Fleiri
Sjá næstu 50 fréttir
„Trén hafa virkilega miklar tilfinningar“ Bæjarfulltrúi minni hlutans í Árborg undrast mjög aðgerðir bæjaryfirvalda í gærkvöldi þegar níu aspir við þjóðveg eitt, á Austurvegi á Selfossi, voru felldar. Bæjarstjórinn segir málið snúast fyrst og fremst um umferðaröryggi og um ósk Vegagerðarinnar að trén yrðu felld. 15.9.2021 15:00
Skúmur, Sverð, Vopna og Villiljós fært á mannanafnaskrá Blake, Drómi, Sasi, Skúmur, Vopna og Úlfgrímur eru meðal þeirra eiginnafna sem samþykkt voru á fundi mannanafnanefndar þann 9. september og færð á mannanafnaskrá. 15.9.2021 14:58
Anton Kristinn segir ekkert til í fullyrðingu um 50 milljóna króna sekt Anton Kristinn Þórarinsson segir ekki eiga við rök að styðjast að aðilar í undirheimum hafi ætlað að sekta hann um tugi milljóna króna. Hann þvertekur fyrir að hafa vitað af fyrirætlunum Angjelin Sterkaj um að gera Armando Beqirai mein. Hefði hann vitað það hefði hann tekið fyrir það. 15.9.2021 14:34
Fór í heimildarleysi inn til konu sem sakaði hann um nauðgun Karlmaður um fimmtugt hefur verið dæmdur í 30 daga fangelsi fyrir að hafa farið óboðinn inn á heimili á Siglufirði að morgni dags í maí fyrir rúmu ári. 15.9.2021 14:13
Skarðshlíðarleikskóli lokaður í dag vegna smits meðal nemenda Skarðshlíðarleikskóli í Hafnarfjarðarbæ var lokaður í dag vegna Covid-19 smits. Um er að ræða eitt barn af um 80 sem skráð eru á fjögurra deilda leikskólann. 15.9.2021 14:05
Grunnskólanum lokað vegna gruns um smit Grunur leikur á Covid-19 smiti í grunnskólanum á Reyðarfirði og hefur því verið ákveðið að loka skólanum í dag meðan unnið er að kortlagningu mögulegs smits. 15.9.2021 13:44
Fangelsi verði ekki heljarvist Mikilvægt er að gera umbætur á Litla-Hrauni og bæta menntun fanga. Þetta er á meðal þess sem stýrihópur um málefni fanga leggur til í nýrri skýrslu. 15.9.2021 13:30
Sérfræðingur segir öryggi minna eftir að aspirnar voru felldar Níu aspir voru felldar á Selfossi í gærkvöldi við fámenn mótmæli viðstaddra. Einn bæjarbúi faðmaði ösp í varnarskyni í skamma stund en fékk henni ekki bjargað. Konan er tekin tali í frétt hér að neðan. 15.9.2021 13:18
Óku 300 kílómetra norður í land með föt og bíl fyrir Angjelin og Claudiu Rúmenskt par sem bjó við hliðina á Angjelin Sterkaj og Claudiu Sofiu Coelho Carvalho í Brautarholti 4 segja að Angjelin Sterkaj hafi oft verið með skotvopn heima hjá sér. Parið ók norður í land með bíl og föt fyrir Angjelin og Claudiu eftir að Armando Beqirai var ráðinn bani í Rauðagerði rétt fyrir miðnætti laugardagskvöldið 13. febrúar. 15.9.2021 12:12
Barn lagt inn á sjúkrahús með Covid-19 í fyrsta sinn Unglingsdrengur var í gær lagður inn á Landspítalann vegna Covid-19. Þetta er í fyrsta skipti sem barn er lagt inn á spítala hérlendis með sjúkdóminn eftir að faraldurinn hófst. 15.9.2021 12:07
Moltugerð í Gaju stöðvuð tímabundið vegna myglu Fullvinnsla á lífrænum úrgangi í moltu í Gaju, gas- og jarðgerðarstöð SORPU, var stöðvuð tímabundið eftir að myglugró fundust í þaki og burðarvirki hennar í ágúst. SORPA ætlar að hækka gjaldskrár sínar til að standa undir kostnaði við að flytja úrgang úr landi til brennslu. 15.9.2021 11:46
Flúðu hitann frá nýja hraunstraumnum: „Þetta er á þeim hraða að þú hleypur ekkert frá þessu“ Gosstöðvunum við Fagradalsfjall hefur verið lokað vegna óvænts hraunstraums sem rennur nú á miklum hraða í Nátthaga. Gífurlegur hiti er við hraunstrauminn og hafa björgunarsveitarmenn þurft að hörfa undan honum. 15.9.2021 11:43
Bein útsending: Hádegisfréttir Bylgjunnar Í hádegisfréttum fjöllum við um nýjustu vendingar á gosstöðvunum í Geldingadölum en almannavarnir rýma nú svæðið í ljósi þess að hraun tók skyndilega að renna á miklum hraða í Nátthaga. 15.9.2021 11:31
Rýma svæðið eftir að hraunstraumur fór óvænt að renna hratt í Nátthaga Lögregla á Suðurnesjum og björgunarsveitir vinna nú að rýmingu svæðisins á gosstöðvunum í Fagradalsfjalli eftir að hraunstraumur fór óvænt að renna suður Geldingadali og í Nátthaga. 15.9.2021 11:22
26 greindust með kórónuveiruna innanlands í gær Alls greindust 26 með kórónuveiruna innanlands í gær. Átján þeirra sem greindust innanlands í gær voru í sóttkví við greiningu, eða 69 prósent. Átta voru utan sóttkvíar, eða 31 prósent. 15.9.2021 10:48
Ekkert mál um horfið vín úr kjallara Bessastaða til skoðunar Sigurður G. Guðjónsson lögmaður hefur sett fram alvarlegar ásakanir þess efnis að starfsmaður forsetaembættisins hafi gengið í vínkjallara Bessastaða og haft þaðan verulegt magn víns til einkanota. Embættið segir ekkert slíkt mál til skoðunar. 15.9.2021 10:34
Kölluð út vegna göngufólks í sjálfheldu á Bolafjalli Björgunarsveit í Bolungarvík var kölluð út vegna göngufólks í sjálfheldu í Bolafjalli ofan við Skálavík um klukkan 22 í gærkvöldi. 15.9.2021 09:30
Kvistaborgarbörn í Safamýrarskóla næstu mánuði vegna rakaskemmda Starfsemi leikskólans Kvistaborg í Fossvogi færist tímabundið í Safamýrarskóla næstu mánuði vegna framkvæmda sem framundan eru í húsnæði leikskólans vegna rakaskemmda og uppfærslu á húsnæði leikskólans. 15.9.2021 07:29
Yngjandi undravatn í pottunum í Stykkishólmi Einstakt vatn rennur í heitu pottana í Stykkishólmi en það er blandað náttúrulegum efnum sem finnast hvergi annars staðar á landinu. Forstöðumaðurinn líkir vatninu við undravatn, segir það yngjandi og geta ráðið bug á ýmsum húðsjúkdómum. 15.9.2021 06:36
Þrír handteknir og tveir fluttir á sjúkrahús í kjölfar líkamsárásar Lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu bárust nokkrar tilkynningar um ölvun og grunsamlegar mannaferðir í gærkvöldi. Í tilkynningu kemur ekki fram nákvæmlega hvar en allar heyrðu þær undir umdæmið Austurbær, Miðbær, Vesturbær og Seltjarnarnes. 15.9.2021 06:32
Tilkynnt um líkamsárás í kjölfar dyraats Frá 19 í gærkvöldi til 5 í morgun voru 45 mál skráð í málaskrá lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu. Þá gista fimm einstaklingar fangageymslur. Þetta kemur fram í tilkynningu frá lögreglunni. 15.9.2021 06:25
Sprengjuþoturnar flognar frá Íslandi Bandarísku sprengjuþoturnar þrjár, hinar torséðu B-2 Spirit, eru farnar frá Íslandi. Þetta var í fyrsta sinn sem Keflavíkurflugvöllur var nýttur sem bækistöð fyrir B-2 sprengjuþotur en áður hafði aðeins ein flugvél slíkrar gerðar komið til landsins til stuttrar eldsneytismillilendingar. 14.9.2021 23:27
Faðmaði öspina áður en hún var felld Í kvöld hófst vinna við að fella níu aspir við Austurveg á Selfoss í nafni umferðaröryggis. Óánægður bæjarbúi faðmaði eina öspina áður en hún var felld. 14.9.2021 23:16
Nýjar takmarkanir fá misjafnar viðtökur: Menntskælingar í skýjunum en hárgreiðslumenn brjálaðir Nýjar samkomutakmarkanir sem taka gildi á miðnætti leggjast misjafnlega í fólk. Hárgreiðslufólk skilur ekkert í því að þurfa áfram að bera grímur á meðan menntaskólanemar geta ekki beðið eftir að komast aftur á skólaböll. 14.9.2021 19:27
Reykjavíkurmódelið gæti myndað ríkisstjórn Flokkarnir sem nú mynda meirihluta í borgarstjórn Reykjavíkur gætu myndað fjögurra floka ríkisstjórn að loknum kosningum samkvæmt nýrri könnun Maskínu fyrir Stöð 2, Vísi og Bylgjuna. Núverandi stjórnarmeirihluti er kolfallinn samkvæmt könnuninni. 14.9.2021 19:21
Fjöldi utankjörfundaratkvæða geti haft áhrif á kosninganótt Fleiri hafa kosið utan kjörfundar nú en á sama tíma fyrir síðustu Alþingiskosningar. Fyrir fjórum árum höfðu um 4.700 greitt atkvæði á þessum tíma, en nú hafa um 9.500 manns greitt atkvæði utan kjörfundar. Sú staðreynd gæti haft áhrif á framvinduna á kosninganótt. 14.9.2021 19:14
Of hátt veggjald vinni gegn tilgangi nýrrar Ölfusárbrúar Áhyggjur eru af því að hátt veggjald yfir nýja Ölfusárbrú muni komi í veg fyrir að hún dragi úr umferð þeirra inn á Selfoss sem eiga ekki erindi þangað. Forseti bæjarstjórnar bindur vonir við að veggjaldið verði ekki hærra en 200 krónur. 14.9.2021 18:40
Kvöldfréttir Stöðvar 2 Nýjar samkomutakmarkanir sem taka gildi á miðnætti leggjast misjafnlega í fólk. Hárgreiðslufólk skilur ekkert í því að þurfa áfram að bera grímur á meðan menntaskólanemar geta ekki beðið eftir að komast aftur á skólaböll. 14.9.2021 18:01
Synjun um framboðslista Ábyrgrar framtíðar staðfest Landskjörstjórn hefur staðfest úrskurð yfirkjörstjórnar Suðurkjördæmis um að framboðslista sem Ábyrg framtíð skilaði inn yrði hafnað. Grundvöllur úrskurðarins var sá að tilskyldum meðmælafjölda var ekki náð. 14.9.2021 17:38
Kosningapallborðið: „Nú heyrist þessi fagri söngur í kosningabaráttunni“ Fulltrúar Flokks fólksins, Viðreisnar og Vinstri grænna tókust á í bráðfjörugum umræðum um pólitík í útsendingarstúdíói Vísis. 14.9.2021 17:26
Hættur að styðja ríkisstjórnina ef það væri ekki svona stutt í kosningar Jón Gunnarsson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, er ósáttur með að umhverfisráðherra friðlýsi svæði hægri vinstri á meðan þing er í fríi. Við aðrar kringumstæður væri hann hættur stuðningi við ríkisstjórnina. 14.9.2021 16:30
Finnbogi Jónsson er látinn Finnbogi Jónsson verkfræðingur og fyrrverandi stjórnarformaður Samherja lést þann níunda september síðastliðinn í Vancouver í Kanada. Finnbogi lét mjög að sér kveða í íslensku atvinnulífi og sat í stjórn fjölmargra félagasamtaka, fyrirtækja og stofnana. Greint er frá andláti Finnboga á vefsíðu Samherja. 14.9.2021 16:13
Aflétta óvissustigi vegna Skaftárhlaups Ríkislögreglustjóri hefur í samráði við lögreglustjórann á Suðurlandi ákveðið að aflétta óvissustigi almannavarna vegna hlaups í Skaftá. Hlaupið er yfirstaðið. 14.9.2021 14:27
Atlagan í Rauðagerði tók innan við mínútu Sérfræðingur í að vinna myndefni kom fyrir dóminn í Rauðagerðismálinu í dag og útskýrði hvernig hann hefði notað upplýsingar úr ólíkum áttum, svo sem eftirlitsmyndavélum og farsímagögn, til að búa til myndband sem sýnir atburðarásina laugardagskvöldið 13. febrúar þegar Armando Beqirai var ráðinn bani við heimili sitt í Rauðagerði í Reykjavík. 14.9.2021 14:20
Fella níu aspir á Austurvegi á Selfossi: „Það er eðlilegt að fólki bregði“ Níu tignarlegar aspir verða felldar á Austurvegi á Selfossi í kvöld. Markmiðið með þessu er að auka umferðaröryggi í götunni. Bæjarstjóri segir einhverja óánægða með ákvörðunina og að eðlilegt sé að einhverjum bregði við fréttir af framkvæmdinni. 14.9.2021 14:18
Íslendingur á leið á norska Stórþingið Rauði flokkurinn sem er lengst til vinstri í norskum stjórnmálum vann stórsigur í þingkosningunum í Noregi í gær. Flokkurinn fékk átta menn kjörna en fékk einn í síðustu kosningum. Meðal þeirra sem var kosinn í gær er hálfíslenskur karlmaður búsettur í Stafangri. 14.9.2021 14:01
Hefði viljað ganga lengra í dag Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir dómsmálaráðherra hefði viljað ganga lengra í tilslökunum á sóttvarnatakmörkunum innanlands. Hún hefði meðal annars vilja afnema grímuskyldu. 14.9.2021 13:29
Bein útsending: Heilbrigðismál sem kosningamál „Heilbrigðismál eru kosningamál,“ bergmálar í fjölmiðlaumfjöllun í aðdraganda Alþingiskosninga. Heilbrigðiskerfið hefur gengið í gegnum mikla þolraun á síðustu misserum. En jafnvel þótt heimsfaraldrinum linni er krísa heilbrigðisþjónustunnar langt í frá í baksýnisspeglinum. 14.9.2021 13:16
Inga Sæland, Guðmundur Ingi og Hanna Katrín tókust á í Pallborðinu Fulltúar Vinstri grænna, Viðreisnar og Flokks fólksins mættu í beina útsendingu hjá Heimi Má Péturssyni fréttamanni í Pallborðinu á Vísi í dag. Þetta er fjórða og síðasta pallborðsumræðan með fulltrúum flokka sem bjóða fram til Alþingis í næstu viku. 14.9.2021 13:13
Lögreglumenn sáu hvergi haglabyssu heima hjá Armando Lögreglumenn, sem sinntu rannsókn á vettvangi morðsins í Rauðagerði í febrúar, segjast ekki hafa séð nein ummerki um að haglabyssa hafi verið á heimilinu. Angjelin Sterkaj hélt því fram við vitnaleiðslur í gær að hann hafi skotið Armando Beqirai í sjálfsvörn, eftir að Armando teygði sig eftir haglabyssu. 14.9.2021 13:04
Ríkisstjórnin kolfallin samkvæmt könnun Maskínu Ríkisstjórnin er kolfallin samkvæmt nýrri könnun Maskínu fyrir Bylgjuna, Stöð 2 og Vísi og fengju stjórnarflokkarnir samanlagt aðeins tuttugu og níu þingmenn. 14.9.2021 12:14
Ný reglugerð tekur gildi á miðnætti: 500 mega koma saman og opnunartími lengdur Á miðnætti tekur gildi ný reglugerð um sóttvarnaaðgerðir en samkvæmt henni munu 500 geta komið saman án takmarkana og opnunartími skemmtistaða verður lengdur um klukkustund, það er að segja að staðirnir mega hleypa gestum inn til miðnættis en verða að vera búnir að loka klukkan eitt. 14.9.2021 11:47
Inga keypti íbúðina af leigufélagi öryrkja Hússjóður Öryrkjabandalagsins seldi Ingu Sæland, formanni og þingmanni Flokks fólksins, íbúð sem hún hefur leigt undanfarin ár í febrúar. Á þriðja hundrað manns bíða enn eftir að leigja íbúð af sjóðnum en ekki hefur verið tekið við nýjum umsóknum í um þrjú ár. 14.9.2021 11:37
Bein útsending: Hádegisfréttir Bylgjunnar Í hádegisfréttum fjöllum við um væntanlegar tilslakanir í sóttvarnaaðgerðum hér innanlands en ríkisstjórnin situr nú á fundi og ræðir minnisblað Þórólfs Guðnasonar sóttvarnalæknis. 14.9.2021 11:32
Aldrei séð skotvopn á heimilinu í Rauðagerði Ekkja Armando Beqirai, sem var skotinn til bana fyrir utan heimili sitt við Rauðagerði í febrúar, segir að ekkert skotvopn hafi verið geymt á heimili þeirra, þrátt fyrir staðhæfingu Angjelins Sterkaj um það fyrir dómi í gær. Þetta kom fram þegar hún vitnaði fyrir dómi í morgun við aðalmeðferð málsins í Héraðsdómi Reykjavíkur 14.9.2021 10:52