Tengslarof ríkistjórnarinna við atvinnulíf og samfélög á landsbyggðinni Sonja Lind E. Eyglóardóttir skrifar 20. október 2026 16:48 Kílómetragjaldið er enn eitt dæmið um alvarlegt tengslarof ríkistjórnarinna við atvinnulíf og samfélög á landsbyggðinni. Þeir borga sem nota! Spurt er: Af hverju ætti fólk á höfuðborgarsvæðinu sem aðeins skreppur út á land á sumrin og í páskafríum að greiða fyrir vegi á landsbyggðinni? Við fyrstu sýn hljómar það skynsamlega að þeir sem nýta vegakerfið fjármagni það. Ef við göngum út frá þeirri meginreglu að þeir einir eigi að greiða sem nota, þá hlýtur þessi spurning að vera jafn réttmæt og spurningin af hverju ætti einstaklingur sem viðheldur heilbrigðum lífsstíl að bera kostnað af heilbrigðisþjónustu einstaklings sem velur hið gagnstæða. Svarið er einfalt. Við búum í samfélagi þar sem við deilum ábyrgðinni á sameiginlegum innviðum og þjónustu. Við notum skattkerfið til að jafna aðstöðumun, tryggja jafnt aðgengi og standa saman þegar þarfir okkar eru mismunandi. Um þá grundvallarhugsun hefur almennt ríkt sátt á Íslandi. Við greiðum ekki aðeins fyrir það sem við sjálf notum hverju sinni. Við greiðum líka fyrir samfélagið sem við viljum búa í, fyrir innviði sem við gætum þurft á að halda síðar og fyrir það að aðrir hafi raunhæf tækifæri til að lifa mannsæmandi lífi, óháð aðstæðum sínum. Af hverju ætti sú hugsun ekki líka að gilda um vegakerfið? Ólíkar aðstæður Íbúar á höfuðborgarsvæðinu búa við gerólíkan raunveruleika en íbúar á landsbyggðinni. Þar er víða stutt í vinnu, skóla, heilbrigðisþjónustu, íþróttir og tómstundir, auk þess sem íbúar á höfuðborgarsvæðinu búa við þann lúxus að geta nýtt sér almenningssamgöngur. Staðan á landsbyggðinni er allt önnur. Fólk þarf oft að aka langar vegalengdir til þess að komast í grunnþjónustu sem er handan við hornið á höfuðborgarsvæðinu. Þess utan hefur núverandi ríkisstjórnin einnig verulega dregið úr framlögum til almenningssamganga á landsbyggðinni. Það er sérstök stefna að ætla sér að byggja skattlagninu eingöngu á eknum kílómetrum án þess að líta til mismunandi aðstæðna í jafn dreifbýlu landi og Íslandi. Verðmætin verða til úti á landi Í þessu samhengi er einnig rétt að halda því til haga að stór hluti verðmæta sem standa undir íslenskum útflutningi verður til á landsbyggðinni. Sjávarútvegur, fiskeldi, landbúnaður, orkuframleiðsla og stór hluti ferðaþjónustunnar byggjast á auðlindum, atvinnustarfsemi og fólki víða um land. Þessar atvinnugreinar skapa störf, útflutningstekjur og skatttekjur sem nýtast samfélaginu öllu. Þessi verðmætasköpun verður ekki til án samgangna. Fyrirtæki þurfa að flytja hráefni, vörur, aðföng og starfsfólk milli staða. Ferðaþjónustan byggist að stórum hluta á því að gestir geti ferðast um landið og upplifað þá þjónustu og náttúru sem Ísland hefur upp á að bjóða. Samgöngur eru því ekki aðeins kostnaður sem fylgir atvinnustarfsemi heldur ein af grunnforsendum hennar. Það er enginn vafi á því að landsbyggðin gegnir lykilhlutverki í útflutningsdrifnu hagkerfi Íslands og stendur undir lífskjörum og sameiginlegum innviðum alls landsins. Það virðist sem ríkisstjórnin hafi alveg gleymt að huga að þessu þegar farið var í að ákveðið hvernig vegakerfið yrði fjármagnað. Þá sætir það furðu að ríkisstjórnin ætli að leggja aukinn kostnað á samgöngur, sem eru forsenda verðmætasköpunar á landsbyggðinni, án þess að sýna fram á það með fullnægjandi hætti hvaða áhrif það hefur á atvinnulíf og byggðir. Kílómetragjaldið afhjúpar skilningsleysi ríkisstjórnarinnar á landsbyggðinni. Reykjavík er okkar? Reykjavík er höfuðborg Íslands og þar höfum við sammælst um að koma fyrir opinberum stofnunum, Landspítala, sérfræðiþjónustu og háskóla. En með tilkomu kílómetragjaldsins bera íbúar landsbyggðarinnar óhóflegan kostnað umfram íbúa höfuðborgarsvæðisins við það eitt að búa fjarri þjónustunni. Við getum ekki ætlast til þess að fólk búi og starfi um allt land, skapi verðmæti, haldi uppi atvinnulífi og stuðli að útflutningstekjum þjóðarinnar, en horft fram hjá því að það þarf að greiða hærra verð fyrir aðgengi að sömu þjónustu og íbúar höfuðborgarsvæðisins. Vinnusóknarsvæði höfuðborgarinnar í hættu Samkvæmt greiningu Byggðastofnunar teygir stækkað vinnusóknarsvæði höfuðborgarinnar sig í grófum dráttum norður að Borgarnesi, austur fyrir Selfoss og suður og vestur yfir öll Suðurnes. Fjöldi fólks ekur daglega frá þessum svæðum til þess að sækja vinnu. Hvað gerist ef starfsmaður sem býr á Akranesi, í Borgarnesi, á Suðurnesjum eða fyrir austan fjall metur það svo að kostnaðurinn við að sækja vinnu í Reykjavík sé orðinn of mikill? Landspítali og aðrir stórir vinnustaðir á höfuðborgarsvæðinu reiða sig á starfsfólk sem býr á vinnusóknarsvæði höfuðborgarsvæðisins. Ef ferðakostnaður eykst verulega getur það haft áhrif á ráðstöfunartekjur starfsfólks og gert tiltekin störf síður eftirsóknarverð fyrir þá sem búa lengra frá. Ég hef ekki fundið opinbert áhrifamat sem svarar sérstaklega hversu margir starfsmenn Landspítala gætu hætt störfum eða breytt vinnusókn sinni vegna kílómetragjaldsins en það væri svo sannarlega áhugavert að vita hvort lagt hafi verið mat á áhrif kílómetragjaldsins á vinnusókn og mönnun mikilvægra stofnana, svo sem Landspítala. Horfa verður til mismunandi aðstæðna Ég er alls ekki mótfallin því að greiða fyrir notkun á vegakerfinu en ég tel mikilvægt að horft sé til mismunandi aðstæðna fólks og gæta meðalhófs. Ef ríkisstjórnin vill byggja á meginreglunni „þeir borga sem nota“ verður hún jafnframt að horfast í augu við að notkunin er að hluta til óhjákvæmileg. Fólk getur ekki valið sér styttri vegalengdir milli heimilis, vinnu og þjónustu. Það getur heldur ekki eitt og sér ákveðið hvar heilbrigðisþjónusta, skólar eða störf eru staðsett. Því þarf að skoða hvort hægt sé að útfæra gjaldið með sanngjarnari hætti, þannig að tekið sé mið af búsetu og raunverulegum möguleikum fólks til að velja aðra samgöngumáta. Greiðsluþak er ein leið Í heilbrigðiskerfinu höfum við til dæmis greiðsluþak sem takmarkar hversu mikið einstaklingar þurfa að greiða sjálfir fyrir tiltekna heilbrigðisþjónustu á ákveðnu tímabili. Það er eðlilegt að spyrja hvort sambærileg sjónarmið eigi ekki einnig við þegar kemur að nauðsynlegum samgöngum. Sigurður Ingi Jóhannsson, fyrrv. innviða- og fjármálaráðherra og þingmaður Framsóknar hefur lagt fram þingsályktunartillögu á Alþingi sem felur í sér skattfrádrátt vegna kostnaðar við ferðir til og frá vinnu. Markmið tillögunnar er að tryggja réttláta meðferð þeirra sem bera verulegan kostnað vegna daglegra ferða til og frá vinnu. Það er ein leið. Það er ljóst að nauðsynlegt er að setja þak á árlegan kostnað heimila vegna kílómetragjalds eða útfæra sérstakar leiðir til að mæta aðstæðum þeirra sem búa þar sem aðrir samgöngumátar eru ekki raunhæfur kostur? Mikilvægt er að útfæra kílómetragjaldið þannig að það taki betur mið af búsetu og raunverulegum möguleikum fólks til að velja aðra samgöngumáta. Einnig þarf að meta áhrif gjaldsins á atvinnulíf, vinnusókn og verðlag í dreifðum byggðum. Slík nálgun krefst skýrra gagna og vandaðrar útfærslu. Má biðja ríkisstjórnina um að vanda sig? Höfundur er í sveitarstjórn í Borgarbyggð. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Mest lesið Kynslóðin sem mátti aldrei sýna tilfinningar getur ekki lengur sofið Sigríður Svanborgardóttir Skoðun Gott bú stendur undir sér Róbert Ragnarsson Skoðun Að nota börn til að næra sitt eigið egó Helga Snædal Skoðun Fæðingarorlof fyrir ömmu og afa? Magnea Gná Jóhannsdóttir Skoðun Af þreyttasta frumvarpi íslenskrar þingsögu Árni Guðmundsson Skoðun Mikilvægt er að draga lærdóm af smáíbúðamálinu i Hafnarfirði Árni Rúnar Þorvaldsson Skoðun Skaðabætur frá síðustu öld Hópur lögmanna Skoðun Að byrja á röngum enda – vítahringur vímuefnavanda, afbrota og refsinga Margrét Dís Yeoman Skoðun Börn þurfa úrræði, ekki innantóm loforð Ása Berglind Hjálmarsdóttir Skoðun Ætlum við að fækka bílum eða bara ökumönnum með sjálfkeyrandi bílum? Kristín Hrefna Halldórsdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Tengslarof ríkistjórnarinna við atvinnulíf og samfélög á landsbyggðinni Sonja Lind E. Eyglóardóttir skrifar Skoðun Hver pantaði börn með þessu ADHD? Jóna Kristín Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Sniglar á götunni Kristján Logason skrifar Skoðun Kynslóðin sem mátti aldrei sýna tilfinningar getur ekki lengur sofið Sigríður Svanborgardóttir skrifar Skoðun Skipulagið grefur undan séreignarstefnunni – brött brekka fyrir fyrstu kaupendur Sigurður Stefánsson skrifar Skoðun Myrkraverk í Afríku Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Skaðabætur frá síðustu öld Hópur lögmanna skrifar Skoðun Að nota börn til að næra sitt eigið egó Helga Snædal skrifar Skoðun Veitingageiranum var hent undir vagninn Einar Bárðarson skrifar Skoðun Ætlum við að fækka bílum eða bara ökumönnum með sjálfkeyrandi bílum? Kristín Hrefna Halldórsdóttir skrifar Skoðun Úr öskunni í eldinn Ingveldur Anna Sigurðardóttir skrifar Skoðun Hamfarir í hversdagslegum kringumstæðum Sanna Magdalena Mörtudóttir skrifar Skoðun Heimilin eiga ekki alltaf að borga brúsann Alexander M. Árnason skrifar Skoðun Fleiri krónur taldar – fáar nýjar Daði Freyr Ólafsson skrifar Skoðun „The Concert of Three“. Samráð stórveldanna þriggja – ný leið til heimsfriðar? Aðalsteinn Júlíus Magnússon skrifar Skoðun Mikilvægt er að draga lærdóm af smáíbúðamálinu i Hafnarfirði Árni Rúnar Þorvaldsson skrifar Skoðun Farsælt ferðalag fólks og fisks Heiðrún Lind Marteinsdóttir skrifar Skoðun Orkan í ólgusjó efnahagsmála Tinna Traustadóttir skrifar Skoðun Fæðingarorlof fyrir ömmu og afa? Magnea Gná Jóhannsdóttir skrifar Skoðun Gott bú stendur undir sér Róbert Ragnarsson skrifar Skoðun Loksins get ég notið þess að vera heima Ingibjörg Dóra Scheving Bjarnadóttir skrifar Skoðun Þegar samþykki virðist verða að ábyrgð brotaþola Herdís Ósk Sveinbjörnsdóttir skrifar Skoðun Sama fötlun en ólík réttindi - Aldurinn ræður úrslitum - Ásta Ólafsdóttir skrifar Skoðun Umskiptingar Flokks fólksins á Alþingi Júlíus Valsson skrifar Skoðun Okkar fé í Heimum Bergur Hauksson skrifar Skoðun Hver ætlar að hjúkra þér? Helga Rósa Másdóttir skrifar Skoðun Er alveg sama hvað Ísland er dýrt? Björn Ragnarsson skrifar Skoðun Krossinn er ekki matseðill Hilmar Kristinsson skrifar Skoðun Við mælum hávaða en mælum við óskýrleikann? Ragnhildur Bjarkadóttir skrifar Skoðun Hvað gerist í síðari hálfleik? Lovísa Oktovía Eyvindsdóttir skrifar Sjá meira
Kynslóðin sem mátti aldrei sýna tilfinningar getur ekki lengur sofið Sigríður Svanborgardóttir Skoðun
Að byrja á röngum enda – vítahringur vímuefnavanda, afbrota og refsinga Margrét Dís Yeoman Skoðun
Ætlum við að fækka bílum eða bara ökumönnum með sjálfkeyrandi bílum? Kristín Hrefna Halldórsdóttir Skoðun
Skoðun Tengslarof ríkistjórnarinna við atvinnulíf og samfélög á landsbyggðinni Sonja Lind E. Eyglóardóttir skrifar
Skoðun Kynslóðin sem mátti aldrei sýna tilfinningar getur ekki lengur sofið Sigríður Svanborgardóttir skrifar
Skoðun Skipulagið grefur undan séreignarstefnunni – brött brekka fyrir fyrstu kaupendur Sigurður Stefánsson skrifar
Skoðun Ætlum við að fækka bílum eða bara ökumönnum með sjálfkeyrandi bílum? Kristín Hrefna Halldórsdóttir skrifar
Skoðun „The Concert of Three“. Samráð stórveldanna þriggja – ný leið til heimsfriðar? Aðalsteinn Júlíus Magnússon skrifar
Skoðun Mikilvægt er að draga lærdóm af smáíbúðamálinu i Hafnarfirði Árni Rúnar Þorvaldsson skrifar
Kynslóðin sem mátti aldrei sýna tilfinningar getur ekki lengur sofið Sigríður Svanborgardóttir Skoðun
Að byrja á röngum enda – vítahringur vímuefnavanda, afbrota og refsinga Margrét Dís Yeoman Skoðun
Ætlum við að fækka bílum eða bara ökumönnum með sjálfkeyrandi bílum? Kristín Hrefna Halldórsdóttir Skoðun