Valur - Tatabánya 38-34 | Annar frá­bær Evrópusigur

Þorsteinn Hjálmsson skrifar
Gunnar Róbertsson er afar öflugur ungur leikmaður í liði Vals
Gunnar Róbertsson er afar öflugur ungur leikmaður í liði Vals Vísir/Anton Brink

Valsmenn eru á toppi síns riðils í Evrópudeildinni eftir sterkan heimasigur gegn ungverska liðinu Tátabanya. Lokatölur 38-34 á Hlíðarenda. Um var að ræða leik í þriðju umferð Evrópudeildarinnar, en Valsmenn hafa unnið báða heimaleiki sína.

Fyrir leik var hæglega hægt að tala um verðugt verkefni fyrir Íslandsmeistarana í Val. Tatabánya er eitt af betri liðunum í Ungverjalandi og situr liðið í fimmta sæti Ungversku úrvalsdeildarinnar og eru þeir eina lið deildarinnar á tímabilinu sem hefur unnið toppliðið Pick Szeged, sem er stórlið á Evrópskan mælikvarða. Þekktasta nafnið í leikmannahóp gestanna í kvöld var sennilega Márton Székely, ungverskur markvörður, sem hefur veitt íslenska landsliðinu skráveifu og jafnvel gott betur en það á undanförnum árum.

Gestirnir hófu leikinn ögn betur en Valsmenn voru þó ekki lengi að jafna leikinn og var staðan 4-4 eftir um níu mínútna leik. Valsmenn náðu í kjölfarið fyrsta skipti í leiknum forystu, 5-4.

Í kjölfarið héldu heimamenn í sókn og gátu aukið forskot sitt enn frekar, en endaði sóknin á klikki hjá Bjarna í Selvindi. Bjarni lenti þá í örmunum á Demis Grigoras, hægri skyttu Tátabanya, sem var nokkuð óhress með það þegar þeir stóðu upp og endaði það með kítingi þeirra á milli þegar þeir hlupu í átt að marki Vals. Demis Grigoras var þó mjög bráður og gaf Bjarna olnbogaskot beint fyrir framan annan dómara leiksins. Niðurstaðan rautt spjald á Demis Grigoras, sem var búinn að vera eitt helsta vopn gestanna í upphafi leiks.

Valsmenn keyrðu upp hraðann á næstu mínútum og skoruðu nokkur auðveld mörk á meðan gestirnir reyndu að fóta sig eftir rauða spjaldið. Staðan 10-8 fyrir Val eftir korter.

Leikurinn leitaði þó í mikið jafnvægi og áttu heimamenn í erfiðleikum með að halda uppi hraðanum. Leikurinn í járnum og staðan í hálfleik því 16-16.

Síðari hálfleikurinn var líkt og sá fyrri í járnum fyrstu mínúturnar, en eftir um átta mínútna leik fóru Valsmenn á flug. Fjögur mörk komu í röð hjá heimamönnum á meðan Ungverjarnir töpuðu hverjum boltanum á fætur öðrum klaufalega. Gestirnir tóku því leikhlé sem skilaði litlu því Valsmenn héldu fjögurra til fimm marka forystu næstu mínúturnar.

Gestirnir náðu þó áhlaupi og minnkuðu muninn niður í eitt mark þegar um ellefu mínútur voru eftir. Nær komust þeir þó ekki, því Valsarar kveiktu aftur á sér og Björgvin Páll varði nokkur skot.

Leikurinn fjaraði því út undir lokinn þar sem öruggur sigur Valsmanna varð raunin.

Atvik leiksins

Auðvitað er það ef og hefði spurning, en rauða spjaldið í upphafi leiks hafði klárlega áhrif á þennan leik. Demis Grigoras hafði verið einn aðalmaðurinn hjá gestunum í upphafi leiks og hlutverk hans greinilega stórt. Það var því klárlega skarð fyrir skyldi fyrir Ungverjana að missa hann út úr leiknum. Hins vegar getur Demis Grigoras sjálfum sér um kennt, ótrúlega heimskuleg hegðun.

Stjörnur og skúrkar

Arnór Snær Óskarsson og Gunnar Róbertsson voru markahæstir með níu mörk hvor. Hins vegar fannst mér Bjarni í Selvindi bera af í leik Vals. Varnarmenn Tátabanya hreinlega skulfu á beinunum þegar þeir fengu Færeyinginn á hvínandi siglingu á sig sem skoraði nokkur ótrúleg mörk hreinlega í fanginu á Ungverjunum.

Landi hans, Allan Norðberg, var þó slakastur í liði Vals, en hann klikkaði á þremur dauðafærum í fyrri hálfleik og skoraði ekki mark.

Demis Grigoras er svo auðvitað skúrkur fyrir rauða spjaldið.

Dómarar

Eistarnir Marion Kull og Alvar Tint flottir í leiknum. Réttur dómur að lyfta rauða spjaldinu og þurftu þeir í tvígang til viðbótar að hugsa um að gera það aftur eftir að gripið var aftan í skothendina á leikmönnum Vals. Ekkert við þá að sakast í kvöld.

Stemning og umgjörð

Glæsileg umgjörð hjá Valsmönnum í N1 höllinni. Fínasta mæting var á þennan leik og var meðal annars u.þ.b. 25 manna hópur mættur frá Ungverjalandi til þess að styðja Tatabánya.

Ágúst Jóhannsson: „Þér finnst þú vera betri og finnur það“

„Þetta er ekki ósvipað lið. Stórir þungir leikmenn. Auðvitað misstu þeir örvhentu skyttuna sína, Rúmenskan landsliðsmann, sem veikti þá auðvitað. Svo var Bodó ekki með, hann er frá vegna meiðsla. Ég var samt bara ánægður með seigluna í okkur,“ sagði Ágúst Jóhannesson eftir annan heimasigurinn í Evrópudeildinni þetta tímabilið og það aftur á heimavelli. Gestirnir urðu fyrir blóðtöku snemma leiks þegar stórskytta þeirra, Demis Grigoras, fékk rautt spjald en auk þess ferðaðist einn af betri leikmönnum Tátabnya, Richárd Bodó, ekki til Íslands vegna meiðsla.

„Mér fannst við skrefinu á undan allan leikinn en komumst aldrei í þá stöðu að hrista þá almennilega af okkur. Það er stundum þannig að þér finnst þú vera betri og finnur það, þá ætluðu menn að gera tvennt í einu í stað þess að halda í ákveðna yfirvegun og aga. Við löguðum það svo og náðum fjögurra til fimm marka forskoti um miðbik sinni hálfleiks og sigldum þessu sannfærandi í hús.“

Valsmenn náðu oft á köflum miklum hraða inn í leikinn sem gestirnir réðu ekkert við.

„Við ætluðum að halda góðu tempói á þeim og rúlluðum ágætlega á liðinu. Við erum náttúrulega í góðu formi og að fá framlag frá mjög mörgum leikmönnum í dag. Við misstum samt aðeins tempóið og vorum aðeins of slitnir varnarlega en svo náðum við því. Björgvin tók þarna þrjá til fjóra mjög mikilvæga bolta og náðum að keyra vel í bakið á þeim aftur og náðum þessu forskoti sem við létum aldrei af hendi.“

Aðspurður út í rauða spjaldið á Demis Grigoras, þá segist Ágúst ekki hafa séð atvikið en telur það hafa haft áhrif á gestina.

„Það breytti dýnamíkinni í þeirra leik, en þetta eru samt allt feikilega öflugir leikmenn í þeirra liði og bara pjúra atvinnumenn. Þetta er bara frábær frammistaða hjá mínum strákum. Þetta er ungt og mjög efnilegt lið sem er að sýna sig vel í þessari keppni.“

Að lokum var Ágúst spurður hversu langt heimavöllurinn gæti tekið Valsmenn í þessari keppni, en báðir leikir liðsins hingað til hafa unnist örugglega í N1 höllinni.

„Heimavöllurinn okkar er auðvitað frábær. Flott mæting í dag, betri enn í síðasta leik en betur má ef duga skal. Heimavöllurinn er drjúgur og strákunum líður vel á dúknum það er enginn spurning.“

Bein lýsing

Leikirnir






    Fleiri fréttir

    Sjá meira