Brynjar sé Lamine Yamal handboltans: „Hef aldrei séð annað eins“ Aron Guðmundsson skrifar 3. október 2026 10:01 Brynjar Narfi Arndal í leik með FH vísir/Anton FH-ingurinn ungi, Brynjar Narfi Arndal, vakti verðskuldaða athygli með liði sínu í fyrstu umferð Evrópudeildarinnar á dögunum. Einn af silfurdrengjum Íslands frá Ólympíuleikunum í Peking árið 2008 kallar hann Lamine Yamal handboltans.
Brynjar Narfi er aðeins 16 ára gamall og er einn af efnilegustu leikmönnum okkar Íslendinga í handbolta. Segja má að frumraun hans í Evrópudeildinni hafi verið frábær en hann skoraði átta mörk í spennandi leik gegn spænska liðinu Bidasoa sem lauk með sigri Spánverjanna. Tilþrif Brynjars Narfa í leiknum voru hins vegar nokkur og hefur reikningur Evrópudeildarinnar vakið athygli á þeim í færslu á samfélagsmiðlinum Instagram. View this post on Instagram A post shared by EHF European League (@ehfel_official) „Enn einn Íslendingur til þess að fylgjast með,“ segir í færslu Evrópudeildarinnar og með fylgja klippur af Brynjari Narfa í leiknum gegn Bidasoa. Brynjar Narfi varð á sínum tíma yngsti leikmaðurinn til að spila í efstu deild hér á landi, aðeins 14 ára, sjö mánaða og 15 daga gamall og sló hann þar með met núverandi þjálfara síns hjá FH, Arons Pálmarssonar. Af því tilefni hittir íþróttafréttamaðurinn Stefán Árni Pálsson, Brynjar Narfa og föður hans þjálfarann Sigurstein Arndal. „Ég ætla ekki að ljúga því og mig langar alla leið. Ég geri mér líka grein fyrir því að það er svaklega vinna þar á bak við. Já, ég ætla alla leið,“ sagði Narfi í því viðtali og greindi frá því að Aron Pálmarsson væri hans fyrirmynd í handboltanum. Nú spilar hann undir hans stjórn. Annar FH-ingur, silfurdrengurinn Logi Geirsson, segir Brynjar Narfa vera Lamine Yamal handboltans. Yamal er gulldrengur spænska stórveldisins Barcelona sem og spænska landsliðsins í fótbolta: „Sextán ára Haukur Þrastar var rosalegur. Þá hélt ég að geta miðað við aldur hefði náð nýjum hæðum. Svo kemur þessi nokkrum árum seinna. Hef aldrei séð annað eins. Þetta er Yamal handboltans,“ skrifaði Logi í færslu á samfélagsmiðlinum X. Haukur Þrastar 16 ára var rosalegur. Þá hélt ég að geta miðað við aldur hefði náð nýjum hæðum. Svo kemur þessi nokkrum árum seinna. Hef aldrei séð annað eins🪄 Þetta er Yamal handboltans. #handbolti https://t.co/vzuz3qMKKH— LogiGeirs (@logigeirsson) October 1, 2026
Olís-deild karla FH Evrópudeild karla í handbolta Mest lesið Rekinn frá Stjörnunni Körfubolti Skömmin sé nægileg refsing: „Það sem gerðist þetta kvöld er óásættanlegt“ Fótbolti Ingibjörg orðlaus: „Hversu heppinn er þessi litli strákur?“ Fótbolti Kvaddi Val og sló í gegn eftir fullyrðingar um lélegt hugarfar Íslenski boltinn Lætur Ingu Sæland heyra það: „Óboðlegt og frekar hrokafullt“ Sport „Eins og staðan er núna er Álftanes langt á undan okkur“ Körfubolti „Munar alveg að þurfa ekki að spila 38 mínútur í leik“ Körfubolti „Íslensk knattspyrna er að kveðja mjög góðan mann“ Fótbolti Arnar um agabrot landsliðsmanna: „Mikil vonbrigði fyrir mig persónulega“ Fótbolti „Þetta er alltaf eitthvað limbó“ Körfubolti Fleiri fréttir Átján ára með fjórtán mörk og Haukar fljúga áfram Afturelding í annað sæti Stórleikur Hauks í sáru tapi og Andri náði ekki að mæta pabba Úr leik þrátt fyrir sjö mörk Einars Braga Gísli markahæstur og Bjarki fagnaði stórsigri Nýr styrktaraðili dönsku úrvalsdeildarinnar í handbolta umdeildur Arnór Snær: „Þvílíka veislan“ FH þurfti að þola annan skell í Portúgal Valur - Tatabánya 38-34 | Annar frábær Evrópusigur Sá besti óvænt orðaður við brottför „Það rignir ekkert inn peningum“ Mál á borði lögreglu eftir leik hjá liði Donna Benedikt birtir mynd frá slysstað HK sótti fyrsta sigurinn með einu marki Flautumark í sigri Viggós á Reyni Þungt tap Íslendingaliðsins Viktor öflugur í öruggum sigri Enn með fullt hús ÍBV vann toppslaginn Uppgjörið: Fram - Valur 25-30 | Valur stöðvaði sigurgöngu Fram FH skoraði hátt upp í fimmtíu mörk gegn Fram Juku verulega á áhyggjur Norðankvenna Cornelia snýr aftur til Íslands Viktor Gísli varð fárveikur á HM Bikarmeistararnir flugu áfram og Afturelding vann í Kópavoginum Íslenskir leikmenn að skila sigrum í Meistaradeildinni Gengi Hauks og félaga ætlar ekki að batna Norska stjarnan lenti í árekstri við dómara Ómar Ingi og Gísli Þorgeir áttu báðir stórleik í Meistaradeildinni Góður leikur dugði ekki til fyrir Elínu Klöru Sjá meira