Vilja nýjan vindmæli: „Þökin fara á loft, falla niður og splundrast“ Lovísa Arnardóttir og Telma Tómasson skrifa 15. október 2026 08:58 Jóhann segir vindhviðurnar sem mældust í gær þær mestu sem þau hafi tekist á við á Siglufirði og tjónið sé verulegt. Vísir/Einar og Landsbjörg Jóhann K. Jóhannsson slökkviliðsstjóri í Fjallabyggð segir tímabært að koma upp vindmælingastöð í miðbænum á Siglufirði. Það sé verulegt tjón víða í bænum vegna óveðursins í gær. Hviðumælingar sýndu að sterkasta hviðan sem fór yfir í gær var um 56 metrar á sekúndu. Þök fuku af þremur húsum, palletta á bíl og aðrir lausamunir fuku. „
Allir þessir atburðir gerðust á mjög svipuðum tíma. Það kom á tólfta tímanum, nærri hádegi, mjög öflug vindhviða,“ segir hann og að samkvæmt mælingum varðskipsins Freyju hafi sú sterkasta mælst 56 metrar á sekúndu. „Það er með því mesta sem við höfum tekist á við hér,“ segir Jóhann. Hann segir það þekkt að austnorðaustanáttin sé mjög skæð á Siglufirði og það hefði verið hægt að sjá þessa atburði fyrir. Það sem vanti sé vindmælir í þéttbýli, vindmælirinn sem sé núna sé við flugvöllinn og því talsvert frá byggð. „Þetta er samtal sem við áttum við Veðurstofuna árið 2023 þegar síðasti stóri hvellur átti sér stað.“ Hann segir mikilvægt og tímabært að annar vindmælir verði settur upp innanbæjar. „Á krítískum stað í miðbænum á Siglufirði.“ Hann segir það ekkert grín þegar þak fer af í heilu lagi í íbúahverfi eins og gerðist í gær. Bönnuðu foreldrum að sækja börnin „Þökin fara á loft, falla niður og splundrast og dreifast um hverfið,“ segir hann og að á tíma hafi viðbragðsaðilar óskað þess að íbúar væru ekki á ferðinni. „Við gerðum það sama við grunnskólann, við óskuðum eftir því að foreldrar myndu ekki sækja börnin í grunnskólann, heldur halda þeim þar í öruggu húsaskjóli þar til við værum búin að tryggja aðstæður í bænum, vegna þess að það var brak og hætta á að brak myndi fjúka um allan bæinn á meðan við vorum að ferja þessa stóru fleka sem fóru af stað.“ Hann segir ljóst að það sé gríðarlegt tjón á sumum stöðum í bænum og það hafi verið veruleg hætta á ferð í gær. Eitt þakið sem fauk í gær. Landsbjörg Vindáttin snerist síðdegis Jóhann segir að síðdegis og fram á kvöld hafi komið gluggi til að tryggja þau svæði þar sem skapaðist hætta svo að það myndi ekki skapa frekari skaða. „Svo snerist vindáttin í norðanátt í gærkvöldi og það er hagstæðari átt fyrir okkur,“ segir hann og að þó svo að það hafi verið hviður í gær hafi það verið allt annað en fyrr um daginn. Það hafi ekki verið mörg útköll í gærkvöldi en þó þurft að tryggja einhverja báta á Siglufirði og Ólafsfirði. Jóhann segir um fimmtán sentímetra af snjó fallið frá í gær. Jóhann J. Jóhannsson „En það voru engin alvarleg mál sem komu upp í gærkvöldi eða í nótt,“ segir hann. Hann segir Siglfirðinga svo hafa vaknað við um fimmtán sentímetra jafnfallinn snjó. „Ef það væri ekki smá vindur væri þetta fallegur jólasnjór að falla niður.“
Slökkvilið Fjallabyggð Veður Mest lesið Tók reiðiskast í beinni og snerist gegn bandamönnum sínum Erlent Dragi uppsagnirnar til baka Innlent Sýknaður vegna manndráps á Skjólbraut Innlent Draumur Demókrata að rætast Erlent Trump hafi nú engu að tapa Erlent Sögulegir sigrar í Bandaríkjunum Erlent Sigraði þrátt fyrir peningaflóð og svik á lokametrunum Erlent Sýknaður vegna fíkniefnaviðskipta hins látna Innlent „Hann hótaði að drepa okkur“ Innlent Sögðu Írisi hafa beðið sig um að lemja brotaþola Innlent Fleiri fréttir Daði svarar fyrir Landsvirkjunarmálið Segir stjórnina láta hendur standa fram úr ermum við brottvísanir Mörgum þyki netspjall þægilegra en símtal Tíu tonna grjóthnullungur fór í gegnum nýja varnarvegginn Sögðu Írisi hafa beðið sig um að lemja brotaþola Dómurinn skoðaður og farið yfir framhaldið í Bandaríkjunum Sé óásættanlegt að vændiskaupendur hafi sloppið með sekt „Hann hótaði að drepa okkur“ Sýknaður vegna fíkniefnaviðskipta hins látna Lögreglumenn fari huldu höfði af ótta við ofbeldi Forvitinn minnihluti styggir bæjarstjórn: „Sláandi tölfræði“ Sýknaður vegna manndráps á Skjólbraut Miðflokkurinn bætir við sig fylgi Skoða fæðingarorlofsmálin Dragi uppsagnirnar til baka Þreytast ekki á að tuða yfir veginum Þrír handteknir fyrir rán Telur uppsagnir geta leitt til kostnaðar seinna meir Hækka framfærsluskilyrði innflytjenda verulega Nemandi nýtti sér öryggisbrest og reyndi að breyta einkunum annarra Feðgin felldu tár yfir reynslu af meintum eltihrelli „Rangfærslur og jafnvel hreinar lygar“ Lögregla telur sig komna með „þokkalega skýra mynd“ Barði barn en málið fyrndist Bárust skrýtin skilaboð þegar sambandinu lauk „Fræða en ekki hræða“ „Það er öllum ljóst að hann hefur frekar verið þeirra megin“ Fullyrða að Daði Már hafi logið að þinginu „Hvernig getur svona klikkuð manneskja ekki ákveðið að gera neitt meira?“ Kosningar í Bandaríkjunum og utanríkisráðherra ræðir Rússa Sjá meira