Setning Iceland Airwaves: Forsetinn og ljúfir tónar á Grund Magnús Jochum Pálsson skrifar 4. nóvember 2026 09:56 Halla Tómasdóttir og Pétur Þorsteinsson brugðu á leik fyrir gesti. Vísir/Anton Brink Iceland Airwaves hófst í morgun þegar Halla Tómasdóttir, forseti Íslands, setti tónlistarhátíðina formlega af stað á opnunarhátíð hennar á hjúkrunarheimilinu Grund. Halla flutti stutta tölu og brá á leik með Pétri Þorsteinssyni, æskulýðsfulltrúa Grundar, áður en Rakel og Lón tróðu upp fyrir gesti.
Opnunarathöfn Iceland Airwaves hófst klukkan 10 á Grund í morgun og stendur enn yfir. Fjöldi góðra gesta mætti á opnunarathöfnina: forsetahjónin, íbúar á Grund, leikskólabörn úr hverfinu, bransafólk og aðrir tónlistaráhugamenn. Hægt er að horfa á útsendinguna í heild sinni í spilaranum að neðan. Ísleifur Þórhallsson, framkvæmdastjóri Senu og skipuleggjandi Iceland Airwaves, flutti fyrst tölu, þakkaði Grund fyrir móttökurnar og gestum fyrir mætinguna og fór stuttlega yfir dagskrána. Halla Tómasdóttir, forseti Íslands, setti tónlistarhátíðina síðan formlega af stað og flutti tölu um mikilvægi tónlistar og tónlistarhátíðarinnar. Halla flutti ræðu um mikilvægi tónlistar.Vísir/Anton Brink „Ég er efins um að nokkur tónlistarhátíð hefjist með þeim hætti sem hér er gert, þar sem yngstu börnin til elstu borgara okkar og fjöldi erlendra gesta koma saman þvert á kynslóðir og líklega tónlistarsmekk og njóta tónlistar saman. Ég held að tónlist hafi einstaka töfra og ég finn það í mínu starfi hvað tónlistaratburðir gera mikið fyrir mig í mínu starfi. Stundum er starfið strembið en svo fer maður á tónleika og tónlistin hefur einhverja einstaka töfra,“ sagði Halla. Tónlistin fái fólk til að kjarna sig og fátt stilli samhljómin og samkenndina jafnmikið og tónlistin geri. Þess vegna sé fallegt að hátíðin hefjist á Grund þar sem fólk leggi frá sér símana og njóti tónlistarinnar. „Pétur er búinn að gefa mér nýtt orð í hvert skipti sem ég kem hingað. Eitt orð er að við séum orðin strokufangar af því við strjúkum símunum okkar út í eitt og erum sjaldan til staðar, sérstaklega við á okkar aldri,“ sagði hún og vísaði þar til Péturs Þorsteinssonar. Tungan út og höndin á höfuðið á næsta manni.Vísir/Anton Brink „Svo kenndi Pétur mér annað orð: Sundurfélagsmiðlarnir. Það eru samfélagsmiðlarnir sem draga okkar frekar í sundur en saman. En þegar við hlustum á tónlist erum við ekki strokufangar og erum ekki á sundurfélagsmiðlum,“ bætti hún við. Hún sagðist vona að Iceland Airwaves myndi halda í þessa góðu hefð sem lengst. „Ég er líka ótrúlega stolt af því að Ísland, þrátt fyrir að vera lítið land, á ótrúlega mörg stór tónlistarnöfn sem flytja hróður okkar víða. Þau gleðja okkur hér heima en gera okkur líka stór úti í heimi,“ sagði hún síðan. „Ég hóf minn fyrsta búskap eftir að ég flutti að heiman hérna á Brávallagötu 26 þannig mér finnst ég líka komin heim þegar ég kem á Grund,“ sagði hún að lokum áður en þau Pétur brugðu á skemmtilegan samkvæmisleik með gestum. Rakel tók nokkur lög.Vísir/Sigurjón Tónlistarkonan Rakel tók síðan nokkur lög fyrir gesti, söng og spilaði á gítar áður en strákarnir í Lóni tóku við undir styrkri forystu Valdimars Guðmundssonar. Tónlistarhátíðin Iceland Airwaves hefur verið haldin árlega síðan 1999 og er einn stærsti menningarviðburður hér á landi ár hvert. Hátíðin fer alla jafna fram þriðju helgina í október en stendur í ár yfir dagana 4. til 8. nóvember. Iceland Airwaves hefst á tónleikum Shygirl með upphitun Joey Christ og Alösku1867 í Tjarnarsalnum í Ráðhúsi Reykjavíkur í kvöld. Aðaldagskrá hátíðarinnar stendur yfir frá fimmtudegi til laugardags og svo lýkur henni á tónleikum The Streets í Eldborgarsalnum í Hörpu á sunnudag.
Iceland Airwaves Tónlist Tónleikar á Íslandi Tengdar fréttir Hvernig fílarðu böndin á Airwaves? Iceland Airwaves verður sett á morgun með tónleikum á hjúkrunarheimilinu Grund áður en þriggja daga tónlistarveisla tekur við. Áhugasamir geta kynnt sér listamennina sem komust í gegnum niðurskurðinn með því að hlusta á lagalista hátíðarinnar. 3. nóvember 2026 17:02 Mikil notkun Íslendinga á appinu óvænt Einar Hrafn Stefánsson, stofnandi Icebreaker- smáforritsins, segir það óvænt að appið, sem var hannað fyrir ferðamenn, sé í mikilli notkun heimamanna. Búið er að bæta við appið aukinni þjónustu fyrir Íslendinga og er nú hægt að skoða dagskrár íslenskra hátíða í appinu, til dæmis Airwaves sem hefst í vikunni. 2. nóvember 2026 18:03 Hafna nær öllum sem vilja troða upp á Airwaves Gríðarleg ásókn er í að koma fram á Iceland Airwaves hátíðinni sem hefst í næstu viku og um nítíu prósent þeirra sem sóttust eftir því fengu höfnun. Í fyrsta sinn verður Listasafn Reykjavíkur ekki miðpunktur hátíðarinnar. 1. nóvember 2026 19:02 Mest lesið „Af hverju eru allir að gefa ránfuglinum að borða?“ Lífið John Frieda er látinn Tíska og hönnun Stjörnum prýtt teiti hjá Kötu Jak Lífið „Líklega eina löglega rave-ið á Íslandi“ Tónlist Setning Iceland Airwaves: Forsetinn og ljúfir tónar á Grund Tónlist Hryllingur og hiti á klúbbnum Lífið „Götustelpan“ glöð Lífið Hættur með fimmtíu árum yngri kærustunni Lífið „Þetta eru allt krakkar í íþróttum“ Lífið samstarf „Ég fæddist nefnilega á endalausu breytingarskeiði“ Lífið samstarf Fleiri fréttir „Líklega eina löglega rave-ið á Íslandi“ Setning Iceland Airwaves: Forsetinn og ljúfir tónar á Grund Stjörnurnar fögnuðu flúruðum Maroni „Ókrýndir hip-hop kóngar Íslands“ halda 20 ára afmælistónleika Mikil notkun Íslendinga á appinu óvænt Hætt við að hita upp fyrir Azealiu Banks Fjölskyldudeilur vegna uppboðs á gítar George Michael Ísland ekki á lista 36 þjóða sem keppa í Eurovision Fyrsta myndbandi Tár leikstýrt af Baldvin Z Hætta við að hætta við að hætta við Ölvuðu Íslendingarnir í Kristjaníu stóðu upp úr Sagður hafa valið sjálfan sig til að troða upp á Ofurskálinni „Stöðumælaverðir eru líka fólk og þeir hafa tilfinningar“ „Ég er ekki búinn að svelta mig enn þá“ Ástarbréf til íslenskra költmynda „Ég geri bara ráð fyrir því að fólk sé búið að gleyma mér“ Guðmundur Pétursson hlaut Gullnöglina Arkir hita upp fyrir Tha Alkaholiks Sjá meira
Hvernig fílarðu böndin á Airwaves? Iceland Airwaves verður sett á morgun með tónleikum á hjúkrunarheimilinu Grund áður en þriggja daga tónlistarveisla tekur við. Áhugasamir geta kynnt sér listamennina sem komust í gegnum niðurskurðinn með því að hlusta á lagalista hátíðarinnar. 3. nóvember 2026 17:02
Mikil notkun Íslendinga á appinu óvænt Einar Hrafn Stefánsson, stofnandi Icebreaker- smáforritsins, segir það óvænt að appið, sem var hannað fyrir ferðamenn, sé í mikilli notkun heimamanna. Búið er að bæta við appið aukinni þjónustu fyrir Íslendinga og er nú hægt að skoða dagskrár íslenskra hátíða í appinu, til dæmis Airwaves sem hefst í vikunni. 2. nóvember 2026 18:03
Hafna nær öllum sem vilja troða upp á Airwaves Gríðarleg ásókn er í að koma fram á Iceland Airwaves hátíðinni sem hefst í næstu viku og um nítíu prósent þeirra sem sóttust eftir því fengu höfnun. Í fyrsta sinn verður Listasafn Reykjavíkur ekki miðpunktur hátíðarinnar. 1. nóvember 2026 19:02