Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Kiel valtaði yfir Dusseldorf Fjórir leikir fóru fram í þýsku úrvalsdeildinni í handknattleik í kvöld. Topplið Kiel valtaði yfir Dusseldorf 39-17, Nordhorn vann góðan sigur á Flensburg 29-25, Kronau/Östringen lagði Melsungen 28-22 og Hamburg lagði Magdeburg 33-26. 11.4.2007 22:12
HK á toppnum Þrír leikir fóru fram í DHL deild karla í handbolta í kvöld. HK er eitt á toppnum eftir sigur á ÍR 35-28 á útivelli en ÍR er í botnsæti deildarinnar. Haukar unnu mikilvægan sigur á Stjörnunni 29-21 og fengu mikilvæg stig í botnbaráttunni. Staða Fylkis versnaði til muna eftir að liðið steinlá 31-22 fyrir Akureyri fyrir Norðan. 11.4.2007 22:00
Crouch: Draumaeinvígi í undanúrslitunum Peter Crouch skoraði sigurmark Liverpool gegn PSV í síðari leik liðanna í Meistaradeildinni í kvöld og skaut sína menn því auðveldlega í undanúrslitin með samanlögðum 4-0 sigri á hollenska liðinu. Crouch hélt með Chelsea á sínum yngri árum og segir einvígið við liðið í undanúrslitum Meistaradeildarinnar verða mjög sérstakt. 11.4.2007 21:50
Hitzfeld: Milan tók okkur í kennslustund Ottmar Hitzfeld, þjálfari Bayern Munchen, viðurkenndi að AC Milan hefði einfaldlega verið betri aðilinn í leik liðanna í Meistaradeildinni í kvöld. Milan sigraði 2-0 í Munchen og mætir Manchester United í undanúrslitum. 11.4.2007 21:45
Minnesota - Dallas í beinni í kvöld Leikur Minnesota Timberwolves og Dallas Mavericks verður sýndur beint á NBA TV sjónvarpsstöðinni á miðnætti í kvöld. Um klukkan 21 í kvöld er svo á dagskrá stöðvarinnar klassískur leikur Lakers og Rockets frá því fyrir um 20 árum síðan þar sem Pétur Guðmundsson kemur við sögu í liði Lakers. Óhætt er að mæla með þessum leik, sem bauð upp á dramatík, góða spilamennsku og áflog. 11.4.2007 21:08
Aðstoðarþjáfari Keflavíkur kærður fyrir olnbogaskot Dómararanir í kvennaleik Hauka og Keflavíkur í körfuboltanum í gærkvöldi hafa kært aðstoðarþjálfara Keflavíkur til aganefndar KKÍ fyrir að gefa Helenu Sverrisdóttur leikmanni Hauka olnbogaskot í bringuna skömmu eftir að leikurinn var flautaður af. 11.4.2007 18:15
Gætið ykkar á leikaranum Ottmar Hitzfeld, þjálfari Bayern Munchen, hefur varað leikmenn sína sérstaklega við því að mynda óþarfa snertingu við ítalska framherjann Filippo Inzaghi í síðari leik liðanna í Munchen í kvöld. Hann kallar Inzaghi leikara og segir að hann muni nota hvert mögulegt tækifæri til að fiska aukaspyrnur á þýsku varnarmennina. 11.4.2007 16:52
Magnús Ver fór á kostum í bjórauglýsingu (myndband) Magnús Ver Magnússon, fyrrum fjórfaldur sterkasti maður heims, sýndi lipra takta þegar hann lék í auglýsingu fyrir ameríska bjórinn Coors. Myndband af auglýsingunni er nú að finna á netinu og hægt er að horfa á það með því að smella á hlekk hér í fréttinni. 11.4.2007 16:22
Brasilía mætir Englandi á Wembley Nú hefur verið staðfest formlega að fyrsti A-landsleikur Englendinga á nýja Wembley leikvangnum verði æfingaleikur við Brasilíumenn þann 1. júlí næstkomandi. Leikurinn verður liður í undirbúningi liðsins fyrir leik við Eista í undankeppni EM fimm dögum síðar. Enska liðið hefur ekki spilað landsleik á Wembley í sjö ár. 11.4.2007 14:57
Michael Owen á skotskónum Framherjinn Michael Owen skoraði mark í gær þegar hann spilaði sinn fyrsta æfingaleik fyrir Newcastle eftir langvarandi meiðsli. Newcastle lék þá vináttuleik við skoska liðið Gretna og spilaði Owen 70 mínútur í leiknum. Shola Ameobi sneri einnig aftur eftir meisli. Stefnt er á að Owen snúi jafnvel aftur með aðalliðinu þegar það mætir Chelsea þann 22. apríl. 11.4.2007 14:54
Mourinho hefur áhyggjur af framtíðinni Jose Mourinho stjóri Chelsea lét í það skína eftir sigurinn á Valencia í gær að hann óttaðist um starfsöryggi sitt hjá félaginu. "Ég vil vera áfram með Chelsea á Englandi en stundum fær maður ekki það sem maður óskar sér. Ef ég á mér hinsvegar ekki framtíð hjá félaginu, verð ég að leita annað," sagði Mourinho í samtali við blaðamenn eftir sigurinn í gær. 11.4.2007 14:47
Hitzfeld treystir á heimavöllinn Ottmar Hitzfeld, þjálfari Bayern Munchen, segir að liðið verði að setja í fluggírinn ef það ætli sér að slá AC Milan út úr 8-liða úrslitum Meistaradeildarinnar í kvöld. Dramatískt jöfnunarmark varnarmannsins Daniel Van Buyten kom í veg fyrir að Bayern tapaði sjöunda leiknum af síðustu níu gegn ítalska liðinu í fyrri viðureigninni á dögunum. 11.4.2007 12:45
Benitez: Mikilvægt að stjórna hraðanum frá byrjun Rafa Benitez, stjóri Liverpool, hefur farið þess á leit við sína menn að þeir byrji vel í síðari leiknum við PSV á heimavelli í kvöld. Liverpool hefur örugga 3-0 forystu frá fyrri leiknum í Hollandi og því ætti það aðeins að vera formsatriði fyrir þá rauðu að klára dæmið gegn meiðslum hrjáðu liði PSV. 11.4.2007 10:30
Carrick: Þetta var eins og í draumi Miðjumaðurinn Michael Adrian Carrick hjá Manchester United er ekki þekktur fyrir að skora mikið af mörkum, en hann setti tvö í ótrúlegum 7-1 sigri United á Roma í Meistaradeildinni í gær. Hann sagði leikinn hafa verið draumi líkastan. 11.4.2007 09:00
Stoichkov var ekki atvinnulaus lengi Búlgarska knattspyrnugoðið Hristo Stoichkov var ekki lengi atvinnulaus, en hann verður tilkynntur sem næsti knattspyrnustjóri spænska liðsins Celta Vigo í dag. Þessi tíðindi koma innan við sólarhring eftir að honum var sagt upp sem landsliðsþjálfara Búlgaríu. Celta Vigo er komið í fallbaráttu í spænsku deildinni eftir lélegt gengi undanfarið. 11.4.2007 08:30
Washington í úrslitakeppnina þrátt fyrir fimmta tapið í röð Lið Washington Wizards tryggði sér í nótt sæti í úrslitakeppni NBA þrátt fyrir að liðið tapaði fimmta leiknum í röð, nú fyrir New Jersey. New Orleans heldur enn í vonina um að komast í úrslitakeppninna í Vesturdeildinni eftir sigur á LA Clippers. Miami lá fyrir Charlotte. 11.4.2007 07:45
Totti: Erfiðasta stundin á ferlinum Francesco Totti, fyrirliði Roma, sagði að 7-1 tapið gegn Manchester United í Meistaradeildinni í gær hafi verið erfiðasta stund hans á ferlinum. 11.4.2007 07:30
Coleman rekinn frá Fulham Chris Coleman var í gærkvöld rekinn úr starfi knattspyrnustjóra hjá enska úrvalsdeildarliðinu Fulham. Við starfi hans tekur Lawrie Sanchez, landsliðsþjálfari Norður-Íra. Aðstoðarmaður Coleman var einnig látinn taka pokann sinn, en liðið hefur ekki unnið sigur í síðustu sjö leikjum og er nú komið hættulega nálægt fallsvæðinu. Coleman tók við liðinu árið 2003 en hefur verið á mála hjá félaginu í tíu ár. 11.4.2007 03:57
2-0 fyrir Milan í hálfleik AC Milan hefur yfir 2-0 í hálfleik gegn Bayern Munchen á útivelli í síðari leik liðanna í 8-liða úrslitum Meistaradeildarinnar. Clarence Seedorf skoraði með laglegu skoti á 27. mínútu og Filippo Inzaghi bætti öðru við skömmu síðar þegar hann fékk boltann inn fyrir vörn heimamanna. Nokkur rangstöðulykt var af markinu, en það telur og ítalska liðið skyndilega komið í afar vænlega stöðu. Enn er markalaust í leik Liverpool og PSV á Anfield. 11.4.2007 19:16
Byrjunarliðin í klár í Meistaradeildinni Nú styttist í að flautað verði til leiks í lokaleikjum 8-liða úrslita Meistaradeildar Evrópu. Bayern tekur á móti AC Milan í Munchen og Liverpool tekur á móti PSV á Anfield. Steven Gerrard og Jamie Carragher eru hvíldir í liði Liverpool. Byrjunarlið beggja má sjá hér fyrir neðan. 11.4.2007 18:38
Travis Pastrana keppir á MXDN 2007 Travis Pastrana hefur tekið tilboði Peurto Rico að keppa fyrir þeirra hönd á MXDN eða Motocross of nations 2007 sem verður haldin í bandaríkjunum í haust. 11.4.2007 12:33
Mourinho: Besti útisigur liðsins í þrjú ár Jose Mourinho var alsæll með leik sinna manna í Chelsea í kvöld þegar liðið gerði sér lítið fyrir og lagði Valencia 2-1 á útivelli í síðari leik liðanna í 8-liða úrslitum Meistaradeildarinnar. Sigur Chelsea var fyllilega verðskuldaður og engu líkara en eitt lið væri á vellinum í síðari hálfleik. 10.4.2007 21:26
Ferguson: Besti Evrópuleikurinn undir minni stjórn Sir Alex Ferguson var bókstaflega í sjöunda himni í kvöld eftir að hans menn í Manchester United rótburstuðu Roma 7-1 í síðari leik liðanna í 8-liða úrslitum Meistaradeildarinnar. Ferguson sagði þetta bestu frammistöðu liðsins í Meistaradeildinni í sinni stjórnartíð. 10.4.2007 21:20
Aftaka á Old Trafford Manchester United tryggði sér í kvöld sæti í undanúrslitum Meistaradeildar Evrópu með ótrúlegum 7-1 sigri á ítalska liðinu Roma í síðari viðureign liðanna í 8-liða úrslitum. Enska liðið fór hreinlega á kostum í kvöld og gerði út um leikinn með þremur mörkum á átta mínútna kafla þegar aðeins 19 mínútur voru liðnar af leiknum. 10.4.2007 20:42
Essien tryggði Chelsea sæti í undanúrslitum Miðjumaðurinn magnaði Michael Essien tryggði Chelsea 2-1 sigur á Valencia í síðari leik liðanna í 8-liða úrslitum Meistaradeildarinnar í kvöld og þar með sæti í undanúrslitum keppninnar. Fernando Morientes kom heimamönnum yfir í fyrri hálfleik en Andriy Shevchenko jafnaði í upphafi þess síðari. Það var svo Essien sem tryggði sigurinn með marki á 90. mínútu, en hann spilaði meiddur í kvöld. 10.4.2007 20:36
Keflavíkurstúlkur hafa ekki sagt sitt síðasta Keflavíkurstúlkur gerðu sér lítið fyrir og lögðu Íslandsmeistara Hauka í þriðja leik liðanna í úrslitaeinvíginu í Iceland Express deild kvenna í kvöld. Haukar höfðu unnið 27 leiki í röð á heimavelli en nú er ljóst að liðið þarf að fara aftur til Keflavíkur í stöðunni 2-1. 10.4.2007 21:02
Átök fyrir utan Old Trafford Lögreglan í Manchester handtók nokkra stuðningsmenn ítalska liðsins Roma fyrir utan Old Trafford nú um klukkan 17. Nokkrir svartklæddir menn voru með ólæti fyrir utan heimavöll Manchester United og kom til nokkurra átaka milli þeirra og lögreglu. Sky sjónvarpsstöðin er með beina útsendingu frá staðnum. Lögregla hefur stillt til friðar á svæðinu en ástandið virðist nokkuð eldfimt af myndunum að dæma. 10.4.2007 17:15
Henry orðinn hundleiður á slúðrinu Franski sóknarmaðurinn Thierry Henry hjá Arsenal segist vera orðinn hundleiður á sífelldum orðrómi um að hann sé á leið til Barcelona. Hann segist ekki geta komið blaðamönnum í skilning um að hann ætli aldrei að yfirgefa félagið. 10.4.2007 16:26
Taarabt semur við Tottenham Franski leikmaðurinn Adel Taarabt hjá Tottenham segist vera búinn að gera samkomulag við félagið um að undirrita fimm ára samning við Lundúnaliðið. Hann er lánsmaður frá franska liðinu Lens en má ekki skrifa formlega undir samning við enska liðið fyrr en hann verður 18 ára gamall í næsta mánuði. 10.4.2007 16:16
Stoichkov hættur með búlgarska landsliðið Hristo Stoichkov sagði í dag starfi sínu lausu sem landsliðsþjálfari Búlgara í knattspyrnu. Stoichkov hefur verið gagnrýndur harðlega undanfarna mánuði í kjölfar lélegrar spilamennsku liðsins og náði gagnrýnin hámarki þegar liðið náði aðeins jafntefli við Albani í síðasta mánuði. Stoichkov hafði verið landsliðsþjálfari síðan árið 2004. 10.4.2007 16:08
Tröllatroðsla Baldurs Ólafssonar (myndband) Miðherjinn Baldur Ólafsson hjá KR átti eftirminnilega innkomu í leikinn gegn Njarðvík í úrslitum Iceland Express deildarinnar í gær. Baldur var þar að spila sínar fyrstu mínútur með liðinu á leiktíðinni og stimplaði sig inn með rosalegri troðslu yfir Igor Beljanski. Vísir náði tali af kappanum í dag. 10.4.2007 15:52
Mourinho: Ég hef ekki efni á að hvíla lykilmenn Jose Mourinho, knattspyrnustjóri Chelsea, segist ekki geta leyft sér sama munað og kollegi hans hjá Valencia þegar kemur að því að hvíla leikmenn. Þjálfari Valencia hvíldi framherjann David Villa í deildinni um helgina en Mourinho tefldi fram sínu sterkasta liði í ensku úrvalsdeildinni. 10.4.2007 14:23
Eiður Smári er ekki á leið til Manchester United Arnór Guðjohnsen, umboðsmaður Eiðs Smára Guðjohnsen, segir í samtali við Sky sjónvarpsstöðina í dag að ekkert sé til í skrifum spænsku blaðanna sem orðuðu hann við Manchester United í dag. 10.4.2007 14:16
Ferguson hefur trú á sínum mönnum Sir Alex Ferguson segist ekki hafa áhyggjur af öðru en að hans menn í Manchester United muni svara kallinu þegar þeir mæta Roma öðru sinni í 8-liða úrslitum Meistaradeildarinnar í kvöld. Hann segist heldur ekki hafa áhyggjur af öryggismálum á vellinum eftir að uppúr sauð á fyrri leiknum í Róm. 10.4.2007 14:09
Dallas tryggði sér toppsætið í NBA Dallas Mavericks tryggði sér í nótt heimavallarréttinn alla úrslitakeppnina þegar liðið lagði LA Clippers á heimavelli 96-86. Með sigrinum varð ljóst að ekkert lið getur náð Dallas í deildarkeppninni. Detroit tryggði sér sjötta tímabilið í röð með 50 sigrum og þá læddist Golden State í áttunda sæti Vesturdeildarinnar með auðveldum sigri á Utah. 10.4.2007 13:35
6-0 fyrir Manchester United Manchester United er komið í 6-0 gegn Roma á Old Trafford. Cristiano Ronaldo og Michael Carrick hafa báðir bætt við öðru marki sínu í leiknum og Rómverjarnir eru gjörsamlega heillum horfnir. Staðan í leik Valencia og Chelsea er 1-1 þar sem Andriy Shevchenko skoraði mark gestanna. 10.4.2007 20:07
United að valta yfir Roma Manchester United hefur yfir 4-0 þegar flautað hefur verið til hálfleiks í síðari viðureign liðsins gegn Roma í 8-liða úrslitum Meistaradeildar Evrópu. Valencia hefur yfir 1-0 gegn Chelsea á heimavelli sínum og er því í vænlegri stöðu í einvíginu. 10.4.2007 19:34
Manchester United í stuði Manchester United er komið í 3-0 eftir aðeins 19 mínútna leik gegn Roma í Meistaradeildinni. Enska liðið hefur farið á kostum í upphafi leiks gegn lánlausum Rómverjunum og nú er United komið yfir 4-2 samtals í einvíginu. Mörkin skoruðu Carrick (11.), Smith (17.) og Rooney (19.). 10.4.2007 19:06
Essien byrjar hjá Chelsea Miðjumaðurinn Michael Essien verður í byrjunarliði Chelsea í leiknum gegn Valencia í Meistaradeildinni kvöld þrátt fyrir að vera tæpur vegna meiðsla. Fernando Morientes er í framlínu Valencia á ný eftir meiðslin sem hann varð fyrir í landsleiknum gegn Íslendingum. 10.4.2007 17:59
Alan Smith í byrjunarliði Man Utd Leikur Manchester United og Roma hefst klukkan 18:45 og verður sýndur beint á Sýn. Búið er að tilkynna byrjunarliðin og þar vekur athygli að Alan Smith er í framlínu United og Darren Fletcher leysir Paul Scholes af hólmi á miðjunni. 10.4.2007 17:51
Hermann meiddist í jafntefli Charlton og Reading Íslendingaliðin Charlton og Reading gerðu markalaust jafntefli í ensku úrvalsdeildinni í kvöld þar sem landsliðsmaðurinn Hermann Hreiðarsson þurfti að yfirgefa völlinn í fyrri hálfleik vegna meiðsla. Hermann haltraði af velli og virtist þjáður, en ekki er vitað hversu alvarleg meiðsli hans eru. 9.4.2007 21:45
Frábær 4. leikhluti tryggði Njarðvík sigur Njarðvíkingar hófu titilvörnina í Iceland Express-deildinni með sigri á KR-ingum á heimavelli í kvöld, 99-78. Íslandsmeistararnir sýndu mátt sinn í fjórða og síðasta leikhlutanum með því að sigra KR-inga með 23 stiga mun, en staðan eftir þriðja leikhluta var 72-70, gestunum í vil. Njarðvík er því komið með 1-0 forystu í einvíginu. 9.4.2007 21:34
Hjólapáskar að baki Hjólamenn nutu páskana eins og aðrir íþróttamenn um land allt þessa páska sem aðra. Mikið var um manninn í bæði Bolöldu hjá litlu kaffistofunni sem er í umsjón VÍK, einnig var mikið hjólað í Sólbrekku við Grindavíkur afleggjara, en hún er í umsjón VÍR. 9.4.2007 21:13
Allt í járnum í Ljónagryfjunni KR-ingar hafa síður en svo gefist upp í fyrstu viðureigninni við Njarðvíkinga í úrslitum Iceland Express-deildarinnar. Þeir hafa mætt gríðarlega ákveðnir til leiks í síðari hálfleik og nú þegar þremur leikhlutum er lokið eru Vesturbæingar komnir tveimur stigum yfir, 72-70. Leikurinn er í beinni útsendingu á Sýn. 9.4.2007 21:12
Njarðvíkingar með forystu í hálfleik Íslandsmeistarar Njarðvíkur hafa 14 stiga forystu, 58-44, þegar fyrsti leikur liðsins gegn KR-ingum í úrslitarimmu Iceland Express-deildarinnar er hálfnaður. Njarðvíkingar hafa verið með yfirhöndina nánast frá fyrstu mínútu en bæði lið eru að spila ágætan körfubolta og mörg fín tilþrif hafa litið dagsins ljós. Leikurinn er í beinni útsendingu á Sýn. 9.4.2007 20:40