Ísraelskt flugfélag boðar beint flug til Íslands Birgir Olgeirsson skrifar 19. október 2026 11:04 Ísraelska flugfélagið Arkia hyggst hefja beint flug til Íslands í júní á næsta ári. Styyx / Wikimedia Commons / CC BY-SA 4.0. Beint flug milli Ísraels og Íslands er fyrirhugað frá júní á næsta ári. Ísraelska flugfélagið Arkia hefur bætt Keflavík við áfangastaði sína og auglýsir beinar ferðir hingað til lands á eigin vef.
Félagið kynnti í gær flugáætlun sína fyrir árið 2027, sem nær til fjörutíu áfangastaða erlendis. Ísland er einn fimm nýrra áfangastaða, ásamt Maníla á Filippseyjum, Tallinn í Eistlandi, Jerevan í Armeníu og Sarajevo í Bosníu og Hersegóvínu. Í auglýstum ferðatilboðum á sölusíðu Arkia fyrir Keflavík eru meðal annars dagsetningar fram til 17. ágúst. Nánari upplýsingar um tíðni flugsins og lengd flugtímabilsins hafa ekki komið fram í birtum fréttum af kynningunni. Samkvæmt Ynet fundust fargjöld frá 798 Bandaríkjadölum (um 96.600 krónum) fram og til baka fyrir ferð frá 29. júní til 13. júlí. Verðið var með kynningarafslætti en án handfaratösku á hjólum. Segir Ísland njóta vaxandi vinsælda Ynet segir Ísland hafa notið vaxandi vinsælda meðal ísraelskra ferðamanna undanfarin ár. Þeir þurfi nú að ferðast hingað með tengiflugi um Evrópu. Fjölmiðillinn lýsir Íslandi sem einum stórbrotnasta náttúruáfangastað heims. Þar séu meðal annars virk eldfjöll, víðáttumiklir jöklar, tilkomumiklir fossar, goshverir, svartar strendur og heitar laugar. Notar bæði minni farþegaþotur og breiðþotur Arkia var stofnað árið 1949 og á því hátt í átta áratuga sögu. Félagið er einkarekið, með aðsetur í Tel Aviv, og sinnir bæði millilandaflugi og innanlandsflugi til Eilat í suðurhluta Ísraels. Auk flugmiða selur það pakkaferðir og skipulagðar ferðir. Meðal þotna sem félagið notar eru 122 sæta Embraer E195, 180 sæta Airbus A320 og langdrægar Airbus A321neo LR með 220 sætum. Það hefur einnig nýtt innleigðar Airbus A330-breiðþotur í lengra millilandaflugi. Ekki hefur komið fram hvaða vélategund verður notuð á Íslandsleiðinni. Flotagagnagrunnurinn Planespotters skráir fjórtán vélar hjá Arkia. Samkvæmt eigin kynningu félagsins flýgur það til tæplega fjörutíu áfangastaða erlendis. Icelandair flýgur ekki lengur til Ísraels Icelandair hóf beint flug til Tel Aviv í júní 2023 og gerði þá ráð fyrir þremur ferðum í viku yfir sumarið. Tel Aviv er hins vegar ekki í núverandi flugáætlun félagsins fyrir 2026–2027.
Flug Ferðaþjónusta Ísrael Mest lesið Ísland.is-svindlið bjóði hættunni heim Innlent Lækkar eigin laun Innlent Vill funda með Trump og Xi um örlög Úkraínu Erlent Lokar Hótel Kulusuk eftir að flug hætti frá Íslandi Innlent Nafn mannsins sem lést á Gæsavatnaleið Innlent Íbúarnir höfðu betur Innlent Maður hnoðaður til lífs í Sundhöllinni Innlent Umhverfisvænna að sleppa óþarfa kurteisi Innlent Neitaði að samþykkja afsögn vegna mótmælanna Erlent Neyðarlending eftir sprengjuhótun Erlent Fleiri fréttir Undirskriftasöfnun hafin og ríkissakóknari íhugar áfrýjun Maður hnoðaður til lífs í Sundhöllinni Dómsmálaráðherra fær nýjan aðstoðarmann Íbúarnir höfðu betur Inga opnar fyrir niðurstöður í PISA Lækkar eigin laun Ísland.is-svindlið bjóði hættunni heim Í símanum undir stýri og hljóp í burtu Umhverfisvænna að sleppa óþarfa kurteisi Lokar Hótel Kulusuk eftir að flug hætti frá Íslandi Formaður VG fékk táragas í augun: „Þá er eins og fjandinn sé laus“ Nafn mannsins sem lést á Gæsavatnaleið Lést í starfsmannaferð: „Við tökum einn dag í einu“ „Það borgar enginn rafmagnsreikninginn með læk-hnappnum“ Lokuðu rannsókn á alvarlegu atviki eftir fimmtán mánaða bið Syrgja starfsmann sem lést í slysi Maðurinn sem lést var Íslendingur Kallar Ólaf Ragnar „Rússagælu“ Fleiri foreldrar sem störfuðu í EES geti átt rétt á skaðabótum Flúði táragas lögreglu í Nice Íslendingur í Frakklandi og ekki bjóða góðan dag „Ég elska Obbu“ Gaus úr úðarakerfi í Mjóddinni Þorgerður Katrín í ítarlegu viðtali Móðir ósátt við að bara aprílbörn fái ekki RS-bóluefni Einn handtekinn vegna líkamsárásar í miðbænum Popúlismi og einangrunarhyggja ógnar loftslagsaðgerðum Biður Jón afsökunar „Vitum ekki hvaða skrímsli er verið að skapa“ Komi til greina að nýta gervigreind í námsgagnagerð Sjá meira