Uppgjörið: KR-Njarðvík 97-115 | Fyrsta tap KR-inga gegn Íslandsmeisturunum Andri Már Eggertsson skrifar 12. október 2026 21:00 KR hefur farið vel af stað í haust. vísir/diego Íslandsmeistarar Njarðvíkur unnu 18 stiga sigur gegn KR-ingum 97-115. Jafnræði var með liðunum í fyrri hálfleik en Njarðvíkingar settu í annan gír í seinni hálfleik sem skilaði sigri. Leikurinn fór vel af stað. Bæði lið skiptust á körfum og jafnræði var með liðunum. Heimakonur áttu fyrsta áhlaup kvöldsins þegar þær fundu takt á báðum endum vallarins og gerðu tíu stig gegn aðeins einu hjá Njarðvíkingum og komust sex stigum yfir. KR-ingar voru í bílstjórasætinu eftir gott áhlaup og voru fimm stigum yfir eftir fyrsta leikhluta 25-20. Íslandsmeistararnir minntu á sig í öðrum leikhluta. Það var allt annað að sjá liðið og eftir átta stig í röð fékk Daníel Andri Halldórsson, þjálfari KR, nóg og tók leikhlé. Njarðvíkingar létu það ekki slá sig út af laginu og juku forskot sitt eftir leikhlé Daníels. KR-ingar héldu sér inni í leiknum á vítalínunni á meðan allt gekk upp í hröðum leik Njarðvíkur. Dazia Lawrence, leikmaður KR, endaði fyrri hálfleik á flautuþristi og munurinn var aðeins eitt stig í hálfleik 49-50. Íslandsmeistararnir sýndu klærnar í þriðja leikhluta og gerðu 33 stig. Heimakonur voru í miklum vandræðum með hreyfanlegan sóknarleik Njarðvíkinga þar sem boltinn gekk hratt á milli og aukasendingin skilaði opnum skotum. Gestirnir gerðu síðustu níu stigin í leikhlutanum og staðan var 67-83 farandi inn í fjórða leikhluta. Njarðvíkingar gáfu ekkert eftir í fjórða leikhluta og gáfu heimakonum aldrei von um að gera síðasta fjórðung spennandi. Leikurinn endaði með 18 stiga sigri Njarðvíkur 97-115. Atvik leiksins Njarðvík gerði síðustu níu stigin í þriðja leikhluta sem gekk endanlega frá leiknum. Stjörnur og skúrkar Brittany Dinkins fór á kostum í liði Njarðvíkur. Brittany var stigahæst í liði Njarðvíkur með 30 stig en hún tók einnig 7 fráköst og gaf 11 stoðsendingar. Varnarleikur KR-inga var langt frá því að vera góður. Njarðvíkingar voru í engum vandræðum með að finna opin skot sem skilaði 115 stigum. Dómararnir Gunnlaugur Briem, Bjarni Hlíðkvist Kristmarsson og Jón Þór Eyþórsson dæmdu leik kvöldsins. Dómararnir stóðu sig vel á flautunni í kvöld og mega vera sáttir við sína frammistöðu. Stemning og umgjörð Það var góð mæting í Vesturbæinn enda höfðu KR-ingar ekki tapað leik og ríkjandi Íslandsmeistarar voru í heimsókn. Umgjörðin var til fyrirmyndar eins og við mátti búast í Vesturbænum. „Að fá á sig 115 stig er óásættanlegt“ Daníel Andri, þjálfari KR,Vísir/Anton Brink Daníel Andri Halldórsson, þjálfari KR, var svekktur eftir tap kvöldsins. „Að fá á sig 115 stig er óásættanlegt. Þetta var lélegt og letilegt upplegg hjá þjálfaranum og þá var þetta niðurstaðan.“ Njarðvík endaði þriðja leikhluta á að gera níu stig í röð og Daníel viðurkenndi að það hafi verið erfitt að snúa leiknum við eftir það. „Ég var orðinn svo reiður að horfa upp á þetta að ég var ekki að fylgjast með hvað það væri lítið eftir og tók leikhlé. Ég brenndi mig á því að hafa ekki átt leikhlé fyrir fjórða leikhluta og við vorum að keyra mikið á sama liðinu,“ sagði Daníel að lokum. Körfubolti Bónus-deild kvenna KR UMF Njarðvík