Skoðun

Hækkun matarverðs líf­eyris­þega á undan innri út­tekt

Sigurður Sigurðsson skrifar

Hildur Björnsdóttir tók við embætti borgarstjóra Reykjavíkur 2. júní 2026 með áherslu á tafarlausan sparnað. Innan þriggja mánaða samþykkti meirihlutinn allt að 73% hækkun á verði hádegismáltíða eldri borgara og öryrkja – áður en eitt einasta alvarlegt skref hafði verið tekið til að stöðva sóunina innan borgarstjórnkerfisins. Á meðan héldu 11.000 starfsmenn og æðsta stjórn borgarinnar áfram í gjaldfrjálsri elhúsaðstöðu, salernispappír, niðurgreiddum máltíðum, ferðalögum, móttökum og dýru leiguhúsnæði. Það er ekki forgangsröðun. Það er flótti frá raunveruleikanum.

Spurningin er um röð ákvarðana og skort á opnum gögnum. Borgin krafðist aukinnar kostnaðarþátttöku af notendum félagslegrar þjónustu áður en hún hafði rannsakað eigin rekstrarkostnað, hlunnindi og útgjöld af sömu alvöru.

Hækkunin og áhrif hennar

Almennt verð hádegismáltíðar lífeyrisþega hækkaði úr 1.100 eða 1.190 krónum í 1.900 krónur frá 1. september 2026. Hækkunin er 72,7% frá lægra viðmiði og 59,7% frá hærra viðmiði. Einstaklingur sem kaupir 20 máltíðir á mánuði greiðir 16.000 krónum meira í hverjum mánuði, eða 192.000 krónum á ári. Þetta er umtalsverð byrði á föstum lífeyri.

Matarþjónusta við eldra fólk styður sjálfstæða búsetu, næringu og félagslega þátttöku. Alþýðusamband Íslands gagnrýndi hækkunina og benti á að félagsleg matarþjónusta sé ekki venjuleg söluvara. Áður en gjaldskrá er hækkuð þarf að meta bæði fjárhagsleg og samfélagsleg áhrif.

Kærumál til Úrskurðarnefndar velferðarmála gæti leitt í ljós að synjun á gjaldalækkun og að málsmeðferðin styðjast ekki að fullu við birt ákvæði gjaldskrár nr. 936/2026. Túlkun borgarinnar bætir við skilyrði sem ekki er að finna í textanum. Rökstuðningurinn uppfyllir ekki kröfur 22. gr. stjórnsýslulaga. Þetta styrkir kröfuna um gagnsæi og fulla innri greiningu.

Innri útgjöld og hlunnindi

Á meðan matarverðið var hækkað hjá gamlingjunum héldu starfsmenn og yfirstjórn áfram í gjaldfrjálsri eldhúsaðstöðu: ókeypis salernispappír og aðrar rekstrarvörur keyptar í haugum á kostnað okkar skattgreiðenda, kaffistofum, fundaaðstöðu, bílastæðum, ferðalögum, móttökum og dýru leiguhúsnæði. Öryrkjar og eldri borgarar greiða sinn salernispappír sjálfir. Yfirstjórn borgarinnar fær hann frítt, meðal annars á kostnað þeirra. Sumir þeirra sem fá þessa gjáldfrjálsu þjónustu fá 8 til 10 sinnum hærri laun frá borginni en þau sem fá lægstu mögulegu ellilaun frá Tryggingastofnun ríkisins. Margir í þeim hópi misstu lífeyrissjóði sína og aleiguna í bankahruninu 2008. Niðurgreiðsla á máltíðum í Ráðhúsinu var meiri en sú sem þessir öryrkjar og eldri borgarar fengu.

Eldhúsið á Vitatorgi fékk á sínum ekki nægan pening til að kaupa ódýrasta hráefnið á markaðnum alla daga vikunnar. Ný ýsa kom gul og grá á diskana og kjötbitarnir voru eins og hjólbarðagúmmí. Á meðan sat yfirstjórnin áfram á gullstalli skattpeninganna. Engin opinber sundurliðun á öllum þessum liðum lá fyrir þegar hækkunin var samþykkt.

Rannsóknarforsendur benda á mögulegan árlegan sparnað í stjórnsýslu og rekstri upp á 1,71 milljarð króna. Þar á meðal eru endurskoðun leiguhúsnæðis, ráðgjöf, ferðalög og hagræðing fasteigna. Þessar tölur eru ekki staðfestur sparnaður en sýna stærðargráðuna. Fækkun borgarfulltrúa krefst lagabreytingar og eignasala er ekki endurtekinn sparnaður.

Tillögur um opinbera sundurliðun og greiningarlegan samanburð

Lagt er til að Reykjavíkurborg birti opinberlega og sundurliðað: heildarkjör og hlunnindi æðstu stjórnenda, kostnað við ferðalög, móttökur, ráðgjöf og leiguhúsnæði, og samanburð á kostnaði félagslegrar matarþjónustu yfirstjórnarinnar og innri starfsmannaþjónustu.

Greiningarlegur samanburðurinn er skýr. Einstaklingur sem kaupir 20 máltíðir á mánuði greiðir 16.000 krónum meira á mánuði – 192.000 krónum á ári. Á sama tíma var engin opinber sundurliðun birtur á innri útgjöldum borgarinnar. Rannsóknarforsendur benda á 1,71 milljarð króna árlegan sparnað í stjórnsýslu og rekstri og 1,32 milljarð króna af tillögu um þjónustugjald starfsmanna (11.000 starfsmenn × 10.000 kr. × 12). Samtals 3,03 milljarðar króna á ári – 12,12 milljarðar króna yfir heilt kjörtímabil. 10.000 kr. gjald er 43,6% lægra en 17.735 kr. þjónustugjald þjónustuíbúðanna. Þetta er umtalsvert meiri byrði sem lögð er á einstaka lífeyrisþega. Engin skýring lá fyrir hvers vegna veikustu hóparnir áttu að greiða fyrst auk þess sem yfirstjórnin fékk meiri stuðning en öryrkjar og eldriborgarar?

Spurningin er ekki hvort stjórnendur séu meira þurfandi. Spurningin er hvort borgin hafi rannsakað eigin útgjöld, laun og hlunnindi af sama alvöru og hún krafðist aukinnar greiðslu af notendum félagslegrar þjónustu. Svarið sem liggur fyrir er að það var ekki gert áður en hækkunin var samþykkt.

Tillaga um 10.000 króna þjónustugjald

Til samanburðar er lagt til að tekið verði til formlegrar skoðunar hvort allir starfsmenn borgarinnar geti greitt 10.000 krónur mánaðarlega fyrir skilgreinda sameiginlega þjónustu og aðstöðu, að því marki sem slíkt samræmist lögum og kjarasamningum. Miðað við 11.000 starfsmenn yrðu brúttótekjur 1,32 milljarðar króna á ári.

Þetta er 43,6% lægra en þjónustugjald í þjónustuíbúðum aldraðra (17.735 krónur). Samanburðurinn sýnir mun á fjárhæðum en ekki að þjónustan sé sama eðlis. Markmiðið er að reyna á jafnræði í kostnaðarhugsun. Lögbundin vinnuvernd og nauðsynleg aðstaða eru skyldur vinnuveitanda og ekki gjaldskyld á sama grundvelli. Tillagan krefst sjálfstæðs lagamats.

Liður

Árlega

Yfir 4 ár

Þjónustugjald starfsmanna

1,32 ma.kr.

5,28 ma.kr.

Stjórnsýsla og rekstur

1,71 ma.kr.

6,84 ma.kr.

Samtals án sölu Ráðhúss

3,03 ma.kr.

12,12 ma.kr.

Taflan sýnir brúttóútreikninga yfir heilt kjörtímabil. Raunverulegur nettóávinningur ræðst af framkvæmdarkostnaði, skörun liða og félagslegum áhrifum. Ráðhússleiðir (sala eða leiga) eru ekki innifaldar og krefjast sérstaks mats, en gæti skilað borgarsjóði milljörðum.

Lokaorð

Hækkun matarverðs lífeyrisþega um allt að 73% átti sér stað áður en heildstæð innri úttekt lá fyrir. Engin sundurliðun á hlunnindum, ferðalögum, salernispappír eða leiguhúsnæði. Engin skýring á því hvers vegna veikustu hóparnir áttu að greiða fyrst á meðan yfirstjórnin sat áfram á gullstalli skattpeninganna og fékk meiri niðurgreiðslu á máltíðum og hreinlætisaðstöðu en öryrkjar og eldri borgarar. Eldhúsið á Vitatorgi fékk ekki nægan pening til að kaupa ódýrasta hráefnið nema 6 daga vikunnar. Ný ýsa kom gul og grá og kjötbitarnir voru eins og hjólbarðagúmmí. Sparnaður sem byrjar á notendum félagslegrar þjónustu áður en stjórnkerfið hefur rannsakað eigin sóun er ekki forgangsröðun. Það er val sem þarf að snúa við. Borgarstarfsmenn og sérstaklega yfirstjórn eiga að stíga niður og greiða að fullu fyrir mat og rekstrarvörur sem keyptar eru á kostnað skattgreiðenda.

Tillögurnar sem hér eru settar fram – 10.000 króna þjónustugjald til samanburðar, opinber sundurliðun á kjörum og hlunnindum, og óháð greining með mælanlegum niðurstöðum – eru settar fram til að knýja fram þá skoðun sem ekki fór fram. Hún ætlaði að spara strax. Hér eru tillögurnar. Nú þarf að leggja fram gögnin.

Höfundur er byggingaverkfræðingur.

Heimildir

Gjaldskrá nr. 936/2026 fyrir matarþjónustu eldri borgara og öryrkja, Reykjavíkurborg.

Ákvörðun Áfrýjunarnefndar velferðarráðs, 30. september 2026, og rökstuðningur 9. október 2026, mál VEL26090132.

Úrskurðarnefnd velferðarmála, mál nr. 439/2021, 19. janúar 2022.

Stjórnsýslulög nr. 37/1993, 7., 10., 12., 13. og 22. gr.

Stjórnarskrá lýðveldisins Íslands, 1. mgr. 76. gr.

Lög um málefni aldraðra nr. 125/1999.

Lög um þjónustu við fatlað fólk nr. 38/2018.

Alþýðusamband Íslands, umsögn um hækkun matarverðs, ágúst 2026.

Fjárhagsáætlun Reykjavíkurborgar 2026.

Fréttir og tilkynningar Reykjavíkurborgar um ráðningarsamning borgarstjóra og ákvarðanir velferðarráðs, júní–ágúst 2026.

Siðareglur lögmanna, 1. gr.




Skoðun

Sjá meira


×