Fleiri fréttir Bretar fækka um 1.500 hermenn í Írak Tony Blair, forsætisráðherra Breta, tilkynnti rétt í þessu að breskum hermönnum yrði fækkað um 1.600 á næstu mánuðum. Sem stendur eru 7.100 breskir hermenn í Írak. 21.2.2007 12:47 Istanbúl: Íbúðarhús hrundi Minnst 2 týndu lífi og hátt í 30 slösuðust þegar 5 hæða íbúðarhús hrundi í Istanbúl í Tyrklandi í morgun. Yfirvöld í borginni segja lélegum frágangi við bygginguna um að kenna en engar frekari skýringar hafa fengist á því af hverju húsið hrundi. Talið er að allir sem voru í húsinu og lifðu hafi verið fluttir á sjúkrahús og enga sé að finna í rústunum. 21.2.2007 12:45 Danir frá Írak fyrir lok júlí Anders Fogh Rasmussen, forsætisráðherra Dana, tilkynnti rétt í þessu að allir danskir hermenn verði farnir frá Írak áður en ágúst gengur í garð. Alls eru 470 danskir hermenn þar núna. Níu manna þyrlusveit verður þó áfram í landinu. 21.2.2007 12:41 Græddu HIV-smituð líffæri í sjúklinga Ítalskir læknar græddu óvart líffæri úr eyðnismituðum líffæragjafa í heilbrigt fólk. Alls fengu þrír sjúklingar líffæri úr konunni. Um tvö nýru og lifur var að ræða. Læknar segja miklar líkur á því að líffæraþegarnir eigi eftir að smitast af HIV. 21.2.2007 12:15 Heimkvaðning hermanna undirbúin Búist er við að Danir og Bretar tilkynni í dag um heimkvaðningu hermanna frá Írak. Áætlað er að Blair forsætisráðherra tilkynni að brottflutningur breskra hermanna hefjist innan örfárra vikna og að forsætisráðherra Dana útlisti áætlun sína á blaðamannafundi síðdegis. 21.2.2007 12:00 Geta skotið kjarnasprengjum á Japan og S-Kóreu Norður-Kórea getur framleitt kjarnorkusprengjur sem hægt er að setja á eldflaugar sem ná bæði til Kóreu og Japans, samkvæmt skýrslu bandarískra sérfræðinga, sem Reuters fréttastofan hefur komið yfir. Bandaríkjamennirnir heimsóttu kjarnorkuver Norður-Kóreu norðan við höfuðborgina Pyongyang, og segja að norðamenn hafi framleitt nóg plútóníum fyrir fimm til tólf kjarnorkusprengjur. 21.2.2007 11:32 Blair brýnir Abbas Mahmoud Abbas, forseti Palestínumanna mun í dag eiga fund með Tony Blair, í Lundúnum, þar sem breski forsætisráðherrann mun leggja áherslu á að hin nýmyndaða þjóðstjórn Palestínumanna verði að fara að kröfum Miðausturlanda-kvartettsins svokallaða um að viðurkenna Ísraelsríki og láta af ofbeldisverkum. Abbas er á ferð um Evrópu til þess að afla stjórninni fylgis. 21.2.2007 11:10 Danskir hermenn heim frá Írak Búist er við að forsætisráðherra Danmerkur, Anders Fogh Rasmussen, tillkynnti í dag að Danir muni fara að dæmi Breta og kalla heim einhvern hluta hermanna sinna frá Írak. Danska fréttastofan Ritzau segir ekki hversu margir hermenn verði kvaddir heim, eða hvenær. 21.2.2007 10:49 Breskt herlið frá Írak Búist er við að Tony Blair forsætisráðherra Breta tilkynni á morgun að flutningur herliðs Breta frá Írak hefjist innan nokkurra vikna. Þetta kemur fram á BBC og í öðrum breskum fjölmiðlum í dag. Áætlun Blairs er að fyrstu 1.500 hermennirnir úr 7.100 manna liði þeirra í Írak snúi heim á næstu vikum. 20.2.2007 23:20 Eiturgas umlukti heilan bæ Sex létust og tugir urðu fyrir eituráhrifum þegar tankbíll fullur af klór sprakk við veitingastað í bænum Taji í Írak í dag. Eiturgas umlukti bæinn sem er 20 km norður af höfuðborginni Baghdad. Tölur látinna voru á reiki, fyrstu tölur sögðu fimm látna og 148 sem orðið hefðu fyrir eitrun. Alls létust 20 manns í landinu í dag í nokkrum tilfellum, meðal annars í Baghdad. 20.2.2007 22:58 Átak gegn sjálfsvígum í S-Kóreu Heilbrigðisyfirvöld í Suður Kóreu segjast vera að undirbúa herferð sem beinist gegn hárri sjálfsvígstíðni í landinu. Á fimm árum hafa sjálfsmorðstilfelli tvöfaldast. Verið er að skoða ýmsa möguleika eins og að koma upp ráðgjafamiðstöðvum og fjarlægja vefsíður sem sýna leiðir til sjálfsmorða og hvetja jafnvel fólk til að taka líf sitt. 20.2.2007 21:41 Alræmdi klósettrúlluþjófurinn varaður við Rað-klósettrúlluþjófur í Bretlandi hefur fengið viðvörun frá lögreglu eftir að upp komst að hann hefur stolið klósettrúllum af almenningssalernum. Konan er miðaldra og hefur tekið tíu rúllur á dag í að minnsta kosti þrjár vikur. Hún var gripin glóðvolg af bæjarstarfsmönnum í vestur Bridgford í Nottingham. 20.2.2007 21:30 Airbus íhugar uppsagnir tíu þúsund manns Dominique de Villepin, forsætisráðherra Frakklands, segir að tíu þúsund starfsmönnum evrópska flugrisans Airbus verði sagt upp þegar fyrirtækið verði endurskipulagt. Illa hefur gengið að selja Airbus A-380 risaþotuna, stærstu farþegaflugvél í heimi, en framleiðsla hennar hefur tafist. Villepin sagði frönsk stjórnvöld andvíg uppsögnum. Þjóðverjar segja ekkert hæft í yfirlýsingum forsætisráðherrans. 20.2.2007 20:30 Hægt að læra af Sömum Samar í Norður-Noregi hafa fundið fyrir áhrifum loftslagsbreytinga í áratugi. Rannsóknir hafa leitt í ljós að áhrif þeirra eru áþreifanlegri í loftslagi norðurheimskautsins. Vísindamenn ætla nú að kanna viðbrögð Sama við breytingunum svo hægt verið að læra af þeim. 20.2.2007 20:00 Segist geta læknað alnæmi Forseti Afríkuríkisins Gambíu telur sig hafa fundið lækningu við alnæmi. Hann segist hafa læknað marga landa sína með jurtameðulum og fyrirbænum. Hátt í fjörutíu milljón manns í heiminum þjást af alnæmi, flestir í Afríku. 20.2.2007 19:30 10 ára fangelsi fyrir að misnota dætur sínar Danskur maður á fimmtugsaldri var í dag dæmdur í tíu ára fangelsi fyrir að hafa misnotað tvær dætur sínar kynferðislega og neytt þá eldri í vændi. Danir eru slegnir vegna málsins sem hefur vakið mikinn óhug þar í landi. Maðurinn er sagður hafa tilheyrt hópi djöfladýrkenda. Hann auglýsti dóttur sína í blöðum og á netinu. Fjórtán menn hafa verið dæmdir í allt að sex ára fangelsi fyrir að hafa misnotað stúlkuna. 20.2.2007 17:34 Bandarískum konum sleppt 20.2.2007 17:19 007 hlerar vitlausa síma Samkvæmt nýrri breskri skýrslu gera leyniþjónustumenn hennar hátignar alltof margar skyssur þessa dagana. Þeir hlera vitlausa síma og gramsa í gegnum póst á heimilisföngum sem löngu hafa skipt um eigendur. Njósnurunum er þó talið það til afsökunar að þeir hafa haft gríðarlega mikið að gera undanfarin ár. Verkefnum þeirra hefur fjölgað langt umfram mannskap, síðan stríðið gegn hryðjuverkum hófst. 20.2.2007 16:46 Norðurlönd gegn kvikasilfri Norðurlöndin styðja áform um alþjóðlegan samning um notkun kvikasilfurs og annarra þungmálma. Markmiðið er að semja um takmarkaða notkun málma af þessari tegund. Kvikasilfur er einkum notað við allskonar efnaframleiðslu í verksmiðjum, og í rafmagnstækjum. 20.2.2007 15:32 Segja dýr flegin lifandi í Kína Dýraverndarsamtök í Ísrael, og víðar, halda því fram að loðfeldir sem koma frá Kína séu af dýrum sem séu flegin lifandi. Yfirrabbíni Ísraels hefur brugðist við með því að gefa út tilskipun um að gyðingar megi ekki íklæðast feldum sem séu flegnir af lifandi dýrum. Yona Metzger yfirrabbíni sagði að öllum Gyðingum bæri skylda til þess að koma í veg fyrir að dýr þjáist. 20.2.2007 14:40 Ráðist á syrgjendur í jarðarför Að minnsta kosti sjö létu lífið og 15 særðust þegar sprengjuárás var gerð á syrgjendur í jarðarför í Bagdad í dag. Athöfnin fór fram í tjaldi og þangað læddi sér einhver inn með sprengju. Árásin var gerð í hverfi sjía á Palestínustræti í norðurhluta höfuðborgarinnar. Talið er víst að súnnímúslimar hafi framið ódæðið. 20.2.2007 14:22 ESB vill minnka útblástur stórlega Umhverfisráðherrar Evrópusambandsins ætla að setja sér metnaðarfull og bindandi takmörk um minnkun gróðurhúsalofttegunda fyrir árið 2020. Ráðherrarnir eru sammála um að minnka einhliða útblástur um 20 prósent, miðað við árið 1990, og um 30 prósent ef önnur iðnríki slást í hópinn. 20.2.2007 14:11 Rússar hóta hörðum viðbrögðum Rússneskur hershöfðingi hefur hótað hörðum viðbrögðum ef Bandaríkjamenn setja upp eldflaugavarnarkerfi í Tékklandi og Póllandi. „Ef ríkisstjórnir Tékklands og Póllands segja já þá getum við beint eldflaugum okkar að þessum mannvirkjum.“ sagði hershöfðinginn Nikolai Solovtsov í gær. 20.2.2007 13:15 Íran: Árásaráætlun sögð tilbúin Bandaríkjamenn eru sagðir hafa gert áætlun um loftárásir á Íran sem beinist að kjarnorkuverum og innviðum íranska hersins. Frestur sá sem Sameinuðu þjóðirnar hafa gefið Írönum til að hætta auðgun úrans rennur út á morgun. Íransforseti segist tilbúinn til viðræðna en hann gangist ekki undir þau skilyrði sem sett séu. 20.2.2007 12:30 Halla og Jude í heimspressunni Kynnum Höllu Vilhjálmsdóttur og breska leikarans Jude Law, eru gerð góð skil í bresku pressunni, í dag. Í The Sun eru birtar fjölmargar flennistórar myndir af Höllu, sem sögð er unaðslegur kynnir hjá hinum íslenska X-Factor. Talað er um kertaljósakvöldverð, sveitt pöbbarölt og kossaflens á dansgólfinu, sem hefði verið nóg til þess að fá dómara í X-Factor til þess að roðna. 20.2.2007 12:15 Íranar vilja viðræður Íranski forsetinn, Mahmoud Ahmadinejad, sagði í dag að hann vildi viðræður um kjarnorkuáætlun lands síns. Hann tók engu að síður fram að Íran myndi ekki samþykkja skilyrði Sameinuðu þjóðanna og Bandaríkjanna um að hætta auðgun úrans áður en viðræður geta átt sér stað. 20.2.2007 11:15 Sorphirðuverkfall breiðist út um Danmörku Sorphirðumenn í meðal annars Kaupmannahöfn, Óðinsvéum og Kolding lögðu í dag niður vinnu til að styðja starfsbræður sína í Árósum sem verið hafa í verkfalli í á þriðju viku vegna óánægju með kjör sín. Sorphirðumennirnir í Árósum felldu í morgun samkomulag sem trúnaðarmenn höfðu náð í gærkvöld við vinnuveitendur þeirra eftir langan fund. 20.2.2007 11:10 Skipað að fara í fóstureyðingu Ítalskur dómari skipaði þrettán ára telpu frá Torino að fara í fóstureyðingu vegna þess að foreldrar hennar voru andvíg því að hún eignaðist barnið. Telpan varð ófrísk eftir fimmtán ára gamlan kærasta sinn og hún vildi eignast barnið. 20.2.2007 10:50 14 ára fangelsi fyrir særingartilraun Rúmenskur prestur var í gær dæmdur í 14 ára fangelsi fyrir að hafa myrt 23 ára nunnu þegar hann var að reyna að særa djöfulinn sjálfan úr henni. 20.2.2007 10:45 Blóðnasir ullu lokun sendiráðs Kanadíska sendiráðinu í París var lokað tímabundið í dag vegna gruns um eitur í bréfasendingu. Starfsmaður sendiráðsins fékk blóðnasir og veiktist eftir að hann opnaði bréf. Grunsemdir vöknuðu um að eitur hafi verið í bréfinu og ákváðu yfirvöld að loka sendiráðinu og nærliggjandi götu um tíma. Hættuástandi var aflýst og sendiráðið opnað þegar lögregla komst að því að starfsmaðurinn hafði verið veikur í einhvern tíma og fengið blóðnasir. 19.2.2007 23:32 Árásaráætlun á Íran afhjúpuð Áætlun Bandaríkjamanna um loftárásir á Íran beinast að kjarnorkuverum og innviðum íranska hersins. Ef bandaríkjamenn réðust á Íran samkvæmt áætluninni, myndu íranskir flugvellir, flotastöðvar, flugskeytastöðvar og stjórnstöðvar verða skotmörkin. Bandaríkjamenn staðhæfa að ekki sé ráðgert að ráðast á Íran og eru að reyna að fá sjórnvöld í Teheran til að hætta auðgun úrans. 19.2.2007 22:56 Leitað í barnaskóla vegna bréfasprengju Lögreglan í Bretlandi hefur gert húsleit í barnaskóla í Cambridgeshire eftir handtöku manns í tengslum við bréfasprengjurnar sem sprungu í London í síðustu viku. Maðurinn heitir Miles Cooper og er umsjónarmaður í Teversham kirkjuskólanum. 19.2.2007 21:48 Íranir og Rússar í kjarnorkudeilu Íranir neita fullyrðum rússneskra embættismanna að þeir standi ekki við greiðslur vegna vinnu við Bushehr kjarnorkuverið sem nú er verið að reisa í suðurhluta Íran. Rússneskir embættismenn hafa varað við seinkun á afhendingu úraneldsneytis standi Íranir ekki við greiðslurnar. Íranir segja að þeir hafi staðið við sinn hluta samningsins. 19.2.2007 21:19 Lengdu rangan fótlegg Skurðlæknar í Kína hafa beðist afsökunar eftir að lengja rangan fótlegg fimm ára gamals drengs. Aðgerðin var gerð til að laga helti drengsins. Læknarnir á sjúkrahúsinu í Changsha segja skýringuna vera þá að drengurinn var svæfður þegar hann lá á bakinu, en aðgerðin var gerð með hann liggjandi á maganum. 19.2.2007 20:30 Bíll Leðurblökumannsins til sölu Eðalvagn Leðurblökumannsins, úr samnefndum bandarískum sjónvarpsþáttum frá sjöunda áratug síðustu aldar, verður seldur á uppboði í Lundúnum síðar í mánuðinum. Talið er að jafnvirði tæpra 10 milljóna króna fáist fyrir bílinn sem var sá sjötti í röð nokkurra sem smíðaðir voru árið 1966 til kynningar á þáttunum og voru notaðir í rúmlega hundrað þeirra. 19.2.2007 19:30 Friðarviðræðum verður fram haldið Leiðtogar Ísraels og Palestínumanna ítrekuðu í dag stuðning sinn við stofnun sjálfstæðs ríkis Palestínumanna. Olmert, forsætisráðherra Ísraels, Abbas, forseti Palestínumanna, og Rice, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, ræddu friðarferlið fyrir botni Miðjarðarhafs í Jerúsalem í morgun. 19.2.2007 19:15 Sprengjuárás á Indlandi rannsökuð Ráðamenn í Indlandi og Pakistan hafa fordæmt sprengjuárás á farþegalest í Indlandi í gærkvöldi. Segja þeir ætlun ódæðismannanna hafi verið að raska friðarviðræðum landanna og það takist ekki. Minnst 66 týndu lífi í árásinni. 19.2.2007 19:00 Bakkavör innkallar hummus Bakkavör hefur innkallað kjúklingabaunamauk úr sex matvöruverslanakeðjum á Bretlandi eftir að salmonellusmit greindist í sýnum úr því. Ekki er talið að nokkur hafi veikst eftir að hafa neytt vörunnar og segir forstjóri fyrirtækisins fjárhagstjón vegna smitsins óverulegt. 19.2.2007 18:45 Risademantur fannst á Grænlandi 19.2.2007 16:52 8000 morðingjum sleppt úr fangelsi Átta þúsund föngum var sleppt úr fangelsum í Rúanda, í dag, en þeir höfðu verið sakaðir um aðild að þjóðarmorðinu árið 1994. Frelsun þeirra hefur vakið mikla reiði meðal ættingja þeirra sem myrtir voru í blóðbaðinu. Fangelsi í Rúanda eru yfirfull af föngum sem hafa annaðhvort verið sakfelldir eða bíða eftir réttarhöldum. 19.2.2007 16:41 Enn eitt heiðursmorð í Danmörku Danskur saksóknari hefur krafist þyngri refsingar yfir pakistanskri fjölskyldu sem myrti nítján ára gamla stúlku vegna þess að hún hafði gifst manni sem fjölskyldan sætti sig ekki við. Það var bróðir stúlkunnar sem skaut hana til bana, að skipun föðurins. Eiginmaður hennar særðist mikið, en lifði tilræðið af. 19.2.2007 16:21 Á svifdreka í 10 þúsund metra hæð Þýsk kona slapp á undraverðan hátt frá svifdrekaflugi, um síðustu helgi, þar sem óveður þeytti henn i upp í tíuþúsund metra hæð. Það er sama hæð og farþegaþotur fljúga í. Í slíkri hæð er frostið um fjörutíu stig og nánast ekkert súrefni, enda missti konan meðvitund. 19.2.2007 15:54 Ráðherra fellur vegna Önnu Nicole Innflytjendaráðherra Bahamaeyja hefur sagt af sér vegna sögusagna um að hann hafi átt í ástarsambandi við Playboy fyrirsætuna Önnu Nicole Smith. Myndir hafa birst í blöðum af þeim saman uppi í rúmi, þar sem þau voru að vísu alklædd. Ráðherrann neitar að hafa misbeitt valdi sínu til þess að veita henni búsetuleyfi á eyjunum. 19.2.2007 15:27 ESB vill stjórna hvalveiðum Dana 19.2.2007 14:45 Múhameð mógðaður aftur Sádi-Arabía hefur krafist þess að hollenski stjórnmálamaðurinn Geert Wilders dragi til baka og biðjist biðjist afsökunar á ummælum sínum um kóraninn í síðustu viku. Þess er einnig krafist að hollenska ríkisstjórnin stöðvi frekari yfirlýsingar af þessu tagi. Menn velta því fyrir sér hvort nýtt teiknimyndamál sé í uppsiglingu. 19.2.2007 14:41 Sjá næstu 50 fréttir
Bretar fækka um 1.500 hermenn í Írak Tony Blair, forsætisráðherra Breta, tilkynnti rétt í þessu að breskum hermönnum yrði fækkað um 1.600 á næstu mánuðum. Sem stendur eru 7.100 breskir hermenn í Írak. 21.2.2007 12:47
Istanbúl: Íbúðarhús hrundi Minnst 2 týndu lífi og hátt í 30 slösuðust þegar 5 hæða íbúðarhús hrundi í Istanbúl í Tyrklandi í morgun. Yfirvöld í borginni segja lélegum frágangi við bygginguna um að kenna en engar frekari skýringar hafa fengist á því af hverju húsið hrundi. Talið er að allir sem voru í húsinu og lifðu hafi verið fluttir á sjúkrahús og enga sé að finna í rústunum. 21.2.2007 12:45
Danir frá Írak fyrir lok júlí Anders Fogh Rasmussen, forsætisráðherra Dana, tilkynnti rétt í þessu að allir danskir hermenn verði farnir frá Írak áður en ágúst gengur í garð. Alls eru 470 danskir hermenn þar núna. Níu manna þyrlusveit verður þó áfram í landinu. 21.2.2007 12:41
Græddu HIV-smituð líffæri í sjúklinga Ítalskir læknar græddu óvart líffæri úr eyðnismituðum líffæragjafa í heilbrigt fólk. Alls fengu þrír sjúklingar líffæri úr konunni. Um tvö nýru og lifur var að ræða. Læknar segja miklar líkur á því að líffæraþegarnir eigi eftir að smitast af HIV. 21.2.2007 12:15
Heimkvaðning hermanna undirbúin Búist er við að Danir og Bretar tilkynni í dag um heimkvaðningu hermanna frá Írak. Áætlað er að Blair forsætisráðherra tilkynni að brottflutningur breskra hermanna hefjist innan örfárra vikna og að forsætisráðherra Dana útlisti áætlun sína á blaðamannafundi síðdegis. 21.2.2007 12:00
Geta skotið kjarnasprengjum á Japan og S-Kóreu Norður-Kórea getur framleitt kjarnorkusprengjur sem hægt er að setja á eldflaugar sem ná bæði til Kóreu og Japans, samkvæmt skýrslu bandarískra sérfræðinga, sem Reuters fréttastofan hefur komið yfir. Bandaríkjamennirnir heimsóttu kjarnorkuver Norður-Kóreu norðan við höfuðborgina Pyongyang, og segja að norðamenn hafi framleitt nóg plútóníum fyrir fimm til tólf kjarnorkusprengjur. 21.2.2007 11:32
Blair brýnir Abbas Mahmoud Abbas, forseti Palestínumanna mun í dag eiga fund með Tony Blair, í Lundúnum, þar sem breski forsætisráðherrann mun leggja áherslu á að hin nýmyndaða þjóðstjórn Palestínumanna verði að fara að kröfum Miðausturlanda-kvartettsins svokallaða um að viðurkenna Ísraelsríki og láta af ofbeldisverkum. Abbas er á ferð um Evrópu til þess að afla stjórninni fylgis. 21.2.2007 11:10
Danskir hermenn heim frá Írak Búist er við að forsætisráðherra Danmerkur, Anders Fogh Rasmussen, tillkynnti í dag að Danir muni fara að dæmi Breta og kalla heim einhvern hluta hermanna sinna frá Írak. Danska fréttastofan Ritzau segir ekki hversu margir hermenn verði kvaddir heim, eða hvenær. 21.2.2007 10:49
Breskt herlið frá Írak Búist er við að Tony Blair forsætisráðherra Breta tilkynni á morgun að flutningur herliðs Breta frá Írak hefjist innan nokkurra vikna. Þetta kemur fram á BBC og í öðrum breskum fjölmiðlum í dag. Áætlun Blairs er að fyrstu 1.500 hermennirnir úr 7.100 manna liði þeirra í Írak snúi heim á næstu vikum. 20.2.2007 23:20
Eiturgas umlukti heilan bæ Sex létust og tugir urðu fyrir eituráhrifum þegar tankbíll fullur af klór sprakk við veitingastað í bænum Taji í Írak í dag. Eiturgas umlukti bæinn sem er 20 km norður af höfuðborginni Baghdad. Tölur látinna voru á reiki, fyrstu tölur sögðu fimm látna og 148 sem orðið hefðu fyrir eitrun. Alls létust 20 manns í landinu í dag í nokkrum tilfellum, meðal annars í Baghdad. 20.2.2007 22:58
Átak gegn sjálfsvígum í S-Kóreu Heilbrigðisyfirvöld í Suður Kóreu segjast vera að undirbúa herferð sem beinist gegn hárri sjálfsvígstíðni í landinu. Á fimm árum hafa sjálfsmorðstilfelli tvöfaldast. Verið er að skoða ýmsa möguleika eins og að koma upp ráðgjafamiðstöðvum og fjarlægja vefsíður sem sýna leiðir til sjálfsmorða og hvetja jafnvel fólk til að taka líf sitt. 20.2.2007 21:41
Alræmdi klósettrúlluþjófurinn varaður við Rað-klósettrúlluþjófur í Bretlandi hefur fengið viðvörun frá lögreglu eftir að upp komst að hann hefur stolið klósettrúllum af almenningssalernum. Konan er miðaldra og hefur tekið tíu rúllur á dag í að minnsta kosti þrjár vikur. Hún var gripin glóðvolg af bæjarstarfsmönnum í vestur Bridgford í Nottingham. 20.2.2007 21:30
Airbus íhugar uppsagnir tíu þúsund manns Dominique de Villepin, forsætisráðherra Frakklands, segir að tíu þúsund starfsmönnum evrópska flugrisans Airbus verði sagt upp þegar fyrirtækið verði endurskipulagt. Illa hefur gengið að selja Airbus A-380 risaþotuna, stærstu farþegaflugvél í heimi, en framleiðsla hennar hefur tafist. Villepin sagði frönsk stjórnvöld andvíg uppsögnum. Þjóðverjar segja ekkert hæft í yfirlýsingum forsætisráðherrans. 20.2.2007 20:30
Hægt að læra af Sömum Samar í Norður-Noregi hafa fundið fyrir áhrifum loftslagsbreytinga í áratugi. Rannsóknir hafa leitt í ljós að áhrif þeirra eru áþreifanlegri í loftslagi norðurheimskautsins. Vísindamenn ætla nú að kanna viðbrögð Sama við breytingunum svo hægt verið að læra af þeim. 20.2.2007 20:00
Segist geta læknað alnæmi Forseti Afríkuríkisins Gambíu telur sig hafa fundið lækningu við alnæmi. Hann segist hafa læknað marga landa sína með jurtameðulum og fyrirbænum. Hátt í fjörutíu milljón manns í heiminum þjást af alnæmi, flestir í Afríku. 20.2.2007 19:30
10 ára fangelsi fyrir að misnota dætur sínar Danskur maður á fimmtugsaldri var í dag dæmdur í tíu ára fangelsi fyrir að hafa misnotað tvær dætur sínar kynferðislega og neytt þá eldri í vændi. Danir eru slegnir vegna málsins sem hefur vakið mikinn óhug þar í landi. Maðurinn er sagður hafa tilheyrt hópi djöfladýrkenda. Hann auglýsti dóttur sína í blöðum og á netinu. Fjórtán menn hafa verið dæmdir í allt að sex ára fangelsi fyrir að hafa misnotað stúlkuna. 20.2.2007 17:34
007 hlerar vitlausa síma Samkvæmt nýrri breskri skýrslu gera leyniþjónustumenn hennar hátignar alltof margar skyssur þessa dagana. Þeir hlera vitlausa síma og gramsa í gegnum póst á heimilisföngum sem löngu hafa skipt um eigendur. Njósnurunum er þó talið það til afsökunar að þeir hafa haft gríðarlega mikið að gera undanfarin ár. Verkefnum þeirra hefur fjölgað langt umfram mannskap, síðan stríðið gegn hryðjuverkum hófst. 20.2.2007 16:46
Norðurlönd gegn kvikasilfri Norðurlöndin styðja áform um alþjóðlegan samning um notkun kvikasilfurs og annarra þungmálma. Markmiðið er að semja um takmarkaða notkun málma af þessari tegund. Kvikasilfur er einkum notað við allskonar efnaframleiðslu í verksmiðjum, og í rafmagnstækjum. 20.2.2007 15:32
Segja dýr flegin lifandi í Kína Dýraverndarsamtök í Ísrael, og víðar, halda því fram að loðfeldir sem koma frá Kína séu af dýrum sem séu flegin lifandi. Yfirrabbíni Ísraels hefur brugðist við með því að gefa út tilskipun um að gyðingar megi ekki íklæðast feldum sem séu flegnir af lifandi dýrum. Yona Metzger yfirrabbíni sagði að öllum Gyðingum bæri skylda til þess að koma í veg fyrir að dýr þjáist. 20.2.2007 14:40
Ráðist á syrgjendur í jarðarför Að minnsta kosti sjö létu lífið og 15 særðust þegar sprengjuárás var gerð á syrgjendur í jarðarför í Bagdad í dag. Athöfnin fór fram í tjaldi og þangað læddi sér einhver inn með sprengju. Árásin var gerð í hverfi sjía á Palestínustræti í norðurhluta höfuðborgarinnar. Talið er víst að súnnímúslimar hafi framið ódæðið. 20.2.2007 14:22
ESB vill minnka útblástur stórlega Umhverfisráðherrar Evrópusambandsins ætla að setja sér metnaðarfull og bindandi takmörk um minnkun gróðurhúsalofttegunda fyrir árið 2020. Ráðherrarnir eru sammála um að minnka einhliða útblástur um 20 prósent, miðað við árið 1990, og um 30 prósent ef önnur iðnríki slást í hópinn. 20.2.2007 14:11
Rússar hóta hörðum viðbrögðum Rússneskur hershöfðingi hefur hótað hörðum viðbrögðum ef Bandaríkjamenn setja upp eldflaugavarnarkerfi í Tékklandi og Póllandi. „Ef ríkisstjórnir Tékklands og Póllands segja já þá getum við beint eldflaugum okkar að þessum mannvirkjum.“ sagði hershöfðinginn Nikolai Solovtsov í gær. 20.2.2007 13:15
Íran: Árásaráætlun sögð tilbúin Bandaríkjamenn eru sagðir hafa gert áætlun um loftárásir á Íran sem beinist að kjarnorkuverum og innviðum íranska hersins. Frestur sá sem Sameinuðu þjóðirnar hafa gefið Írönum til að hætta auðgun úrans rennur út á morgun. Íransforseti segist tilbúinn til viðræðna en hann gangist ekki undir þau skilyrði sem sett séu. 20.2.2007 12:30
Halla og Jude í heimspressunni Kynnum Höllu Vilhjálmsdóttur og breska leikarans Jude Law, eru gerð góð skil í bresku pressunni, í dag. Í The Sun eru birtar fjölmargar flennistórar myndir af Höllu, sem sögð er unaðslegur kynnir hjá hinum íslenska X-Factor. Talað er um kertaljósakvöldverð, sveitt pöbbarölt og kossaflens á dansgólfinu, sem hefði verið nóg til þess að fá dómara í X-Factor til þess að roðna. 20.2.2007 12:15
Íranar vilja viðræður Íranski forsetinn, Mahmoud Ahmadinejad, sagði í dag að hann vildi viðræður um kjarnorkuáætlun lands síns. Hann tók engu að síður fram að Íran myndi ekki samþykkja skilyrði Sameinuðu þjóðanna og Bandaríkjanna um að hætta auðgun úrans áður en viðræður geta átt sér stað. 20.2.2007 11:15
Sorphirðuverkfall breiðist út um Danmörku Sorphirðumenn í meðal annars Kaupmannahöfn, Óðinsvéum og Kolding lögðu í dag niður vinnu til að styðja starfsbræður sína í Árósum sem verið hafa í verkfalli í á þriðju viku vegna óánægju með kjör sín. Sorphirðumennirnir í Árósum felldu í morgun samkomulag sem trúnaðarmenn höfðu náð í gærkvöld við vinnuveitendur þeirra eftir langan fund. 20.2.2007 11:10
Skipað að fara í fóstureyðingu Ítalskur dómari skipaði þrettán ára telpu frá Torino að fara í fóstureyðingu vegna þess að foreldrar hennar voru andvíg því að hún eignaðist barnið. Telpan varð ófrísk eftir fimmtán ára gamlan kærasta sinn og hún vildi eignast barnið. 20.2.2007 10:50
14 ára fangelsi fyrir særingartilraun Rúmenskur prestur var í gær dæmdur í 14 ára fangelsi fyrir að hafa myrt 23 ára nunnu þegar hann var að reyna að særa djöfulinn sjálfan úr henni. 20.2.2007 10:45
Blóðnasir ullu lokun sendiráðs Kanadíska sendiráðinu í París var lokað tímabundið í dag vegna gruns um eitur í bréfasendingu. Starfsmaður sendiráðsins fékk blóðnasir og veiktist eftir að hann opnaði bréf. Grunsemdir vöknuðu um að eitur hafi verið í bréfinu og ákváðu yfirvöld að loka sendiráðinu og nærliggjandi götu um tíma. Hættuástandi var aflýst og sendiráðið opnað þegar lögregla komst að því að starfsmaðurinn hafði verið veikur í einhvern tíma og fengið blóðnasir. 19.2.2007 23:32
Árásaráætlun á Íran afhjúpuð Áætlun Bandaríkjamanna um loftárásir á Íran beinast að kjarnorkuverum og innviðum íranska hersins. Ef bandaríkjamenn réðust á Íran samkvæmt áætluninni, myndu íranskir flugvellir, flotastöðvar, flugskeytastöðvar og stjórnstöðvar verða skotmörkin. Bandaríkjamenn staðhæfa að ekki sé ráðgert að ráðast á Íran og eru að reyna að fá sjórnvöld í Teheran til að hætta auðgun úrans. 19.2.2007 22:56
Leitað í barnaskóla vegna bréfasprengju Lögreglan í Bretlandi hefur gert húsleit í barnaskóla í Cambridgeshire eftir handtöku manns í tengslum við bréfasprengjurnar sem sprungu í London í síðustu viku. Maðurinn heitir Miles Cooper og er umsjónarmaður í Teversham kirkjuskólanum. 19.2.2007 21:48
Íranir og Rússar í kjarnorkudeilu Íranir neita fullyrðum rússneskra embættismanna að þeir standi ekki við greiðslur vegna vinnu við Bushehr kjarnorkuverið sem nú er verið að reisa í suðurhluta Íran. Rússneskir embættismenn hafa varað við seinkun á afhendingu úraneldsneytis standi Íranir ekki við greiðslurnar. Íranir segja að þeir hafi staðið við sinn hluta samningsins. 19.2.2007 21:19
Lengdu rangan fótlegg Skurðlæknar í Kína hafa beðist afsökunar eftir að lengja rangan fótlegg fimm ára gamals drengs. Aðgerðin var gerð til að laga helti drengsins. Læknarnir á sjúkrahúsinu í Changsha segja skýringuna vera þá að drengurinn var svæfður þegar hann lá á bakinu, en aðgerðin var gerð með hann liggjandi á maganum. 19.2.2007 20:30
Bíll Leðurblökumannsins til sölu Eðalvagn Leðurblökumannsins, úr samnefndum bandarískum sjónvarpsþáttum frá sjöunda áratug síðustu aldar, verður seldur á uppboði í Lundúnum síðar í mánuðinum. Talið er að jafnvirði tæpra 10 milljóna króna fáist fyrir bílinn sem var sá sjötti í röð nokkurra sem smíðaðir voru árið 1966 til kynningar á þáttunum og voru notaðir í rúmlega hundrað þeirra. 19.2.2007 19:30
Friðarviðræðum verður fram haldið Leiðtogar Ísraels og Palestínumanna ítrekuðu í dag stuðning sinn við stofnun sjálfstæðs ríkis Palestínumanna. Olmert, forsætisráðherra Ísraels, Abbas, forseti Palestínumanna, og Rice, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, ræddu friðarferlið fyrir botni Miðjarðarhafs í Jerúsalem í morgun. 19.2.2007 19:15
Sprengjuárás á Indlandi rannsökuð Ráðamenn í Indlandi og Pakistan hafa fordæmt sprengjuárás á farþegalest í Indlandi í gærkvöldi. Segja þeir ætlun ódæðismannanna hafi verið að raska friðarviðræðum landanna og það takist ekki. Minnst 66 týndu lífi í árásinni. 19.2.2007 19:00
Bakkavör innkallar hummus Bakkavör hefur innkallað kjúklingabaunamauk úr sex matvöruverslanakeðjum á Bretlandi eftir að salmonellusmit greindist í sýnum úr því. Ekki er talið að nokkur hafi veikst eftir að hafa neytt vörunnar og segir forstjóri fyrirtækisins fjárhagstjón vegna smitsins óverulegt. 19.2.2007 18:45
8000 morðingjum sleppt úr fangelsi Átta þúsund föngum var sleppt úr fangelsum í Rúanda, í dag, en þeir höfðu verið sakaðir um aðild að þjóðarmorðinu árið 1994. Frelsun þeirra hefur vakið mikla reiði meðal ættingja þeirra sem myrtir voru í blóðbaðinu. Fangelsi í Rúanda eru yfirfull af föngum sem hafa annaðhvort verið sakfelldir eða bíða eftir réttarhöldum. 19.2.2007 16:41
Enn eitt heiðursmorð í Danmörku Danskur saksóknari hefur krafist þyngri refsingar yfir pakistanskri fjölskyldu sem myrti nítján ára gamla stúlku vegna þess að hún hafði gifst manni sem fjölskyldan sætti sig ekki við. Það var bróðir stúlkunnar sem skaut hana til bana, að skipun föðurins. Eiginmaður hennar særðist mikið, en lifði tilræðið af. 19.2.2007 16:21
Á svifdreka í 10 þúsund metra hæð Þýsk kona slapp á undraverðan hátt frá svifdrekaflugi, um síðustu helgi, þar sem óveður þeytti henn i upp í tíuþúsund metra hæð. Það er sama hæð og farþegaþotur fljúga í. Í slíkri hæð er frostið um fjörutíu stig og nánast ekkert súrefni, enda missti konan meðvitund. 19.2.2007 15:54
Ráðherra fellur vegna Önnu Nicole Innflytjendaráðherra Bahamaeyja hefur sagt af sér vegna sögusagna um að hann hafi átt í ástarsambandi við Playboy fyrirsætuna Önnu Nicole Smith. Myndir hafa birst í blöðum af þeim saman uppi í rúmi, þar sem þau voru að vísu alklædd. Ráðherrann neitar að hafa misbeitt valdi sínu til þess að veita henni búsetuleyfi á eyjunum. 19.2.2007 15:27
Múhameð mógðaður aftur Sádi-Arabía hefur krafist þess að hollenski stjórnmálamaðurinn Geert Wilders dragi til baka og biðjist biðjist afsökunar á ummælum sínum um kóraninn í síðustu viku. Þess er einnig krafist að hollenska ríkisstjórnin stöðvi frekari yfirlýsingar af þessu tagi. Menn velta því fyrir sér hvort nýtt teiknimyndamál sé í uppsiglingu. 19.2.2007 14:41