Dæmdir morðingjar gætu fengið að annast fatlað fólk Birgir Olgeirsson skrifar 20. október 2026 16:33 Áform um að aflétta sjálfvirku ráðningarbanni vegna manndráps og alvarlegra líkamsárása í þjónustu við fatlað fólk sæta gagnrýni. Einhverfusamtökin vilja að áhrif breytingarinnar á öryggi þjónustunotenda verði metin. Vísir/Arnar Fólk sem hefur verið dæmt fyrir manndráp eða alvarlegar líkamsárásir gæti fengið að annast fatlað fólk samkvæmt frumvarpsdrögum Ragnars Þórs Ingólfssonar, félags- og húsnæðismálaráðherra um breytingar á lögum um þjónustu við fatlað fólk með langvarandi stuðningsþarfir. Einhverfusamtökin gagnrýna áformin og telja nauðsynlegt að meta áhrif þeirra á öryggi þjónustunotenda.
Sjálfvirku banni við ráðningu vegna þessara brota yrði skipt út fyrir mat á hæfi hvers umsækjanda. Ráðuneytið rökstyður breytinguna meðal annars með því að áratugagamlir dómar eigi ekki sjálfkrafa að útiloka hæft fólk frá því að veita stuðning. Bann vegna kynferðisbrota héldist óbreytt. Breytingin er lögð til eftir ábendingar Gæða- og eftirlitsstofnunar velferðarmála, GEV. Stofnunin vill að sömu reglur gildi um stuðningsfjölskyldur hvort sem þær starfa samkvæmt barnaverndarlögum eða lögum um þjónustu við fatlað fólk. Samkvæmt barnaverndarlögum sæta önnur brot en kynferðisbrot þegar einstaklingsbundnu mati. Í greinargerð draganna segir að núverandi bann hafi í einhverjum tilvikum leitt til óeðlilega strangra niðurstaðna við afgreiðslu rekstrarleyfa, meðal annars fyrir stuðningsfjölskyldur. Geta átt erfitt með að greina frá ofbeldi Einhverfusamtökin telja samræmingu laganna ekki nægjanleg rök fyrir því að aflétta banninu. Fyrst þurfi að meta áhrif breytingarinnar á öryggi fatlaðs fólks. Í umsögn samtakanna, sem er dagsett í dag, segir: „Einhverfusamtökin telja ekki forsvaranlegt að aflétta banninu án ítarlegs rökstuðnings og mats á áhrifum breytingarinnar á öryggi þjónustunotenda. Samræming við önnur lög nægir ekki.“ Samtökin benda á að fólk sem nýtir þjónustuna geti verið mjög háð aðstoð annarra. Sumir hafi takmarkaða möguleika á að segja frá ofbeldi eða leita sér hjálpar, meðal annars vegna þess að þeir hafi lítið eða ekkert talmál. Verði breytingin gerð telja samtökin nauðsynlegt að setja bindandi viðmið um hæfismat, tryggja skýra ábyrgð á ráðningum og virkt eftirlit. Öryggi fólks megi ekki ráðast af ólíkum viðmiðum einstakra vinnuveitenda. Stjórnendur meti hæfi umsækjenda Breytingin er hluti af víðtækari endurskoðun laga um þjónustu við fatlað fólk með langvarandi stuðningsþarfir. Hún næði bæði til ráðninga og útgáfu rekstrarleyfa. Samkvæmt greinargerðinni myndu stjórnendur eða leyfisveitandi meta hæfi fólks með aðra refsidóma en kynferðisbrotadóma. Við matið ætti að skoða hvers konar starf viðkomandi sækti um, alvarleika brotsins og aðstæður þess, hversu langt væri síðan það var framið og lífshætti og framgöngu viðkomandi eftir afplánun. Ráðuneytið leggur áherslu á að breytingin eigi ekki að skerða öryggi og vernd fatlaðs fólks. Í umsögn GEV fagnar stofnunin því að ábendingar hennar hafi leitt til tillögunnar. Hún bendir þó jafnframt á að reglugerð um stuðningsfjölskyldur samkvæmt lögum um þjónustu við fatlað fólk hafi enn ekki verið sett. Því vanti leiðbeiningar um hvaða skilyrði slíkar fjölskyldur þurfi að uppfylla áður en rekstrarleyfi sé veitt.
Málefni fatlaðs fólks Ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur Einhverfa Félagsmál Mest lesið Segja upp 34 áskriftum og opna stæðin almenningi Innlent Margrét Löf vill komast í opið fangelsi Innlent Glaumgosinn sem tók við málaliðaveldi föður síns Erlent Nauðgaði fatlaðri konu og gripinn í Leifsstöð Innlent Taka strætóstöðina í Mjódd í gegn eftir ofbeldisatvik Innlent Íbúum ráðlagt að sjóða neysluvatn Innlent Ætlar að stíga hraðar inn og setja RÚV fyrr skorður Innlent „Hvernig sérðu að þú sért virkilega að fá já?“ Innlent Hættir við að aflétta ráðningarbanni vegna manndráps Innlent Seðlabankinn lagði Þorstein Má Innlent Fleiri fréttir Skúmaskotum Mjóddarinnar fækkað í forvarnarskyni Segir flugeldasöluna ekki í hættu Tilkynning um kæru óskýr og Bandero fer ekki fet Mál sonar þingmannsins komið til héraðssaksóknara „Við munum tryggja það að hún muni ekki gleymast“ Hættir við að aflétta ráðningarbanni vegna manndráps Bein útsending: Gera samfélagsmiðlar okkur hamingjusöm? Vill bæta eftirlit með lyfjagjöfum aldraðra Fjarvera Þorgerðar á pari við forvera hennar Gríðarleg sjúkdómsbyrði meðal niðurstaðna Eftirsjá að Eggerti: „Lífið heldur áfram“ Nauðgaði fatlaðri konu og gripinn í Leifsstöð Dóttir Kolbrúnar skrifar undir harða viðvörun um leigubremsuna Árásir hófust áður en gallarnir voru lagfærðir Margrét Löf vill komast í opið fangelsi Telur rök Háskólans á Akureyri ekki haldbær Taka strætóstöðina í Mjódd í gegn eftir ofbeldisatvik Breytingar í Mjódd til að bregðast við ofbeldi Þarf að leita annað eftir að hafa ekki fengið fangaklefa Segja upp 34 áskriftum og opna stæðin almenningi Vantar sex milljónir til að halda Edduna Guðmundur Ingi lét fjarlægja blett af fæti Kveður Víetnam og heldur áfram til Kína Seðlabankinn lagði Þorstein Má Fólk upplifi óttastjórnun hjá Reykjavíkurborg Geta nú lokað Reykjanesbrautinni með fjarstýringu Ótti við rasistastimpil megi ekki stöðva alla umræðu Ætlar að stíga hraðar inn og setja RÚV fyrr skorður Ungmenni gripin við innbrot „Þetta er ákall“ Sjá meira