Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Fowler vill nýjan samning hjá Liverpool Enski framherjinn Robbie Fowler vonast til þess að fá samning sinn við Liverpool framlengdan þrátt fyrir að hann fái ekki mörg tækifæri hjá liðinu um þessar undir. Hinn 31 árs gamli Fowler skoraði um síðustu helgi sín fyrstu deildarmörk frá því í ágúst, en hann hefur engu að síður mikla trú á sjálfum sér. 26.2.2007 21:14
Njarðvík hafði betur í toppslagnum gegn KR Njarðvíkingar þurfa einn sigur til viðbótar til að tryggja sér deildarmeistaratitilinn í Iceland Express deild karla í körfubolta eftir sigur á helstu keppinautunum í KR í kvöld, 83-73. Njarðvík er nú komið með 34 stig eftir 19 leiki en næstu lið, KR og Skallagrímur, eru með 30. Alls eru leiknar 22 umferðir. 26.2.2007 20:59
Federer: Ég mun aldrei toppa Connors Svisslendingurinn Roger Federer segist aldri munu toppa feril hins goðsagnarkennda Jimmy Connors, en í dag sló Federer 30 ára gamalt met hans með því að vera í efsta sæti heimslista karla 161. vikuna í röð. Federer segir að afrek Connors að vinna 109 mót á ferli sínum sé met sem líklega verði aldrei slegið. 26.2.2007 19:45
Arsenal og Chelsea áfrýja gegn rauðum spjöldum Arsenal og Chelsea hafa ákveðið að áfrýja gegn rauðu spjöldunum sem leikmenn þeirra Emmanuel Adebayor og John Obi Mikel.fengu í bikarúrslitaleik liðanna í gær. Tvímenningarnir fengu reisupassann fyrir sinn þátt í uppákomunni sem átti sér stað undir lok leiksins ásamt Kolo Toure. Arsenal sættir sig hins vegar við spjaldið sem hann fékk. 26.2.2007 19:44
Terry man ekkert eftir síðari hálfleik John Terry, fyrirliði Chelsea, man ekkert eftir höfuðhögginu sem hann varð fyrir í úrslitaleik deildabikarsins gegn Arsenal í gær. Það síðasta sem Terry man var þegar hann gekk út úr búningsklefanum í hálfleik en síðan vissi hann ekki af sér fyrr en hann kominn á sjúkrahús. Allur tími þar á milli, eða rúm klukkustund, er horfið úr minni Terry. 26.2.2007 19:43
Ullrich hættir keppni Þýski hjólreiðakappinn Jan Ullrich hefur tilkynnt að hann sé hættur að keppa opinberlega. Ullrich, sem er 33 ára, bindur þannig enda á nokkurra vikna vangaveltur sem hafa verið á kreiki í heimalandi hans. Ullrich er þekktastur fyrir að hafa unnið Tour de France hjólreiðakeppnina árið 1997. 26.2.2007 19:15
Beckham fær fjórfalt hærri laun en næsti maður Launin sem David Beckham mun fá hjá LA Galaxy fyrir það eitt að spila fótbolta eru um 370 milljónir á ári, eða rúmlega fjórum sinnum meira en næstlaunahæsti leikmaður deildarinnar, Juan Francisco Palencia hjá Chivas USA, fær á þessu tímabili. 26.2.2007 18:00
Radmanovic laug til um meiðsli Vladimir Radmanovic, framherji LA Lakers, sagði ósatt þegar hann útskýrði fyrir forráðamönnum félagsins hvernig hann hefði hlotið axlarmeiðslin sem hann varð fyrir um síðustu helgi. Radmanovic sagðist hafa dottið en sannleikurinn er að hann datt á snjóbretti. Hann verður frá í tvo mánuði og má búast við sekt frá félaginu fyrir uppátækið. 26.2.2007 17:30
Mauresmo vill lengja leiki kvenna í tennis Amelie Mauresmo, stigahæsta tenniskona heims, telur að viðureignir kvenna á stórmótum í tennis eigi að geta farið upp í fimm sett ef þörf er á, rétt eins venja er í karlaflokki. Í kvennaflokki er það iðulega sá spilari sem fyrr vinnur tvær lotur sem fer með sigur af hólmi. 26.2.2007 16:42
Stenson algjörlega búinn á því “Ég er of þreyttur til að geta fagnað,” sagði hinn sænski Henrik Stenson, nýkrýndur heimsmeistari í holukeppni, eftir að hafa lagt Ástralann Geoff Ogilvy af velli í úrslitum í gær. Stenson spilaði 120 holur á fimm dögum í Arizona og segir sá sænski að mótið hafi verið hans mesta þolraun til þessa á ferlinum. 26.2.2007 16:30
Arsenal bauð í Robinho Umboðsmaður brasilíska sóknarmannsins Robinho hjá Real Madrid hefur greint frá því að Arsenal og AC Milan hafi viljað fá leikmanninn í sínar raðir þegar leikmannaglugginn var opinn í upphafi ársins. Forráðamenn Real Madrid komu hins vegar í veg fyrir að Robinho færi því félagið ku ekki vera tilbúið að selja Brasilíumanninn. 26.2.2007 15:30
Sigurður valdi 20 stúlkur Sigurður Ragnar Eyjólfsson, landsliðsþjálfari kvenna í knattspyrnu, hefur valið 20 stúlkur til að taka þátt í Algarve-mótinu í knattspyrnu sem hefst í Portgúal þann 5. mars nk. Átta leikmenn Vals eru í hópi Sigurðar. 26.2.2007 15:00
Lewis mun ekki stíga aftur í hringinn Lennox Lewis, fyrrum heimsmeistari í hnefaleikum, hefur útilokað endurkomu í hringinn á þessu ári, en sögusagnir þess efnis fóru eins og eldur um sinu í hnefaleikaheiminum í gær. Þungavigtarkappinn fyrrverandi, sem er orðinn 41 árs að aldri, segist aldrei hafa gengið á bak orða sinna – og því ætli hann ekki að byrja á nú. 26.2.2007 15:00
Carl Lewis óánægður með þróun mála Fyrrum frjálsíþróttakappinn Carl Lewis segir að íþróttin eigi við mikinn vanda að stríða um þessar mundir og fer hann ekki fögrum orðum um þá íþróttamenn sem neyta ólöglegra lyfja til að bæta árangur sinn. Lewis segir þá örfáu útvöldu, sem kjósa að eyðileggja fyrir öllum hinum, eiga ekkert gott skilið. 26.2.2007 14:30
Ibanez: Real Madrid er lélegt lið Pablo Ibanez, varnarmaður Atletico Madrid, segist sjaldan hafa séð eins lélega frammistöðu hjá Real Madrid eins og þegar liðin mættust á föstudagskvöld í spænsku úrvalsdeildinni. Ibanez segir með ólíkindum að Atletico hafi ekki náð að vinna leikinn, en hann endaði með 1-1 jafntefli. 26.2.2007 14:00
Totti heldur áfram að klúðra vítaspyrnum Francesco Totti, fyrirliði Roma á Ítalíu, mun halda áfram að taka vítaspyrnur liðsins þrátt fyrir að hafa klúðrað sinni sjöttu vítaspyrnu á leiktíðinni gegn Reggina um helgina. Á sama tíma hefur Totti aðeins skorað úr fjórum vítaspyrnum. Eins ótrúlegt og það hljómar þá ætlar þjálfari liðsins ekki að breyta um vítaskyttu. 26.2.2007 13:00
Ronaldinho: Ég hef aldrei verið í betra formi Ronaldinho, brasilíski snillingurinn hjá Barcelona, kveðst aldrei hafa verið í betra formi og að hann hafi verið staðráðinn í að sýna það í leiknum gegn Atletico Bilbao í gær. Ronaldinho var stórkostlegur í leiknum, en fyrir nokkrum dögum voru birtar myndir sem gáfu til kynna að hann hefði fitnað um nokkur kíló. 26.2.2007 12:28
Adebayor: Ég gerði ekkert rangt Emmanuel Adebayor, framherji Arsenal, kveðst ekki skilja af hverju hann fékk að líta rauða spjaldið fyrir þátt sinn í ryskingunum sem áttu sér stað undir lok bikarúslitaleiksins gegn Chelsea í gær. Adebayor segist ekki hafa gert neitt rangt. 26.2.2007 11:49
Eto'o: Búinn að bíða lengi eftir þessu marki Samuel Eto'o, framherji Barcelona, er mjög ánægður með að vera búinn að finna skotskóna á ný en hann skoraði eitt marka Barcelona í auðveldum sigri liðsins á Atletico Bilbao í gær, 3-0. Eto'o segist hafa beðið lengi eftir þessu marki, en slæm hnémeiðsli héldu honum frá keppni í tæpa fimm mánuði fyrr í vetur. 26.2.2007 11:02
Detroit vann Chicago í endurkomu Ben Wallace Detroit lagði Chicago af velli í NBA-deildinni í nótt, 95-93, í leik sem hafði verið beðið eftir með nokkur eftirvæntingu þar sem Ben Wallace, fyrrum leikmaður Detroit, var að snúa aftur til Motown-borgarinnar í fyrsta sinn frá því að hafa gengið í raðir Chicago fyrir tímabilið. Chris Webber, arftaki Wallace hjá Detroit, tryggði liði sínu sigur á lokasekúndunum. 26.2.2007 11:00
Chicco Chiodi ánægður með Aprilia Þó svo að hinn þrefaldi heimsmeistari Chicco Chiodi hafi krassað í fyrsta hít í internazionali d´italia keppninni við Montevarchi á Ítalíu,segir hann að hjólið hafi mikla möguleika " þó svo ég hafi ekki komist nema 2 hringi þá var tilfinningin fyrir hjólinu mjög góð " segir Chiodi 26.2.2007 10:14
Stenson hafði betur gegn Ogilvy Svíinn Henrik Stenson sigraði á heimsmeistaramótinu í holukeppni sem lauk í Arizona í Bandaríkjunum í gær. Stenson hafði betur gegn Geoff Ogilvy frá Ástralíu í úrslitum, en hann átti titil að verja frá því í fyrra. Stenson fær 100 milljónir króna fyrir sigurinn. 26.2.2007 08:46
Eto´o skoraði í öruggum sigri Barcelona Barcelona er komið með tveggja stiga forystu á toppi spænsku úrvalsdeildarinnar eftir léttan 3-0 sigur á Atletico Bilbao á Nou Camp í kvöld. Xavi og Samuel Eto´o skoruðu mörk Barcelona í leiknum auk þess sem eitt markið var sjálfsmark. Eto´o var óvænt í byrjunarliðinu í kvöld en Eiður Smári Guðjohnsen sat allan tímann á varamannabekknum. 25.2.2007 22:03
Skallagrímur vann í Grindavík Skallagrímur lætur ekki sitt eftir liggja í toppbaráttunni í Iceland Express-deild karla í körfubolta. Í kvöld vann liðið nauman útisigur á Grindavík, 84-83, og náði þar með KR-ingum að stigum í öðru sæti deildarinnar. Snæfell er einnig í hópi efstu liða en í kvöld vann liðið góðan útisigur á Tindastóli, 73-104. Tveir aðrir leikir fóru fram í kvöld. 25.2.2007 21:01
Giggs segir Man. Utd. ekki mega slaka á Ryan Giggs, miðvallarleikmaður Manchester United, segist hafa nægilega mikla reynslu til að fullyrða að barátta liðsins við Chelsea um enska meistaratitilinn eigi eftir að þróast í nýja átt áður en tímabilið er á enda. Giggs segir að þrátt fyrir að Man. Utd. sé með níu stiga forskot á toppi deildarinnar séu úrslit deildarinnar fjarri því að vera ráðin. 25.2.2007 21:00
Schalke tapaði óvænt á heimavelli Topplið þýsku úrvalsdeildarinnar, Schalke, mátti þola að bíða í lægri hlut á heimavelli sínum gegn Bayer Leverkusen í dag, 0-1. Þeim til happs náðu helstu keppinautarnir í Werder Bremen aðeins jafntefli gegn Borussia Moenchengladbach og er því forysta liðsins á toppnum áfram fimm stig. 25.2.2007 20:53
Wenger miður sín yfir hegðun leikmanna sinna Arsene Wenger, stjóri Arsenal, harmar hegðun leikmanna sinna undir lok leiksins gegn Chelsea í deildabikarnum í dag, en tveir lærisveina hans var vikið af leikvelli eftir ryskingar. Wenger kveðst þó afar stoltur af spilamennsku síns liðs í leiknum. 25.2.2007 20:37
Meiðsli Terry ekki alvarleg Chelsea hefur staðfest að meiðslin sem fyrirliði liðsins John Terry varð fyrir í úrslitaleik deildabikarsins í dag eru ekki alvarleg. Terry hlaut einungis heilahristing og ætti að verða orðinn heill heilsu eftir nokkra daga. Hann hefur þegar yfirgefið sjúkrahúsið í London sem hann var fluttur á eftir að hafa fengið höfuðhöggið þunga. 25.2.2007 20:32
Eto´o byrjar – Eiður Smári á bekknum Eiður Smári Guðjohnsen er ekki í byrjunarliði Barcelona sem tekur á móti Atletico Madrid í spænsku úrvalsdeildinni í kvöld, þvert á spár helstu fjölmiðla Spánar. Í fremstu víglínu liðsins í kvöld er Samuel Eto´o, sem er í fyrsta sinn í byrjunarliðinu síðan í október. Leikurinn hófst kl. 20 og er í beinni útsendingu á Sýn. 25.2.2007 20:16
Zidane spilaði í fyrsta sinn frá því á HM Franski knattspyrnumaðurinn Zinedine Zidane spilaði í gær sinn fyrsta opinberlega knattspyrnuleik eftir að hafa verið vikið af velli í úrslitaleik HM í Þýskalandi síðasta sumar. Zidane spilaði þá í góðgerðarleik í Thailandi og þótti sýna gamalkunna takta. Á blaðamannafundi eftir leikinn neitaði Zidane að svara spurningum um framtíð sína. 25.2.2007 19:15
Sögulegur árangur Dallas Dallas varð í nótt fjórða liðið í sögu NBA til að vinna yfir 10 leiki í röð á þremur mismunandi tímabilum á leiktíð. Dallas vann Denver í nótt og var það 11. sigurleikur liðsins í röð en fyrr í vetur hafði liðið náð að vinna 12 og 13 leiki í röð. Ef mið er tekið af sögunni á Dallas meistaratitilinn næsta vísan. 25.2.2007 18:45
Leikmenn Chelsea tileinka Terry sigurinn Hugur leikmanna Chelsea er hjá John Terry og tileinka þeir fyrirliða sínum sigurinn, en hann var borinn af velli hálf meðvitundarlaus í úrslitaleik deildabikarsins gegn Arsenal í dag. Jose Mourinho hrósaði liði Arsenal í hástert en sagði betra liðið hafa unnið leikinn. 25.2.2007 17:52
HK upp að hlið Valsmanna í DHL-deildinni HK komst upp að hlið Valsmanna á toppi DHL-deildar karla þegar liðið bar sigurorð af Akureyri í Digranesi í dag, 31-23. Framarar unnu öruggan sigur á ÍR, 43-34, og Stjarnan sigraði Fylki í Garðabænum, 27-24, í öðrum leikjum dagsins. 25.2.2007 17:35
Terry fluttur á sjúkrahús John Terry, fyrirliði Chelsea, var fluttur á sjúkrahús eftir að hafa rotast í viðureign liðsins gegn Arsenal í dag. Að sögn Sky-fréttastofunnar í Englandi þjáðist Terry af ógleði og minnisglöppum þegar hann var borinn af velli um miðjan síðari hálfleik og því var ákveðið að taka enga áhættu. Frank Lampard tók á móti bikarnum í hans stað. 25.2.2007 17:25
Chelsea sigraði Arsenal í deildabikarnum Chelsea tryggði sér nú rétt í þessu enska deildabikarinn með því að leggja Arsenal af velli í úrslitaleik, 2-1. Didier Drogba var hetja Chelsea og skoraði bæði mörk liðsins eftir að Theo Walcott hafði komið Arsenal yfir. Þrír leikmenn fengu að líta rauða spjaldið undir lok leiksins eftir slagsmál leikmanna. 25.2.2007 17:05
Vandræðalaust hjá Tottenham gegn Bolton Tottenham átti ekki í neinum vandræðum með að leggja Bolton af velli í leik liðanna í ensku úrvalsdeildinni í dag en eftir aðeins 20. mínútna leik var liðið komið með þriggja marka forystu. Lokatölur urðu 4-1 og er Tottenham komið upp í níunda sæti deildarinnar. Tveir aðrir leikir fóru fram í Englandi í dag. 25.2.2007 16:58
Drogba búinn að koma Chelsea yfir Didier Drogba er búinn að skora sitt annað mark og koma Chelsea yfir gegn Arsenal í úrslitum enska deildabikarsins. Markið skoraði Drogba á 82. mínútu, með frábærum skalla eftir fyrirgjöf Arjen Robben. Arsenal hefur þó líklega um stundarfjórðung til að jafna leikinn en miklar tafir urðu þegar John Terry var borinn af velli. 25.2.2007 16:44
Inter heldur sigurgöngunni áfram Inter Milan burstaði Catina á útivelli í ítölsku A-deildinni í dag, 5-2, og vann sinn 17. sigur í röð í deildinni. Fjögur markanna komu í síðari hálfleik. Inter heldur 14 stiga forystu í deildinni en Roma er áfram í öðru sæti eftir 3-0 sigur á Reggina. 25.2.2007 16:38
Emil undir smásjánni hjá Viking Emil Hallfreðsson, landsliðsmaður hjá Tottenham, er undir smásjánni hjá norska úrvalsdeildarliðinu Viking sem vill fá vængmanninn flinka í sínar raðir fyrir komandi tímabil. Egil Östenstad, framkvæmdastjóri Viking, hefur staðfest að félagið hafi spurst fyrir um Emil. 25.2.2007 15:48
Jafnt hjá Chelsea og Arsenal í hálfleik Staðan er ennþá jöfn, 1-1, þegar flautað hefur verið til hálfleiks í viðureign Chelsea og Arsenal í úrslitum deildabikarsins. Theo Walcott og Didier Drogba skoruðu mörkin í upphafi leiks en fyrri hálfleikurinn hefur verið frábær skemmtun. 25.2.2007 15:43
Átta marka sigur Magdeburg Þýska liðið Magdeburg var rétt í þessu að vinna FCK frá Kaupmannahöfn, 35-27, í Evrópukeppni félagsliða í handbolta. Staðan í hálfleik var 17-16 fyrir Madgeburg en Þjóðverjarnir sigldu fram úr á lokakafla leiksins og tryggðu sér gott veganesti fyrir síðari leik liðanna sem fram fer í Danmörku um næstu helgi. 25.2.2007 15:26
Drogba búinn að jafna fyrir Chelsea Didier Drogba er búinn að jafna metið fyrir Chelsea gegn Arsenal í deildabikarnum úr fyrstu alvöru sókn Chelsea í leiknum. Markið er skráð á 20. mínútu en það sem af er leik hefur Arsenal ráðið lögum og lofum á vellinum. Leikurinn er í beinni útsendingu á Sýn. 25.2.2007 15:20
Arsenal komið yfir í úrslitaleiknum Theo Walcott er búinn að koma Arsenal yfir í leiknum gegn Chelsea í úrslitaleik enska deildabikarsins. Markið skoraði Walcott á 12. mínútu leiksins með góðu skoti úr vítateignum. Forysta Arsenal er fyllilega verðskulduð og hafa hinir ungu leikmenn liðsins spilað Chelsea sundur og saman á upphafsmínútunum. 25.2.2007 15:13
Tevez: Ég náði engu sambandi við Pardew Carlos Tevez, leikmaður West Ham, segir að samband sitt við Alan Pardew, fyrrum stjóra liðsins, hafi verið miður gott og að hann arftaki hans, Alan Curbishley, sé allt annar og betri þjálfari. Tevez fékk ekki mörg tækifæri hjá Pardew en mátti þola 4-0 tap fyrir honum í gær þegar West Ham mætti Charlton. 25.2.2007 14:45
Almunia vill verða markvörður númer eitt Markvörðurinn Manuel Almunia hjá Arsenal telur að úrslitaleikurinn gegn Chelsea í deildabikarnum í dag sé tilvalin vettvangur fyrir sig að sanna tilverurétt sinn í byrjunarliði Arsenal. Almunia hefur verið varamaður fyrir Jens Lehman undanfarin ár en margt bendir til þess að þýski markvörðurinn sé á förum frá Arsenal í sumar. 25.2.2007 14:45