„Við erum tilbúin að skoða lengingu skólaársins“ Smári Jökull Jónsson skrifar 7. október 2026 16:20 Magnús Þór Jónsson er formaður Kennarasambands Íslands. Vísir/Lýður Valberg Formaður Kennarasambands Íslands segir að sambandið sé tilbúið að skoða lengingu skólaársins ef samfélagið telji það sér til framdráttar. Kennarasambandið kynnti í dag tillögur að stefnumótun í menntamálum til framtíðar þar sem það kallaði eftir samfélagslegu samtali um skólastarf.
Í vor fór fram töluverð umræða um fjölda skóladaga á Íslandi eftir að Menntamálaráðuneytið birti tilkynningu þar sem fram kom að kennsludagar væru styttri en gengur og gerist í Evrópu. Samkvæmt lögum eiga skóladagar að vera samtals 180 og þar af mega tíu dagar vera styttri en hefðbundinn skóladagur, svokallaðir skertir dagar. Kennarasambandið svaraði tilkynningu ráðuneytisins á sínum tíma og sagði Magnús Þór Jónsson, formaður KÍ, að rangfærslurnar væru með ólíkindum. „Allir foreldrar vita það að skólaárið á Íslandi er 180 dagar. Hluti af þeim er nýttur sem uppbrotsdagar og nýttur í alls konar nám. Það er mjög skýrt að kennsludagar eru 180 og það er sambærilegt á öllum hinum Norðurlöndunum,“ sagði Magnús þá. „Fólk ræður sínum tón“ Umræðan fór síðan af stað á nýjan leik í gær þegar formaður Heimilis- og skóla, Sigvaldi Egill Lárusson, skrifaði skoðanagrein þar sem hann skaut nokkuð föstum skotum að forystu Kennarasambandsins í tengslum við umræðu um fjölda kennsludaga. Skrifaði Sigvaldi að orð Magnúsar, að kennsludagar í íslenskum grunnskólum væru 180 sem væri sambærilegur fjöldi og á hinum Norðurlöndunum, væru ekki rétt. Fráleitt væri að telja foreldraviðtöl, skólasetningu og skólaslit sem kennsludaga. Jafnframt sagði Sigvaldi að hann vildi að stjórn Kennarasambandsins myndi skoða hvort orð Magnúsar stæðust siðareglur sambandsins og skoraði á Ingu Sæland menntamálaráðherra að lengja skólaárið. Magnús var spurður út í þessi orð formanns Heimilis- og skóla á fundi sambandsins fyrr í dag og hvort þörf væri á að lengja skólaárið hér á landi. „Eitt af því sem við getum alveg tekið upp í þessari umræðu er bara lenging skólaársins, uppsetning skólaársins í öllum skólagerðum. Við erum alveg tilbúin í það samtal eins og annað ef það kemur upp,“ sagði Magnús. Tónninn í grein formanns Heimilis og skóla var nokkuð harður en Magnús vildi lítið tjá sig um orð Sigvalda í hans garð. „Fólk ræður sínum tón en eins og ég sagði áðan þá er það bara þannig að við erum tilbúin að ræða lengingu skólaársins eins og allt annað. Ef það er það sem samfélagið telur verða okkur til framdráttar þá erum við til í að tala um það á ákveðnum forsendum.“ Hér fyrir neðan má sjá útsendingu Vísis frá blaðamannafundi Kennarasambandsins í Réttarholtsskóla og viðtöl við Magnús Þór og formenn félaga leik-, grunn- og framaldsskóla að honum loknum.
Skóla- og menntamál Börn og uppeldi Grunnskólar Framhaldsskólar Leikskólar Vinnumarkaður Kjaramál Mest lesið Tók reiðiskast í beinni og snerist gegn bandamönnum sínum Erlent Draumur Demókrata að rætast Erlent Dragi uppsagnirnar til baka Innlent Sýknaður vegna manndráps á Skjólbraut Innlent Sögulegir sigrar í Bandaríkjunum Erlent Trump hafi nú engu að tapa Erlent Sigraði þrátt fyrir peningaflóð og svik á lokametrunum Erlent Þreytast ekki á að tuða yfir veginum Innlent Feðgin felldu tár yfir reynslu af meintum eltihrelli Innlent Hækka framfærsluskilyrði innflytjenda verulega Innlent Fleiri fréttir Lögreglumenn fari huldu höfði af ótta við ofbeldi Forvitinn minnihluti styggir bæjarstjórn: „Sláandi tölfræði“ Sýknaður vegna manndráps á Skjólbraut Miðflokkurinn bætir við sig fylgi Skoða fæðingarorlofsmálin Dragi uppsagnirnar til baka Þreytast ekki á að tuða yfir veginum Þrír handteknir fyrir rán Telur uppsagnir geta leitt til kostnaðar seinna meir Hækka framfærsluskilyrði innflytjenda verulega Nemandi nýtti sér öryggisbrest og reyndi að breyta einkunum annarra Feðgin felldu tár yfir reynslu af meintum eltihrelli „Rangfærslur og jafnvel hreinar lygar“ Lögregla telur sig komna með „þokkalega skýra mynd“ Barði barn en málið fyrndist Bárust skrýtin skilaboð þegar sambandinu lauk „Fræða en ekki hræða“ „Það er öllum ljóst að hann hefur frekar verið þeirra megin“ Fullyrða að Daði Már hafi logið að þinginu „Hvernig getur svona klikkuð manneskja ekki ákveðið að gera neitt meira?“ Kosningar í Bandaríkjunum og utanríkisráðherra ræðir Rússa Skipaður formaður 6. áfanga rammaáætlunar Reikna með þrettán milljarða afgangi á næsta ári Fluttur með björgunarskipi þegar þyrlan gat ekki lent vegna þoku Kynntu fjárhagsáætlun borgarinnar Kolbeinsey lifir enn þrátt fyrir spádóma um annað Játaði að hafa makað saur á hurðarhúna Kynntu verkefnið Verum viðbúin „Ekki bíða eftir fyrsta snjónum“ Rússar hnýta í Þorgerði Katrínu vegna ummæla um skrif Heimis Más Sjá meira