Innlent

Vilja nýjan vind­mæli: „Þökin fara á loft, falla niður og splundrast“

Lovísa Arnardóttir og Telma Tómasson skrifa
Jóhann segir vindhviðurnar sem mældust í gær þær mestu sem þau hafi tekist á við á Siglufirði og tjónið sé verulegt.
Jóhann segir vindhviðurnar sem mældust í gær þær mestu sem þau hafi tekist á við á Siglufirði og tjónið sé verulegt. Vísir/Einar og Landsbjörg

Jóhann K. Jóhannsson slökkviliðsstjóri í Fjallabyggð segir tímabært að koma upp vindmælingastöð í miðbænum á Siglufirði. Það sé verulegt tjón víða í bænum vegna óveðursins í gær. Hviðumælingar sýndu að sterkasta hviðan sem fór yfir í gær var um 56 metrar á sekúndu. Þök fuku af þremur húsum, palletta á bíl og aðrir lausamunir fuku.

„Allir þessir atburðir gerðust á mjög svipuðum tíma. Það kom á tólfta tímanum, nærri hádegi, mjög öflug vindhviða,“ segir hann og að samkvæmt mælingum varðskipsins Freyju hafi sú sterkasta mælst 56 metrar á sekúndu.

„Það er með því mesta sem við höfum tekist á við hér,“ segir Jóhann.

Hann segir það þekkt að norðaustanáttin sé mjög skæð á Siglufirði og það hefði verið hægt að sjá þessa atburði fyrir. Það sem vanti sé vindmælir í þéttbýli, vindmælirinn sem sé núna sé við flugvöllinn og því talsvert frá byggð.

„Þetta er samtal sem við áttum við Veðurstofuna árið 2023 þegar síðasti stóri hvellur átti sér stað.“

Hann segir mikilvægt og tímabært að annar vindmælir verði settur upp innanbæjar.

„Á krítískum stað í miðbænum á Siglufirði.“

Hann segir það ekkert grín þegar þak fer af í heilu lagi í íbúahverfi eins og gerðist í gær. 

Bönnuðu foreldrum að sækja börnin

„Þökin fara á loft, falla niður og splundrast og dreifast um hverfið,“ segir hann og að á tíma hafi viðbragðsaðilar óskað þess að íbúar væru ekki á ferðinni.

„Við gerðum það sama við grunnskólann, við óskuðum eftir því að foreldrar myndu ekki sækja börnin í grunnskólann, heldur halda þeim þar í öruggu húsaskjóli þar til við værum búin að tryggja aðstæður í bænum, vegna þess að það var brak og hætta á að brak myndi fjúka um allan bæinn á meðan við vorum að ferja þessa stóru fleka sem fóru af stað.“

Hann segir ljóst að það sé gríðarlegt tjón á sumum stöðum í bænum og það hafi verið veruleg hætta á ferð í gær.

Eitt þakið sem fauk í gær. Landsbjörg

Vindáttin snerist síðdegis

Jóhann segir að síðdegis og fram á kvöld hafi komið gluggi til að tryggja þau svæði þar sem skapaðist hætta svo að það myndi ekki skapa frekari skaða.

„Svo snerist vindáttin í norðanátt í gærkvöldi og það er hagstæðari átt fyrir okkur,“ segir hann og að þó svo að það hafi verið hviður í gær hafi það verið allt annað en fyrr um daginn. Það hafi ekki verið mörg útköll í gærkvöldi en þó þurft að tryggja einhverja báta á Siglufirði og Ólafsvík.

Jóhann segir um fimmtán sentímetra af snjó fallið frá í gær. Jóhann J. Jóhannsson

„En það voru engin alvarleg mál sem komu upp í gærkvöldi eða í nótt,“ segir hann.

Hann segir Siglfirðinga svo hafa vaknað við um fimmtán sentímetra jafnfallinn snjó.

„Ef það væri ekki smá vindur væri þetta fallegur jólasnjór að falla niður.“




Fleiri fréttir

Sjá meira


×