Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
Líklegast að útbreitt ónæmi haldi dreifingu veirunnar í skefjum Yfirlæknir á Landspítala segir að fjöldi sjúklinga sem liggja inni vegna Covid-19 sé í nokkru jafnvægi. Hann segir óljóst hvort búast megi við mikilli fjölgun smitaðra eða hvort víðtækt ónæmi komi í veg fyrir stórar bylgjur. 18.6.2022 14:57
Algjörlega óboðlegt að leggja líf fólks í hættu Bæjarstjórn Vesturbyggðar og sveitarstjórn Tálknafjarðarhrepps segir margoft hafa verið bent á það öryggisleysi sem fylgi því að vera með gamalt skip í siglingum yfir Breiðafjörð sem hafi ítrekað bilað. Breiðafjarðarferjan Baldur varð vélarvana í Breiðafirði í morgun, einungis nokkrum mínútum eftir að hún fór frá landi. 18.6.2022 14:08
Alltaf hætta á ferðum þegar skip séu svo nálægt klettum og landi Yfir hundrað farþegar bíða eftir því að komast í land eftir að farþegaferjan Baldur varð vélarvana á Breiðafirði í morgun, nokkrum mínútum eftir að hún lagði úr höfn frá Stykkishólmi. 18.6.2022 12:53
Hádegisfréttir Bylgjunnar Í hádegisfréttum Bylgjunnar segjum við frá hrakförum ferjunnar Baldurs, sem varð vélarvana á Breiðafirði fyrr í dag með yfir hundrað farþega um borð. Rætt verður við Ásgrím Ásgrímsson, sem stýrir aðgerðum Landhelgisgæslunnar, í beinni útsendingu. 18.6.2022 11:53
Þyngdu dóm manns sem beitti alvarlegu og langvinnu heimilisofbeldi Landsréttur þyngdi á fimmtudag fangelsisdóm karlmanns sem sakfelldur var fyrir brot í nánu sambandi og dæmdi manninn í eins og hálfs árs fangelsi. Héraðsdómur Reykjaness hafði áður dæmt manninn í árs fangelsi. 18.6.2022 10:36
Ferjan Baldur vélarvana með 111 um borð Farþegaferjan Baldur er vélarvana á Breiðafirði um 300 metra frá landi með 111 um borð. Þyrla Landhelgisgæslunnar er á leiðinni á staðinn og verður þar til taks. 18.6.2022 10:33
23 seglbátar til Fáskrúðsfjarðar eftir að óveður batt enda á alþjóðlega siglingarkeppni Siglingakeppnin Vendée Arctique hefur verið stöðvuð vegna slæmra veðurskilyrða. Til stóð að láta 25 keppendur sem lögðu af stað frá Frakklandi seinasta sunnudag sigla hringinn í kringum Ísland áður þeir sneru aftur til sjávarþorpsins Les Sables d'Olonne. 18.6.2022 08:55
25 hjúkrunarfræðingar hætt eða sagt upp störfum á bráðamóttöku Alls hafa 25 hjúkrunarfræðingar hætt störfum eða sagt upp á bráðamóttöku Landspítalans á þessu ári. Þar af hafa þrettán þegar hætt störfum og nokkrir lækkað starfshlutfall sitt en tólf til viðbótar hafa sagt upp á allra síðustu vikum. 18.6.2022 07:28
Logi hættir sem formaður Samfylkingarinnar í haust Logi Már Einarsson, formaður Samfylkingarinnar, hefur staðfest að hann muni hætta sem formaður flokksins í haust. Hann segist kveðja formennskuna sáttur en að á Landsfundi í haust þurfi að velja „öðruvísi manneskju“ en hann sjálfan. 17.6.2022 23:29
„Lokapróf gamaldags kúgunartæki feðraveldis embættismanna“ Jón Már Héðinsson, sem lætur nú af starfi skólameistara Menntaskólans á Akureyri, sagði á brautskráningu skólans í dag að hugmyndafræði lokaprófa væri ekki lengur ráðandi í skólanum, enda væru lokapróf gamaldags kúgunartæki feðraveldis embættismanna. 17.6.2022 21:31
„Fólk hefði ekki getað verið þarna mikið lengur“ Á annað hundrað björgunarsveitarmanna af öllu Suðurlandi og víðar að tóku þátt í einni umfangsmestu aðgerð síðari tíma á Vatnajökli í nótt. Hópi fjórtán göngumanna var bjargað úr virkilega erfiðum aðstæðum. Ástandið var orðið krítískt. 17.6.2022 20:47
Egill Thorarensen komin á stall á Selfossi Stytta af Agli Thorarensen hefur verið sett á stall á torginu í miðbæ Selfoss en Egill var mikill athafnamaður á Suðurlandi í áratugi og ruddi Selfoss braut, sem höfuðstað Suðurlands og Þorlákshöfn, sem hafnarbæ. 17.6.2022 20:03
Ferðaðist til Kaupmannahafnar til að skila orðu afa síns til drottningar Kjartan Þorbjörnsson, betur þekktur sem Golli, gerði sér sérstaka ferð, í tilefni 17. júní, frá Helsingborg til Kaupmannahafnar til að skila Dannebrogsorðunni sem afi hans, Gísli Konráðsson, hlaut 43 árum áður. 17.6.2022 19:34
Heiður fyrir pólska samfélagið á Íslandi Sylwia Zajkowska er fjallkonan árið 2022. Hún flutti ávarp á Austurvelli í dag í tilefni af þjóðhátíðardegi Íslendinga. Sylwia er pólsk og segir það mikinn heiður að hafa fengið að gegna hlutverki fjallkonunnar. 17.6.2022 19:25
Brautskráði 150 stúdenta og lét af störfum eftir 42 ára starf hjá MA Menntaskólanum á Akureyri var slitið í 142. sinn við brautskráningu stúdenta í dag, 17. júní. Alls voru 150 stúdentar brautskráðir frá skólanum. Brautskráningin var síðasta verk Jóns Más Héðinssonar, skólameistara, sem lét af störfum eftir 42 ár hjá skólanum auk tveggja annarra starfsmanna sem hafa unnið þar í áratugi. 17.6.2022 18:02
Forseti sæmdi fjórtán fálkaorðu Guðni Th. Jóhannesson forseti Íslands sæmdi fjórtán manns heiðursmerki hinnar íslensku fálkaorðu við hátíðlega athöfn á Bessastöðum í dag. 17.6.2022 16:05
Foreldrum brugðið þegar hoppukastali tæmdist Rafmagni sló út með með þeim afleiðingum að hoppukastali í Hljómskálagarðinum tæmdist af lofti. Að sögn sjónarvotta var börnum og foreldrum þeirra nokkuð brugðið en viðburðastjóri hjá Reykjavíkurborg segir engin börn hafa verið í hættu. 17.6.2022 14:47
Sylwia Zajkowska er fjallkona ársins 2022 Sylwia Zajkowska er fjallkona ársins 2022. Hún flutti ávarp fjallkonunnar á Austurvelli fyrir skömmu en það var samið af Brynju Hjálmsdóttur. 17.6.2022 13:38
„Ísland er og verður herlaus þjóð sem byggir fullveldi sitt á virðingu“ Heimsfaraldur, stríð í Úkraínu og auðlindir Íslands voru meðal þess sem Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra talaði um í ávarpi sínu í tilefni þjóðhátíðardags Íslendinga. Dagurinn markar 78 ára afmæli íslenska ýðveldisins. 17.6.2022 12:35
Segir að Assange muni áfrýja: „Þessi slagur heldur áfram“ Innanríkisráðherra Bretlands hefur gefið grænt ljós á framsal Julians Assange, stofnanda Wikileaks, frá Bretlandi til Bandaríkjanna. Ritstjóri Wikileaks segir um pólitískar ofsóknir að ræða og málinu sé ekki lokið fyrir dómstólum. 17.6.2022 11:36
Tveir fluttir á slysadeild eftir að byggingaverkamönnum sinnaðist Tveimur byggingaverkamönnum úr hópi sem var við vinnu við hús á Seltjarnarnesi sinnaðist á ellefta tímanum í morgun með þeim afleiðingum að tveir voru fluttir á sjúkrahús og einn handtekinn. 17.6.2022 11:30
Göngugarparnir á leið til Hafnar þar sem kjötsúpa bíður þeirra Fjórtán göngugarpar, sem hófu göngu niður af Hvannadalshnjúki síðdegis í gær en óskuðu eftir aðstoð björgunarsveita, eru komnir inn í hlýja bíla og eru á leið til Hafnar, þar sem kjötsúpa bíður þeirra. 17.6.2022 08:30
Land rís enn við Öskju Land við Öskju hefur risiðum alls þrjátíu sentímetra frá því að landris fór að mælast við vesturjaðar Öskjuvatns við Ólafsgíga í ágúst í fyrra. Það þýðir að landris hefur verið um 2,5 sentímetrar á mánuði síðan þá. 17.6.2022 08:02
Sameinað Sveitarfélag Skagafjarðar og Akrahrepps fær nafn Sveitarstjórn Skagafjarðar samþykkti á fundi 13. júní síðastliðinn að nýtt nafn sameinaðs Sveitarfélags Skagafjarðar og Akrahrepps skuli bera nafnið Skagafjörður. 17.6.2022 07:45
Fjórir handteknir í nótt vegna líkamsárása Mikið var um að vera hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu í nótt ef marka má dagbók lögreglu. Sextíu og tvö mál voru skráð frá klukkan 17 síðdegis í gær þar til klukkan fimm í morgun. Alls gistu átta í fangageymslum lögreglu í nótt. 17.6.2022 07:29
Ný loftferðalög skerða skipulagsvald sveitarfélaga yfir flugvöllum Ný ákvæði laga um loftferðir, sem Alþingi samþykkti á lokasprettinum í fyrrinótt, gera skipulagsreglur flugvalla rétthærri skipulagi sveitarfélaga. Bæði Samband íslenskra sveitarfélaga og Reykjavíkurborg lögðust gegn lagabreytingunni og sagði fráfarandi borgarstjórnarmeirihluti í Reykjavík hana kollvarpa því skipulagsvaldi sem sveitarfélög hefðu yfir flugvöllum. 17.6.2022 06:36
Erlendur ferðamaður lést í slysinu við Vík Ökumaður fólksbifreiðar, erlendur karlmaður á sjötugsaldri, lést í bílslysinu sem varð austan við Vík í Mýrdal í dag. Eiginkona hans var flutt alvarlega slösuð með þyrlu Landhelgisgæslunnar á Landspítalann. 16.6.2022 22:51
Halda til móts við gönguhóp í vandræðum á Hvannadalshnjúki Björgunarsveitarfólk af Suður- og Suðausturlandi er nú á leið að gönguhópi sem villtist á Hvannadalshnjúki í dag. Enginn er slasaður í hópnum en björgunarsveitir vonast til þess að komast að fólkinu á næstu klukkutímunum. 16.6.2022 22:00
Samkomur á morgun gætu leitt til mikillar fjölgunar: „Við þurfum að ganga hægt um gleðinnar dyr“ Alvarleg veikindi vegna Covid hafa aukist talsvert síðustu daga. Yfirlæknir á Landspítala segir stöðuna afleita. Tíminn muni leiða í ljós hvort þörf sé á aðgerðum í samfélaginu. 16.6.2022 20:30
„Við hefðum átt að vanda okkur betur“ Framkvæmdastjóri Orku náttúrunnar segir að fyrirtækið hefði átt að vanda sig betur í máli Áslaugar Thelmu Einarsdóttur, fyrrverandi forstöðumanns, sem stefndi fyrirtækinu fyrir ólögmæta uppsögn. Orkuveita Reykjavíkur var dæmd skaðabótaskyld í málinu í Landsrétti í dag. 16.6.2022 19:20
Dómur yfir yfirmönnum Plastgerðarinnar vegna banaslyss staðfestur Landsréttur staðfesti dóm fyrir manndráp af gáleysi yfir tveimur yfirmönnum Plastgerðar Suðurnesja vegna banaslyss sem varð á vinnustaðnum sumarið 2017. Þeir voru einnig sakfelldir fyrir brot á lögum um öryggi á vinnustað sem rétturinn taldi ófyrnd. 16.6.2022 18:56
Einn fluttur með þyrlu Gæslunnar á Landspítalann Þyrla Landhelgisgæslunnar lenti við Landspítalann með mann sem slasaðist í alvarlegu umferðarslysi austan við Vík í Mýrdal nú um klukkan 18:00. Bifreiðar úr gangstæðri átt skullu saman á þjóðvegi 1 við Kúðafljót. 16.6.2022 18:11
Margir þeirra sem smitast nú hafa ekki fengið fjórðu bólusetninguna Sóttvarnalæknir segir að margir þeirra sem nú greinist með kórónuveiruna hafi ekki fengið fjórða skammt bóluefnis og það kunni að vera orsök fjölgunar sjúklinga með alvarleg veikindi. Hann sér ekki fyrir sér að koma aftur á takmörkunum vegna fjölgunar smitaðra. 16.6.2022 17:58
Alvarlegt umferðarslys austur af Vík Alvarlegt umferðarslys varð á Þjóðvegi 1 við Kúðafljót austur af Vík um klukkan 15:50 í dag þar sem bifreiðar úr gagnstæðum áttum rákust saman. 16.6.2022 17:09
„Ekki hægt að fjalla um strandveiðar öðruvísi en að tala um kvótakerfið“ Sigurður Þórðarson, meðlimur Strandveiðifélagsins, segir að Anna Björk Árnadóttir, framkvæmdastjóri Sjómannadagsins 2022, hafi ávítt sig fyrir að hafa verið með pólitískan áróður á deginum og sakað félagið um að hafa skemmt hátíðarhöld fyrir gestum. Sigurður segir að ekki sé hægt að fjalla um strandveiðar nema að fjalla um kvótakerfið. 16.6.2022 16:51
Áslaug Thelma hafði betur gegn Orku náttúrunnar í Landsrétti Landsréttur sneri í dag við dómi Héraðsdóms Reykjavíkur í máli Áslaugar Thelmu Einarsdóttur, fyrrverandi forstöðumanns einstaklingssviðs Orku náttúrunnar (ON), gegn fyrirtækinu. ON hyggst una niðurstöðunni og ætlar ekki að áfrýja. 16.6.2022 14:58
Sendiherra Úkraínu og borgarstjóri heimsóttu Kænugarð Dagur B. Eggertsson, borgarstjóri Reykjavíkur og Olga Dibrova, sendiherra Úkraínu í Finnlandi og á Íslandi, gengu um hádegi í dag saman frá ráðhúsinu yfir í Kænugarð, torgið á horni Garðastrætis og Túngötu. 16.6.2022 13:31
Landspítalinn kemur á grímuskyldu og takmarkar heimsóknir Landspítalinn hefur tekið upp grímuskyldu á ný og takmarkað heimsóknir aðstandenda vegna mikillar fjölgunar Covid-19 smita síðustu daga. Nú eru þrjátíu sjúklingar inniliggjandi með veiruna, þar af tveir á gjörgæslu og annar þeirra í öndunarvél. 16.6.2022 13:15
Útsýnispallur á Bolafjalli opni vonandi á næstunni Útsýnispallur á Bolafjalli hefur ekki enn opnað sökum þess að öryggismál á pallinum eru ekki fyllilega frágengin. Bæjarstjóri Bolungarvíkur segir lokafrágang á pallinum hefjast í næstu viku og hann opni í kjölfarið. Viðhald á veginum upp á fjallið hefur einnig gengið erfiðlega í vetur en Landhelgisgæslan fer með umsjá hans. 16.6.2022 13:02
Seðlabankinn gæti aftur gripið í taumana á fasteignamarkaði Varaseðlabankastjóri útilokar ekki að gripið verði til frekari aðgerða á fasteignalánamarkaði haldi ójafnvægið þar áfram. Hefði hann getað séð inn í framtíðina hefði Seðlabankinn fyrr þrengt lánsskilyrði fyrstu kaupenda 16.6.2022 13:00
„Þessir gömlu stálfákar eru eins og að setjast í mjúkan lazyboy“ Að setjast undir stýri í gömlum stálfáki er líkt og að láta sig sökkva ofan í mjúkan hægindastól. Þetta segir formaður Bílaklúbbs Akureyrar um hina haganlega smíðuðu fornbíla. Þrjú hundruð af glæsilegustu bílum landsins, gömlum og nýjum, verða á hátíðarsýningu á bíladögum á Akureyri. 16.6.2022 12:02
Fólk sniðgangi ferðalög til Íslands vegna hvalveiða Könnun sem Maskína framkvæmdi fyrir Náttúruverndarsamtök Íslands leiðir í ljós að meirihluti landsmanna, eða um 65 prósent, telja hvalveiðar hafa neikvæð áhrif á orðspor Íslands. Formaður Samtaka ferðaþjónustunnar segir kominn tími til að stjórnvöld taki mark á þeim áhrifum sem hvalveiðar hafi á ferðaþjónustuna í landinu. 16.6.2022 11:53
Hádegisfréttir Bylgjunnar Í hádegisfréttum gerum við upp þinglokin í nótt og förum yfir hvaða mál voru samþykkt á lokametrum þingsins. 16.6.2022 11:32
Aukning í alvarlegum veikindum vegna Covid 27 einstaklingar liggja inni á Landspítala með eða vegna Covid-19. Tveir eru á gjörgæsludeild og einn þarf á aðstoð öndunarvélar að halda. 16.6.2022 11:06
Bessastaðir opnir almenningi á laugardaginn Forsetasetrið að Bessastöðum verður opið almenningi á laugardaginn. Forsetahjónin Guðni Th. Jóhannesson og Eliza Reid munu þar taka á móti gestum og býðst fólki að skoða staðinn milli klukkan 13 og 16. 16.6.2022 11:05