Skoðun

Hver ber á­byrgð þegar vernd barns týnist milli kerfa?

Inga Henriksen skrifar

Barn sem hefur búið við ofbeldi getur orðið viðfangsefni barnaverndar, sýslumanns og dómstóla samtímis. Hver stofnun starfar samkvæmt eigin lögum og verklagi, en reynslu barnsins verður ekki skipt upp með sama hætti. Þvingandi stjórnun getur haldið áfram eftir sambúðarslit með málarekstri og kröfum um upplýsingar sem viðhalda ótta og óvissu. Þegar stofnanir afmarka viðfangsefni sín án þess að greina heildarmynstur ofbeldisins er hætt við að verndarskyldan víki fyrir formlegri verkaskiptingu.

Hér reynir jafnt á faglegt mat og lögfræðilega þekkingu. Viðbrögð foreldris sem leitast við að vernda barn sitt geta verið túlkuð sem samstarfsleysi, á meðan ítrekaður málarekstur hins foreldrisins er metinn sem eðlileg hagsmunagæsla. Án skilnings á valdaójafnvægi og þvingandi stjórnun getur athyglin færst frá hegðuninni sem veldur óöryggi yfir á viðbrögð þess sem reynir að bregðast við henni.

Viðvaranir sem hafa legið fyrir árum saman

Í úttekt GREVIO, sérfræðinganefndar Evrópuráðsins, árið 2022 komu fram alvarlegar athugasemdir við meðferð forsjár- og umgengnismála á Íslandi. Samkvæmt upplýsingum sem nefndinni bárust var hætta á að foreldri sem greindi frá heimilisofbeldi eða mætti ekki á sameiginlegan fund af öryggisástæðum væri metið ósamvinnuþýtt. Nefndin varaði einnig við notkun hugmynda um foreldraútilokun án fullnægjandi skilnings á ofbeldi eftir sambúðarslit.

GREVIO lýsti jafnframt áberandi skorti á sérhæfðri þekkingu meðal sérfræðinga barnaverndar á áhrifum líkamlegs og kynferðislegs ofbeldis á börn. Tilmælin beindust að fagfólki í barnavernd, hjá sýslumönnum og innan dómstóla: Ofbeldissaga þyrfti að hafa raunverulegt vægi við áhættumat og úrlausn mála, með öryggi barna og þolenda í forgangi.

Innlendar ábendingar höfðu einnig borist stjórnvöldum. Í umsögn til Alþingis í febrúar 2022 bentu samtökin Líf án ofbeldis á að sýslumannsembættin væru ekki tilgreind í fyrirhuguðu samstarfi stjórnvalda um upplýsingamiðlun í heimilisofbeldismálum. Samtökin kölluðu eftir skýrari ábyrgð og samhæfingu milli kerfa og ítrekuðu í desember 2023 kröfur um endurskoðun lagaumhverfis forsjár- og umgengnismála. Gagnrýnin laut þannig ekki aðeins að einstökum úrlausnum, heldur forsendum þess að lögbundin vernd skilaði sér í framkvæmd.

Skráningarskortur takmarkar eftirlit

Árið 2022 óskaði Jóhann Páll Jóhannsson ásamt öðrum þingmönnum eftir skýrslu um áhrif heimilisofbeldis við úrskurði um umgengni. Skýrsla dómsmálaráðherra frá 2024 sýndi að málsástæður, þar á meðal ofbeldi, voru almennt ekki skráðar sérstaklega í málaskrárkerfum sýslumanna og ráðuneytisins. Því þurfti að lesa úrskurðina sjálfa til að greina mál þar sem ofbeldi kom við sögu.

Af 1.205 umgengnisúrskurðum frá árunum 2000–2021 komu fram ásakanir um ofbeldi í 343 málum, hvort sem þær voru studdar gögnum eða ekki. Yfirferðin tók ekki til allra undirliggjandi málsgagna og niðurstöðurnar segja því hvorki til um heildarumfang ofbeldis né hvort það hafi verið staðfest. Þær sýna hins vegar takmarkanir á því að rannsaka með samræmdum hætti hvernig ofbeldissaga er metin við ákvarðanatöku.

Þetta er meira en skráningartæknilegt álitaefni. Án samanburðarhæfra gagna veikjast forsendur þess að greina mynstur, meta samræmi í úrlausnum og veita stofnunum sjálfstætt aðhald vegna eigin framkvæmdar.

Upplýsingagjöf getur aukið hættu

Hér birtist önnur mótsögn. Þolendur eru hvattir til að greina frá ofbeldi og leggja fram gögn, en viðkvæmar upplýsingar geta í kjölfarið borist þeim einstaklingi sem þeir óttast. Upplýsingaréttur og andmælaréttur eru grundvallarforsendur réttlátrar málsmeðferðar. Í málum sem einkennast af þvingandi stjórnun getur afhending upplýsinga um ótta, öryggisráðstafanir, stuðningsnet eða frásagnir barna þó skapað hættu á frekari þrýstingi, hótunum eða hefndaraðgerðum.

Þolandi getur því staðið frammi fyrir því að þurfa að upplýsa stjórnvöld um hættuna án þess að vita með vissu hvernig upplýsingunum verður miðlað. Samkvæmt 45. gr. barnaverndarlaga er heimilt, að uppfylltum skilyrðum og með rökstuddum úrskurði, að takmarka aðgang að tilteknum gögnum vegna hagsmuna barns. Heimildin nær ekki sjálfkrafa til annarra stjórnvalda en undirstrikar nauðsyn þess að meta öryggisáhættu samhliða upplýsingarétti, fremur en að líta á miðlun gagna sem áhættulaust formsatriði.

Verndarskylda sem nær yfir stofnanamörk

Barnavernd rannsakar aðstæður barns og metur verndarþörf þess. Sýslumaður leysir úr umgengniságreiningi og dómstólar fjalla meðal annars um forsjá og lögheimili. Ábyrgð þessara aðila er ekki sú sama, en enginn þeirra getur metið hagsmuni barns án þess að taka viðeigandi tillit til fyrirliggjandi upplýsinga um ofbeldi. Réttur barns til að tjá eigin reynslu verður jafnframt að hafa raunverulegt vægi, óháð afstöðu foreldranna.

Í október 2026 kallaði Jenný Kristín Valberg, teymisstýra Bjarkarhlíðar, eftir sérstöku ferli utan sáttameðferðar þegar ofbeldi kemur við sögu og áhættumati sem taki mið af öryggi barna og þolenda. Sambærilegt markmið kemur fram í nýrri opinberri stefnumótun. Í landsáætlun stjórnvalda gegn kynbundnu ofbeldi 2026–2030 er gert ráð fyrir endurskoðun barnalaga og hjúskaparlaga með það meðal annars að markmiði að þolendur þurfi ekki að gangast undir sáttameðferð með gerendum. Aðgerðin er þó enn skráð á byrjunarstigi og er áætluð árin 2026–2028.

Það er því rétt að viðurkenna áformin en jafnframt krefjast þess að framgangur þeirra sé sýnilegur og metinn út frá raunverulegri vernd.

Frá formlegri málsmeðferð til raunverulegrar ábyrgðar

Ítrekaðar viðvaranir og opinberar skýrslur kalla á meira en yfirlýsingar um aukna vitund. Nauðsynlegt er að sýna fram á hvernig sérþekking, samræmt áhættumat, örugg upplýsingameðferð og samstarf stofnana birtast í ákvörðunum. Óháð úttekt á stjórnsýsluframkvæmd barnaverndar og sýslumanna, ásamt kerfisbundinni rannsókn á mati á ofbeldi í dómsúrlausnum, myndi styrkja þann þekkingargrundvöll.

Barn á ekki að bera afleiðingar þess að stofnanir greini ekki heildarmynd ofbeldis. Þolandi á heldur ekki að standa frammi fyrir því að upplýsingagjöf í þágu verndar geti orðið nýtt tæki til stjórnunar án þess að áhættan sé metin og viðeigandi ráðstafanir gerðar.

Ábyrgð stjórnvalda verður ekki tæmd með því að fylgja formlegu verklagi. Hún felst einnig í því að geta sýnt fram á að framkvæmdin nái þeim verndarmarkmiðum sem lögunum er ætlað að tryggja.

Höfundur er á lokaári í meistaranámi í félagsráðgjöf til starfsréttinda.




Skoðun

Sjá meira


×