Fleiri fréttir Rice á stormasömum fundi Condoleezza Rice kynnti ráðamönnum í Líbanon í gær tillögur um að líbanskar og alþjóðlegar hersveitir gæti friðar eftir að vopnahlé kemst á. Hizbollah sýnir hugmyndum um vopnahlé engan áhuga. 25.7.2006 07:30 Metár í utanlandsferðum Það er ekki logið á ferðagleði landans, eins og kemur skýrast fram hjá íslenskum ferðaskrifstofum þessa dagana. Uppselt er í flestar ferðir til sólarlanda næstu þrjár vikurnar. Þegar allt er talið eru seld hundruð þúsunda sæta á hverju ári í sólina, skíðaferðir, borgarferðir og sérferðir margs konar. Athygli vekur að mikið er spurt um sólarlandaferðir þegar veður er gott hér á landi. 25.7.2006 07:15 Kísilblanda borin á vegkanta Styrkja ætti vegkanta á þjóðvegum landsins með því að bera á þá blöndu úr sandi, sementi og kísilryki. Þetta segir Steingrímur Sigurjónsson, byggingarfræðingur, hópferðabílstjóri og hugvitsmaður, sem lætur sér ekkert óviðkomandi þegar öryggi mannvirkja er annars vegar, hvort heldur það eru vegir eða byggingar. 25.7.2006 07:15 Önnin kostar 236 þúsund Viðskiptaháskólinn á Bifröst er einn þeirra háskóla sem hafa hækkað skólagjöld sín. Aðstoðarrektor segir hækkanir tilkomnar vegna aukinnar þjónustu við nemendur og að málið sé unnið í fullri sátt. 25.7.2006 07:15 Tilkynnt um fljótandi lík Lögregla bjargaði manni á floti rétt fyrir utan Grafarvog um þrjú leytið í gærnótt. Tilkynnt var að sést hefði lík á floti en þegar lögregla kom á staðinn, á litlum gúmmíbát, var maðurinn á lífi. 25.7.2006 07:00 Mati á eignum RÚV að ljúka Mati á eignum Ríkisútvarpsins lýkur um miðjan ágúst en nefnd fjögurra manna, undir forystu Sigurðar Þórðarsonar ríkisendurskoðanda, hefur unnið að matinu. 25.7.2006 07:00 Vegagerðin hafnar vegaskiltum á ensku Sjóvá-Almennar hefur lagt til við Vegagerðina að settar verði merkingar á ensku á þeim stöðum þar sem malarslitlag tekur við af bundnu slitlagi, en malarvegir reynast mörgum erlendum ferðamönnum skeinuhættir. Vegagerðin telur ekki ástæðu til að setja upp merkingar á ensku. 25.7.2006 07:00 Byggja 200 þjónustuíbúðir „Við ræddum undirbúning á byggingu um það bil 200 þjónustuíbúða og fórum svo vítt og breitt yfir allt sem viðkemur þjónustu við þennan hóp,“ segir Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson borgarstjóri sem sat fyrsta fund samráðsnefndar Reykjavíkurborgar um málefni eldri borgara sem haldinn var í gærdag. 25.7.2006 07:00 Hundruð mót-mælenda áreitt Meira en 500 manns, sem mótmæltu leiðtogafundi átta helstu iðnríkja heims í Pétursborg í síðasta mánuði, urðu fyrir margvíslegu áreiti af hálfu rússnesku lögreglunnar. 25.7.2006 07:00 Fundar í Sviss um Schengen 25.7.2006 06:45 Uppbygging á Vestfjörðum Ferðamálastofa hefur undirritað undir samning vegna verkefna í uppbyggingu og úrbótum á ferðamannastöðum á Vestfjörðum. Þeir sem koma að samningnum eru klasafyrirtækið Sjávarþorpið Suðureyri og Ísafjarðarbær. Sjávarþorpið Suðureyri fær styrk til uppbyggingar á upplýsingamiðlunartorgi sem staðsett er við innkeyrsluna í bæinn, og Ísafjarðarbær fær styrk til úrbóta á aðstöðu fyrir ferðafólk á Hornströndum. 25.7.2006 06:45 Íslendingar aldrei fleiri Íbúum landsins hefur fjölgað um fjögur þúsund það sem af er árinu en það er mesta fjölgun síðan á sjöunda áratug síðustu aldar. Að sögn Ólafar Garðarsdóttur hjá Hagstofunni er rúmur helmingur fjölgunarinnar til kominn vegna fólks sem flyst til landsins en flestir flytjast frá Póllandi. 25.7.2006 06:45 Segir forsvarsmenn Neyðarlínu rjúfa sátt Stjórnarformaður Atlassíma telur framkvæmdastjóra Neyðarlínunnar rjúfa sátt með kæru, sem vísað hefur verið frá. Framkvæmdastjóri Neyðarlínunnar neitar því. Yfirlýsing milli Atlassíma og Neyðarlínunnar var undirrituð 25. nóvember. 25.7.2006 06:45 Logaði allt í slagsmálum 25.7.2006 06:30 Fleiri banaslys í dreifbýli Tveir létu lífið í umferðinni um helgina og eru banaslysin því orðin ellefu það sem af er ári. Sex slysanna ellefu hafa orðið í dreifbýli og fimm í þéttbýli, en í fyrra urðu einnig áberandi flest umferðarslys í dreifbýli. Þrír hafa látist í bifhjólaslysum. 25.7.2006 06:30 Vill ekki eyða ellinni í golfi Stjórn British Petroleum, BP, hefur þrýst á forstjóra félagsins, Browne lávarð, að hann láti sjálfviljugur af störfum árið 2008 þegar hann verður sextugur. Í reglum félagsins er kveðið á um að lykilstjórnendur eigi að láta af störfum við sextugsaldur en það sama gildir ekki um stjórnarmenn eða almenna starfsmenn. 25.7.2006 06:15 Skemmdarverk í Sólbrekkuskógi Fólk sem hafði verið með gleðskap í Sólbrekkuskógi við Seltjörn skildi eftir sig sviðna jörð og var aðkoman ekki fögur þegar umsjónarmenn útivistarsvæðisins sneru aftur til vinnu í gærmorgun. Margvísleg spjöll höfðu verið unnin á eignum og gróðri. 25.7.2006 06:15 Haglabyssan enn ófundin Haglabyssan sem notuð var við skotárás á raðhús við Burknavelli í Hafnarfirði í síðasta mánuði er enn ófundin, samkvæmt upplýsingum lögreglunnar þar í bæ. 25.7.2006 06:00 Kýpur óskar eftir hjálp Utanríkisráðherra Kýpur hefur óskað eftir hjálp Evrópusambandsins við móttöku flóttamanna frá Líbanon, en um 25 þúsund manns hafa flúið frá landinu til Kýpur og búist er við að sú tala þrefaldist. Evrópusambandið mun senda hjálparteymi til Kýpur til að flýta fyrir flutningi erlendra ríkisborgara til síns heima, en fólksfjöldinn hefur aukið álag á hótel og flugvöllinn í Nicosiu til muna. 25.7.2006 06:00 Verða sendir í endurhæfingu Vopnaðir íslamistar handtóku tuttugu manns í Mogadishu, höfuðborg Sómalíu, í síðustu viku fyrir að horfa á klámmyndband. Þetta er eitt af mörgum málum sem hafa komið upp í kjölfar valdatöku íslamskra bókstafstrúarmanna, sem vilja bæta siði landsmanna. 25.7.2006 06:00 Skilyrði Bandaríkjamanna óásættanlega Yfirmaður viðskiptamála hjá Evrópusambandinu segir Bandaríkjamenn ábyrga fyrir því að Doha-samningaviðræðurnar skuli hafa runnið út í sandinn enn á ný. Hann segir skilyrði sem Bandaríkjamenn settu fyrir því að lækka innflutningstolla á landbúnaðarafurðum vera algjörlega óásættanleg. Framkvæmdastjóri Alþjóðaviðskiptastofnunarinnar segir nú fullvíst að samningalotan muni ekki klárast í ár eins og flestir höfðu vonast til. 24.7.2006 22:32 Neytendasamtökin óánægð Neytendasamtökin eru óánægð með viðbrögð ráðherra við hugmyndum matvælaverðsnefndar. Þau segja fulla ástæðu til að velta fyrir sér til hvers þessi nefnd hafi yfir höfuð verið skipuð og telja landbúnaðarráðherra standa í vegi fyrir aðgerðum til lækkunar á matvælaverði. 24.7.2006 22:32 Hitabylgja veldur dauða Tuttugu og tveir hafa látist í hitabylgju í Frakklandi. Fólk hefur einnig látist af völdum hita í öðrum Evrópulöndum síðustu daga en flestir í Frakklandi. 24.7.2006 22:26 Milljónatjón af völdum veggjakrots Skemmdir af völdum veggjakrots nema tugum milljóna króna á ári. Borgarstjóri segir að ekki verði lengur við þetta unað og ætla hann að grípa til aðgerða. Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson hefur verið í miklum hreingerningum um borgina að undaförnu og segir hann að nú verði veggjakrot ekki liðið lengur. Hann segir íbúa um alla borg þurfa að greiða milljónir í hreinsun á eigum sínum og tekur sem dæmi að kostnaður Orkuveitunnar einnar nemi um 25 milljónum króna á ári. 24.7.2006 22:21 Myspace lá niðri Bandaríska heimasíðan Myspace lá niðri og var óaðgengileg í hálfan sólarhring í dag eftir að rafmagnslaust varð í höfuðstöðvum netfyrirtækisins vegna mikillar hitabylgju í Kaliforníu. 24.7.2006 22:20 Íþróttir 18:30 24.7.2006 21:12 Sómalar mótmæla veru Eþíópíumanna Yfir 5000 manns söfnuðust saman í Mogadishu, höfuðborg Sómalíu í dag til að mótmæla veru eþíópísks herliðs í landinu. 24.7.2006 21:00 Á Kayak hringinn í kringum landið Ísraelsk kona lýkur brátt ferð sinni á Kayak hringinn í kringum landið. Hún kom til Reykjavíkur í dag en þetta er í fyrsta skipti sem einstaklingur rær einn síns í liðs í kringum landið á Kayak . 24.7.2006 20:01 Óvænt heimsókn Condoleezza Rice, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, hóf ferð sína um Mið-Austurlönd óvænt í Beirút, höfuðborg Líbanons, í dag. Þar ræddi hún við ráðamenn. Rice heldur síðan til Ísraels. Óvíst er hver árangurinn af ferð hennar verður en ljóst er að stjórnvöld í Washington gera ekki kröfu um vopnahlé strax. 24.7.2006 19:03 Áttu ekki krónu en keyptu fyrir milljónir Eignarhaldsfélag Vestmannaeyja átti ekki krónu þegar ákvörðun var tekin um að kaupa Íslensk matvæli fyrir eitthundrað og þrjátíu milljónir. Stofnfjáreigendur félagsins borguðu ekki krónu fyrr en rúmum mánuði seinna og helmingur stofnfjárins skilaði sér aldrei. 24.7.2006 18:57 Þrír hafa látist í bifhjólaslysum í ár Þrír hafa látist í bifhjólaslysum á árinu. Mótorhjólalögreglumaður telur aukna vélhjólaeign, vaxandi umferð og slæma vegi eiga sinn þátt í slysunum. Hjólafólk ætlar að hittast á fundi í vikunni og fara yfir umferðaröryggismál. 24.7.2006 18:45 Nærri fimm hundruð með endurvinnslutunnu Á fimmta hundrað endurvinnslutunna frá Gámaþjónustunni eru í notkun á höfuðborgarsvæðinu en farið var að bjóða upp á þessa þjónustu í desember. Það sem fer í tunnurnar er ekki grafið í jörð heldur selt til Hollands. 24.7.2006 18:45 Létust í umferðarslysum Maður lést af áverkum sínum aðfaranótt sunnudags eftir að hafa orðið fyrir bíl á Strandvegi skammt frá Hólmavík, á laugardagskvöld. Hann hét Þórður Björnsson til heimilis að Skólabraut 5 Seltjarnarnesi. Þórður var fæddur árið 1922. Hann lætur eftir sig sex uppkomin börn. Á sjöunda tímanum í gær lést ungur maður þegar hann missti stjórn á vélhjóli sínu á Suðurlandsvegi við brúnna yfir Eystri- Rangá. Hann hét Birkir Hafberg Jónsson til heimilis að Öldubakka 19 á Hvolsvelli. Birkir var 26 ára gamall, ókvæntur og barnlaus. 24.7.2006 18:29 Litbyssumenn fremja skemmdarverk Skemmdarverk voru unnin á útivistarsvæðinu í Sólbrekkuskógi við Seltjörn á Reykjanesi um helgina. Búið er að brenna útikamar til kaldra kola, og skjóta úr litboltabyssum á eignir svo litaklessur og taumar eru um allt. 24.7.2006 17:22 Tafir á flugi Tafir urðu á flugi til og frá landinu um helgina þegar flugumferðastjórar tilkynntu sig veika og enginn fékkst til að koma á aukavakt. Deilan vegna óánægju flugumferðarstjóra með nýtt vaktaplan er enn óleyst. 24.7.2006 16:39 Gert að sveigja reglur um áhættudreifingu Fyrrverandi stjórnarformaður Byggðastofnunar segir ríkisstjórnina hafa fyrirskipað að sveigja reglurnar um áhættudreifingu, þegar Eignarhaldsfélag Vestmanneyja var keypt. Og endurskoðunarfyrirtækið Deloitte og Touche staðfesti á stofnskjali Eignarhaldsfélagsins að allt stofnfé hefði verið greitt. En helmingur fjárins skilaði sér ekki. 24.7.2006 15:33 Sænsk ræðisskrifstofa í Húsavík Utanríkisráðuneyti Svíþjóðar hefur ákveðið að stofna sænska ræðisskrifstofu í Húsavík. Þórunn Harðardóttir leiðsögumaður hefur verið skipuð heiðursræðismaður fyrir sveitarfélögin Norðurþing og Akureyri. Útnefning Þórunnar verður kunngerð af sænska sendiherranum Madeleine Ströje Wilkens á Húsavík í dag um leið og Sænskum dögum verður hleypt af stokkunum. 24.7.2006 15:23 Kátir biskupar Hólabiskupar til forna voru höfðingjar heim að sækja, miðað við veislusal sem kom úr kafinu, rétt í þann mund sem fornleifafræðingar voru að ljúka uppgrefti á hinu forna biskupssetri þetta sumar. 24.7.2006 14:50 Áfengissala eykst Velta í dagvöruverslun var fimm komma þremur prósentum meiri í júní síðastliðnum en í sama mánuði í fyrra, miðað við fast verðlag. Þetta kemur fram í smásöluvísitölu sem reiknuð er af rannsóknarsetri verslunarinnar við Viðskiptaháskólann á Bifröst. 24.7.2006 14:47 Líðan Sharon fer versnandi Ariel Sharon, fyrrverandi forsætisráðherra Ísraels, var fluttur í skyndi á sjúkrahús í Tel Aviv í morgun en líðan hans hefur farið stöðugt versnandi um liðna helgi. 24.7.2006 13:30 Truflanir á vefþjónustu Truflun verður á vefþjónustu Veðurstofu Íslands vegna vinnu við raflagnir í kvöld klukkan 18:30. Í fréttatilkynningu frá Veðurstofunni segir að ætlunin sé að vinnu verði lokið í síðasta lagi klukkan 22:00 og vefþjónustan verði þá komin í samt horf. Beðist er er velvirðingar á þeim óþægindum sem þetta hefur í för með sér. 24.7.2006 12:59 Óvíst með nýtingu olíutanka í Helguvík Mannvirkjasjóður Atlantshafsbandalagsins NATO hafði ný fallist á að íslensk olíufélög fengju afnot af olíumannvirkjunum í Helguvík, til að þurfa ekki að aka öllu flugvélaeldsneyti frá Reykjavík, þegar Varnarliðið tilkynnti um brottför sína og málið fór í uppnám. 24.7.2006 12:30 Búið að ráða um 100 starfsmenn Undirbúningur gengur vel fyrir útkomu Nyhedsavisen í Danmörku. Svenn Dam, forstjóri 365 media Scandinavia, segir að fyrsta blaðið muni koma út þegar keppninautar blaðsins eiga síst von á því. 24.7.2006 12:15 Sugar Rush 24.7.2006 12:12 Festival in Húsavík 24.7.2006 12:01 Sjá næstu 50 fréttir
Rice á stormasömum fundi Condoleezza Rice kynnti ráðamönnum í Líbanon í gær tillögur um að líbanskar og alþjóðlegar hersveitir gæti friðar eftir að vopnahlé kemst á. Hizbollah sýnir hugmyndum um vopnahlé engan áhuga. 25.7.2006 07:30
Metár í utanlandsferðum Það er ekki logið á ferðagleði landans, eins og kemur skýrast fram hjá íslenskum ferðaskrifstofum þessa dagana. Uppselt er í flestar ferðir til sólarlanda næstu þrjár vikurnar. Þegar allt er talið eru seld hundruð þúsunda sæta á hverju ári í sólina, skíðaferðir, borgarferðir og sérferðir margs konar. Athygli vekur að mikið er spurt um sólarlandaferðir þegar veður er gott hér á landi. 25.7.2006 07:15
Kísilblanda borin á vegkanta Styrkja ætti vegkanta á þjóðvegum landsins með því að bera á þá blöndu úr sandi, sementi og kísilryki. Þetta segir Steingrímur Sigurjónsson, byggingarfræðingur, hópferðabílstjóri og hugvitsmaður, sem lætur sér ekkert óviðkomandi þegar öryggi mannvirkja er annars vegar, hvort heldur það eru vegir eða byggingar. 25.7.2006 07:15
Önnin kostar 236 þúsund Viðskiptaháskólinn á Bifröst er einn þeirra háskóla sem hafa hækkað skólagjöld sín. Aðstoðarrektor segir hækkanir tilkomnar vegna aukinnar þjónustu við nemendur og að málið sé unnið í fullri sátt. 25.7.2006 07:15
Tilkynnt um fljótandi lík Lögregla bjargaði manni á floti rétt fyrir utan Grafarvog um þrjú leytið í gærnótt. Tilkynnt var að sést hefði lík á floti en þegar lögregla kom á staðinn, á litlum gúmmíbát, var maðurinn á lífi. 25.7.2006 07:00
Mati á eignum RÚV að ljúka Mati á eignum Ríkisútvarpsins lýkur um miðjan ágúst en nefnd fjögurra manna, undir forystu Sigurðar Þórðarsonar ríkisendurskoðanda, hefur unnið að matinu. 25.7.2006 07:00
Vegagerðin hafnar vegaskiltum á ensku Sjóvá-Almennar hefur lagt til við Vegagerðina að settar verði merkingar á ensku á þeim stöðum þar sem malarslitlag tekur við af bundnu slitlagi, en malarvegir reynast mörgum erlendum ferðamönnum skeinuhættir. Vegagerðin telur ekki ástæðu til að setja upp merkingar á ensku. 25.7.2006 07:00
Byggja 200 þjónustuíbúðir „Við ræddum undirbúning á byggingu um það bil 200 þjónustuíbúða og fórum svo vítt og breitt yfir allt sem viðkemur þjónustu við þennan hóp,“ segir Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson borgarstjóri sem sat fyrsta fund samráðsnefndar Reykjavíkurborgar um málefni eldri borgara sem haldinn var í gærdag. 25.7.2006 07:00
Hundruð mót-mælenda áreitt Meira en 500 manns, sem mótmæltu leiðtogafundi átta helstu iðnríkja heims í Pétursborg í síðasta mánuði, urðu fyrir margvíslegu áreiti af hálfu rússnesku lögreglunnar. 25.7.2006 07:00
Uppbygging á Vestfjörðum Ferðamálastofa hefur undirritað undir samning vegna verkefna í uppbyggingu og úrbótum á ferðamannastöðum á Vestfjörðum. Þeir sem koma að samningnum eru klasafyrirtækið Sjávarþorpið Suðureyri og Ísafjarðarbær. Sjávarþorpið Suðureyri fær styrk til uppbyggingar á upplýsingamiðlunartorgi sem staðsett er við innkeyrsluna í bæinn, og Ísafjarðarbær fær styrk til úrbóta á aðstöðu fyrir ferðafólk á Hornströndum. 25.7.2006 06:45
Íslendingar aldrei fleiri Íbúum landsins hefur fjölgað um fjögur þúsund það sem af er árinu en það er mesta fjölgun síðan á sjöunda áratug síðustu aldar. Að sögn Ólafar Garðarsdóttur hjá Hagstofunni er rúmur helmingur fjölgunarinnar til kominn vegna fólks sem flyst til landsins en flestir flytjast frá Póllandi. 25.7.2006 06:45
Segir forsvarsmenn Neyðarlínu rjúfa sátt Stjórnarformaður Atlassíma telur framkvæmdastjóra Neyðarlínunnar rjúfa sátt með kæru, sem vísað hefur verið frá. Framkvæmdastjóri Neyðarlínunnar neitar því. Yfirlýsing milli Atlassíma og Neyðarlínunnar var undirrituð 25. nóvember. 25.7.2006 06:45
Fleiri banaslys í dreifbýli Tveir létu lífið í umferðinni um helgina og eru banaslysin því orðin ellefu það sem af er ári. Sex slysanna ellefu hafa orðið í dreifbýli og fimm í þéttbýli, en í fyrra urðu einnig áberandi flest umferðarslys í dreifbýli. Þrír hafa látist í bifhjólaslysum. 25.7.2006 06:30
Vill ekki eyða ellinni í golfi Stjórn British Petroleum, BP, hefur þrýst á forstjóra félagsins, Browne lávarð, að hann láti sjálfviljugur af störfum árið 2008 þegar hann verður sextugur. Í reglum félagsins er kveðið á um að lykilstjórnendur eigi að láta af störfum við sextugsaldur en það sama gildir ekki um stjórnarmenn eða almenna starfsmenn. 25.7.2006 06:15
Skemmdarverk í Sólbrekkuskógi Fólk sem hafði verið með gleðskap í Sólbrekkuskógi við Seltjörn skildi eftir sig sviðna jörð og var aðkoman ekki fögur þegar umsjónarmenn útivistarsvæðisins sneru aftur til vinnu í gærmorgun. Margvísleg spjöll höfðu verið unnin á eignum og gróðri. 25.7.2006 06:15
Haglabyssan enn ófundin Haglabyssan sem notuð var við skotárás á raðhús við Burknavelli í Hafnarfirði í síðasta mánuði er enn ófundin, samkvæmt upplýsingum lögreglunnar þar í bæ. 25.7.2006 06:00
Kýpur óskar eftir hjálp Utanríkisráðherra Kýpur hefur óskað eftir hjálp Evrópusambandsins við móttöku flóttamanna frá Líbanon, en um 25 þúsund manns hafa flúið frá landinu til Kýpur og búist er við að sú tala þrefaldist. Evrópusambandið mun senda hjálparteymi til Kýpur til að flýta fyrir flutningi erlendra ríkisborgara til síns heima, en fólksfjöldinn hefur aukið álag á hótel og flugvöllinn í Nicosiu til muna. 25.7.2006 06:00
Verða sendir í endurhæfingu Vopnaðir íslamistar handtóku tuttugu manns í Mogadishu, höfuðborg Sómalíu, í síðustu viku fyrir að horfa á klámmyndband. Þetta er eitt af mörgum málum sem hafa komið upp í kjölfar valdatöku íslamskra bókstafstrúarmanna, sem vilja bæta siði landsmanna. 25.7.2006 06:00
Skilyrði Bandaríkjamanna óásættanlega Yfirmaður viðskiptamála hjá Evrópusambandinu segir Bandaríkjamenn ábyrga fyrir því að Doha-samningaviðræðurnar skuli hafa runnið út í sandinn enn á ný. Hann segir skilyrði sem Bandaríkjamenn settu fyrir því að lækka innflutningstolla á landbúnaðarafurðum vera algjörlega óásættanleg. Framkvæmdastjóri Alþjóðaviðskiptastofnunarinnar segir nú fullvíst að samningalotan muni ekki klárast í ár eins og flestir höfðu vonast til. 24.7.2006 22:32
Neytendasamtökin óánægð Neytendasamtökin eru óánægð með viðbrögð ráðherra við hugmyndum matvælaverðsnefndar. Þau segja fulla ástæðu til að velta fyrir sér til hvers þessi nefnd hafi yfir höfuð verið skipuð og telja landbúnaðarráðherra standa í vegi fyrir aðgerðum til lækkunar á matvælaverði. 24.7.2006 22:32
Hitabylgja veldur dauða Tuttugu og tveir hafa látist í hitabylgju í Frakklandi. Fólk hefur einnig látist af völdum hita í öðrum Evrópulöndum síðustu daga en flestir í Frakklandi. 24.7.2006 22:26
Milljónatjón af völdum veggjakrots Skemmdir af völdum veggjakrots nema tugum milljóna króna á ári. Borgarstjóri segir að ekki verði lengur við þetta unað og ætla hann að grípa til aðgerða. Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson hefur verið í miklum hreingerningum um borgina að undaförnu og segir hann að nú verði veggjakrot ekki liðið lengur. Hann segir íbúa um alla borg þurfa að greiða milljónir í hreinsun á eigum sínum og tekur sem dæmi að kostnaður Orkuveitunnar einnar nemi um 25 milljónum króna á ári. 24.7.2006 22:21
Myspace lá niðri Bandaríska heimasíðan Myspace lá niðri og var óaðgengileg í hálfan sólarhring í dag eftir að rafmagnslaust varð í höfuðstöðvum netfyrirtækisins vegna mikillar hitabylgju í Kaliforníu. 24.7.2006 22:20
Sómalar mótmæla veru Eþíópíumanna Yfir 5000 manns söfnuðust saman í Mogadishu, höfuðborg Sómalíu í dag til að mótmæla veru eþíópísks herliðs í landinu. 24.7.2006 21:00
Á Kayak hringinn í kringum landið Ísraelsk kona lýkur brátt ferð sinni á Kayak hringinn í kringum landið. Hún kom til Reykjavíkur í dag en þetta er í fyrsta skipti sem einstaklingur rær einn síns í liðs í kringum landið á Kayak . 24.7.2006 20:01
Óvænt heimsókn Condoleezza Rice, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, hóf ferð sína um Mið-Austurlönd óvænt í Beirút, höfuðborg Líbanons, í dag. Þar ræddi hún við ráðamenn. Rice heldur síðan til Ísraels. Óvíst er hver árangurinn af ferð hennar verður en ljóst er að stjórnvöld í Washington gera ekki kröfu um vopnahlé strax. 24.7.2006 19:03
Áttu ekki krónu en keyptu fyrir milljónir Eignarhaldsfélag Vestmannaeyja átti ekki krónu þegar ákvörðun var tekin um að kaupa Íslensk matvæli fyrir eitthundrað og þrjátíu milljónir. Stofnfjáreigendur félagsins borguðu ekki krónu fyrr en rúmum mánuði seinna og helmingur stofnfjárins skilaði sér aldrei. 24.7.2006 18:57
Þrír hafa látist í bifhjólaslysum í ár Þrír hafa látist í bifhjólaslysum á árinu. Mótorhjólalögreglumaður telur aukna vélhjólaeign, vaxandi umferð og slæma vegi eiga sinn þátt í slysunum. Hjólafólk ætlar að hittast á fundi í vikunni og fara yfir umferðaröryggismál. 24.7.2006 18:45
Nærri fimm hundruð með endurvinnslutunnu Á fimmta hundrað endurvinnslutunna frá Gámaþjónustunni eru í notkun á höfuðborgarsvæðinu en farið var að bjóða upp á þessa þjónustu í desember. Það sem fer í tunnurnar er ekki grafið í jörð heldur selt til Hollands. 24.7.2006 18:45
Létust í umferðarslysum Maður lést af áverkum sínum aðfaranótt sunnudags eftir að hafa orðið fyrir bíl á Strandvegi skammt frá Hólmavík, á laugardagskvöld. Hann hét Þórður Björnsson til heimilis að Skólabraut 5 Seltjarnarnesi. Þórður var fæddur árið 1922. Hann lætur eftir sig sex uppkomin börn. Á sjöunda tímanum í gær lést ungur maður þegar hann missti stjórn á vélhjóli sínu á Suðurlandsvegi við brúnna yfir Eystri- Rangá. Hann hét Birkir Hafberg Jónsson til heimilis að Öldubakka 19 á Hvolsvelli. Birkir var 26 ára gamall, ókvæntur og barnlaus. 24.7.2006 18:29
Litbyssumenn fremja skemmdarverk Skemmdarverk voru unnin á útivistarsvæðinu í Sólbrekkuskógi við Seltjörn á Reykjanesi um helgina. Búið er að brenna útikamar til kaldra kola, og skjóta úr litboltabyssum á eignir svo litaklessur og taumar eru um allt. 24.7.2006 17:22
Tafir á flugi Tafir urðu á flugi til og frá landinu um helgina þegar flugumferðastjórar tilkynntu sig veika og enginn fékkst til að koma á aukavakt. Deilan vegna óánægju flugumferðarstjóra með nýtt vaktaplan er enn óleyst. 24.7.2006 16:39
Gert að sveigja reglur um áhættudreifingu Fyrrverandi stjórnarformaður Byggðastofnunar segir ríkisstjórnina hafa fyrirskipað að sveigja reglurnar um áhættudreifingu, þegar Eignarhaldsfélag Vestmanneyja var keypt. Og endurskoðunarfyrirtækið Deloitte og Touche staðfesti á stofnskjali Eignarhaldsfélagsins að allt stofnfé hefði verið greitt. En helmingur fjárins skilaði sér ekki. 24.7.2006 15:33
Sænsk ræðisskrifstofa í Húsavík Utanríkisráðuneyti Svíþjóðar hefur ákveðið að stofna sænska ræðisskrifstofu í Húsavík. Þórunn Harðardóttir leiðsögumaður hefur verið skipuð heiðursræðismaður fyrir sveitarfélögin Norðurþing og Akureyri. Útnefning Þórunnar verður kunngerð af sænska sendiherranum Madeleine Ströje Wilkens á Húsavík í dag um leið og Sænskum dögum verður hleypt af stokkunum. 24.7.2006 15:23
Kátir biskupar Hólabiskupar til forna voru höfðingjar heim að sækja, miðað við veislusal sem kom úr kafinu, rétt í þann mund sem fornleifafræðingar voru að ljúka uppgrefti á hinu forna biskupssetri þetta sumar. 24.7.2006 14:50
Áfengissala eykst Velta í dagvöruverslun var fimm komma þremur prósentum meiri í júní síðastliðnum en í sama mánuði í fyrra, miðað við fast verðlag. Þetta kemur fram í smásöluvísitölu sem reiknuð er af rannsóknarsetri verslunarinnar við Viðskiptaháskólann á Bifröst. 24.7.2006 14:47
Líðan Sharon fer versnandi Ariel Sharon, fyrrverandi forsætisráðherra Ísraels, var fluttur í skyndi á sjúkrahús í Tel Aviv í morgun en líðan hans hefur farið stöðugt versnandi um liðna helgi. 24.7.2006 13:30
Truflanir á vefþjónustu Truflun verður á vefþjónustu Veðurstofu Íslands vegna vinnu við raflagnir í kvöld klukkan 18:30. Í fréttatilkynningu frá Veðurstofunni segir að ætlunin sé að vinnu verði lokið í síðasta lagi klukkan 22:00 og vefþjónustan verði þá komin í samt horf. Beðist er er velvirðingar á þeim óþægindum sem þetta hefur í för með sér. 24.7.2006 12:59
Óvíst með nýtingu olíutanka í Helguvík Mannvirkjasjóður Atlantshafsbandalagsins NATO hafði ný fallist á að íslensk olíufélög fengju afnot af olíumannvirkjunum í Helguvík, til að þurfa ekki að aka öllu flugvélaeldsneyti frá Reykjavík, þegar Varnarliðið tilkynnti um brottför sína og málið fór í uppnám. 24.7.2006 12:30
Búið að ráða um 100 starfsmenn Undirbúningur gengur vel fyrir útkomu Nyhedsavisen í Danmörku. Svenn Dam, forstjóri 365 media Scandinavia, segir að fyrsta blaðið muni koma út þegar keppninautar blaðsins eiga síst von á því. 24.7.2006 12:15