„Ég sé ekki að íslenskt samfélag vilji kasta því fyrir róða“ Smári Jökull Jónsson skrifar 10. október 2026 20:30 Mjöll Matthíasdóttir, formaður Félags grunnskólakennara, segir áratugalanga skuld í að útvega skólum námsefni og námsgögn. Vísir/KÍ/Anton Brink Formaður Félags grunnskólakennara segir að samtöl þurfi að eiga sér stað við rekstraraðila grunnskólanna um hvernig skóla eigi að bjóða upp á. Hún segist efast um að íslenskt samfélag vilji kasta ákveðnum námsgreinum fyrir róða þó að dýrt sé að kenna þær.
Kennarasamband Íslands boðaði til blaðamannafundar í vikunni þar sem sambandið kynnti stefnumótun og áherslur í menntamálum. Kallaði sambandið eftir samfélagslegu samtali um menntamál og var vefsíðan Mótum framtíðina saman opnuð af þessu tilefni þar sem hægt er að kynna sér stefnuna og almenningur getur sent inn hugleiðingar og þannig lagt sitt af mörkum. „Við ákváðum að vera ekki þau sem bregðast við heldur vera á þeim stað að benda á það sem við teljum að sé gott að gera. Þá er þetta samfélagslega samtal, sem hefur verið leiðarljós í skólastarfi og stefnum kennarasamtaka víða um heiminn, að við köllum fólk að borðinu. Við vitum um hluti sem við viljum ræða en reiknum alveg með því að fleira verði rætt,“ sagði Magnús Þór Jónsson í viðtali eftir fundinn. „Oft talað um að við séum með dýrasta skólakerfi í heimi“ Meðal þess sem fjallað var um í framsögu Magnúsar voru rekstraraðstæður skóla. Að sögn Mjallar Matthíasdóttur, formanns Félags grunnskólakennara, þarf samtal að eiga sér stað við rekstraraðila skóla. „Það er oft talað um að við séum með dýrasta skólakerfi í heimi og við erum að benda á tölurnar að það er ástæða fyrir því. Við erum með marga fámenna skóla. Við höfum ákveðið að hafa landið í byggð og bjóða nemendum nám í heimabyggð. Það kostar og við þurfum að horfast í augu við það sem samfélag,“ segir Mjöll í viðtali við Vísi. „Ef við ætlum að fara að breyta slíku þá er það eitthvað stærra samtal sem þarf að taka,“ segir hún enn fremur og bætir við að rekstur grunnskóla sé stór liður í rekstri sveitarfélaga um allt land. Dýrara er að reka skóla ef nemendurnir eru færri.KÍ „Hvað viljum við hafa? Við vitum að sumar námsgreinar er dýrt að kenna. Þær kalla á sérútbúnar stofur og sértæki og tól og ég sé ekki að íslenskt samfélag vilji fara að kasta því fyrir róða.“ „Áratugaskuld í að útvega skólum námsefni og námsgögn“ Eftir niðurstöður úr nýjustu PISA-könnuninni hefur umræða um námsefni verið áberandi og sagði Inga Sæland menntamálaráðherra að fjármagni yrði veitt í málaflokkinn. Síðan þá hafa engar upplýsingar fengist um hvernig það fjármagn verði nýtt og Mjöll segir Félag grunnskólakennara ekki hafa verið hluta af því samtali. „Nema bara eins og aðrir að benda stanslaust á að það er gríðarlegur skortur á námsgögnum á öllum skólastigum. Þetta fjármagn er ekki fast í hendi enn þá og það er í raun ekki nægjanlegt. Það þarf miklu hærri upphæð ef menn ætla að saxa á innviðaskuldina því það er áratugaskuld að útvega skólum námsefni og námsgögn.“ Meðal þeirra hugmynda sem ræddar hafa verið er að þýða erlendar námsbækur með aðstoð gervigreindar. „Það er hægt að nota eitthvað slíkt til stuðnings en það verður ekki grunnurinn að því efni sem við þurfum,“ segir Mjöll.
Börn og uppeldi Grunnskólar Ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur Tengdar fréttir „Við erum að gefa boltann upp“ Formaður Kennarasambands Íslands segir að sambandið hafi saknað þess að taka heildarumræðu um skólamál þar sem farið er dýpra í hlutina. Hann segir sambandið vera að gefa boltann upp og kalli nú eftir samfélagslegu samtali um menntamál. 7. október 2026 18:02 Mest lesið Tók reiðiskast í beinni og snerist gegn bandamönnum sínum Erlent Draumur Demókrata að rætast Erlent Dragi uppsagnirnar til baka Innlent Sýknaður vegna manndráps á Skjólbraut Innlent Sögulegir sigrar í Bandaríkjunum Erlent Trump hafi nú engu að tapa Erlent Sigraði þrátt fyrir peningaflóð og svik á lokametrunum Erlent Þreytast ekki á að tuða yfir veginum Innlent Feðgin felldu tár yfir reynslu af meintum eltihrelli Innlent Hækka framfærsluskilyrði innflytjenda verulega Innlent Fleiri fréttir Lögreglumenn fari huldu höfði af ótta við ofbeldi Forvitinn minnihluti styggir bæjarstjórn: „Sláandi tölfræði“ Sýknaður vegna manndráps á Skjólbraut Miðflokkurinn bætir við sig fylgi Skoða fæðingarorlofsmálin Dragi uppsagnirnar til baka Þreytast ekki á að tuða yfir veginum Þrír handteknir fyrir rán Telur uppsagnir geta leitt til kostnaðar seinna meir Hækka framfærsluskilyrði innflytjenda verulega Nemandi nýtti sér öryggisbrest og reyndi að breyta einkunum annarra Feðgin felldu tár yfir reynslu af meintum eltihrelli „Rangfærslur og jafnvel hreinar lygar“ Lögregla telur sig komna með „þokkalega skýra mynd“ Barði barn en málið fyrndist Bárust skrýtin skilaboð þegar sambandinu lauk „Fræða en ekki hræða“ „Það er öllum ljóst að hann hefur frekar verið þeirra megin“ Fullyrða að Daði Már hafi logið að þinginu „Hvernig getur svona klikkuð manneskja ekki ákveðið að gera neitt meira?“ Kosningar í Bandaríkjunum og utanríkisráðherra ræðir Rússa Skipaður formaður 6. áfanga rammaáætlunar Reikna með þrettán milljarða afgangi á næsta ári Fluttur með björgunarskipi þegar þyrlan gat ekki lent vegna þoku Kynntu fjárhagsáætlun borgarinnar Kolbeinsey lifir enn þrátt fyrir spádóma um annað Játaði að hafa makað saur á hurðarhúna Kynntu verkefnið Verum viðbúin „Ekki bíða eftir fyrsta snjónum“ Rússar hnýta í Þorgerði Katrínu vegna ummæla um skrif Heimis Más Sjá meira
„Við erum að gefa boltann upp“ Formaður Kennarasambands Íslands segir að sambandið hafi saknað þess að taka heildarumræðu um skólamál þar sem farið er dýpra í hlutina. Hann segir sambandið vera að gefa boltann upp og kalli nú eftir samfélagslegu samtali um menntamál. 7. október 2026 18:02