hjá evrópska knattspyrnusambandinu ef kaupum hans á West Ham verður.

Kia neitaði tilboði Barcelona

Breska blaðið Daily Mail heldur því fram í dag að milljónamæringurinn Kia Joorabchian sem á kaupréttinn á Argentínumanninum Carlos Tevez, hafi hafnað kauptilboði Barcelona í kappann í dag.

Tottenham lagði Club Brugge

Tottenham er í mjög góðum málum í B-riðli Evrópukeppni félagsliða eftir 3-1 sigur á Club Brugge í fjörugum leik sem sýndur var beint á Sýn í kvöld. Dimitar Berbatov skoraði tvö mörk fyrir heimamenn og Robbie Keane eitt, en framherjar liðsins fóru engu að síður illa með fjölda tækifæra eins og hefð hefur myndast fyrir í vetur.

Southgate hefur engar áhyggjur

Gareth Southgate, stjóri Middlesbrough í ensku úrvalsdeildinni, segist aðeins vera að einbeita sér að því að vinna vinnuna sína þó undanþága hans til að þjálfa liðið falli úr gildi eftir 9 daga.

Verður ekki með gegn Deportivo

Eiður Smári Guðjohnsen verður ekki í liði Barcelona sem mætir Deportivo í spænsku úrvalsdeildinni um helgina vegna ökklameiðslanna sem hann varð fyrir í leiknum við Chelsea í Meistaradeildinni.

Shevchenko er gæludýrið hans Abramovich

Framherjinn Samuel Eto´o hjá Barcelona tekur undir skoðun þeirra fjölmörgu sem segja að Andriy Shevchenko hafi gert afdrifarík mistök með því að ganga til liðs við Chelsea í sumar.

Gefur Aaron Lennon aðvörun

Martin Jol hefur sent enska landsliðsmanninum Aaron Lennon aðvörun og hvetur hann til að ná meiri stöðugleika í frammistöðu sína með Tottenham - ella verði hann á fá sér sæti á varamannabekknum.

Xavier við það að semja við Boro

Portúgalski varnarmaðurinn Abel Xavier er nú við það að skrifa undir samning við enska úrvalsdeildarfélagið Middlesbrough að sögn umboðsmanns hans, en Xavier er nýlaus úr löngu keppnisbanni vegna steranotkunar. Svo gæti farið að hann yrði í leikmannahópi Boro gegn Watford um helgina en mikil meiðsli eru meðal varnarmanna liðsins.

Vill aldrei fara til Englands aftur

Spænski landsliðsmaðurinn Jose Antonio Reyes sem nú leikur sem lánsmaður hjá Real Madrid frá enska félaginu Arsenal, segist aldrei geta hugsað sér að spila á Englandi aftur. Reyes fór sem lánsmaður til Real í skiptum fyrir Julio Baptista í sumar og búist er við því að sú ráðstöfun verði gerð varanleg fljótlega.

Ole Gunnar frá í nokkrar vikur

Norski markaskorarinn Ole Gunnar Solskjær hjá Manchester United verður frá keppni í nokkrar vikur eftir að hafa tognað aftan á læri í Meistaradeildarleiknum á Parken í gærkvöldi. Alex Ferguson knattspyrnustjóri liðsins segist hafa verið feginn að heyra að vandamálið var ekki alvarlegra en raun bar vitni og sagðist hafa óttast að hnéð hefði gefið sig þegar hann fór að haltra undir lok leiksins.

Stórhuga í Meistaradeildinni

Jose Mourinho segir að lið sitt sé að spila betur en nokkru sinni fyrr í Meistaradeild Evrópu og bendir á að þó samkeppnin sé hörð, hafi hans menn alla möguleika á að fara alla leið í keppninni að þessu sinni.

Englendingar íhuga að bjóða í HM 2018

Richard Caborn, íþróttamálaráðherra Englendinga, segir að stjórnvöld þar í landi séu mjög hrifinn af þeirri hugmynd að fá að halda HM í knattspyrnu árið 2108. HM 2010 fer fram í Suður-Afríku og keppnin þar á eftir mun fara fram í einhverju af löndum Suður-Ameríku. Þar á eftir verður keppnin haldin í Evrópu á ný og þá hafa enskir hug á því að fá að halda keppnina.

Tottenham - Club Brugge í beinni

Leikur Tottenham og Club Brugge í Evrópukeppni félagsliða verður sýndur beint á Sýn Extra í kvöld og hefst útsending klukkan 19:55. Tottenham hvílir væntanlega eitthvað af lykilmönnum sínum fyrir deildarleikinn gegn Chelsea um helgina, en Didier Zokora er í leikmannahópi Lundúnaliðsins eftir að hafa veikst af malaríu á dögunum.

Jafnt í hálfleik á White Hart Lane

Staðan í leik Tottenham og Club Brugge í riðlakeppni Evrópukeppni félagsliða er jöfn 1-1 þegar flautað hefur verið til leikhlés. Dimitar Berbatov jafnaði metin fyrir Tottenham eftir að liðið lenti undir 1-0. Albert Luqueskoraði mark Newcastle hefur yfir 1-0 gegn Palermo á Sikiley og þá er markalaust hjá Blackburn og Basel.

Hugsanlega besti leikur okkar í Meistaradeildinni

Arsene Wenger var ekkert að velta sér upp úr því að lið hans hafi farið illa með fjölda færa og því þurft að sætta sig við markalaust jafntefli á heimavelli við CSKA Moskva í kvöld. Hann segir spilamennsku liðsins hafa verið frábæra.

Við verðum að ná í stig gegn Celtic

Sir Alex Ferguson var ekki á þeim buxunum að koma með lélegar afsakanir í kvöld eftir að hans menn afhentu FC Kaupmannahöfn fyrsta sigur sinni í Meistaradeildinni í sögu félagsins. Ferguson sagði sína menn hafa fengið á baukinn fyrir að nýta ekki færi sín.

United lá í Kaupmannahöfn

Manchester United þurfti að sætta sig við 1-0 tap fyrir FC Kaupmannahöfn í Danmörku í kvöld og Arsenal og CSKA Moskva gerðu markalaust jafntefli í G-riðli, þar sem allt er nú opið.

Dauft hjá enskum í fyrri hálfleik

Ensku liðunum Arsenal og Manchester United hefur ekki gengið vel í fyrri hálfleik í leikjum sínum í Meistaradeild Evrópu sem sýndir eru beint á sjónvarpsstöðvum Sýnar í kvöld, en raunar hafa fá mörk verið skoruð í leikjunum átta sem standa yfir.

Ver ráðningu McClaren

Brian Barwick hefur nú komið Steve McClaren landsliðsþjálfara Englendinga til varnar í kjölfar gagnrýni sem hann hefur orðið fyrir vegna lélegs gengis enska landsliðsins í síðustu leikjum.

Meiðsli Eiðs ekki alvarleg

Ökklameiðsli landsliðsfyrirliðans Eiðs Smára Guðjohnsen í leiknum gegn Chelsea í Meistaradeildinni í gærkvöld voru ekki eins alvarleg og talið var í fyrstu og svo gæti farið að hann yrði klár í slaginn um helgina þegar meistararnir mæta Deportivo í deildinni.

Pétur Marteinsson í KR

Landsliðsmaðurinn Pétur Marteinsson sem leikið hefur með Hammarby í Svíþjóð síðustu ár hefur ákveðið að snúa aftur heim til Íslands og ætlar að ganga í raðir KR. Pétur mun einnig starfa með Akademíu KR þar sem hann mun vinna með ungum knattspyrnumönnum.

Matthías skrifaði undir þriggja ára samning við FH

Eins og fram kom í Fréttablaðinu í morgun hefur Valsmaðurinn Matthías Guðmundsson nú skrifað undir þriggja ára samning um að leika með Íslandsmeisturum FH. Matthías skrifaði undir hjá FH í hádeginu.

Arsenal - CSKA Moskva í beinni

Leikur Arsenal og CSKA Moskvu í meistaradeild Evrópu verður sýndur beint á sjónvarpsstöðinni Sýn í kvöld klukkan 19:30 og á sama tíma verður leikur FC Kaupmannahöfn og Manchester United sýndur á Sýn Extra.

Baunar áfram á Barcelona

Jose Mourinho hrósaði baráttuanda sinna manna í gærkvöld þegar lið Chelsea náði jöfnu gegn Barcelona í Meistaradeildinni, en hann gat ekki stillt sig um að bauna aðeins á Frank Rijkaard þjálfara.

Ræddi við Nígeríumenn

Breskir fjölmiðlar segja í dag að sænski knattspyrnuþjálfarinn Sven-Göran Eriksson hafi átt í viðræðum við Nígeríska knattspyrnusambandið þar sem honum hafi verið boðið að taka við landsliðinu. Eriksson var áður hjá enska landsliðinu en hætti þar eftir HM í sumar. Hann hefur verið orðaður við West Ham, Benfica, Newcastle, Inter og West Ham í fréttum undanfarið.

Bann Mijailovic stendur

Serbneski varnarmaðurinn Nikola Mijailovic hjá Wisla Krakow í Póllandi þarf að sitja af sér fimm leikja bannið sem hann var settur í af evrópska knattspyrnusambandinu á dögunum eftir að áfrýjun hans á banninu var hafnað í dag. Mijailovic beitti Benni McCarthy leikmann Blackburn kynþáttaníð í leik liðanna þann 19 október sl.

Staðfestir tilboð í Leicester City

Milan Mandaric, fyrrum eigandi enska úrvalsdeildarfélagsins Portsmouth, hefur staðfest að hann hafi gert kauptilboð í 1. deildarfélagið Leicester City. Mandaric náði á sínum tíma að rífa Portsmouth upp úr meðalmennsku og í efstu deild og ætlar sér nú að gera það sama við Leicester. Talið er að tilboð hans sé upp á um 25 milljónir punda.

Sjá næstu 50 fréttir