Skúmaskotum Mjóddarinnar fækkað í forvarnarskyni Rafn Ágúst Ragnarsson skrifar 22. október 2026 17:18 Markús Vilhjálmsson er sviðsstjóri þjónustu og sölu hjá almenningssamgöngum höfuðborgarsvæðisins Vísir/Samsett Skiptistöðin í Mjódd verður tekin í gegn í von um að tilfellum ofbeldis fækki. Sviðsstjóri þjónustu og sölu hjá almenningssamgöngum höfuðborgarsvæðisins segir umhverfið ábótavant og viðhaldi hafa verið áfátt í langan tíma.
Lýsing verður bætt, eftirlitsmyndavélum fjölgað og reynt að fækka skúmaskotum þar sem hægt er að fela sig. Næsta vor á svo að ráðast í umfangsmikla endurbyggingu á stöðinni að utan. Ítrekuð ofbeldisatvik hafa komið upp í og við Mjódd undanfarin ár. Markús Vilhjálmsson sviðsstjóri nefnir í Reykjavík síðdegis sérstaklega alvarlegt atvik í vor þegar sex ungmenni réðust að konu en segir einnig hafa komið upp tilfelli þar sem vaktstjórar hafa orðið fyrir ofbeldi og ógnandi hegðun. Hann vill þó ekki ganga svo langt að segja Mjódd ekki lengur öruggan stað fyrir farþega. „Ég myndi kannski ekki taka svo djúpt í árinni en það er klárlega hægt að bæta hluti þarna,“ segir Markús. Bein lína við lögreglu Öryggi í vögnunum sjálfum er einnig til skoðunar. Vagnstjórar hafa neyðarhnapp og bein talstöðvarsamskipti við stjórnstöð almenningssamgangna. Þá er plexígler komið fyrir hjá ökumönnum í öllum eða langflestum vögnum. Myndbandsupptaka er virk í öllum vögnum og segir Markús verið að skoða hvernig hægt sé að nýta hana betur til þess að auka öryggi og öryggistilfinningu farþega. Unnið sé með lögreglu og sveitarfélögunum að því að stytta viðbragðstíma þegar atvik koma upp. Meðal þess sem sé til skoðunar sé bein talstöðvarlína milli stjórnstöðvar almenningssamgangna og lögreglu. Markús tekur undir að viðhaldi í Mjódd hafi verið ábótavant. „Það hefði mátt viðhalda henni betur, alveg klárlega,“ segir hann. Öll tekin í gegn í vetur Hann fagnar því framkvæmdum sem nú standi fyrir dyrum. Innra rými stöðvarinnar á að verða tilbúið snemma í desember. Þar verður meðal annars bætt úr lýsingu og aðgengi. Næsta vor á svo að ráðast í stærra verkefni utandyra. „Ytra umhverfið verður farið í svona stórar framkvæmdir þar sem í rauninni stöðin öll að utan verður bara tekin upp og endurbyggð,“ segir Markús. Aukin lýsing og þéttara net öryggismyndavéla séu meðal þeirra leiða sem eigi að hafa fyrirbyggjandi áhrif. Þá verði reynt að fækka skúmaskotum þar sem fólk geti falið sig eða stúkað sig af. Markmiðið sé skýrt. „Fólk á að geta farið í gegn þarna, á bara að upplifa sig öruggt og það þarf ekki að vera í hættu eða þurfa að forðast einhverjar aðstæður þegar það er að bíða eftir vagninum,“ segir Markús. „Það eru bara aðstæður sem við viljum alls ekki að fólk upplifi.“
Mjódd Strætó Lögreglumál Mest lesið Segja upp 34 áskriftum og opna stæðin almenningi Innlent Margrét Löf vill komast í opið fangelsi Innlent Glaumgosinn sem tók við málaliðaveldi föður síns Erlent Nauðgaði fatlaðri konu og gripinn í Leifsstöð Innlent Taka strætóstöðina í Mjódd í gegn eftir ofbeldisatvik Innlent Íbúum ráðlagt að sjóða neysluvatn Innlent Ætlar að stíga hraðar inn og setja RÚV fyrr skorður Innlent Hættir við að aflétta ráðningarbanni vegna manndráps Innlent „Hvernig sérðu að þú sért virkilega að fá já?“ Innlent Fjarvera Þorgerðar á pari við forvera hennar Innlent Fleiri fréttir Lögreglan hafði afskipti af tugum ökumanna Ítalski baróninn á ekki vatnið Tvö umferðarslys og þrír fluttir á sjúkrahús Ómar lagði úrskurðarnefnd vegna tölvupóstsins óvenjulega Skúmaskotum Mjóddarinnar fækkað í forvarnarskyni Segir flugeldasöluna ekki í hættu Tilkynning um kæru óskýr og Bandero fer ekki fet Mál sonar þingmannsins komið til héraðssaksóknara „Við munum tryggja það að hún muni ekki gleymast“ Hættir við að aflétta ráðningarbanni vegna manndráps Bein útsending: Gera samfélagsmiðlar okkur hamingjusöm? Vill bæta eftirlit með lyfjagjöfum aldraðra Fjarvera Þorgerðar á pari við forvera hennar Gríðarleg sjúkdómsbyrði meðal niðurstaðna Eftirsjá að Eggerti: „Lífið heldur áfram“ Nauðgaði fatlaðri konu og gripinn í Leifsstöð Dóttir Kolbrúnar skrifar undir harða viðvörun um leigubremsuna Árásir hófust áður en gallarnir voru lagfærðir Margrét Löf vill komast í opið fangelsi Telur rök Háskólans á Akureyri ekki haldbær Taka strætóstöðina í Mjódd í gegn eftir ofbeldisatvik Breytingar í Mjódd til að bregðast við ofbeldi Þarf að leita annað eftir að hafa ekki fengið fangaklefa Segja upp 34 áskriftum og opna stæðin almenningi Vantar sex milljónir til að halda Edduna Guðmundur Ingi lét fjarlægja blett af fæti Kveður Víetnam og heldur áfram til Kína Seðlabankinn lagði Þorstein Má Fólk upplifi óttastjórnun hjá Reykjavíkurborg Geta nú lokað Reykjanesbrautinni með fjarstýringu Sjá meira