Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Beckham leikur ekki fleiri leiki með Real Madrid David Beckham mun ekki spila fleiri leiki fyrir Real Madrid, þá sex mánuði sem hann á eftir af samningi sínum við félagið. Beckham hefur sem kunnugt er gengið til liðs við bandaríska félagið Galaxy, fyrir eina milljón dollara á viku. 13.1.2007 13:35
Peron framseld til Argentínu Isabella Peron, fyrrverandi forseti Argentíun, var í gær framseld yfirvöldum í heimalandinu. Hún er sökuð um að hafa fyrirskipað fjölmörg morð og mannrán á valdatíma sínum. 13.1.2007 13:30
Óttast eldgos á Komoroeyjum Almannavarnir á Comoroeyjum eru komnar í viðbragðsstöðu vegna þess að eldfjallið Karthala er enn einusinni farið að láta á sér bæra. Reykur stígur upp af fjallinu og það hafa komið snarpir jarðskjálftar. Árið 2005 þurftu tugþúsundir íbúa að flýja heimili sín vegna eldgoss í fjallinu. 13.1.2007 13:23
Herlög í gildi í Sómalíu Herlög verða í gildi í Sómalíu næstu þrjá mánuðina samkvæmt ákvörðun sómalska þingsins í morgun. Þar með er neyðarástandi lýst yfir í landinu. Ráðamenn segja þetta gert til að hægt verði að tryggja öryggi sómalskra borgara á ný eftir margra vikna blóðug átök við íslamska uppreisnarmenn. Þingforseti Sómalíu segir að hægt verði að framlengja gildistíma herlaga óski forseti þess formlega og þing samþykki. 13.1.2007 13:15
Fundust heilir á húfi Bandarískur unglingsdrengur, sem saknað hefur verið síðan 2002, fannst heill á húfi á heimili rúmlega fertugs manns sem nú hefur verið ákærður fyrir mannránn. Annar drengur fannst þar einnig en hann hvarf fyrir tæpri viku. 13.1.2007 13:00
Mengunarslys í Noregi Óttast er að um þrjú hundruð tonn af hráolíu hafi lekið í sjóinn úr flutningaskipinu Server, sem strandaði við Fedje skammt norður af Björgvin í Noregi í gærkvöldi. Tuttugu og fimm skipverjum var öllum bjargað í land en skipið brotnaði í tvennt nokkru síðar. Tæp sex hundruð tonna hráolíu voru í skipinu þegar það strandaði og rétt rúm sjötíu tonn af díselolíu. 13.1.2007 11:37
Merkel ver evruna Angela Merkel, kanslari Þýskalands segist hafa áhyggjur af umræðu um evruna, í Frakklandi, en þar er gjaldmiðlinum kennt um meintar verðhækkanir þegar hún var tekin upp. Merkel vill að evrunni verði haldið utan við pólitíska umræðu. 13.1.2007 11:32
Beckham kom til þess að spila fótbolta Eigendur fótboltaliðsins LA Galaxy hafa í dag varið þá ákvörðun sína að semja við David Beckham en margir vilja meina að sú ákvörðun sé ekki tekin vegna hæfileika hans í knattspyrnu. Samningurinn sem var gerður við Beckham er 18 milljarða virði. 12.1.2007 23:15
Bjór gegn glæpum Tveir hjálpsamir menn í Flórída í Bandaríkjunum náðu að handsama ræningja sem lögregla var að leita að. Og hvernig? Jú, með því að gefa honum bjór. 12.1.2007 22:45
Blair ver utanríkisstefnu sína Tony Blair sagði í ræðu í dag að utanríkisstefna hans, sem felst í fyrirbyggjandi árásum, væri kannski umdeild en að hún væri rétt og að nauðsynlegt væri að halda henni áfram. Hann viðurkenndi þó að breski herinn væri of upptekinn um þessar mundir en íhaldsmenn í Bretlandi hafa sagt það vera hans einu arfleifð. 12.1.2007 22:30
Leiðtogi norsku launþegasamtakanna sökuð um einelti Gerd Liv Valla, leiðtogi norsku launþegasamtakanna LO, hefur verið sökuð um að leggja einstaka undirmenn sína í samtökunum í einelti. Í gær sagði Ingunn Yssen, alþjóðlegur ritari samtakanna, upp störfum eftir að hafa verið lögð í einelti af formanninum í þrjú og hálft ár. Hún hafði verið í veikindafríi í hálft ár áður en hún sagði upp starfinu. 12.1.2007 22:15
Peron framseld til Argentínu Isabel Peron var í dag framseld yfirvöldum í Argentínu vegna gruns um að hún hafi fyrirskipað fjölmörg morð og mannrán á valdatíma sínum sem forseti Argentínu. Hún tók við embætti á forseta áttunda áratug síðustu aldar eftir að eiginmaður hennar, Juan Peron, þáverandi forseti Argentínu, lést. 12.1.2007 22:04
Kínverjar og Rússar beita neitunarvaldi Kínverjar og Rússar beittu í dag neitunarvaldi í öryggisráði Sameinuðu þjóðana gegn ályktun Bandaríkjamanna sem átti að setja þrýsting á stjórnvöld í Myanmar en réttindi minnihluta og stjórnarandstöðu eru virt að vettugi þar í landi. 12.1.2007 21:45
Handteknir fyrir að fita hundinn Tveir breskir bræðir hafa verið dæmdir fyrir brot á dýraverndunarlögum en þeir gáfu hundinum sínum Rusty meira að éta en honum var gott. Vesalings Labradorhundurinn þyngdist um næstum fjórtán kíló á tveimur árum og eins og sjá má líkist hann meira rostungi en venjulegum hvutta. 12.1.2007 21:15
Ætla ekki að ráðast á Íran Bandaríkin neituðu því í dag að þeir væru að undirbúa árásir gegn Íran og Sýrlandi þrátt fyrir að George W. Bush hafi varað löndin sterklega við á miðvikudaginn var. Þá sakaði hann stjórnvöld í löndunum tveim um að leyfa hryðjuverkamönnum að nota lönd sín sem grunnbúðir við árásir í Írak. 12.1.2007 20:50
Samráð á tortilla markaðnum Forseti Mexíkó, Felipe Calderon, hefur lofað því að reyna að koma í veg fyrir hækkandi verð á tortilla-kökum en þær uppistaða í fæðu margra fátækra íbúa Mexíkó. Verðið á kökunum hefur alls hækkað um 10% á síðastliðnu ári. 12.1.2007 20:29
Dómsdagsklukkan færist nær miðnætti Varðmenn Dómsdagsklukkunnar svokölluðu hafa ákveðið að færa hendur hennar fram á miðvikudaginn kemur vegna aukinnar kjarnorkuógnar og gróðurhúsaáhrifanna. Klukkunni, sem er viðhaldið af Fréttablaði kjarnorkusérfræðinga, er sem stendur sjö mínútur í miðnætti en miðnætti á að marka hamfarir á heimsvísu. 12.1.2007 20:17
Forseti Írans heimsækir Venesúela Mahmoud Ahmadinejad, forseti Írans, fór í dag í sína aðra ferð til Suður Ameríku á síðastliðnum fjórum mánuðum. Þar mun hann heimsækja Venesúela, Níkaragúa og Ekvador en forsetar þeirra landa eru eins og Ahmadinejad sjálfur, ósáttir við Bandaríkin og forseta þeirra George W. Bush. 12.1.2007 19:52
Flutningaskip strandar við Noregsstrendur Stórt flutningaskip strandaði rétt í þessu fyrir utan Bergen og hefur norska strandgæslan hafið björgunaraðgerðir til þess að koma skipverjum í land. Skipið var ekki með farm en það var á leið til Murmansk að ná í farm. Einhver hætta er talin á því að olía geti lekið úr vélarrúminu. Leki er þegar kominn að vélarrúmi skipsins en veður er slæmt á strandstað. 12.1.2007 18:27
Ferguson tjáir sig um vistaskipti Beckhams Sir Alex Ferguson segist hafa séð það fyrir að fyrrum leikmaður hans David Beckham færi til Bandaríkjanna eftir að hann féll úr náðinni hjá Real Madrid. Félagar hans á Spáni segjast muni sakna hans þegar hann heldur vestur um haf. Adriano Galliani, yfirmaður AC Milan á Ítalíu, segir að félagið hefði klárlega gert David Beckham tilboð ef hann hefði ekki ákveðið að fara til Bandaríkjanna. 12.1.2007 17:10
90 handteknir í Guantanamo-mótmælum 90 mótmælendur voru handteknir í Washington í dag, þar sem þeir mótmæltu fangabúðum Bandaríkjamanna í Guantanamo. Fólkið var að reyna að ryðjast inn í byggingu alríkisdómstólsins þegar það var handtekið. 12.1.2007 16:29
Varað við ferðalögum til Bangladesh Breska utanríkisráðuneytið hefur varað Breta við ferðalögum til Bangladesh. Í tilkynningunni frá ráðuneytinu segir að talsvert sé um hryðjuverkaárásir í landinu og að Vesturlandabúar gætu átt á hættu að vera rænt af öfgamönnum og mótmælendum. 12.1.2007 16:20
Starfsmaður S.þ. myrtur í Súdan Starfsmaður Sameinuðu þjóðanna var myrtur í fyrirsát í suðurhluta Súdans í dag. Maðurinn vann fyrir Matvælaaðstoð Sameinuðu þjóðanna. Hann var farþegi í bíl sem setið var fyrir þrátt fyrir að bílnum fylgdu hermenn frá suður-súdanska hernum. 12.1.2007 16:08
Rússar fordæma árás á íranska ræðisskrifstofu Rússar fordæmdu í dag árás Bandaríkjamanna á ræðisskrifstofu Írana í gærmorgun. Yfirlýsingin sem utanríkisráðuneytið sendi frá sér var harðorð, þar sem árás Bandaríkjamanna í gær var meðal annars kölluð "algjörlega óásættanleg" og "brot á alþjóðalögum". 12.1.2007 15:45
Hilary heldur til Íraks Hillary Clinton, öldungardeildarþingmaður Demókrata, er á leiðinni til Íraks um helgina. Hilary fer ásamt tveimur öðrum þingmönnum til að kynna sér ástandið í landinu eftir mjög umdeilda ákvörðun George Bush að auka herstyrk Bandaríkjamanna í landinu um 21.500 manns. 12.1.2007 15:44
Norsk börn smíðuðu gálga í "Saddams-leik" Árvakur kennari í Follo í Noregi náði að grípa í taumana í tæka tíð þar sem hópur skólabarna í þriðja bekk voru úti á skólalóðinni í Saddams-leik. Leikurinn gekk út á að taka einhvern af hinum börnunum til fanga og þegar kennarinn kom að stóð einn "fanginn" með snöru um hálsinn. 12.1.2007 15:27
Sýfilistilfellum fjölgar ört í Kína Ný skýrsla sem birtist í virtu læknatímariti leiðir í ljós að Kínverjar glíma nú við ört hækkandi tíðni kynsjúkdómsins syphilis. Sjúkdómnum var nánast útrýmt í Kína á sjöunda og áttunda áratugnum en nú þarf að bregðast við vaxandi útbreiðslu á ný. Sérstaklega vekur ugg að leiða má líkur að því að nýsmit annarra kynsjúkdóma haldist í hendur við vaxandi tíðni sýfilis. 12.1.2007 15:19
Stríðsherrar skila vopnunum Nokkrir stríðsherranna sem barist hafa í Sómalíu síðustu 16 árin hafa samþykkt að leggja niður vopn eftir að bardagar í morgun urðu að minnsta kosti 5 manns að bana. Stríðsherrarnir funduðu með forsetanum Abdullahi Yusuf í höfuðborginni Mogadishu í dag þar sem þetta varð niðurstaðan. 12.1.2007 14:14
Átök eftir föstudagsbænir í Bagdad Hópur vígamanna sem grunað er að hafi verið sjíamúslimar réðust til atlögu á súnnímosku þegar föstudagsbænum var að ljúka í Bagdad í dag. Tveir verðir sem vörnuðu þeim inngöngu særðust í árásinni en enginn særðist alvarlega. Mennirnir virtu að vettugi vikulegt bílabann í kringum föstudagsbænir á götum Bagdad. 12.1.2007 13:37
Al-Kaída-menn sagðir í Pakistan Leiðtogar al-Kaída hryðjuverkanetsins hafast við í Pakistan og þaðan vinna þeir að því að styrkja samtökin um allan heim. Þetta er mat Johns Negroponte, yfirmanns leyniþjónustustofnana Bandaríkjanna og verðandi aðstoðarutanríkisráðherra. 12.1.2007 13:30
Flugskeyti skotið að bandarísku sendiráði Talið er að öfgasinnaðir vinstrimenn hafi verið að verki þegar flugskeyti var skotið að sendiráði Bandaríkjanna í Aþenu í Grikklandi í morgun. Enginn særðist í árásinni. 12.1.2007 13:05
Lofar reiðum hermönnum bættum aðstæðum Tony Blair, forsætisráðherra Bretlands, lofaði í dag að bæta aðstæður hermanna í Bretlandi um leið og hann sagði hermönnum að þeir yrðu að halda áfram að berjast til þess að Bretar töpuðu ekki áhrifum sínum á alþjóðavísu. Þetta var í fyrsta skipti sem forsætisráðherrann viðurkennir reiði hermanna og lofar að bregðast við. 12.1.2007 13:04
Karlmenn 30 milljónum fleiri en konurnar Fullorðnir kínverskir karlmenn verða 30 milljónum fleiri en konur á sama aldri innan 15 ára. Þetta orsakast af strangri stefnu stjórnvalda til að ná tökum á fólksfjölgun í Kína, með því að takmarka barneignir við eitt barn á hvert par. Kynbundnar fóstureyðingar hafa verið stundaðar markvisst síðan þá. 12.1.2007 11:35
Segja 70 hirðingja hafa verið drepna í loftárásum í Sómalíu Bresku hjálparsamtökin Oxfam greindu frá því í dag að 70 hirðingjar hefðu verið drepnir í loftárásum sem átti að beina gegn íslamistum í Suður-Sómalíu á síðustu dögum. 12.1.2007 11:33
Bandaríkjamenn handtaka sex Írani Íraski herinn skýrði frá því í kvöld að alþjóðlegt herlið undir forystu Bandaríkjamanna hneppti í dag sex Írana í varðhald eftir að hafa ráðist á ræðismannsskrifstofu Írans í borginni Irbil. Bandaríski herinn sagðist hafa handtekið sex manns á sama svæði en minntist ekkert Írana eða ræðismannsskrifstofu. 11.1.2007 23:30
Prestur dæmdur til dauða Hæstiréttur í Nígeríu hefur dæmt prest til dauða fyrir að hafa brennt sex konur en ein af þeim lést af sárum sínum á sjúkrahúsi. Presturinn, sem kallaður er séra Kóngur, var fundinn sekur um fimm morðtilraunir og eitt morð. 11.1.2007 23:15
Bloggarar metnir til jafns við fjölmiðla Réttaryfirvöld í Washington í Bandaríkjunum hafa ákveðið að leyfa bloggurum að fylgjast með réttarhöldunum yfir Lewis Libby, fyrrum aðstoðarmanni Dick Cheney, til jafns við hefðbundna fjölmiðla. Munu þeir fá alls fjögur sæti við réttarhöldin en búist er við því að Cheney eigi eftir að bera vitni við þau. 11.1.2007 23:00
Samúræji til bjargar! Lögreglan í bænum South Shields í Bretlandi er að reyna að hafa upp á dularfullum samúræja sem birtist upp úr þurru og hjálpaði tveimur lögreglumönnum að verjast þremur vopnuðum glæpamönnum og handtaka þá. Dularfulli samúræjinn hvarf síðan út í næturmyrkrið, sporlaust. 11.1.2007 22:45
Klósettfiskabúr? Þeir sem ætla sér að endurnýja baðherbergið hjá sér á næstunni gætu haft áhuga á því nýjasta í bransanum, klósett sem er líka fiskabúr. Klósettið, sem á frummálinu er kallað „Fish 'n Flush“, er gegnsætt og samanstendur af vatnskassa og fiskabúri. 11.1.2007 22:30
Átök í Líbanon Vígamenn múslima og líbanskar hersveitir börðust í dag í suðurhluta Líbanon og þurftu hundruð manna að flýja heimili sín vegna þess. Hefur fólkið meðal annars leitað sér hælis í moskum nálægt heimilum sínum. Samkvæmt heimildum meiddust tveir hermenn þegar á þá var skotið við leit í bíl og varð það upphafið að átökunum. 11.1.2007 22:15
NATO banar 150 talibönum Norðuratlantshafsbandalagið (NATO) skýrði frá því í dag að það hefði banað allt að 150 vígamönnum talibana í bardögum í austurhluta Afganistan síðastliðna daga. Herlið frá Pakistan hjálpaði til við undirbúning bardagans. 11.1.2007 21:47
Bangladesh frestar kosningum Yfirvöld í Bangladesh hafa frestað umdeildum kosningum sem áttu að fara fram þann 22. janúar næstkomandi þar sem forseti millibilsstjórnar landsins sagði af sér í dag. Ástæðan fyrir afsögn hans er talin vera mikil gagnrýni á hann fyrir að undirbúa kosningarnar ekki nógu vel en talið er að afsögn hans eigi eftir að draga úr óstöðugleika í landinu. 11.1.2007 21:11
Refsiaðgerðir hafa ekki áhrif á Íran Yfirmaður leyniþjónustna Bandaríkjanna, John Negroponte, sagði í ræðu í öldungadeild Bandaríska þingsins í kvöld að Íran gæti staðið af sér þær efnhagsþvinganir sem alþjóðasamfélagið hefur sett á landið. Bandaríkjastórn bindur einmitt vonir við hið andstæða, nefnilega að Íran eigi eftir að láta undan þrýstingnum og hætta við kjarnorkuverkefni sín. 11.1.2007 20:53
Þingið rýmkar lög um stofnfrumurannsóknir Bandaríska þingið, sem nú er undir stjórn demókrata, greiddi í dag atkvæði með þeirri tillögu að aflétta takmörkunum á fjármögnun stofnfrumurannsókna sem George W. Bush, forseti Bandaríkjanna, hafði áður sett. 11.1.2007 20:29
Gates segir aukninguna til skamms tíma Varnarmálaráðherra Bandaríkjanna, Robert Gates, sagði við fréttamenn í dag að hann búist við því að aukningin á hermönnum í Írak myndi aðeins vara í nokkra mánuði fremur en ár. 11.1.2007 20:09