Talsmaður Trumps rekinn eftir brösuglega byrjun Freyja Þórisdóttir skrifar 16. október 2026 17:51 Zacharia þykir ekki hafa staðið sig nægilega vel á fyrsta og eina blaðamannafundi sínum sem upplýsingafulltrúi Hvíta hússins. Getty Katie Zacharia entist ekki lengi í starfi upplýsingafulltrúa Hvíta hússins en hún hefur verið leyst frá störfum aðeins örfáum dögum eftir að hún steig í pontu á sínum fyrsta blaðamannafundi í vikunni.
Frá þessu greinir bandaríski miðillinn The New York Times en þar segir einnig að hún hafi sinnt starfinu í minna en viku. Zacharia er 42 ára gömul og hafði starfað í skamman tíma fyrr á árinu sem talsmaður heimavarnaráðuneytis Bandaríkjanna. Þá hefur hún einnig verið gestur hjá bæði Fox News og Newsmax. Ekki draumabyrjun í nýju starfi Þá var blaðamannafundurinn síðasta þriðjudag umræddur en hann stóð yfir í um fjórtán mínútur. Þar svaraði hún einungis spurningum frá þremur blaðamönnum og á þeim tíma leit hún ítrekað niður og virtist lesa handrit. Hún muldraði á köflum og ruglaðist á forsetanum og eiginmanni sínum. Greint var frá því stuttu eftir fundinn að samstarfsmenn hennar í Hvíta húsinu væru byrjaðir að velta vöngum yfir því hve lengi hún geti varið í starfinu. Donald Trump Bandaríkjaforseti gekk úr Hvíta húsinu með Zacharia eftir fundinn á þriðjudag þar sem blaðamenn biðu eftir honum. Þar sagði hann að hún hefði staðið sig mjög vel. Þegar Trump tilkynnti að hún yrði upplýsingafulltrúi hans titlaði hann hana sem lögmann. Trump var í gær spurður að því hvar hún hefði staðist lögmannapróf og leit hann þá á hana og Zacharia svaraði: „Þegar ég flutti til Kína.“ Samkvæmt heimildarmönnum CCN í Hvíta húsinu á Trump sjálfur að hafa beðið Zacharia um að halda blaðamannafundinn og vakti það furðu, þar sem hún var á þeim tímapunkti mjög ný í starfinu. Hvatti hana til að hætta Í umfjöllun The New York Times um uppsögnina segir einnig að Trump hafi talað við fréttamenn í dag og greint frá því að hann hefði hvatt Zacharia til að „endurskoða“ starfið. „Satt best að segja, ef ég væri þú, myndi ég endurskoða þetta,“ hafi hann sagt þegar hann hafi rifjað upp samtal sitt við fjölmiðlafulltrúa sinn. „Katie, þarftu á þessu að halda? Ég held að þú þurfir ekki á þessu að halda,“ sagðist hann einnig hafa sagt við hana. Myndband af samskiptunum þar sem Trump segir Zacharia hafa fengið slæma útreið í fjölmiðlum og á samfélagsmiðlum má sjá í spilaranum hér að ofan. Þá hafði einnig verið greint frá því að Zacharia hafi fallið á lögmannsprófinu þrátt fyrir að hafa ítrekað verið titluð af Trump sem lögmaður. Í frétt The New York Times frá því fyrr í gær segir að hún hafi sagt spyrli í þættinum Real America’s Voice frá því að hún hafi þreytt lögmannspróf en fallið. Zacharia var sem fyrr segir rekin eftir aðeins fimm daga í starfi, sem gerir starfstíma hennar enn styttri en hina alræmdu tíu daga sem Anthony Scaramucci entist sem samskiptastjóri Hvíta hússins árið 2017. Fréttin hefur verið uppfærð.
Bandaríkin Donald Trump Mest lesið Herlið á leiðinni og Íslendingar hafi varann á Erlent Fær hvorki bætur né afsökunarbeiðni eftir að hafa stungið sig á saumnál Innlent Telur allt ógirt land tekið eignarnámi með dómi Innlent „Hvaða skaða hef ég valdið, Elliði?“ Innlent Hélt hún myndi deyja í útskriftarferð til Portúgal Innlent Skafið og saltað Veður Töpuðu bardaganum, liðþjálfanum og prestinum Innlent „Ég er ekkert að ýja að því, ég er bara að segja það fullum fetum“ Innlent Hvalfjarðargöng opin á nýjan leik Innlent Þingkonan missti báða fætur eftir árásina Erlent Fleiri fréttir Sænskur glæpaforingi ákærður fyrir þrjú morð Vill losna við blaðamenn og fá sundlaug í staðinn Þingkonan missti báða fætur eftir árásina Herlið á leiðinni og Íslendingar hafi varann á Þungmálmar í drykkjarvatni á Svalbarða vegna þiðnunar Meintir njósnarar handteknir í Danmörku Selenskí og bandamenn hitta fulltrúa Trump í Osló Heita því að refsa Norður-Kóreu fyrir ögranir Braut ekki af sér þegar hann skaut barn til bana Verðlag og óvissa leiða til óeirða í Evrópu Þróa þjónustustöð fyrir tunglið Íbúar Alberta höfnuðu áætlunum um sjálfstæði Orðrómar valda ugg og ótta í Mílanó: „Það eru allir frekar hræddir“ Christiane Amanpour mun kveðja CNN Fara fram á útgöngubann í nokkrum frönskum borgum Sakaðir um að svelta 190 börn til dauða Hótar að auka viðbúnað á landamærunum Miðflokkurinn fær umboðið Borgir geti sett á útivistarbann: „Nemandi hefur misst höndina“ Prestur lést þegar róðukross féll á hann Senda far til að kanna uppruna Fóbosar Ók viljandi á ástralska þingkonu Vill funda með Trump og Xi um örlög Úkraínu Neyðarlending eftir sprengjuhótun Neitaði að samþykkja afsögn vegna mótmælanna Hvetur til stillingar og boðar aðgerðir Selenskí vilji ekki binda enda á stríðið Fjórir hermenn létust í eldsvoða Ræstingakona læstist óvart í fangaklefa í þrjá daga Hörð átök lögreglu og mótmælenda í París Sjá meira