Tónlist

Setning Iceland Airwaves: For­setinn og ljúfir tónar á Grund

Magnús Jochum Pálsson skrifar
Krakkar og eldri borgarar bíða spenntir eftir að athöfnin byrji.
Krakkar og eldri borgarar bíða spenntir eftir að athöfnin byrji. Vísir/Sigurjón

Iceland Airwaves hefst í dag og setur Halla Tómasdóttir, forseti Íslands, tónlistarhátíðina formlega af stað á opnunarhátíð hennar á hjúkrunarheimilinu Grund. Von á er á fjölda erlendra hljómsveita og enn fleiri erlendra tónleikagesta til landsins í ár.

Opnunarathöfnin hefst klukkan 10 í dag og stendur yfir til klukkan 11. Halla Tómasdóttir mun þar setja tónlistarhátíðina formlega af stað áður en söngkonan Rakel og hljómsveitin Lón troða upp fyrir gesti.

Fjöldi góðra gesta er mættur á opnunarathöfnina: forsetahjónin, íbúar á Grund, Pétur Þorsteinsson æskulýðsfulltrúi á Grund, leikskólabörn úr hverfinu, bransafólk og aðrir tónlistaráhugamenn.

Hægt er að fylgjast með athöfninni í beinu streymi hér að neðan:

Tónlistarhátíðin Iceland Airwaves hefur verið haldin árlega síðan 1999 og er einn stærsti menningarviðburður hér á landi ár hvert. Hátíðin fer alla jafna fram þriðju helgina í október en stendur í ár yfir dagana 4. til 8. nóvember.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.