Erlent

Ekið á ástralska þingkonu

Samúel Karl Ólason skrifar
Helen Haines hefur setið á þingi í Ástralíu sem óháður þingmaður frá 2019.
Helen Haines hefur setið á þingi í Ástralíu sem óháður þingmaður frá 2019. AP/Mick Tsikas, AAP

Ekið var á ástralska þingkonu fyrir utan skrifstofu hennar í Wangaratta í morgun. Útlit er fyrir að 43 ára maður hafi vísvitandi ekið á Helen Haines á Toyota Landcruiser en Anthony Albanese, forsætisráðherra, segir atvikið rannsakað af hryðjuverkalögreglu.

Haines, sem er 65 ára gömul, er sögð alvarlega slösuð en maðurinn sem ók bílnum var yfirbugaður á vettvangi af almennum borgurum og svo handtekinn. Lögregluþjónar fundu hníf í bílnum, samkvæmt lögreglunni.

Ástralska ríkisútvarpið hefur eftir Albanese að draga þurfi úr spennu í pólitískri umræðu í Ástralíu. Það er eitthvað sem hann hefur lengi kallað eftir en ástralskir stjórnmálamenn hafa í gegnum árin þótt mjög aðgengilegir og hafa getað gengið um götur án sérstakrar verndar.

Þetta hefur orðið erfiðara á undanförnum árum þar sem ógnanir gegn embættis- og stjórnmálamönnum hafa færst í aukana.

Albanese sagðist í morgun ekki vilja samfélag þar sem stjórnmálamenn geta ekki rætt við almenning í matvöruverslunum eða á götu úti. Það væri mikilvægur liður í áströlsku lýðræði.

„Og auðvitað einhver eins og Helen Haines, sem kemur úr þessu samfélagi, var mjög sýnileg og á ferðinni meðal fólks. Ég hafði ánægju af því að verja tíma með Helen Haines í hennar heimakjördæmi og ég veit að hún nýtur þar mikillar virðingar þvert á pólitískar línur.“

Forsætisráðherrann sagði Haines alltaf koma fram við aðra af virðingu. Hún væri sjálf vel virt af öllum þingmönnum. Ekkert rúm væri fyrir pólitískt ofbeldi í Ástralíu.

Krissy Barrett, yfirmaður Alríkislögreglu Ástralíu, sagði í fyrra að hótunum og ógnum gagnvart þingmönnum hefðu tvöfaldast í fjölda á undanförnum þremur árum.

Hér að neðan má sjá frétt ABC um atvikið, sem Albanese hefur sagt að hafi ekki verið slys, og má horfa á hana hér að neðan.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×