Innlent

„Brikk-fjöl­skyldan lenti í hræði­legu at­viki“

Bjarki Sigurðsson skrifar
Eldurinn kviknaði í potti.
Eldurinn kviknaði í potti. Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins

Slökkviliðið á höfuðborgarsvæðinu tók þátt í 109 verkefnum síðastliðinn sólarhring. Í tveimur þeirra voru kallaðir til dælubílar en rest voru boðanir á sjúkrabíla. 26 boðanir voru á forgangi. Eldur kviknaði í húsnæði Brikk við Norðurbakka í Hafnarfirði.

Þetta kemur fram á samfélagsmiðlum slökkviliðsins. Annað útkallanna á dælubílana var afturkallað þar sem búið var að leysa málið áður en slökkviliðið mætti á svæðið. 

Í hinu málinu voru allir dælubílar kallaðir út vegna elds í húsnæði í Hafnarfirði. Þegar komið var á staðinn reyndist vera eldur í potti sem reykkafarar voru fljótir að slökkva og við tók reykræsting. 

Í færslu á samfélagsmiðlum bakarísins Brikk kemur fram að bruninn hafi verið í eldhúsi þeirra við Norðurbakka í Hafnarfirði. 

„Brikk fjölskyldan lenti í hræðilegu atviki á Norðurbakkanum í kvöld. Í ljósi aðstæðna verður Brikk á Norðurbakka því miður lokað í óákveðinn tíma. Við tökum auðvitað vel á móti ykkur í öllum öðrum útibúum okkar,“ segir í færslunni. 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×