Hafna nær öllum sem vilja troða upp á Airwaves Sunna Sæmundsdóttir skrifar 1. nóvember 2026 19:02 Ísleifur Þórhallsson, framkvæmdastjóri Senu og skipuleggjandi Iceland Airwaves. Vísir/Arnar Gríðarleg ásókn er í að koma fram á Iceland Airwaves hátíðinni sem hefst í næstu viku og um nítíu prósent þeirra sem sóttust eftir því fengu höfnun. Í fyrsta sinn verður Listasafn Reykjavíkur ekki miðpunktur hátíðarinnar.
Ísleifur Þórhallsson, framkvæmdastjóri Senu og skipuleggjandi hátíðarinnar, segir mikla spennu í loftinu. Undirbúningur stendur nú sem hæst og mikið verður um að vera í næstu viku. Fjörið hefst á mánudag með svokallaðri bransaveislu, hátíðin verður síðan formlega sett á miðvikudag með tónleikum á hjúkrunarheimilinu Grund og sannkölluð tónlistarveisla tekur svo við. Um eitt hundrað tónlistarmenn eða hljómsveitir koma fram á nokkrum stöðum. Emilíana Torrini á Iceland Airwaves árið 2024.Mummi Lú Búist er við hátt í átta þúsund tónleikagestum og um helmingur þeirra hefur sérstaklega gert sér ferð til Íslands vegna hátíðarinnar, að sögn Ísleifs. Umfangið sé svipað og á síðustu árum og mikil ásókn er í að spila á hátíðinni. „Allir umboðsmenn í heimi sem eru með „up and coming bönd“ reyna að koma sínu bandi inn þannig að við erum í stöðu til þess að velja það allra besta úr öllum heimshornum. Þannig geta allir treyst því að ef þú komst inn á Iceland Airwaves, að þá er eitthvað varið í þig.“ Yfir eitt þúsund sóttust eftir því að spila á hátíðinni. „Við erum að hafna svona níutíu prósentum af beiðnunum. Þetta eru svona fimm til tíu prósent sem komast inn.“ Ráðhúsið kemur inn í staðinn fyrir Listasafn Reykjavíkur.vísir/vilhelm Sú breyting verður í ár að engir tónleikar verða á Listasafni Reykjavíkur líkt og verið hefur. „Þetta er svolítið rosalegt að einn af hornsteinum hátíðarinnar detti út. En það er bara stórt og dýrt þegar allt er talið með, gæsla, starfsfólk, græjur og allt það. Staðurinn er bara of dýr og þú þarft að borga ansi mikið fyrir erlend stærri nöfn til að halda honum fullum og þetta var bara ekki að ganga upp.“ Þess í stað verður ráðhús Reykjavíkur að tónleikahöll. „Þarna er bara frábær salur á jarðhæðinni, rosalega flottur. Stórir gluggar sem snúa út að Tjörninni og við höfum bara mikla trú á því að þetta sé staður sem er kominn til að vera og hérna. Fólkið hjá Reykjavíkurborg greiddi götu okkar og kláraði með okkur öll leyfi og allt sem þurfti til að koma þessu í gegn. Við erum mjög þakklát fyrir það og það má kannski segja að þetta sé bara nýja Listasafnið,“ segir Ísleifur.
Iceland Airwaves Tónleikar á Íslandi Tónlist Reykjavík Mest lesið „Ég neita að leyfa fæðingarorlofssjóði að stjórna mínu lífi“ Innlent Játaði að hafa makað saur á hurðarhúna Innlent Bárust skrýtin skilaboð þegar sambandinu lauk Innlent „Hvernig getur svona klikkuð manneskja ekki ákveðið að gera neitt meira?“ Innlent Hafnað með afgerandi hætti Erlent Játar að hafa logið til um nauðgun Innlent Taka u-beygju og vilja að Evrópa kaupi aftur gas af Rússum Erlent Rússar hnýta í Þorgerði Katrínu vegna ummæla um skrif Heimis Más Innlent „Rangfærslur og jafnvel hreinar lygar“ Innlent Fjögurra bíla árekstur við N1 í Ártúnsbrekku Innlent Fleiri fréttir Feðgin felldu tár yfir reynslu af meintum eltihrelli „Rangfærslur og jafnvel hreinar lygar“ Lögregla telur sig komna með „þokkalega skýra mynd“ Barði barn en málið fyrndist Bárust skrýtin skilaboð þegar sambandinu lauk „Fræða en ekki hræða“ „Það er öllum ljóst að hann hefur frekar verið þeirra megin“ Fullyrða að Daði Már hafi logið að þinginu „Hvernig getur svona klikkuð manneskja ekki ákveðið að gera neitt meira?“ Kosningar í Bandaríkjunum og utanríkisráðherra ræðir Rússa Skipaður formaður 6. áfanga rammaáætlunar Reikna með þrettán milljarða afgangi á næsta ári Fluttur með björgunarskipi þegar þyrlan gat ekki lent vegna þoku Kynntu fjárhagsáætlun borgarinnar Kolbeinsey lifir enn þrátt fyrir spádóma um annað Játaði að hafa makað saur á hurðarhúna Kynntu verkefnið Verum viðbúin „Ekki bíða eftir fyrsta snjónum“ Rússar hnýta í Þorgerði Katrínu vegna ummæla um skrif Heimis Más Fjögurra bíla árekstur við N1 í Ártúnsbrekku „Ég neita að leyfa fæðingarorlofssjóði að stjórna mínu lífi“ Líkamsárás í miðbænum Játar að hafa logið til um nauðgun Hrákinn endaði í andliti og auga Breytt vinnubrögð sköpuðu núning milli forstjóra og stjórnar Rafmagnið tekið af hjólhýsabyggðinni: „Þú gerir þetta ekki korteri fyrir jól“ Dánartilkynningin: „Ég myndi aldrei eyða fjörutíu þúsund krónum í þetta“ Ábendingar borist um skemmdarverkin Hafi ráðist á sambýliskonu sína á Tenerife „Takk fyrir vinskapinn, elsku Lárus“ Sjá meira