Innlent

Upp­lifa endur­tekið á­fall vegna dómsins

Sunna Sæmundsdóttir skrifar
Jenný Kristín Valberg, teymisstýra Bjarkarhlíðar.
Jenný Kristín Valberg, teymisstýra Bjarkarhlíðar. Vísir/Ívar Fannar

Þó nokkrir hafa sett sig í samband við Bjarkarhlíð í kjölfar umdeilds sýknudóms Landsréttar í nauðgunarmáli að sögn teymisstýru úrræðisins. Niðurstaðan dragi úr vilja þeirra til þess að leita réttar síns.

Dómur Landsréttar hefur sætt harðri gagnrýni og í undirskriftasöfnun kalla þúsundir eftir því að óháð úttekt verði gerð á meðferð kynferðisbrotamála eftir að sakfellingu héraðsdóms var snúið við og karlmaður sýknaður af ákæru fyrir nauðgun. Í dómi Landsréttar var meðal annars vísað til samskipta fólksins á Instagram og talið að af þeim mætti ráða að konan hefði mátt gera sér grein fyrir því að maðurinn hefði áhuga á að beita hörku í kynlífi.

Konan hlaut meðal annars rifbeinsbrot, áverka á höfði, tognun og heyrnartap.

Jenný Kristín Valberg, teymisstýra Bjarkarhlíðar, segir dóminn þegar hafa haft alvarlegar afleiðingar.

„Það hafa nú þegar þó nokkrir þolendur hringt inn og bókað viðtöl vegna þess að þeir hafa bara upplifað í rauninni endurtekið áfall vegna þessarar niðurstöðu,“ segir Jenný. „Þetta dregur auðvitað úr trausti til réttarkerfisins og það hafa nokkrir þolendur hér haft orð á því að það taki því ekki að kæra, að þetta sé tilgangslaust og að þetta dómskerfi sé ekki fyrir þolendur heimilisofbeldis eða kynferðisofbeldis.“

Alvarlegum ofbeldismálum fari fjölgandi

Á síðasta ári leituðu hátt í níu hundruð manns til Bjarkarhlíðar og Jenný segir að málum þar sem ofbeldið telst alvarlegt fari fjölgandi.

„Alvarlegt ofbeldi er að aukast, kyrkingartökum fer fjölgandi, eltihrellahegðun er að aukast og þetta eru birtingarmyndir sem við viljum ekki að aukist vegna þess að þetta er yfirleitt þær birtingarmyndir ofbeldis sem segja til um það að mál fari á versta veg,“ segir Jenný. „Gerendur eru að ganga lengra og það er auðvitað vegna þess að afleiðingarnar eru engar fyrir þær.

Hún segir málið til þess fallið að draga úr vilja þolenda til þess að leita réttar síns.

„Og núna er verið að senda þau skilaboð til allra gerenda þarna úti að þeir geti í rauninni haldið ótrauðir áfram að nauðga og beita líkamlegu ofbeldi vegna þess að dómskerfið mun ekki taka á þessu.“


Tengdar fréttir

„Hvernig sérðu að þú sért virkilega að fá já?“

Sambands- og kynlífsráðgjafi segir krakka fá kynfræðslu allt of seint, hún skipti sköpum þegar þeim sé kennt um mörk í kynlífi. Hugmyndir ungu kynslóðarinnar um kynlíf mótist of mikið af klámi. Dæmi séu um að foreldrar hafi tekið börn sín úr kynfræðslu en Eva vill að aldursviðeigandi kynfræðsla sem felist í fræðslu um mörk hefjist í leikskóla.

Sláandi hversu margir telji ofbeldi hluta af kynlífi

Mun algengara er að yngri konur en eldri séu beittar kyrkingartaki í kynlífi án samþykkis og kennari segir sláandi hversu útbreidd sú skoðun sé orðin að ofbeldi sé eðlilegur fylgifiskur kynlífs. Nauðsynlegt sé að bregðast við með fræðslu.

Þúsundir hvetja til úttektar og ríkissaksóknari íhugar áfrýjun

Undirskriftasöfnun er hafin í kjölfar umdeilds dóms Landsréttar þar sem maður var sýknaður af nauðgun eftir að hafa áður verið dæmdur í fimm ára fangelsi í héraðsdómi. Ríkissaksóknari íhugar að áfrýja málinu til hæstaréttar. Verkefnastjóri við Háskóla Íslands segir dómarana tvo sem sýknuðu manninn í mótsögn við eigin rökstuðning og hafi varpað ábyrgðinni á ofbeldinu yfir á konuna.

BDSM á Ís­landi for­dæmir sýknu­dóm í of­beldis­máli

BDSM á Íslandi lýsir yfir þungum áhyggjum og fordæmir harðlega niðurstöðu meirihluta Landsréttar í nýbirtum sýknudómi þar sem maður var sýknaður af nauðgun með vísan til samþykkis brotaþola fyrir harkalegu kynlífi.

Leggi línuna að samþykki veiti rétt til að stórskaða fólk

Réttargæslumaður konu sem slasaðist alvarlega eftir að hafa farið á fund við karlmann til að stunda kynlíf er verulega hissa á viðsnúningi í málinu fyrir íslenskum dómsmálum. Hún segir mikilvægt að ríkissaksóknari sæki um áfrýjunarleyfi til Hæstaréttar.

Gróft kynlíf en ekki nauðgun samkvæmt klofnum Landsrétti

Karlmaður á fertugsaldri hefur verið sýknaður af nauðgun í Landsrétti. Hann hafði áður verið dæmdur í fimm ára fangelsi í Héraðsdómi Reykjavíkur fyrir að hafa haft önnur kynferðismök en samræði við konu án samþykkis hennar. Tveir af þremur dómurum töldu ekki nægilega sannað að maðurinn hefði haft þann ásetning sem þurfi til sakfellingar fyrir nauðgun en sá þriðji vildi staðfesta fangelsisdóm úr héraði. Athygli vekur að tveir karlar vildu sýkna en eina konan sakfella. Maðurinn hefur áður verið dæmdur fyrir nauðgun.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×