Skilaboð til landsbyggðarinnar Trausti Hjaltason skrifar 26. október 2026 15:31 Aflið tekna, greiðið meira og sýnið biðlund. Fjárlög eru pólitík í tölum. Skilaboðin til landsbyggðarinnar eru skýr: Veiðið fiskinn, takið á móti ferðamönnunum og skapið verðmætin. Greiðið svo meira og bíðið eftir samgöngunum og innviðunum. Þolinmæði landsbyggðarinnar er mikil. En hún er ekki ótakmörkuð auðlind. Á meðan æðsta stjórnsýslan og utanríkismál fá aukið vægi dragast framlög að raunvirði saman til nýsköpunar, sjávarútvegs, orkumála og byggðamála. Samgönguliðurinn lækkar líka. Vegalengdirnar styttast ekki Nú á einnig að draga verulega úr framlögum til Loftbrúar. Það er klár samgönguskerðing. Reikningurinn færist einfaldlega frá ríkinu yfir á heimilin. Ríkið safnar sérhæfðri þjónustu á höfuðborgarsvæðið og gerir síðan fólki erfiðara að komast þangað. Fólk þarf áfram að sækja heilbrigðisþjónustu þótt framlagið lækki. Vegalengdirnar styttast ekki við afgreiðslu fjárlaga. Breytingar fyrir hvern? Sameining sýslumannsembætta og fyrirhugaðar breytingar á lögregluembættum vekja sömu spurningu: Fyrir hvern er verið að hagræða eða breyta?Ef stjórnendur og störf flytjast burt og ákvarðanir færast fjær íbúunum ber landsbyggðin kostnaðinn. Hún missir störf, þekkingu og aðgengi að þeim sem bera ábyrgð. Sá kostnaður hverfur ekki þótt hann sjáist ekki í bókhaldi ráðuneytis. Hættum að veikja það sem skapar verðmætin Landsbyggðin er of oft meðhöndluð eins og mjólkurkýr ríkissjóðs. Það má þurrmjólka kúna en ekki viðhalda fjósinu. Auknar álögur á sjávarútveg og ferðaþjónustu eru eitt. Ríkisvaldið hefur undanfarin ár komið sífellt fram með hugmyndir um sameiningar og eða skerðingar þjónustu á landsbyggðinni líkt og í lögreglu-, heilbrigðisþjónustu, sýslumann og framhaldsskóla. Þegar höggvið er í grunnþjónustu og aðra innviði veikjast forsendur til búsetu og atvinnureksturs. Fyrsta hugmynd skal yfirleitt vera að flytja störf og þjónustu á höfuðborgarsvæðið. Hvenær á að snúa þessari þróun við? Viljum við ekki landsbyggð? Vilji ríkisvaldið efla landsbyggðina liggja verkefnin fyrir: Bæta samgöngur. Nýta og efla heilbrigðisstofnanir landsbyggðarinnar og létta á þjónustu á höfuðborgarsvæðinu. Draga úr auknum álögum á sjávarútveg og ferðaþjónustu og skapa atvinnulífinu stöðugar leikreglur. Styrkja flutningsnet raforku og hraða grænni orkuöflun. Byggja upp hafnir og flugvelli, meðal annars í þágu varnarmála. Tryggja vatnsöryggi og öflugar nettengingar svo fyrirtæki geti vaxið. Flytja ríkisstofnanir og störf út á land og fela þeim raunverulegt ákvörðunarvald. Þetta eru fjárfestingar sem skapa störf og verðmæti. Íbúar landsbyggðarinnar geta ekki endalaust staðið í vörn. Ríkisstjórnin þarf að svara með öðru en hærri reikningi og lengri bið. Höfundur er bæjarfulltrúi í Vestmannaeyjum. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Byggðamál Mest lesið Mun Ísland missa af hundruðum milljarða? Einar Örn Ólafsson,Daði Pálsson,Jón Kjartan Jónsson,Steinþór Pálsson,Margrét Ágústa Sigurðardóttir Skoðun Einungis tvö kyn Helgi Hrafn Gunnarsson Skoðun Fyrir hvern erum við að pósta? Sara Margrét Dougherty Skoðun Lífæð Vestfjarða hrunin Oddur Jensson Skoðun Hæsta framlag til Loftbrúar frá upphafi staðreynd Eydís Ásbjörnsdóttir Skoðun Læsisáætlun án bóka Álfhildur Leifsdóttir,Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir Skoðun Fjárhagsstaða Hafnarfjarðar er grafalvarleg og nauðsynlegt að grípa í taumana strax Árni Rúnar Þorvaldsson Skoðun Aðförin gegn landsbyggðinni Fjóla St. Kristinsdóttir Skoðun Námsmat, aðalnámskrá og fagleg ábyrgð skólastjóra Hjálmar Bogi Hafliðason,Jón Páll Haraldsson,Kristín Jóhannesdóttir,Margrét Sverrisdóttir,Snædís Valsdóttir,Þóranna Rósa Ólafsdóttir Skoðun Ferkílómetrar eða fólk? Hagsmunir Hveragerðis í nýju orkufrumvarpi Lárus Jónsson,Jónas Guðnason Skoðun Skoðun Skoðun Skilaboð til landsbyggðarinnar Trausti Hjaltason skrifar Skoðun Hver ber ábyrgð þegar vernd barns týnist milli kerfa? Inga Henriksen skrifar Skoðun Hæsta framlag til Loftbrúar frá upphafi staðreynd Eydís Ásbjörnsdóttir skrifar Skoðun Öryggi þjóðarinnar verður ekki tryggt í Excel-skjali Bryndís Haraldsdóttir skrifar Skoðun Þegar stóru ríkin verða veikasti hlekkurinn Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Viðreisn – góð stefna dugar ekki ein og sér Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Lífæð Vestfjarða hrunin Oddur Jensson skrifar Skoðun Fjárhagsstaða Hafnarfjarðar er grafalvarleg og nauðsynlegt að grípa í taumana strax Árni Rúnar Þorvaldsson skrifar Skoðun Hallgrímskirkja heillar Sigurður Árni Þórðarson skrifar Skoðun Sameiginleg þjónusta þarf að vera aðgengileg öllum Haraldur Líndal Haraldsson skrifar Skoðun Ferkílómetrar eða fólk? Hagsmunir Hveragerðis í nýju orkufrumvarpi Lárus Jónsson,Jónas Guðnason skrifar Skoðun Þegar báðir græða Arnar Sigurðsson skrifar Skoðun Opið bréf til innviðaráðherra og atvinnuvegaráðherra Örvar Marteinsson skrifar Skoðun Hver króna skilar sér margfalt tilbaka! Nokkur dæmi um ráðdeild í rekstri Borgarbókasafnsins Guðrún Dís Jónatansdóttir skrifar Skoðun Bókaklúbbur borgarstjórans Michelle Spinei skrifar Skoðun Mun Ísland missa af hundruðum milljarða? Einar Örn Ólafsson,Daði Pálsson,Jón Kjartan Jónsson,Steinþór Pálsson,Margrét Ágústa Sigurðardóttir skrifar Skoðun Fyrir hvern erum við að pósta? Sara Margrét Dougherty skrifar Skoðun Nýi kaflinn í iðnsögunni Tinna Traustadóttir skrifar Skoðun Loftbrú: Ráðherra í 0% tengingu við landsbyggðina Ásta Kristín Pjetursdóttir skrifar Skoðun Er þetta ekki nóg? Sigurður Líndal Þórisson skrifar Skoðun Hver á takkana? Þegar aðrir snerta gömul sálræn sár Sigríður Björk Þormar skrifar Skoðun Námsmat, aðalnámskrá og fagleg ábyrgð skólastjóra Hjálmar Bogi Hafliðason,Jón Páll Haraldsson,Kristín Jóhannesdóttir,Margrét Sverrisdóttir,Snædís Valsdóttir,Þóranna Rósa Ólafsdóttir skrifar Skoðun Orð eru ekki heldur stefna – opið bréf til bæjarstjóra Ölfuss Nichole Leigh Mosty skrifar Skoðun Aðeins annar hluti jöfnunnar er ekki nóg Sveinn Ólafsson skrifar Skoðun Einungis tvö kyn Helgi Hrafn Gunnarsson skrifar Skoðun Hvernig viljum við eldast? Janus Guðlaugsson skrifar Skoðun Þekkingin hefur aukist en hvað með þjónustuna? Hanna Birna Valdimarsdóttir skrifar Skoðun Læsisáætlun án bóka Álfhildur Leifsdóttir,Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir skrifar Skoðun Það er kominn tími á löggjöf um dánaraðstoð á Íslandi Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun Aðförin gegn landsbyggðinni Fjóla St. Kristinsdóttir skrifar Sjá meira
Aflið tekna, greiðið meira og sýnið biðlund. Fjárlög eru pólitík í tölum. Skilaboðin til landsbyggðarinnar eru skýr: Veiðið fiskinn, takið á móti ferðamönnunum og skapið verðmætin. Greiðið svo meira og bíðið eftir samgöngunum og innviðunum. Þolinmæði landsbyggðarinnar er mikil. En hún er ekki ótakmörkuð auðlind. Á meðan æðsta stjórnsýslan og utanríkismál fá aukið vægi dragast framlög að raunvirði saman til nýsköpunar, sjávarútvegs, orkumála og byggðamála. Samgönguliðurinn lækkar líka. Vegalengdirnar styttast ekki Nú á einnig að draga verulega úr framlögum til Loftbrúar. Það er klár samgönguskerðing. Reikningurinn færist einfaldlega frá ríkinu yfir á heimilin. Ríkið safnar sérhæfðri þjónustu á höfuðborgarsvæðið og gerir síðan fólki erfiðara að komast þangað. Fólk þarf áfram að sækja heilbrigðisþjónustu þótt framlagið lækki. Vegalengdirnar styttast ekki við afgreiðslu fjárlaga. Breytingar fyrir hvern? Sameining sýslumannsembætta og fyrirhugaðar breytingar á lögregluembættum vekja sömu spurningu: Fyrir hvern er verið að hagræða eða breyta?Ef stjórnendur og störf flytjast burt og ákvarðanir færast fjær íbúunum ber landsbyggðin kostnaðinn. Hún missir störf, þekkingu og aðgengi að þeim sem bera ábyrgð. Sá kostnaður hverfur ekki þótt hann sjáist ekki í bókhaldi ráðuneytis. Hættum að veikja það sem skapar verðmætin Landsbyggðin er of oft meðhöndluð eins og mjólkurkýr ríkissjóðs. Það má þurrmjólka kúna en ekki viðhalda fjósinu. Auknar álögur á sjávarútveg og ferðaþjónustu eru eitt. Ríkisvaldið hefur undanfarin ár komið sífellt fram með hugmyndir um sameiningar og eða skerðingar þjónustu á landsbyggðinni líkt og í lögreglu-, heilbrigðisþjónustu, sýslumann og framhaldsskóla. Þegar höggvið er í grunnþjónustu og aðra innviði veikjast forsendur til búsetu og atvinnureksturs. Fyrsta hugmynd skal yfirleitt vera að flytja störf og þjónustu á höfuðborgarsvæðið. Hvenær á að snúa þessari þróun við? Viljum við ekki landsbyggð? Vilji ríkisvaldið efla landsbyggðina liggja verkefnin fyrir: Bæta samgöngur. Nýta og efla heilbrigðisstofnanir landsbyggðarinnar og létta á þjónustu á höfuðborgarsvæðinu. Draga úr auknum álögum á sjávarútveg og ferðaþjónustu og skapa atvinnulífinu stöðugar leikreglur. Styrkja flutningsnet raforku og hraða grænni orkuöflun. Byggja upp hafnir og flugvelli, meðal annars í þágu varnarmála. Tryggja vatnsöryggi og öflugar nettengingar svo fyrirtæki geti vaxið. Flytja ríkisstofnanir og störf út á land og fela þeim raunverulegt ákvörðunarvald. Þetta eru fjárfestingar sem skapa störf og verðmæti. Íbúar landsbyggðarinnar geta ekki endalaust staðið í vörn. Ríkisstjórnin þarf að svara með öðru en hærri reikningi og lengri bið. Höfundur er bæjarfulltrúi í Vestmannaeyjum.
Mun Ísland missa af hundruðum milljarða? Einar Örn Ólafsson,Daði Pálsson,Jón Kjartan Jónsson,Steinþór Pálsson,Margrét Ágústa Sigurðardóttir Skoðun
Fjárhagsstaða Hafnarfjarðar er grafalvarleg og nauðsynlegt að grípa í taumana strax Árni Rúnar Þorvaldsson Skoðun
Námsmat, aðalnámskrá og fagleg ábyrgð skólastjóra Hjálmar Bogi Hafliðason,Jón Páll Haraldsson,Kristín Jóhannesdóttir,Margrét Sverrisdóttir,Snædís Valsdóttir,Þóranna Rósa Ólafsdóttir Skoðun
Ferkílómetrar eða fólk? Hagsmunir Hveragerðis í nýju orkufrumvarpi Lárus Jónsson,Jónas Guðnason Skoðun
Skoðun Fjárhagsstaða Hafnarfjarðar er grafalvarleg og nauðsynlegt að grípa í taumana strax Árni Rúnar Þorvaldsson skrifar
Skoðun Ferkílómetrar eða fólk? Hagsmunir Hveragerðis í nýju orkufrumvarpi Lárus Jónsson,Jónas Guðnason skrifar
Skoðun Hver króna skilar sér margfalt tilbaka! Nokkur dæmi um ráðdeild í rekstri Borgarbókasafnsins Guðrún Dís Jónatansdóttir skrifar
Skoðun Mun Ísland missa af hundruðum milljarða? Einar Örn Ólafsson,Daði Pálsson,Jón Kjartan Jónsson,Steinþór Pálsson,Margrét Ágústa Sigurðardóttir skrifar
Skoðun Námsmat, aðalnámskrá og fagleg ábyrgð skólastjóra Hjálmar Bogi Hafliðason,Jón Páll Haraldsson,Kristín Jóhannesdóttir,Margrét Sverrisdóttir,Snædís Valsdóttir,Þóranna Rósa Ólafsdóttir skrifar
Mun Ísland missa af hundruðum milljarða? Einar Örn Ólafsson,Daði Pálsson,Jón Kjartan Jónsson,Steinþór Pálsson,Margrét Ágústa Sigurðardóttir Skoðun
Fjárhagsstaða Hafnarfjarðar er grafalvarleg og nauðsynlegt að grípa í taumana strax Árni Rúnar Þorvaldsson Skoðun
Námsmat, aðalnámskrá og fagleg ábyrgð skólastjóra Hjálmar Bogi Hafliðason,Jón Páll Haraldsson,Kristín Jóhannesdóttir,Margrét Sverrisdóttir,Snædís Valsdóttir,Þóranna Rósa Ólafsdóttir Skoðun
Ferkílómetrar eða fólk? Hagsmunir Hveragerðis í nýju orkufrumvarpi Lárus Jónsson,Jónas Guðnason Skoðun